Morgunblaðið - 27.01.1994, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 1994
35
Petra Helga Cliríst
iansen —Minning
Fædd 20. mars 1914
Dáin 21. janúar 1994
Elskuleg tengdamóðir mín lést á
Borgarspítalanum 21. þ.m. eftir
langvarandi veikindi.
Kynni okkar hófust fyrir 17 árum
er ég og dóttir hennar Rose-Marie
felldum hugi saman.
Petra var heilsteypt persóna og
góðum gáfum gædd. Ljóðelsk var
hún. Einar Benediktsson var hennar
uppáhaldsskáld. Hún var ávallt já-
kvæð og sáttfús. Aldrei bar skugga
á vináttu okkar.
Ég minnist margra góðra sam-
verustunda er við Rósý áttum með
Petru heima og heiman. Sérstaklega
er mér minnisstæð ferð sem við fór-
um með henni til London 1980, þar
sem hún gekkst undir erfiða hjarta-
aðgerð sem tókst vel.
Tel ég það mikil forréttindi að
hafa fengið að kynnast slíkri sæmd-
arkonu sem Petra var.
Petra fæddist í Siglufirði. Foreldr-
ar hennar voru Helga Arngrímsdótt-
ir úr Svarfaðardal og Sæmundur
Jónsson, sjósóknari úr Fljótum í
Skagafirði.
Ung kynntist hún dönskum
manni, Harry Christiansen. þau
gengu í hjónaband 10. júní 1933 í
Kaupmannahöfn. Eignuðust þau
eina dóttur.
Petra nam kjólasaum í Danmörku
og útskrifaðist sem kjólameistari
1939.
Eftir heimkomu í stríðsbyrjun
stofnaði hún saumastofu er hún rak
óslitið til 1960. Um það leyti festi
hún kaup á litlu húsi við Njálsgötu
þar sem hún bjó lengst af. Hún flutti
í dvalarheimili aldraðra, Seljahlíð,
1990. Þar undi hún hag sínum'vel
og kynntist mörgu góðu fólki.
Að lokum vil ég geta þess að sam-
band móður og dóttur var mjög náið
og gott.
Blessuð veri minning hinnar mætu
konu.
Sjá vetrarrósir í röðum.
Hver rós er við mosa byrgð;
en ilmur og angan af blöðum,
þar ástvinahjörtu eru syrgð.
Og enda, ef ekki sést rofa
hið efra, um land og sjó,
þær lýsa, að létt muni sofa
það líf, sem aldrei dó.
(Einar Benediktsson)
Tengdasonur.
Því varð allt svo hljótt við helfregn þína,
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta harmi lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.
(Tómas Guðmundsson)
Á landi okkar er þörf á mikilli
miskunnsemi og mannkærleika. Við
verðum að anda djúpt og draga að
okkur ilm vorsins, trúna á sjálft lífið
og trúna á samband við annan heim,
svo hugir okkar haldist hlýir og heil-
brigðir.
Það er erfitt að þurfa að sætta
sig við að amma, sem alltaf hefur
verið órjúfanlegur hluti af tilveru
okkar, barnabarna hennar, sé látin.
Við systkinin viljum minnast
elskulegrar ömmu okkar sem and-
aðist á Borgarspítalanum aðfaranótt
21. janúar eftir langvarandi veikindi.
Amma fæddist í Siglufirði 20.
mars 1914. Foreldrar hennar voru
þau Sæmundur Jónsson, sjómaður,
og Helga Arngrímsdóttir. Þau áttu
þijár dætur, þær Dagbjörgu, Önnu
og Petru.
Amma kynntist ung afa okkar,
dönskum fiðluleikara, Harry Christ-
iansen, sem kom hingað til lands
með hljómsveit sinni. Þau gengu í
hjónaband í Kaupmannahöfn 10.
júní 1933 og eignuðust eina dóttur,
móður okkar, Rose-Marie Christa
Christiansen.
Amma útskrifaðist sem kjóla-
meistari frá hinum þekkta skóla
„Köbenhavns Tilskærer Akademi" í
Kaupmannahöfn 15. maí 1939 og
rak hún stóra saumastofu hér á landi
um árabil.
Elsku hjartans amma okkar, nú
þegar komið er að kveðjustund er
svo margs að minnast. Þrátt fyrir
löng og érfíð veikindi þar sem gruna
mátti að hvert stefndi er samt erfítt
að sætta sig við það að amma sé
ekki lengur hér á meðal okkar. Síð-
Minning
Ketill Gíslason
Vinur minn
Ketill Gíslason
er dáinn.
Hið hlýja handtak hans
kólnar nú í gröfinni.
Eg minnist kærs vinar.
Aldrei
fór styggðaryrði
á milli okkar
í langri sambúð
þar sem við deildum húsnæði
í Hveragerði.
