Morgunblaðið - 07.01.1994, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 07.01.1994, Qupperneq 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1994 Framkvæmdlr liaflnar við torg \iú Lælijargötu 4 NÚ er unnið að gerð um 600 ferm torgs sunnan og vestan megin við húsið að Lækjargötu 4 í miðbæ Reykjavíkur. Torgið verður í góðu skjóii af húsinu og mun liggja vel við síðdegissólinni á sumrin. Enn hefur því ekki verið gefíð nafn. — Þetta verður sólríkt torg i miðbænum, þar sem þarna er fremuí* opið til vesturs og Hótel Borg er það langt í burtu, sagði Ormar Þór Guðmundsson arkitekt, en hann hefur hannað torgið, auk þess sem hann hannaði nýbygging- una að Lækjargötu 4, en framkvæmdir annast ístak hf. Aðalinngangurinn inn á torgið verður frá Lælqargötu, en jafnframt er ætlunin að opna torgið út í Austurssstræti um sund með- fram Hressingarskálunum. — Þar verða fjarlægðir nokkrir skúrar og einnig gerðar endurbætur á Hress- ingarskálanum, sagði Ormar Þór ennfremur. — Veitingastaðurinn verður að vísu minni á eftir, en húsið verður gert að verzlun að hluta. Með þessu myndast þarna göngusund. Gönguleið verður einn- ig gerð inn á torgið frá Skólabrú og sömuleiðis gönguleið um undir- göng frá Austurvelli. Það verður því hægt að ganga inn á torgið á fjórum stöðum. — Þetta á að verða aðlaðandi bæjartorg, sagði Ormar Þór. — Það er þegar kominn veitingastaður á jarðhæðinni að Lækjargötu 4 og þama ætti því að vera hægt að bjóða upp á veitingar utandyra, þegar vel viðrar á sumrin. Á torginu verður upphækkun með fallegum tijám og auk þess sett þar upp sér- stæð myndastytta eftir listamann- inn Magnús Tómasson, sem hann hefur gefið heitið „Oþekkti emb- ættismaðurinn“. Tré verða einnig á jaðri torgsins, sem snýr að lóð Hót- el Borgar. Meginlitur torgsins verður rauð- ur með gráum flísum í, þannig að torgið á að skera sig að nokkm leyti úr torga- og hellulagningunni í miðborginni, sem er að miklu leyti í gráum og brúnum lit. Framkvæmdir við torgið eru þeg- ar hafnar og er ætlunin að ljúka þeim fyrir sumarið. Hugmyndin að torginu er ekki ný, en hún er í sam- ræmi við skipulag miðborgarinnar frá 1986. — Það er hins vegar ný hugmynd að koma þessari styttu fyrir á torginu, en hún mun vafalít- ið setja sinn svip á torgið, sagði Ormar Þór. Eins og fram er komið, stendur Þessi sérstæða myndastytta eftir listmanninn Magnús Tómasson mun selja sinn svip á torgið. Listamaðurinn hefur gefið henni heitið “ Óþekkti embættismaður- inn.“. torgið hlémegin við nýbygginguna að Lækjargötu 4. Á þriðju, fjórðu og fimmtu hæð hennar eru íbúðir Torgið verður hlémegin við nýbygginguna að Lækjargötu 4 og verð- ur um 600 ferm. Aðalinngangurinn inn á torgið er frá Lækjargötu, en einnig verður hægt að ganga inn á það frá Austurstræti, Skóla- brú og Austurvelli. Torgið verður rautt með gráum fiísum í. Fram- kvæmdir eru þegar hafnar og er ætlunin að ljúka þeim fyrir sumarið. og eru þær allar seldar. Önnur hæðin er hins vegar öll óseld, en hún er einkum ætluð fyrir skrifstof- ur. Þessi hæð er um 300 ferm, sem skipta má niður í einingar. Jarð- hæðin er ætluð fyrir þjónustustarf- Tiu ibúóir tíö Þorragötu óseldar ALL vel hefur gengið að selja íbúðir í fjölbýlishúsi því, sem nú er í byggingu á mótum Þorragötu og Suðurgötu í Reykjavík. í húsinu verða alls 36 ibúðir og eru 26 þeirra þegar seldar. Bygingaraðili er ístak hf., en hönnuður er Guðmundur Kr. Guðmundsson arkitekt. neðstu hæðinni eru einungis bíl- skúrar, fundarsalur og tvær hús- varðaríbúðir, en hlutdeild í þeim fylgir með í kaupunum. Það eru þegar nokkrar fráteknar af þeim tíu íbúðum, sem óseld- ar eru, sagði Þorleifur Guðmunds- son, sölumaður hjá Eignamiðlun- inni, sem hefur þessar íbúðir til sölu. — Þetta