Morgunblaðið - 27.01.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.01.1994, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANUAR 1994 Lagafrumvarp lagt fram á Alþingi um símaþætti útvarpsstöðva Beinar útsending- ar tafðar um stund ÞRÍR þingmenn hafa lagt fram lagafrumvarp á Alþingi, þar sem meðal annars er gert ráð fyrir að útvarpsstöðvar, sem heimila almenningi að taka þátt í beinni útsendingu, verði skyldaðar til að nota útbúnað sem tefur útsendinguna í stutta stund. Með því móti verði hægt að koma í veg fyrir að útvarpað sé ærumeiðing- um um nafngreinda menn eða óviðurkvæmilegum ummælum. Frumvarpið, sem er um breyt- ingu á útvarpslögum, er lagt fram af Inga Bimi Albertssyni, Sjálf- stæðisflokki, Ólafi Þ. Þórðarsyni, Framsóknarflokki, og Steingrími J. Sigfússyni, Alþýðubandalagi. Er þar gert ráð fyrir að eigi al- menningur kost á að taka þátt í beinni útvarpssendingu, svo sem í gegnum síma eða á sambærileg- an hátt, 'skuli hver og einn segja til nafns og bera ábyrgð á þvi sem hann segir. Stjómandi slíkrar út- sendingar skuli ennfremur tryggja sér fyllri upplýsingar um sérhvem þátttakanda en beri ella sjálfur ábyrgð á framlagi hans, takist ekki að hafa upp á honum. Loks verði stjórnanda útvarpsþáttar, með samtöl við hlustendur sem útvarpað er samtímis, skylt að nota útbúnað sem tefur útsend- ingu í stutta stund. Færistívöxt í greinargerð með framvarpinu segir, að mjög hafi færst í vöxt að útvarpsstöðvar útvarpi þáttum sem byggjast á símtölum við fólk úti í bæ. Það sé áhyggjuefni að í slíkum þáttum sé hætta á að við- mælendur geri ekki grein fyrir sér og flytji ávirðingar og óviður- kvæmileg ummæli um nafngreint fólk án þess að nokkram vömum verði við komið. Sekúndubrot að skemma mannorð „Eitt það dýrmætasta, sem hver einstaklingur á, er gott mannorð. Og það getur tekið dijúgt skeið á ævi hans að ávinna sér þann orð- stír. Hins vegar tekur það óvand- aðan mann ekki nema sekúndu- brot að skemma mannorð annars manns ef hann fær tækifæri til þess í útvarpi. Þess vegna á lög- gjafinn að gera það sem í hans valdi stendur til að vemda menn fyrir slíku. Það virðist svo sem virðing fyrir mannorði og tilfinn- ingum annarra fari þverrandi eftir því sem þjóðfélagið verður opnara og frjálslegra og er það miður,“ segir síðan í greinargerðinni. Morgunblaðið/Sverrir Framleiðslan skoðuð BRUGG og tæki voru flutt á lögreglustöðina í Hafnarfirði. Gissur Guðmundsson rannsóknarlögreglumað- ur og lögreglumennirnir Guðmundur Rúnar Guðmundsson og Gunnar Hilmarsson skoða framíeiðsluna. Fyrsta bruggmál ársins upplýst LÖGREGLAN í Hafnarfirði, í samráði við lögregluna í Reykjavík, lagði hald á rúma 400 1 af gambra, 30 1 af landa, yfir 200 1 suðu- tæki ásamt fleiri tækjum og tólum til bruggunar í iðnaðarhúsnæði í Dalshrauni í gær. Eftir að rannsókn hafði leitt í ljós að ástæða væri til að kanna hvaða starfsemi færi fram í húsnæðinu afl- aði lögreglan sér húsleitarheimildar hjá héraðsdómi og hélt þangað síð- degis í gær. Voru þar staddir