Hinn 15. þ.m. var vinur minn
Ketill Gíslason lögfræðingur til
moldar borinn á Eyrarbakka, þar
sem hann ólst upp sem drengur.
Seinna lá leið hans til Reykjavíkur
í menntaskólann og Háskólann, þar
sem hann nam lögfræði með góðum
árangri. Eg minnist Ketils fyrst,
þegar hann var að vinna í Sjúkra-
samlaginu, en eg starfaði í prent-
myndagerðini Leiftri, sem var í sama
húsi. Við hittumst oft á göngunum,
en um nánari kynni var ekki að
ræða í það sinn.
Hins vegar kynntist eg honum vel
í Hveragerði, þar sem við vorum
sambýlismenn um áraraðir og unn-
um saman i gróðurhúsunum hjá
Gísla Sigurbjörnssyni, þeim ágæta
manni. Við Ketill vorum vanir að
fara saman í gönguferðir þegar vel
viðraði og komum þá gjarnan við í
Kondítoríinu í Hveragerði, þar sem
við spjölluðum saman og nutum veit-
inga.
Nú er hann farinn heim til Drott-
ins Jesú Krists, sem hann trúði á
síðustu ár ævi sinnar. Það var mitt
hlutskipti að benda honum á boðskap
Biblíunnar, sem hann tók við í trú
og styrkti hann oft í ellinni og mun
fylgja honum út yfír gröf og dauða.
En nú er hann farinn og sakna
eg hans mjög, því að ljúfari manni
hefi eg ekki kynnst. Eg bið aðstand-
endum hans blessunar Guðs í Jesú
nafni.
Eggert E. Laxdal.
ustu mánuðir voru henni og hennar
nánustu mjög erfiðir en móðir okk-
ar, Rose-Marie, var hennar stoð og
stytta allt til dauðdags. Við sem
eftir erum og syrgjum þig reynum
af fremsta megni að standa saman
og hjálpa hvert öðru að takast á við
sorgina í þeirri fullvissu að nú líði
þér vel, engir verkir, enginn kvíði,
aðeins friðsæld.
Hugsunin reikar til baka og rifj-
ast upp. Ýmsir atburðir liðinna ára
koma upp í hugann og gefa lífinu
gildi meira en áður.
Efst er okkur í huga hversu gott
var að leita til ömmu. Alltaf var hún
til staðar fyrir okkur þegar við þörfn-
uðumst hennar. Litla fallega húsið
hennar, „ömmubú" eins og við köll-
uðum það, stóð alltaf opið og maður
fann að þangað vorum við alltaf
velkomin hvenær sem var. Elsku
sæta amma tók vel á móti okkur
og umvafði okkur með ást og kær-
leika.
Amma var afar greind og víðlesin
og virtist alltaf hafa svör á reiðum
höndum við því sem okkur lá á hjarta
og er sárt til þess að hugsa að geta
ekki leitað oftar í viskubrunn henn-
ar.
Amma var afar glæsileg kona,
fríð sýnum, tignarleg í framkomu,
vel klædd og var eftir henni tekið
hvar sem hún kom. Tókst ellinni
aldrei að beygja hennar teinrétta
bak, þótt margt yrði hún að reyna
á langri og oft stormasamri ævi.
Amma lifði fyrir fjölskyldu sína í
æinu og öllu og var það með eindæm-
um hversu hjartahlý og gjafmild hún
var.
Móðir okkar Rose-Marie hafði
ömmu hjá sér í eitt ár á meðan hún
beið eftir íbúð á vistheimilinu Selja-
hlíð. Sá tími var mjög lærdómsríkur
fyrir mömmu. Það var aðdáunarvert
að sjá hversu einstaklega vel
mamma hlúði að ömmu enda var
samband þeirra mjög einlægt og
náið alla tíð. Fráfall ömrnu hlýtur
að skilja eftir mikinn söknuð í hjarta
mömmu.
Amma bjó fjögur ár í Seljahlíð
og leið henni mjög vel þar. Hún
hafði unun af því að hjálpa og leið-
beina sér eldra og veikara fólki er
þar býr og var hún mjög vel liðin
og mátti oft á tíðum vart greina á
milli hvort um starfsstúlku eða
ömmu væri að ræða, svo hjálpsöm
var hún.
Elsku amma. Nú þegar þú ert
farin, hugsum við til baka og efst í
huga okkar er þakklæti fyrir að
hafa átt þig sem ömmu.1
Söknuðurinn nístir hjörtu okkar.
Það er þó stór huggun harmi gegn
að vita til þess að þú munt örugg-
lega bíða okkar með bros á vör og
útbreiddan faðminn þegar að okkar
tíma kemur.
Megi algóður Guð styrkja móður
okkar á sorgarstundu og lina sorgina
í fullvissu um endurfundi.
