Morgunblaðið - 26.01.1994, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1994
35
STJORNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú íhugar breytingar á
heimilinu. Áríðandi verkefni
í vinnunni véldur því að þú
hefur lítinn tíma fyrir l]öl-
skylduna.
Naut
(20. apríl - 20. maí) Itfö
Félagar standa vel saman í
dag og vinna að því að koma
hugmynd sinni á framfæri.
Reyndu að komast hjá deii-
um.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þér tekst að finna góða
Iausn á verkefni í vinnunni
í dag. Einhver ágreiningur
getur komið upp heima
varðandi fjármálin.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HIS6
Láttu ekki hugfallast þótt
annríki sé mikið í dag. Með
einbeitingu tekst þér að
ljúka því sem þú ætlaðir þér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Reyndu að halda ró þinni
ef erfiðleikar koma upp í
vinnunni í dag. Þú hefur í
mörgu að snúast en getur
siappað af í kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Vinir skiptast á skoðunum
um hugmyndir sínar og
komast að gagnlegri niður-
stöðu. Breytingar verða á
dagskrá kvöldsins.
V°g o.
(23. sept. - 22. október) ijfL
Þú átt erfitt með að vera á
tveimur stöðum í einu. Þú
afkastar miklu í vinnunni
en átt eitthvað ógert heima.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þótt þú hafir ákveðnar skoð-
anir getur verið erfitt að
sannfæra aðra um ágæti
þeirra. Einhver er þrætu-
gjarn í kvöld.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Fjármál og viðskipti ganga
þér í hag í dag en þú gætir
lent í deilum varðandi pen-
inga. Kvöldið ætti að verða
rólegt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ferð eigin leiðir í dag en
þarft einnig að gefa þér
tíma til að sýna ástvini
umhyggju. Reyndu að kom-
ast hjá ágreiningi.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þú ferð hægt af stað í vinn-
unni í dag en þér gengur
betur þegar á daginn líður.
Einhver nákominn þarfnast
umhyggju.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þótt samskipti við aðra
gangi að mestu mjög vel í
dag getur vinur verið einum
of þrasgefinn og tilætlunar-
samur í kvöld.
itjörnuspána á ad lesa sem
tægradvöl. Spár af þessu tagi
yggjast ekki á traustum grunni
nsindalegra staðreynda.
DYRAGLENS
2) y ( p’E'TTA ER KOQSIRÓP ~ JL ORAN ’A PÖHhiUKÖKUUA í - ÞíMA.QRerritz -
HÍili lll i Mffl
TOMMI OG JENNI
LJOSKA
,06 sr/€/zsr/> pöntvn/n
£N É6 Æ.TLA BICICI AS> \
iþVNGTA OESt AiEE> )
ArtiNOM l/ANPAc^
WXlum
I o-H
'O ,eÚ-f-IÚ-HÚ : . I
HO-HO-BO-HÓ ‘
rr*nrxiivi n ivirx
hcRDIIMAND
í5,a\-
. ^öílr,
' i
SMAFOLK
12-3
l 'TlLTME C0IM C0ME5 POUJN !
TELLY0UR PLAYERT0 UUAIT
Sr/ii//
Jæja, Kalli... fram- eða bakhlið..
nefndu það...
Segðu leikmanninum þínum að bíða
þangað til peningurinn kemur niður!
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
Það voru ekki mörg spil sem
féjlu í síðustu lotu úrslitaleiks
VÍB og Tryggingamiðstöðvar-
innar í Reykjavíkurmótinu sl.
sunnudag. Spil dagsins er eitt
af mörgum sveifluspilum úr lot-
unni, en sveiflan hefði þó getað
orðið enn stærri á hvorn veginn
sem var, ef suður hefði fundið
bestu vörnina.
Austur gefur; allir á hættu.
Norður ♦ K10654
Vestur VA1075 Austur
♦ Á ♦ 103 ♦ DG873
VKD63 4> 109 ¥G842
♦ 9764 Suður ♦ ÁK2
♦ D865 ♦ 92 ♦ 7
♦ 9 ♦ DG85 ♦ ÁKG532
Á báðum borðum var austur
sagnhafi í fjórum hjörtum.
Sagnir gengu þannig á öðru
borðinu:
Vestur Norður Austur Suður
Ó.A. S.V. G.R.J. V.S.
- - 1 spaði 2 lauf
Dobl* Pass 2 hjörtu Pass
3 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass
Pass Dobl Allir pass
* neikvætt.
NS voru Sigurður Vilhjálms-
son og Valur Sigurðsson á sveit
TM, en AV Örn Arnþórsson og
Guðiaugur R. Jóhannsson, liðs-
menn VÍB.
Valur lyfti laufás og skipti
síðan yfir í tíguldrottningu. Guð-
laugur drap strax, tók fljótlega
hinn tígulslaginn og víxltromp-
aði síðan spaða og lauf upp í
10 slagi. Fékk samtals 7 slagi
á tromp! Vörnin gekk eins fyrir
sig á hinu borðinu og Sigurður
Sverrisson fékk einnig 10 slagi
með sömu spilamennsku. Sveifl-
an réðst því eingöngu af dobl-
miðanum í þetta sinn.
Ef suður skiptir yfir í hjarta
í öðrum slag og norður tekur
ásinn og trompar aftur út, fær
sagnhafi eingöngu fimm slagi á
tromp og endar tvo niður. Sú
vörn er þó alls ekki augljós við
borðið, enda sást bæði Val og
Ásmundi Pálssyni yfir hana. Frá
bæjardyrum suðurs lítur út fyrir
að óhætt sé að hleypa sagnhafa
út í víxltromp ef það mætti verða
til að upphefja trompslagi makk-
ers. Suður á sjálfur hjartaníuna,
sem hann notaði til að trompa
þriðja spaðann. En í þessu spili
kom það að engu gagni.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Hollendingurinn Jan Timman
(2.620) heldur vinningsforskoti í
áskorendaeinvígi sínu við unga
Frakkann Joel Lautier (2.625).
Þetta endatafl kom upp í sjöundu
skákinni. Lautier hafði hvítt og
átti góð færi vegna biskuparpars-
ins og þess að svarti biskupinn á
a2 var úti að aka. En hér var
hann að enda við að leika klaufa-
legum leik, 56. Kd2-c2? og Timm-
an, sem hafði svart og átti leik,
tryggði sér jafnteflið:
56. - Bbl+!, 57. Kb3 (Lautier
má nú hafa sig allan við að þvinga
fram jafntefli. 57. Kxbl? — Rc3+,
58. Kc2 - Rxe2, 59. hxg5 -
Kxg5 er vænlegt á svart) 57. —
Bxe4, 58. hxg5+ — lixgð, 59.
Bxb5 — cxb5 og Timman bauð
jafntefli sem Lautier að sjálfsögðu
þáði. Þótt svartur sé peði ýfir er
staðan dautt jafntefli vegna mis-
litu biskupanna.