þrír menn og voru þeir allir færðir til yfirheyrslu. Tæki, sem fundust á staðnum, eru talin í eigu eins þeirra. Hann hefur ekki áður komið við sögu lögreglunnar í Hafnarfirði í brugg- málum. Samtals upplýsti lögreglan 18 bruggmál í bænum á síðasta ári. Málið nú er hið fyrsta þessarar teg- undar á nýju ári. Það er ekki full- rannsakað. Lögskráning undirbúin í Eyjurn meðan verkfall stóð Verkfallsbrot að tilstuðlan opinberra aðila, segir Svavar Gestsson alþingismaður UNDIRBÚNINGUR að lögskráningu skipsáhafna hófst hjá sýslu- manninum í Vestmannaeyjum nokkrum klukkutimum áður en verkfall sjómanna var stöðvað með bráðabirgðalögum að kvöldi 14. janúar. Svavar Gestsson þingmaður Alþýðubandalagsins full- yrti á Alþingi í gær að með þessu móti hefði verið framið verk- fallsbrot að tilstuðlan opinberra aðila. Sýslumaðurinn í Vest- mannaeyjum segir að undirbúningur að lögskráningu hefði verið á skrifstofutíma og lögskráningarstjóra sé ekki heimilt að syiy'a um skráningu liggi tilskilin gögn fyrir. Dreginn frá Færeyjum TOGARINN Bessi frá Súða- vík er væntanlegur með Reykjavíkurtogarann Viðey í togi til Reykjavíkur í kvöld. Stýri Viðeyjar brotnaði ná- lægt Færeyjum. Skipin fengu slæmt véður á leiðinni. Viðey var að koma úr sölutúr í Bremerhaven þegar stýri skipsins brotnaði nálægt Fær- eyjum síðastliðinn miðvikudag. Skipið var dregið til hafnar í Færeyjum. Þar tók Bessi Við- eyna í tog á mánudagskvöld. Skipin lentu í slæmu veðri, sér- staklega um miðjan dag í gær þegar 10-12 vindstiga rok var og sagði Jónmundur Einarsson skipstjóri á Viðey að ferðin hefði gengið seint. Skipin vora 35 sjómflur frá Vestmannaeyj- um klukkan rúmlega tíu í gær- kvöldi þegar rætt var við Jón- mund og þá var veðrið að ganga niður. Jónmundur sagði að skipið þyrfti að fara í slipp og bjóst hann við viðgerð tæki hálfan mánuð. Samkvæmt lögum um lögskrán- ingu sjómanna skal lögskrá í skiprúm í fyrsta skipti á ári hveiju sem skip byijar ferð. Skulu þá allir skipveijar mæta hjá lögskráningarstjóra og undirrita skipshafnarskrá. Georg Kr. Lárusson sýslumaður í Vestmannaeyjum sagði í samtali við Morgunblaðið að föstudaginn 14. janúar, þann dag er verkfallið var leyst, hafí allmargir skipstjórar haft samband við skrifstofu sýslumanns- embættisins og óskað eftir því að hafínn yrði undirbúningur að skrán- ingu. „Skipstjóri heldur eina skrán- ingarbók og lögskráningarstjóri, þ.e. sýslumaður, heldur aðra. Skipstjór- amir vildu fá að koma með sínar bækur útfylltar með nöfnum áhafn- arinnar, þannig að hægt yrði að færa það inn í lögskráningarbækur embættisins þannig að þetta tæki skemmri tíma. Jafnframt óskuðu þeir eftir því að sjómenn fengju að koma á skrifstofuna og undirrita eins og gera þarf um hver áramót, jafn- vel þó ekki lægi fyrir hvenær þeir færu á sjó. Þetta var hins vegar háð þeim fyrirvara að þarna væri ekki um skráningu að ræða heldur undir- búning að skráningu, sem ekki tæki gildi fyrr en skipstjórar tilkynntu hvenær þeir myndu láta úr höfn. Þetta byggist á 11. grein