Morgunblaðið - 26.01.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANLIAR 1994
21
Sænskur ræningjaflokkur upprættur
Hermenn og lög-
reglumenn frömdu
þaulskipulögð rán
Reuter
Vopnahlé íLeshoto
STRÍÐANDI fylkingar í Leshoto sömdu í gær um
vopnahlé og að þær myndu ganga til samnninga
við stjórnvöld. Leshoto er smáríki í suðurhluta
Afríku og hófust bardagar tveggja fylkinga í síð-
ustu viku. Tveir hermenn féllu og fjórir óbreyttir
borgar særðust í átökum á sunnudag. Að sögn
yfirvalda í Leshoto er orsök átakanna krafa her-
manna um 100% launahækkun og aðrar kjarabæt-
ur. Neita yfirvöld með öllu að um byltingu hafi
verið að ræða.
Jarðskjálftasvæðin í kringum Los Angeles í Kaliforníu
Rigning eykur á erfið-
leika fórnarlambanna
Los Angeles. Ruter.
ÚRHELLISRIGNING sem hófst á mánudagskvöld jók á erfiðleika
fórnarlamba jarðskjálftanna í Kaliforníu en um 25.000 manns
urðu heimilislaus af völdum skjálftanna fyrra mánudag. Hafast
flestir við í tjaldbúðum sem þjóðvarðlið hefur komið upp í görð-
um og á opnum svæðum en þau eru ekki vatnsheld og var vistin
því vot í þeim meðan veðrið gekk yfir í fyrrinótt.
sér hins vegar þyrlu eða litla flug-
vél.
Undanfarin tvö ár hefur skipu-
lagður hópur manna hvað eftir ann-
að lagt til atlögu gegn sænskum
bönkum, peningaflutningabílum og
pósthúsum. Ránin voru alltaf fram-
kvæmd með leifturhraða, stóðu
aldrei lengur en í þrjár mínútur og
einn meðlimanna stóð yfir hinum á
meðan með stoppúr. Ræningjarnir
voru alltaf í dökkum fötum með
hettu fyrir andlitinu og vopnaðir
vélbyssum og öðrum áhrifamiklum
vopnum, sem þeir notuðu meðal
annars til að skjóta vaktmyndavélar
í tætlur. Skipulagið leiddi hugann
að hernum, svo hópurinn gekk und-
ir nafninu „herklíkan“. Einnig var
einkennandi hve vel ræningjarnir
voru alltaf að sér um hvernig stað-
ið var að löggæslu, til dæmis í sam-
bandi við peningaflutninga, því þeir
virtust vita upp á hár hvenær lög-
reglan gætti þeirra. í einu ráni var
lögreglumaður skotinn til bana, en
ekki hefur enn verið gefið upp hvort
hópurinn sé viðriðinn það rán. Alls
hefur hópurinn haft sem samsvarar
um fjörutíu milljónum íslenskra
króna upp úr krafsinu.
Sænska lögreglan hefur haldið
handtökum og nöfnum leyndum, en
svo virðist sem tólf manns sitji í
fangelsi vegna málsins. Einn þeirra
er 55 ára yfirmaður úr sænska
hernum, sem hefur meðal annars
gegnt störfum á ófriðarsvæðunum
í gömlu Júgóslavíu. Með í hópnum
er einnig sonur hans, sem er lög-
regluþjónn, og tveir nemar í lög-
regluskólanum. Þrír hinna fangels-
uðu hafa hermenntun.
Ekki hefur fundist snefill af ráns-
fénu, en vopnabúr hópsins fannst
grafið í jörðu á sveitabæ, sem son-
ur yfirmannsins hafði á leigu. Þar
voru um 200 hervopn, en myndir
af þeim hafði hópurinn notað til að
reyna að kúga um 300 milljónir
íslenskra króna úr yfirvöldum, með
hótunum um árásir á flugvélar
SAS, sænsku járnbrautirnar, Finn-
landsfeijurnar og lögreglu. Til þess
kom þó aldrei.
Nokkrir meðlimanna náðust á
aðfangadagskvöld, þegar bíll þeirra
hafnaði í skurði á flótta undan lög-
reglunni eftir rán. Vopnafundurinn
og fleiri vísbendingar hafa leitt til
þess að nokkrir meðlimanna hafa
játað á sig verknaðinn.
Unnið að sáttargerð í máli Michaels Jacksons
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
í RÚM tvö ár hefur hópur ræningja skelft íbúa Stokkhólms með
þaulskipulögðum ránum. Sökum faglegs handbragðs hefur hópurinn
gengið undir nafninu „herklíkan“. Nú hefur kjarni hans náðst og
þá hefur komið í ljós að hann bar nafn með rentu, því í honum er
foringi úr sænska hernum, aðrir með hermenntun og lögreglumenn.
Hópurinn réð yfir myndarlegu vopnasafni, sem meðal annars hefur
verið notað til að kúga fé af yfirvöldum, með hótunum um árásir á
SAS, járnbrautir, Finnlandsfeijurnar og lögregluna.
Drengurinn fái milljónir
dala fyrir að bera ekki vitni
Los Angeles. Reuter, The Daily Telegraph.
LÖGFRÆÐINGAR bandaríska poppsöngvarans Michaels Jacksons og
14 ára drengs sem hefur sakað hann um kynferðislega misnotkun eru
að ganga frá sáttargerð sem felur í sér að söngvarinn greiði drengnum
miHjónir dala. I staðinn samþykkir drengurinn að neita að bera vitni
gegn Jackson fyrir rétti, að sögn bandarískra fjölmiðla.