hús verður mjög vand- að að allri gerð. Það verður m. a. klætt að utan með viðhaldsfríu efni. Lyfta er í húsinu, sem er fimm hæðir, þar af fjórar íbúðarhæðir. íbúðirnar, sem eru 4ra herb og 101-124 ferm að stærð, verða af- hentar fullbúnar með fullbúinni sameign og frágenginni lóð. Þá fylgir hlutdeild í hús varðaríbúðum. Hiti verður í gangstéttum og plani. Verð á 101 ferm íbúðunum er 10.280.000 kr. en á 124 ferm íbúð- unum 12.440.000 kr. Boðið er upp á sveigjanlega greiðsluskilmála. Félag var stofnað um þessar íbúðir, sem ber heitið Skildinganes hf. og þurfa kaupendur að gerast meðlim- ir í þessu félagi. Gert er ráð fyrir, að íbúar séu eldri en 62 ára, en Reykjavíkurborg mun byggja þjón- ustusel á lóðinni. — Það er því eldra fólk, sem spyr eftir þessum íbúðum, sagði Þorleifur. — Framkvæmdir hafa gengið vel og samkvæmt áætlun, en áformað er að afhenda íbúðimar í desember á þessu ári. Reksturinn á þessu húsi verður væntanlega með allra ódýrasta móti, þar sem lítið er um óþarfa sameign. Á Vettvangur húsbréfaviðskipta Hjá okkur færðu ráðgjöf og þjónustu í húsbréfaviðskiptum. Einbýllshús á 5.000 ferm lód i Mosfellsbæ HÚSIÐ Melgerði efst við Aðaltún i Mosfellsbæ er nú til sölu hjá fast- eignasölunni Framtíðin. Þetta er fallegt tvílyft 160 ferm einbýlishús ásamt 60 ferm sjö hesta húsi og hlöðu auk 35 ferm bílskúrs. Húsin standa á 5.0000 ferm gróinni eignarlóð. Á þessa eign eru settar 13,5 millj. kr., en á henni hvíla um 4 millj. kr. Þessi eign hentar vel hestamönn- L^ÉÉ| um og öðru útvistarfólki, sem vill hafa fijálst í kringum sig, því að þarna er mjög opið svæði í kring, sagði Óli Antonsson, sölumaður hjá Framtíðinni. — Einnig ætti þess eign að henta listamönnum mjög vel, því að það er hátt til lofts í hesthúsinu og hlöðunni og auðvelta að breyta þeim í vinnusali með því að það taka básana burtu. Sánaklefi er í húsinu og aðkoma að því mjög falleg, en steinlagt plan rfieð hita er fyrir fram- an húsið. Húsið er byggt á árunum eftir 1940 og er í þokkalegu ástandi. Það stendur við Áðaltún, sem er efst í Hlíðartúnshverfi undir Lágafelli á bæjarmörkum Mosfellsbæjar og Reylq'avíkur. — Aðstaða af þessu tagi er ekki á hveiju strái, sagði Óli Antonsson ennfremur. — Það tekur aðeins um stundarfjórðung að aka Húsið er tvílyft 160 ferm einbýl- ishús með 60 ferm sjö hesta húsi og hlöðu auk 35 ferm bílskúrs. Húsin standa á 5.0000 ferm gró- inni eignarlóð. Á þessa eign eru settar 13,5 millj. kr. þaðan niður í miðbæ Reykjavíkur og það er því auðvelt að stunda vinnu þaðan á hvaða stað sem er á höfuð- borgarsvæðinu, ef vill. Vertu velkomin(n). L Landsbanki íslands Banld allra landsmanna LANDSBRÉF HF. Löggil! verðbréfafyrirtæki. Aöilí aö Verðbrélaþingi fslands. Áður en þú kaupir eða selur RÖRAMYNDIR er öruggasta aðferðin »til að athuga ástand lagna í byggingum sem verið er að kaupa eða selja. ■ til að skoða lagnir undir botnplötu, þar sem fyrirhugað er að skipta um gólfefni. »til að kanna ástæður fyrir vondu lofti og ólykt í húsum. »til að auðvelda ákvarðanatöku um viðgerðir. VALUR HELGASON Q688806 0985-40440 semi og er hún seld að hluta. Að sögn Ormars Þórs er gert ráð fyrir, að torginu verði lokað á kvöldin og það haft lokað yfir nóttina. Fast- eigna- sölur í blaðinu AgnarGústafss. 17 Ás 14 Ásbyrgi 23 Berg 24 Borgareign 13&24 Brautarholt 12 Eignaborg 12 Eignahöllin 24 Eignamiölunin 16-17 Eignasalan 4&24 Fasteignamark. 3&21 Fasteignamiðstöðin 10 Fasteignamiðlun 20 Fjárfesting 22 Framtíðin 4 Garður Gimli Hátún Hóll Hraunhamar Húsakaup Húsið Húsvangur íbúð Kaupmiðlun Kjörbýli Kjöreign Laufá Lyngvík Óðal Séreign Skeifan Valhús Þingholt 20 7 14 15 19 17 23 5 13 8 14 6 & 8 18 8 4 21 11 12 9

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.