Morgunblaðið - 19.12.1993, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 19.12.1993, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 51 „Þetlaer svo gaman“ Rætt við bandarískan knattspyrnuþjálfara HVERS vegna er knatt- spyrna sú íþrótt í Bandaríkj- unum sem vex örast að vin- sældum meðal barna og unglinga, svo að nú æfa hana milljónir bandarískra ungmenna? Ástæðurnar eru auðvitað margar, en felast meðal annars í því að fjöldi fólks er hér vestra eins og heima á íslandi reiðubúinn til þess að fórna ómældum tíma og leggja á sig mikla fyrirhöfn til þess að gera börnum og unglingum fært að leggja stund á knatt- spyrnu. Adrian Steel er í þessum hópi. Hann er rösklega fertugur og alla virka daga er hann að finna á skrifstofum eins fSR™ af stfrsiu, Vós- Jónsson mannafyrirtækjum skrifar frá Bandaríkjanna í Bandaríkjunum miðborg Washing- ton. Þar er hann einn af 550 lögmönnum fyrirtæk- isins, en starfsmenn skipta þús- undum. En þegar vinnu lýkur síðdegis og um helgar varpar Adrian frá sér málavafstrinu og beinir hugan- um að öðru — knattspyrnu. Hann er einn af mörgum sjálfboðaliðum í MacLean í Virginíu, þar sem hann býr, sem fórnar dijúgum hluta frítíma síns til þess að þjálfa unga áhugamenn um knattspyrnu. Adrian Steel þjálfar hóp átta ára stúlkna, því að fótboltaáhuginn er ekki síðri hjá þeim en strákunum. Stúlkumar æfa á hveiju föstudags- kvöldi og laugardagsmorgna er svo keppt. Adrian leikur svo sjálfur knattspymu einu sinni í viku. — Ætli það fari ekki svona 8-10 klukkustundir á viku í fót- boltann hjá mér, segir hann. Meg- inforsendan fyrir þessu er auðvitað sú, að önnur dætra minna æfír knattspyrnu, bætir hann svo við, annars gæti ég ekki varið það gagnvart fjölskyldunni að nota sem svarar heilum degi í viku hverri í fótboltann. En þetta er óneitanlega mjög skemmtilegt. Ég hef alltaf haft gaman af því að vinna með bömum og held, að ég nái vel til þeirra og hafí gott lag á þeim — ekki síst á þessum aldri sem stelpumar mínar eru. Við skemmtum okkur vel. í Bandaríkjunum er mjög al- gengt að fólk flytjist landshoma á milli vegna atvinnu sinnar nokkmm sinnum á starfsævinni. Adrian Steel er þar engin undan- tekning. Þótt hann hafí nú um langt skeið búið í Virginíu, rétt utan við Washington, er hann ættaður frá Missouri og þar byij- aði hann að spila knattspyrnu fyr- ir aldarij'órðungi. — Síðan hef ég haft áhuga á þessari íþrótt, segir hann, þótt ég hafi raunar iðkað ýmsar aðrar greinar íþrótta líka. Um tíma lék ég körfubolta, hafnabolta og ruðn- ing og var jafnvel líka í ijölbragða- glímu, segir hann og hlær — en ég ar nú ekki góður í neinu af þessu og er svo sem ekki sérstak- ur snillingur í knattspyrnunni heldur, bætir hann við. Þetta er bara svo gaman — að sjá hvað stelpunum fer fram og hvað það er mikill hugur í þeim. En hvaða skýringar hefur Adr- ian Steel á þeim mikla áhuga sem nú er á knattspyrnu í Bandaríkjun- um? — Ástæðurnar em sjálfsagt margar, segir hann. Hér fyrr á tíð var áhugi á knattspyrnu oft undir því kominn hvaðan menn voru. Italskir innflytjendur komu til