Morgunblaðið - 07.01.1994, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1994
B 13
salar hljótum að vonast til þess eft-
ir skrykkjóttan markað á sl. ári, að
fasteignaviðskipti færist í eðlilegt
horf á nýjan leik.
Óbreytt íbúðarverð
— Ég tel, að íbúðarverð haldist
óbreytt á næstunni og að það verði
ekki verðlækkun, heldur muni verð-
ið standa í stað, sagði Gunnar Gunn-
arsson, fasteignasali í fasteignasöl-
unni íbúð. — Á síðasta ári varð um
10% lækkun á nýju íbúðarhúsnæði,
en ég held að nýsmíðin muni ekki
lækka frekar. Afföll af nýjum hús-
bréfum lækkuðu mjög mikið í kjöl-
far vaxtalækkananna og það kemur
að sjálfsögðu á móti byggingaraðil-
unum til góða. Verðlag á notuðu
húsnæði hefur haldið sér og það
ætti frekar eftir að hækka en hitt.
Að mínu mati á verð á atvinnu-
húsnæði ekki eftir að Iækka frá því
sem verið hefur, heldur hafi það
þegar náð botninum. Mér er kunn-
ugt um, að einhver brögð séu að
því, að atvinnurekendur hafi selt
húsnæði sitt í gegnum fjármögnun-
arleigur á kaupleigusamningum til
þess að styrkja rekstur sinn og telji
það hagkvæmara fyrir sig bæði
rekstrarlega og gagnvart skatti.
Gunnar kvað einhverjar breyting-
ar hafa orðið varðandi ásókn í ein-
stök hverfi á liðnu ári. Grafarvogur-
inn hefði verið eftisóttur, ekki hvað
sízt sökum hinna hagstæðu bygg-
ingarsjóðslána, sem hvíla á flestum
íbúðum þar, en það hverfi var að
mestu leyti byggt á árunum eftir
1986, þegar gamla húsnæðislána-
kerfið var í fullum gangi. Þau lán
eru nú með 4,9% vöxtum en til 40
ára, þannig að grniðslubyrðin af
þeim væri eftir sem áður hagstæð-
ari en af húsbréfunum.
Vesturbærinn og Fossvogurinn
væru enn eftirsótt hverfi, en þau
hefðu samt ekki sama forskot fram
yfir nýju hverfm og þau höfðu áð-
ur. Munurinn hefði minnkað.
— Ég á ekki von á því, að
greiðslufyrirkomulagið breytist við
kaup á íbúðarhúsnæði frá því sem
verið hefur, sagði Gunnar ennfrem-
ur. — Útborgun er yfirleitt 10-15%
við samning auk 65% í húsbréfum
eða yfirtöku á áhvílandi lánum. Af-
gangurinn er yfirleitt greiddur á
6-7 mánuðum, enda þótt engin föst
regla sé á því, en sjaldan á lengri
tíma en 12 mánuðum frá samnings-
gerð.
— Skuldsetning heimilanna er
orðin mikil, sem ekki lofar góðu,
en á móti kemur, að vextir hafa
lækkað verulega, enda kom mjög
góður kippur í fasteignasölu strax
eftir vaxtalækkunina í haust, sagði
Gunnar Gunnarsson að lokum. —
Hið nýja vaxtafyrirkomulag á hús-
bréfum með 4,75% vöxtum og síðan
sérstöku 0,25% vaxtaálagi tel ég
að breyti engu fyrir lántakandann
gagnvart húsbréfum með 5% vöxt-
um, en er auðvitað mun hagstæðara
en 6% vextirnir á gömlu húsbréfun-
um. Hins vegar skipta vaxtabætum-
ar verulegu máli, en þær eru ekki
þær sömu miðað við 5% eða 6%
vexti.
Aðal sölutíminn framundan
— Það sem einkum var áberandi
á síðasta ári, voru meiri makaskipti
á eignum en oftast áður, og ég tel,
að makaskipti eigi eftir að setja
áfram sinn svip á markaðinn á ný-
byrjuðu ári, sagði Viðar Böðvarsson,
fasteignasali í Húsvangi. — í fyrra
var aukning í sölu hjá okkur hér
miðað við árið þar á undan. Síðari
hluta árs tókum við að auglýsa opin
hús um helgar og reynslan hefur
sýnt, að bæði seljendum og kaup-
endum fínnst það mjög þægilegt að
geta gengið að því vísu, að hús eða
íbúðir, sem auglýstar eru til sölu,
verði til sýnis á ákveðnum tíma og
þá verði einhver til staðar til þess
að sýna þær.