lögskrán- ingarlaga, sem segir að lögskráningu sé ekki lokið fyrr en skráningarstjóri hefur undirritað eintak skipstjóra. Óheimilt að neita Þama var um tvo báta að ræða, Smáey og Ófeig, en skipstjórar þeirra komu með bækumar og áhafnimar mættu og óskuðu áhafnarmeðlimir sjálfír eftir skráningu. Það var gert með þeim hætti að þeir undirrituðu í lögskráningarbók, en skipstjóramir mættu svo þegar fyrir lá að þeir myndu fara á sjó um nóttina og þá var skráningunni lokið,“ sagði Georg. Hann sagðist ekki geta séð að lög- skráningarlögin heimili sýslumanni eða skráningarstjóra að neita skrán- ingu þó svo að verkfall standi yfír. Til að fá skráningu þurfí sjómenn að uppfylla ákveðin skilyrði sem tal- in eru upp í lögskráningarlögunum og að þeim uppfylltum telji hann að skráningarstjóra beri að skrá. „Hins vegar vegna þessa verkfalls þá dróg- um við lappirnar og lukum ekki þess- ari skráningu fyrr en braðabirgða- lögin höfðu tekið gildi. Það sem hins vegar ruglar menn þarna er að skrif- stofan var opnuð sérstaklega eftir að lögin tóku gildi og ekki fyrr. Þá var farið í að skrá á bæði þessi skip og mörg önnur langt fram eftir nóttu. Undirbúningur að skráningu var hafínn á þessi tvö skip á vei\julegum skrifstofutíma, en henni var síðan lokið þegar skrifstofan var opnuð kl. 23 fyrir allar lögskráningar," sagði Georg. í dag Akureyri Nýbygging Fjórðungssjúkrahúss- ins boðin út f aðildarríkjum EES18 Fermingar Auglýsingapésum rignir yfir ferm- ingarbömin 22 Alþingi Leiðari Þingið í uppnámi vegna deilna stjórnar og stjórnarandstöðu 26-27 Sparnaður í lyfjakostnaði sjúkra- trygginga 26 tftiJiXll** JHoreunblnþib VIÐSKIPnfflVINHUIÍF Knupweim vHja nota elgin kortskaima fisffiPSSSilffi asvfc ... • L I iirs rz7.-Jy-.- sssir j — ::—•• t~ ' . «tnmni i ---■■n.wnw: Spctftijúfe VtR Dagskrá ► Sony og Time Warner í sam- keppni við MTV - Sjónvarpsefni pantað gegnum síma - Kort yfir senditíðni útvarpsstöðvanna Viðskipti/A tvinnulíf ► Kaupmenn vilja eigin kort- skanna - Átak gegn skattsvikum - Hampiðjan Iðnfyrirtæki janúar - Bankar undirbúa hækkun þjón- ustugjalda - Nýr forstjóri SÁS Útifimdur í dag gegn atvinnuleysi VERKALÝÐSFÉLÖG á höfuðborgarsvæðinu hafa boðað til úti- fundar gegn atvinnuleysi á Austurvelli í dag og hefst fundur- inn kl. 16. Boðað er til fundarins til að leggja áherslu á þá kröfu að ríkisvaldið og Alþingi taki skjótt og af festu á þeim vanda sem skapast hefur vegna vaxandi atvinnuleysis. Safnast verður saman á Aust- urvelli undir kjörorðinu Við vilj- um vinnu!, og hafa verkalýðsfé- lögin skorað á allt launafólk og allt fjölskyldufólk til að taka sér frí frá vinnu og skóla og taka þátt í útifundinum. Ræðumenn á fundinum verða Ingibjörg Guð- mundsdóttir formaður Lands- sambands verslunarmanna og Guðmundur J. Guðmundsson for- maður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar. Fundarstjóri verður Sigríður Kristinsdóttir formaður Starfsmannafélags ríkisstofn- ana. i i i i i I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.