dæmis með knattspyrnuáhugann í farteski sínu og þess vegna var knattspyrna oft leikin í kaþólskum skólum, þótt áhuginn hafí auðvitað ekki verið bundinn við ítali eina saman. Nú í seinni tíð hefur legið hingað stríður straumur innflytj- enda frá Rómönsku Ameríku. Þar er mikill áhugi á knattspyrnu og það á vafalítið eftir að segja til sín í bandarískri knattspymu, þegar fram í sækir. Annars er það eftir- tektarvert, að áhugi á þessari íþrótt er mjög misjafn eftir lands- hlutum hér — hann er mestur meðal unglinga í Kalifomíu og Texas, þar sem nú er orðið mikið af fólki frá Rómönsku Ameríku — og svo í landinu norðaustanverðu. Kannski má að einhveiju leyti rekja áhugann hér í Virginíu til þess að hér — ekki síst í grennd við Washington, býr mikið af út- lendingum frá löndum, þar sem knattspyma er mikið leikin. Ein af stelpunum mínum er til dæmis íslensk, segir hann svo og hlær við, og er bara ansi hörð af sér. — Við byijum að þjálfa börnin mjög ung — byijum með þau fimm ára og ég tel ekki fjarri lagi að af hveijum tíu börnum hér á þessu svæði leiki sjö-átta knattspymu um eitthvert skeið. Hins vegar heltast mörg þeirra úr lestinni um 11-12 ára aldur, því að þá eykst álagið í náminu til mikilla muna og ýmis áhugamál önnur fara að segja til sín. En sem stendur er ekki vafí á því að áhuginn er mjög vaxandi, hvað sem verður í framtíðinni. Bandarískir foreldrar era mjög áfram um að börij þeirra stundi íþróttir og knattspyrnan hefur ýmsa kosti frá sjónarhóli foreldr- anna — hún er tiltölulega ódýr miðað við ýmsar aðrar íþróttir og er hættuminni en ýmislegt annað sem til greina kemur, ruðningur til dæmis, þar sem hættara er við slysum og svo veitir knattspyma þeim sem stunda mjög mikla og góða líkamlega þjálfun — menn era á sífelldum hlaupum. í barna- og unglingafótboltanum er það þannig að við æfum og keppum sex mánuði á ári — þijá mánuði að vori og þijá að hausti — og þá er ekki slegið af. Heimsmeistarakeppnin, sem verður háð hér í Bandaríkjunum á næsta ári á líka vafalaust eftir að auka áhuga á knattspyrnu meðal Bandaríkjamanna, því að umfjöllun í fjölmiðlum, ekki síst í sjónvarpi, skiptir mjög miklu máli í þessum efnum. Ahuga á körfubolta má til dæmis að hluta til að minnsta kosti rekja til þess að þeir sem að þeirri íþrótt standa hafa verið mjög ötulir við að ota sínum tota — selja íþróttina. Ef Bandaríkjamenn standa sig þokkalega í heimsmeistarakeppn- inni verður það áreiðanlega til þess að efla áhugann til muna — en hvort bandarísk knattspyrna á eftir að eignast sinn Babe Ruth eða Michael Jordan á næstunni er svo annað mál — en hver veit, segir Adrian Steel — en svo er hann rokinn, því það er að byija æfing og stelpurnar hans eiga »ð keppa á morgun og hann er ákveðinn í því að láta ekki sitt eftir liggja — það skal leikið til vinnings. Kvennaklúbbur Islands að- stoðar Hjálparstofnun KVENNAKLÚBBUR íslands hef- ur ákveðið að leggja Hjálparstofn- un kirkjunnar lið í landsöfnuninni sem nú stendur yfir með sérstöku átaki nk. mánudag. Munu þær sitja við síma Kvenna- klúbbsins þann dag, 655544, og