Þetta ár byrjar vel. Það kemur
mikið inn af eignum þessa dagana
og það er mikið um áhugasama
væntanlega kaupendur sem eru að
leita sér að húsnæði. Nú fer í hönd
mesti viðskiptatími ársins og því
heppilegasti tíminn fyrir fólk til
þess að skrá eignir sínar til sölu og
um leið heppulegasti tíminn fyrir
kaupendur, því að úrvalið er þá
mest. Fólki finnst það líka þægilegt
að kaupa fasteignir á þessum tíma
miðað við það, að afhending fari
fram að vorlagi. I fyrra seldum við
hér mikið af stórum einbýlishúm í
janúar, febrúar og marz og það var
einnig góð hreyfing á smærri íbúð-
um.
Ég geri frekar ráð fyrir stöðug-
leika á fasteignamarkaðnum á þessu
ári, enda þótt aldrei sé hægt að
fullyrða um slíkt fyrirfram. Hvert
ár er þar eins og óskrifað blað. Ég
hef ekki trú á því, að sjómaanna-
verkfallið nú eigi eftir að hafa mik-
il áhrif á markaðinn og ef það verð-
ur stutt, hefur það engin áhrif á
markaðinn. Viðar kvaðst álíta,
að litlar breytingar hefðu orðið á
síðasta ári varðandi eftirspum eftir
einstökum hverfum og sagði að lok-
um. — Ef eignir í eftirsóttum en
rótgrónum hverfum seljast á lágu
verði, má oftast rekja það til við-
haldsleysis, en ekki tií þess að hverf-
ið sé að dragast aftur úr. Vesturbær
og Fossvogur eru t. d. eftir sem
áður mjög vinsæl hverfi og verða
það vafalaust áfram.
Líflegur markaður
— Ég hef starfað við fasteigna-
sölu í 17 ár, en þetta er í fyrsta
sinn, sem ég hef verið búinn að
tala við 25 hugsanlega kaupendur
fyrir hádegi fyrsta virka daginn eft-
ir áramót, sagði Friðrik Stefánsson,
fasteignasali í Þingholti. — Þetta
þykir mér benda til þess, að það sé
líflegur markaður framundan.
Raunar var fasteignamarkaðurinn
mjög líflegur fyrir árammót og eina
nærtæka skýringin er auðvitað
vaxtalækkunin í haust.
— Atvinnuhúsnæði lækkaði lítil-
lega í verði á síðasta ári og á því
eru tvær skýringar, sagði Friðrik
ennfremur. — Onnur er sú, að
brunabótamat á atvinnuhúsnæði var
orðið mjög fjarlægt raunveruleikan-
um, en bankar notuðu áður þetta
mat sem grundvöll veðsetningar.
Nú hefur því verið steinhætt og í
stað þess láta bankarnir nú meta
fasteignirnar fyrir sig í hverju ein-
stöku tilviki. Hin ástæðan er sú, að
ýmis fyrirtæki hafa lagt upp laup-
ana, sameinazt eða húsnæðisþörf
þeirra var ekki eins mikil og gert
hafði verið ráð fyrir. Allt þetta lækk-
ar verð á atvinnuhúsnæði í heild. Á
móti kemur, að góðar eignir á góðu
stöðum, sérstaklega þar sem bíla-
stæði eru næg, halda fullu verði og
hafa jafnvel hækkað.
Íbúðarhúsnæði lækkaði líka örlít-
ið á síðasta ári og dýrar eignir, sem
metnar voru á 20 millj. kr. og þar
yfir, lækkuðu talsvert. Þó er sama
sagan þar. Góðar eignir á góðum
stöðum hafa selzt vel og haldið sér
í verði.
— í heild er ég mjög bjartsýnn
á þetta nýbyijaða ár og tel að vaxta-
lækkanirnar muni skila sér í auk-
inni eftirspurn á árinu, sagði Friðrik
Stefánsson áð lokum.
KAUPA
FASTEIGN
ER
ÖRUGG
FJÁR-
FESTING
£
Félag Fasteignasala
Kópavogsbraut - mjög gott verð
Til sölu skemmtil. ca 110
fm íb. á tveimur hæðum.
