Morgunblaðið - 26.01.1994, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANUAR 1994
Morgunblaðið/Þorkell
Guðrún Sæmundsdóttir, Guðríður Jónsdóttir, Sveinn Elíasson, Lilja Jónsdóttir og Garðar Pálsson höfðu
gaman af að hitta aðra ísfirðinga.
fclk i
fréttum
ipj
' í# M /
, > JmM IPlA 1- M
w ^ w) J n / J 'm >4%* 3 r" a
SKEMMTUN
Sólarkaffi ísfirðinga
Húsfyllir yar á 49. sólarkaffi-
kvöldi ísfirðingafélagsins sl.
föstudag. Fjölgar gestum með ári
hvetju og er þetta í þriðja sinn sem
skemmtunin er haldin á Hótel ís-
landi eftir að hafa sprengt utan af
sér Súlnasal Hótels Sögu. Hófst
samsætið með hefðbundinni kaffi-
drykkju og ijómapönnukökuáti, en
síðan setti Einar S. Einarsson for-
maður ísfirðingafélgsins hátíðina.
Aðalræðumaður kvöldsins var
Rannveig Guðmundsdóttir alþingis-
maður, en meðal skemmtiatriða var
söngur Borgardætra, auk þess sem
Lúdó og Stefán ásamt Ísfírðingnum
Kolbrúnu Sveinbjamardóttur sáu
um danstónlistina.
LEIKARAR
Missir auðveldlega
stjórn á sér
Sænska leikkon-
an Lena Olin
mótleikari Richards
Gere í myndinni
Herra Jones sem
frumsýnd var í
Stjörnubíói fyrir
helgina þykir ansi
snaggaraleg og til
alls vís. Þannig kom
hún a.m.k. blaða-
manni tímaritsins
Elle fyrir sjónir,
enda gaf hún þá
yfirlýsingu að hún
ætti það til að
hegða sér eins og
fjögnrra ára gamalt
barn og lemja fólk.
„Ofbeldi er líkt og
kynlíf, alveg óút-
reiknanlegt. Auk
þess sem erfitt er
að gera sér grein
fyrir hvaðan hvötin
kemur,“ sagði hún.
í myndinni leitar
Olin til sálfræðings,
en segist í raunveruleikanum
ekki trúa á slíkt. Sér hafí verið
ráðlegt af vinum sínum að reyna
það til að komast yfír veikleika
sína, en hún geti ekki hugsað
sér það. Það eigi ekki allir að
vera steyptir í sama mótið.
Þegar farið var að leita að
leikurum í myndina „Romeo is
Bleeding“ þurfti einn leikaranna
að geta verið allt í senn dular-
fullur, glaðlyndur og hræddur.
Þóttist framleiðandinn Hilary
Lena Olin er orðið þekkt nafn í Bandaríkj-
unum. Hér er hún ásamt Richard Gere í
myndinni Herra Jones.
Henkin strax sjá að Lena hent-
aði vel í þetta hlutverk og leikur
hún þar kynþokkafullt morð-
kvendi. í einkalífí segist hún
aftur á móti vera myrkfælin og
hrædd um að verða einmana,
auk þess sem hún er óstjórnlega
flughrædd. Hún á einn son,
August, sjö ára, en hafði sagt
skilið við föðurinn, sænska leik-
arann Oijan Ramberg, áður en
August fæddist.
Kristín Gunnarsdóttir var rétt kominn inn á Hótel ísland þegar hún
hitti þær Ingibjörgu Pálsdóttur og Önnu Ó. Helgadóttur.
STJÖRNUR
*
Osætti milli Eastwoods og Costners
Ikvikmyndinni Fullkominn heim-
ur, sem sýnd er í Saga-bíói um
þessar mundir, er meðal annars
fjallað um uppgjör tveggja manna,
barnaræningjans Kevins Costner
og lögreglumannsins Clints East-
woods. Sagan segir að einmitt í
upptökum á þessari sömu mynd
hafí risið upp ágreiningur milli
Costners og Eastwoods sem leik-
stýrir einnig myndinni. Costner er
ekki óvanur leikstjórn og þótti hon-
um sem Eastwood gæti tekið öðru-
vísi á málum í einhveijum atriðum.
Benti hann á hvað mætti betur fara
að eigin mati, en leikstjórinn var
ekki aldeilis sammála. Urðu mikil
læti vegna þessa, en a.m.k. hefur
tekist að ljúka við myndina án þess
að áhorfendur verði varir við ósætt-
ið.
Clint Eastwood leikur yfirmann
lögreglunnar.
Kevin Costner ásamt T.J. Lowth-
er, sem Ieikur Philip í myndinni.
EGLA
-röð ogreglu
Margir litir margar stærðir.
Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum
helstu bókaverslunum landsins.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819
LEIKARAR
Telly Saval-
as látinn
Við sögðum frá því hér í blaðinu
fyrir skömmu að leikarinn Telly
Savalas
hefði verið
greindur
með
krabbamein
í blöðru-
hálskirtli,
en hefði far-
ið heim af
spítalanum
7. janúar sl.
eftir að hafa
hlotið við-
eigandi
meðferð. Hún virðist þó ekki hafa
dugað, því hann lést sl. laugardag
sjötugur að aldri í svítu sinni á Shera-
ton-Universal hótelinu, þar sem hann
hafði búið undanfarin ár.