Talið er að tjón sem hlaust af
völdum skjálftans, sem mældist
6,6 stig á Richter, og eftirskjálft-
anna nemi 30 milljörðum dollara,
jafnvirði 2.205 milljarða íslenskra
króna. Er það mesta tjón af völd-
um náttúruhamfara í sögu Banda-
ríkjanna. í gær sagðist Bill Clinton
Bandaríkjaforseti ætla að fara
fram á það við þingið að það veitti
7,5 milljarða dollara til endurreisn-
ar á skjálftasvæðinu.
Rúmlega 11.000 hús og íbúðir
eyðilögðust í skjálftunum, 57
manns biðu bana og 8.000 slösuð-
ust. Alls hafa 40.000 manns sótt
um fjárhagsaðstoð vegna tjóns
sem þeir urðu fyrir.
Enn ríða eftirskjálftar yfir. Tek-
ist hefur að koma vatni og raf-
magni til flestra svæða sem urðu
hvað verst úti. Borið hefur á skorti
á byggingarefni og verða þeir sem
vinna að endurbótum á húseign
sinni að hafa mikið fyrir því að ná
í það sem til vantar. Þannig þrutu
birgðir byggingarplasts sem menn
notuðu til þess að loka glufum í
veggjum til bráðabirgða.
Ferðast með almenningsvögn-
um, þyrlum og flugvélum
Vegaskemmdir hafa valdið gíf-
urlegu umferðaröngþveiti í ná-
grenni Los Angeles. Tekur margar
klukkustundir að komast leið sem
áður tók nokkra tugi mínútna að
aka. Margir hafa brugðist við með
því að sameinast um bíl í stað
þess að aka áður einir. Sömuleiðis
hefur orðið mikil fjölgun þeirra
sem notast við almenningssam-
göngur. Þannig ferðuðust venju-
lega ekki nema um 1.000 manns
til vinnu með járnbrautarlest frá
Santa Clarita útborginni en eftir
skjálftann hefur þeim fjölgað í
20.000. Þeir sem efni hafa á, leigja
Heimildarmaður, sem tengist
málaferlunum, staðfesti að lögfræð-
ingarnir væru að ná samkomulagi
en sagði að nokkurn tíma gæti tekið
að ganga frá sáttargerðinni. Slík
sátt dregur úr líkunum á því að sak-
sóknarar sæki Michael Jackson til
saka.
Saksóknari hafði á mánudag
hreinsað föður drengsins af ásökun-
um um að hafa reynt að kúga 20
milljónir dála út úr söngvaranum
nokkrum dögum áður en ásakanirnar
um kynferðislega misnotkun komu
fram.
Los Angeles Times hafði eftir
heimildarmönnum sínum að Michael
Jackson ætti að greiða drengnum að
minnsta kosti tíu milljónir dala.
Söngvarinn hefur alltaf haldið
fram sakleysi sínu og hafði heitið
því að hreinsa sig fyrir rétti. Viku-
blaðið Time hafði eftir heimildar-
mönnum sínum að aðstoðarmenn
Jacksons vildu „losna við þetta mál“.
Ef gengið yrði frá sáttargerð í mál-
inu myndi söngvarinn leggja áherslu
á að ekki bæri að líta á hana sem
játningu um sekt.
Hermt er að sáttargerðin feli í sér
að drengurinn neiti að bera vitni
gegn Jackson fyrir rétti. Lögfræði-
sérfræðingar segja að ekkert skrif-
legt samkomulag geti hindrað að
menn beri vitni fyrir rétti, en sam-
kvæmt lögum í Kaliforníu er þó ekki
hægt að neyða fórnarlömb kynferðis-
glæpamanna til þess.
NÝUA. BÍL-AHÖLLIN FUNAHÖFÐA 1 S:672277
Eigum til á staðnum Subaru Legacy 1,8
og 2,0L árgerðir frá '90 - '92, sjón er sögu
ríkari.
MMC Galant GLSi árg. '92, ek. 30 þ. km.,
hvítur, sjálfsk., álfelgur, saml., sóllúga.
Verð kr. 1.650.000 stgr. - Ath. skipti.
Nissan Prairie 4x4 árg. '88, ek. 105 þ.
km., 5 g., 1,6 vél, grænn.
Verð kr. 750.000 stgr. - Ath. skipti.
AMC Wrangler 4,2L árg. '88, ek. 126 þ.
km., v-rauður, 33" dekk, álfelgur.
Verð kr. 1.190.000 stgr. - Ath. skipti.
MMC L-300 4x4 árg. '88, ek. 91 þ. km„
d-grænn, álfelgur, allur yfirfarinn af um-
þoði. Verð kr. 1.190.000 stgr. - Ath. skipti.
BÍLATOFtG FUNAHÖFÐA 1 S:683444
Toyota 4Runner árg. '91, gænsans, ameríku-
týpa, sjálfsk., sóllúga, ek. 45 þ. km.
Verð kr. 2.550.000. - Skipti skuldabréf.
MMC Lancer 1600 GLXi árg. '93, hvítur,
siálfsk., ek. 9 þ. km. Verð kr. 1.300.000.
Mazda 323 4WD árg. '93, rauður, ek. 6 þ.
km. Verð kr. 1.300.000. - Skipti á jeppa ca.
1600-1700.
MMC Pajero árg. ’91, gænsans, turbo dies-
el, intercooler, 31“ dekk, álfelgur, ek. 79
þ. km. Verð kr. 2.300.000.
MMC L-300 4WD árg. '90, grár, ek. 50 þ. *
km. Verð 1.480.000.
VEGNA GÓDRARSÖLU VANTAR NÝLEGA BÍLA Á STADINN - IN NIS A L U R
mmm
es 3&