Allt sér. Á neðri hæð góðar
stofur, eidhús og snyrting.
Á efri hæð 3 herb. og bað.
Stór lóð. Ca 30 fm bílskúr.
Verð aðeins 7,9 millj,
Grafarvogur ~ raðhús
Vorum að fá í einkasölu ca*150 fm raðhús á 2 hæðum
auk ca 25 fm bílskúrs við Garðhús. Verð 11,3 millj.
Skipti mögul. á ódýrari eign, helst 4ra herb. íb.
Hrísrimi - lúxusíbúð - gott verð
Til sölu einstakl. glæsil. ca 91 fm 3ja herb. íb. á 3.
hæð. Merbau-parkt. Glæsilegar innr. Sérþvottah. í íb.
Verð 8,3 millj.
Borgareign fasteignasala, sími 678221.
2ja herb.
Efstasund — 2ja
2ja herb. glæsil. íb. á 2. hæð ca
50 fm. íb. er öll mikið endurn.
Nýl. gler og gluggar. Góð lán áhv.
Reynimelur — 2]a
herb. íb. 2ja herb. falleg fb.
55 fm. Fallegar innr. Göð lán áhv.
Freyjugata. 2ja herb. ib. á
1. hæð ca 45 fm í tvíbhúsi. Góð
lán áhv. frá byggsj. 2,2 millj.
Verð 3,950 millj.
ICrummahólar. 2ja herb.
góð ib. 45 fm á 2. hæð i lyftuh.
ásamt stæði í bilsk. Góð lán áhv.
Verð 4,9 millj.
Ásvallagata. 2ja herb. fal-
leg íb. 45 fm. Stórar svalir. Sór-
inng.
Gaukshólar. 2ja herb. fb.
á 1. hæð 56 fm. Suðursv. Góð
lán áhv. Falleg samelgn. V. 4.5 m.
Hverafold. 2ja herb. falleg
íb. á jarðhæð 56 fm auk stæðis
í bilgeymslu 26 fm. Fallegar innr.
Góð lán áhv. Verð 5,9 millj.
Næfurás - útsýni.
2ja-3ja herb. ib. 108 fm é jarð-
hæð. Sérlóð. Útsýnl yfir Rauða-
vatn. lausstrax. Fallegsameign.
Trönuhjalli. 2ja herb. fal-
leg ib. á 1. hæð 56 fm. Sérgarð-
ur. Góð lán áhv.
Vitastígur. 2ja herb. risib.
32 fm. Góðar innr. Verð 3,2 miilj.
Laus.
Þingholtsstræti.
Stúdíóíb. 35 fm á 2. hæð mikiö
endurn. Nýi. parket. Góð lán
áhv. Verð 3,9 millj.
Vitastígur. 2ja herb. íb. á
jarðh. 45 fm. Mögul. á stækkun.
Verð 3,8 millj.
Laugavegur. 2ja herb. ib.
35 fm. Nýtt gler og gluggar. Verð
3,5 millj.
3ja herb.
Eyjabakki. 3ja herb. góð Ib.
á 3. hæð, 78 fm. Þvherb. í ib.
Áhv. góð lán bygglngarej. Tvær
geymslur í sameign. Sameign öll
nýuppgerð. Verð 8,5 millj. laus.
Rauðarárstígur. 3ja
herb. íb. 60 fm í kj. Góður garð-
ur. Verð 3,9 millj.
Grettisgata. 3ja herb. fat-
leg ib. á 1. hæð 67 fm. Húsið
er mlkið endum. Góð lán áhv.
Verð 5,8 millj.
Laugavegur. 3ja herb. fal-
leg risib. 74 fm. Góðar innr. Sér-
inng. Sér bilastæði.
Stóragerði. 3ja herb. falleg
ib. ca 85 fm á 4. haíð auk herb.
í kj. - Fallegt útsýni. Laus.
Hlíðarhjalli. 3ja herb. fal-
leg ib. á 3. hæð 97 fm. Stórar
svalir. Parket. Fallegar innr. Áhv.
húsnlán 4,9 millj.
Álfhólsvegur. 3js herb.
ib. á 1. hæð ca 68 fm. Góð sam-
elgn. Áhv. húsnlán 3,1 mtllj.