taka á móti framlögum frá einstaklingum eða fyrirtækjum sem skuldfæra má á greiðslukort. Einnig verður tekið á móti slíkum tilkynningum í síma Hjálparstofnunar, 624400. Fyrirtæki sem vilja gefa vaming í matarbúr Hjálparstofnunar geta einnig komið honum á framfæri með því að tilkynna það í síma Kvenna- klúbbsins á mánudag eða á skrif- stofu Hjálparstofnunar. TRAUSTI ÁRITAR Hina vinsælu bók sína VEÐURÁ ÍSLANDI ■ LÍF OG FJÖR í miðborginni verður sunnudaginn 19. desember frá kl. 13 til 17. Miðbæjarfélagið, Iiljómalind og Reykjavíkurborg standa fyrir jólaskemmtun á Ing- ólfstorgi. Fram koma. listamenn- irnir og sprelligosarnir Sigga Bein- teins, Ómar Ragnarsson, Hörður Torfason, Halli Reynis og Barna- bros ásamt söngvurunum Eddu Heiðrúnu, Maríu Björk og Söru Dís. Síðast en ekki síst verður hóp- ur jólasveina á staðnum. Lista- mennirnir árita plötur sínar í Hljó- malind að leik loknum. Verslanir í miðborginni era opnar kl. 13-17. í Bókaverslun ísafoldar, Austurstræti, í dag, sunnu- dag.frákl. 16-17. Allir veður- og bókaáhuga- menn velkomnir! ----- Borvél a SBE 500 R 500 wött með •Ö 0 -2800 sn./ mín. "* áfrom oa afturábak 8 13 m/m patróna, í fallegri vioartösku verS kr. stgr. s 9.990,- JÓLATILBOÐ JÓLATILBOÐ Jófcfgrfcvfcrfffifficcvvpjfi lief|cisf ... Bræðrunum Ormsson, þar bjóðast þér rafmagns- hanaverkfæri á sérstöku jólatilboðsverði AEG § •o 8 s I § I Rafhlöðuborve BSE 7.2 7.2 volt stiglaus rofi tveggja hraSa 0 -280 og 0 -770 sn./mín. ver& kr. stgr. 11.770,- Stíngsög STEP 500 500 wött með framkasti á blaði og hraðastillingu ver& kr. stgr. 13.490,- AEG Pússikubbur p VS230 150 wött 20.000 sn/ mín ( léttur oa meðfærilegur i verð kr. stgr. 8.990,- 8 £9 * 4 VELDU GJAFIR SEM ENDAST ! JÓLATILBOD JÓLATILBOÐ JÓLATILBOÐ JÓLATILBOÐ -» Umboösmenn Reykjavík og nágrenni: BYKO Reykjavík, Hafnarfiröi og Kópavogi Brúnás innréttingar.Reykjavlk Vesturiand: Málningarþjónustan, Akranesi Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi Blómsturvellir, Hellissandi Guöni Hallgrímsson, Grundarfiröi ÁsubúÖ.Búöardal Vestfiröir: Rafbúö Jónasar Þór.Patreksfiröi Edinborg, Bíldudal Verslun Gunnars Sigurössonar Þingeyri Straumur.ísafiröi Noröuriand: Kf. Steingrímsfjaröar.Hólmavík Kf. V-hún., Hvammstanga Kf. Húnvetninga, Blönduósi Skagfiröingabúö, Sauöárkróki KEA, Akureyri KEA, Dalvík Bókabúö, Rannveigar, Laugum Sel.Mývatnssveit Kf. Þingeyinga, Húsavlk Urö, Raufarhöfn Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi Stál, Seyöisfiröi Verslunin Vík, Neskaupsstaö Hjalti Sigurösson, Eskifiröi Rafnet, Reyöarfiröi Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi Suöuriand: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli Mosfell, Hellu Árvirkinn, Selfossi Rás, Þorlákshöfn Brimnes, Vestmannaeyjum Reykjanes: Stapafell, Keflavfk Rafborg, Grindavik. índeslf Heimilistæki wA § J.A. HENCELS S f= Heimilistæki og handverkfæri Heimilistæki Hnífar Heimilistæki HÁDHN Heimilistæki Gleðileg pl BRÆÐURNIR DÍœMSSCMHF Lágmúla 8, Sími 38820 Umboðsmenn um land allt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.