Þúsund þakkir fyrir allt, elsku
amma. Hvíl þú í friði.
Velkomnir, kirkju og valdastjómar menn!“
Hann varpaði kveðju á alla senn -
einart, en án þess að þóttast.
Svo gekk hann og yrti’ á hvem einn fyrir sig
þeim orðum; „Ekki hræðir þu mig.
Og biskup, ei heldur hræðist ég þig.
Á himnum er sá, sem ég óttast."
Min kirkja er lágreist og hrörlegt hof,
en hver sá, sem gefur hér sjálfum sér lof,
hann stendur með stafkarls búnað.
Vesalings hroki af veraldarseim,
með visnandi hendur þú þjónar tveim,
því pð metur aldrei annað í heim
en auðmýkt og hjartans trúnað.
(Einar Benediktsson)
Pétur Karl, Erla Sólveig
og Kristján Harrý
Kristjánsbörn.
Láttu smátt, en hyggðu hátt,
heilsa kátt, ef áttu bágt.
Leik ei grátt við minni mátt.
Mæltu fátt og hlæðu lágt.
(Einar Benediktsson)
Elsku sæta langamma okkar er
dáin. Það er svo furðulegt að hún
sé farin, allt gerðist svo hratt að við
erum ekki búnar að átta okkur á
að hún komi aldrei aftur, en við
vonum að hún sé hjá okkur og hjálpi
okkur í framtíðinni og segi okkur
hvað sé rétt og rangt.
Okkur systurnar langar til þess
að kveðja elsku langömmu sem var
okkur alltaf svo góð. Við sátum oft
hjá henni og hlustuðum á sögumar
hennar frá því að hún var ung.
Okkur fannst langamma vera góð
kona og við heyrðum hana aldrei
tala illa um nokkurn mann.
Elsku langamma, þakka þér kær-
lega fyrir allt. Við biðjum góðan Guð
að geyma þig.
Dauðans stríð af þin heilög hönd
hjálpi mér vel að þreyja;
meðtak þá, faðir, mína önd,
mun ég svo glaður deyja.
Minn Jesú, andláts-orðið þitt
í mínu hjarta ég geymi,
sé það og líka síðast mitt,
þá sofna ég burt úr heimi.
(Hallgrímur Pétursson)
Helga María, Lísa Rut,
Linda Rós og Katrín Ósk
Grétarsdætur.
hejmsinp
IR
Tilboð fyrir hópa:
2.000 kr. afsláttur á
mann ef í hópnutn em
15 manns eða fleiri.
40.000 kr. spamaóur
fyrir 20 manna hóp.
kr,
a mannirm t tvíbýli
í 3 nœtur og 4 daga á
Hotel Sheraton Towson.
Brottfarir á
mióviku-, fimmtu-
og föstudögum.
Heimflug á
sunnu-, mánu-
og mióvikudögum.
Veittur er 5% staðgreiðsluafsláttur*
í Baltimore bjóóum viö gistíngu á
eftirtöldum gæóahótelum:
Holiday Inn Inner Harbor, Sheraton Towson,
Hyatt Regency, Days Im Inner Harbor og
The Latham.
*M.v. að greitt sé með minnst 14 daga fyrirvara.
Innifalið er flug og gisting og flugvallarskattar. Böm,
2ja - 11 ára, fá 15.500 kr. í afslátt. Börn að 2ja ára aldri
greiða 3.500 kr. Enginn bókunarfyrirvari.
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn
um allt land, ferðaskrifstofurnar eða í síma 690300
(svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8 -18).
QAlXAjS^ CE)S
Frábært tækifæri til þess aö gera hagstæö
innkaup; m.a. stærsta verslunarmiðstöð á
austurströnd Bandaríkjanna, Towson Town
Center. Heillandi miðbær með aragrúa
veitingastaða, verslana, leikhúsa og skemmti-
staða. Einstök söfh. Örstutt til höfuðborgar
Bandaríkjanna, Washington D.C.
FLUGLEIÐIR
Traustur íslenskur ferðafélagi
MMC Pajero stuttur v-6 árg. '90, blásans,
ek. 51 þ. km., upph., 31" dekk, krómfelg.,
brettak. Verð 1650 þús.
MMC Lancer 1500 GLX árg. ’89, grásans,
ek. 75 þ. km., sumar/vetrardekk.
Isuzu Crewcab bensín árg. ’92, steingrár,
ek. 25 þ. km. Verð 1650 þús.
M.A.N. 26362 árg. ’90, hvítur ek. 254 þús.
km. Verð. 6.250 þús með vsk.
Daihatsu Applause 4x4 árg. ’91, grásans,
ek. 41 þ. km. Verð 990 þús.
BILASALAN BILDSHOFÐA 3, SIMI 670333