Hraunbaer. 3Ja herb. falleg
ib. 85 fm á 2. hæð. Suöursv.
Falleg samelgn. V. 6,7-6,8 m.
Kringlan. 3ja herb. glæsil.
ib. á 2. hæð m. sérinng. Mögul.
á 10 fm garöstofu. 26 fm bíl-
skýli. Stórar suðursv. Parket.
Verð 8,9 millj.
Seílugrandi. 3ja herb. ib.
á tveimur hæðum, 87 fm auk
bílskýlis. Stórar svalir. Áhv. 3,8
millj. Byggsj. Falleg sameign.
Verð 7,5 millj.
Austurberg. 3ja herb. fal-
leg ib. 78 fm auk bilsk. Suöursv.
Góð lán áhv. Verð 6,9 millj.
Vesturberg. 3ja herb. íb.
á 1. hæð 74 fm. Góð lán áhv.
Verð 6 millj.
Básendi. 3ja herb. íb. á 1.
hæð 80 fm. Öll ný endurupp-
gerð. Nýtt parket á gólfum. Bllsk-
réttur. Verð 7,5 millj. Laus.
4ra herb. og stærri
Álfheimar. 4ra herb. falleg
íb. ó 3. hæð 100 fm Mikið end-
urn. Stórar suöursv. Mögul. á
garðstofu. Áhv. Byggsj. 2,4 millj.
Kleppsvegur. 4ra herb.
ib. á 1. hæð 94 fm. Góðar suð-
ursv. Makaekipti mögul. á stærri
eign í sama hverfi.
Spóahólar. 4ra herb. íb.
95 fm á 3. hæð í þriggja hæða
húsi. Þvherb. í ib. Verö 7,5 millj.
Engihjalli. 4ra herb. góð íb
á 2. hæö 98 fm. Góð fén áhv.
Blöndubakki. 4ra herb. íb.
á 3. hæð 116 fm auk herb. í kj.
Glæsil. útsýni. Góð sameign.
Fellsmúfi. 4ra he.ó. íb. ca
100 ftn. Parket. Fallag sameign.
Góð lán áhv. Makaskiptf mögul.
é ib. i Bökkunum.
Fífusel. 4ra herb. íb. á 2.
hæð 97 fm. Stórar svalir. Stæði
í bflskýli 28 fm. Verð 7,5 millj.
Boðagrandi. 4ra herb. fal-
leg ib. 92 fm auk bBskýlis. Lyfta.
Húsvörður. Gervihnsjónvarp.
Fráb. útsýni. Gufubað i sameign.
Áhv. húsbréf 4,7 mlllj. Maka-
skipti mögul.
Sörlaskjól. 4ra herb. góð
ib. á 1. hæð 103 fm auk 30 fm
bílsk. Fallegur garður. Suðursv.
Laus.
Hraunbær. 5 herb. falleg
endaib. 138 fm á 3. hæð. Áhv.
húsbr. 3,9 millj. Parket. Suöursv.
Þvhús i ib. Laus.
Frostafold. 5-6 herb. íb. á
3. hæð, 138 fm í lyftuhusi. Tvenn-
ar svalir. Bílskýli. Góð lán áhv.
Verð 11,5 millj. Makask. mögul.
á sérbýli í sama hverfi.
Selvogsgrunn. Sérhæðá
1. hæð 110 fm auk bilsk. Suð-
ursv. Sérinng. Góð lán. Maka-
skipti mögul. á minni eign.
Krummahólar. 6-7 herb.
falleg „penthouse“-íb. 165 fm auk
bílskýlis. Stórar svalir. Glæsil. út-
sýni yfir borgina. Góð lán áhv.
makaskipti mögul á tvíbýlish. eða
bein sala.
Laugarásvegur. Glæsil.
efri sérh. 126 fm auk 35 fm bilsk.
Vinkllsvalir. Góð lán áhv. FaHegt
útsýní.
Torfufell. Raðhús á einni hæð 132 fm auk bilsk. Fallegar innr. Parket.
Suðurgarður.
Yrsufell. Raðhús á élnnl hæð 142 fm auk blfsk. Fallegar nýl. innr. Suður-
garður.
FÉLAGIIFASTEIGNA5ALA
Gunnar Gunnarsson,
lögg. fasteignasali, hs. 77410.