Morgunblaðið - 27.01.1994, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIB FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 1994
47 ;
Krummi krunkar úti
HAGSÝNI OG AÐHALD - VELJUM
Frá Sigfúsi Steindórssyni:
Enn er verið að þrengja að bænd-
um. Nú verða þeir að fara að hugsa
sinn gang, og losa sig við eitthvað
af þessum ómögum sem þeir eru
búnir að hafa á framfæri sínu í
áratugi. Nú þurfa þeir að taka sölu-
mál landbúnaðarvara í sínar hendur
og umfram allt fækka milliliðum.
Ástæðan fyrir því að ég skrifa þess-
ar línur er sú að þegar ég frétti
að búið væri að stofna nýtt umboðs-
sölufyrirtæki og hræið af Goða, sem
Löggæsla
frá ríki til
borgar
Frá Agli Sigurðssyni:
ÉG TEK heilshugar undir kjörorð
Gunnars Jóhanns Birgissonar í
prófkosningum Sjálfstæðisfiokks-
ins þess efnis að yfirstjórn lög-
gæslu verði færð aftur undir borg-
aryfirvöld frá ríki (sjá Morgunblað-
ið 12. janúar). Svo margt virðist
nú fara úrskeiðis þar. Lögreglu-
menn virðast hvergi kunna við sig
nema á rápi í bílum sínum fram og
aftur úm götur. Þeir hafa fengið
flota ómerktra lögreglubifreiða til
að fylgjast með rauðum umferðar-
ljósum og þeir hafa sett upp sjón-
varpsskerma um alla borgina í sama
skyni. Nýlega fréttu þeir af tæki í
Svíþjóð til að mæla hraða í umferð-
inni úr bílstjórasætinu — og vilja
ólmir fá slík tæki. Hinsvegar er lip-
urmennskan minni þegar þeir eru
beðnir um viðvik, t.d. að losa bíl
úr snjó fyrir vegfarendur, skakka
leik í fjölskylduátökum o.fl. sem
þeir hafa lengi sinnt. „Við höfum
ekki tíma,“ er viðkvæðið. Njósnir
og bófahasar virðast taka hug
þeirra allan.
EGILL SIGURÐSSON,
Mávahlíð 29,
Reykjavfk.
LEIÐRÉTTIN G AR
Föðurnafn mis-
ritaðist
Þau leiðu mistök urðu við vinnslu
myndatexta greinar sem birtist í
Morgunblaðinu í gær um níræðisaf-
mæli Kvenfélagsins Hringsins, að föð-
urnafn Víkings H. Arnórssonar, pró-
fessors, misritaðist. Hlutaðeigandi eru
beðnir velvirðinga á þessum mistök-
um. ________
Röng tala
Á blaðsíðu 2 í Morgunblaðinu í gær
er skýrt frá tapi ríkisins vegna gjald-
þrota á árunum 1990 til 1992. Þar
var rangt farið með sjóðsnafn, Iðnl-
ánasjóður varð að Iðnþróunarsjóði.
Það var sem sagt Iðnlánasjóður, sem
tapaði 535 milljónum króna. Sambæri-
leg tala fyrir Iðnþróunarsjóð er hins
vegar 168 milljónir króna. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
Rangur titill
Vegna fréttar um frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins í prófkjörinu f
Hafnarfirði, sem birtist í Morgunblað-
inu síðastliðinn fimmtudag var rangt
farið með titil Amar Tryggva John-
sen. í fréttinni var hann titlaður verk-
fræðingur, en hið rétta er að hann er
að ljúka námi í verkfræði. Þetta er
önnur rangfærsla f starfslýsingu fram-
bjóðenda í Hafnarfirði, sem Morgun-
blaðið birtir, en upplýsingarnar voru
fengnar úr prentuðum upplýsingum
um frambjóðendur úr blaðinu Hamri.
Beðist er velvirðingar á þessu.
Einleikarapróf,
ekki burtfararpróf
Sigrún Grendal Jóhannesdóttir og
Pálfna Árnadóttir eru að ljúka einleik-
araprófum frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík en ekki burtfararprófum
eins og ranghermt var í fyrirsögn og
texta fréttasamtals við þær í Morgun-
blaðinu í gær. Einnig var það á mis-
skilningi byggt að ákveðið væri að
Sigrún héldi til framhaldsnáms í
Bandaríkjunum í haust.
er gjaldþrota, notað sem undirstaða
leist mér ekki á blikuna. Nær hefði
verið að dysja Goða endanlega svo
ódaunninn af hræinu dúsnaði ekki
um allt land. Mér dettur í hug að
nokkrir krummar hafi setið á hræ-
inu og krunkað eymdarlega, verið
hræddir um að þeir fengju ekkert
í gogginn.
Nú er spurningin: Hver sá aumur
á þeim og hver stofnaði þetta fyrir-
tæki? Gott væri að fá það upplýst!
Nú veit ég ekki hvað margir
krummar krunkuðu í kringum hið
gjaldþrota fyrirtæki Goða, en ein-
hveijir af þeim hugsa sér að hafa
viðurværi sitt af þvf að hoppa
krunkandi kringum þetta nýstofn-
aða fyrirtæki, sem ég veit ekki
hvað heitir en kalla það Krummi
krunkar úti, og ef það nær fótfestu
og heldur að fleiri geti haft fram-
færi sitt með því að halda áfram
að arðræna bændur, geta þeir hald-
ið áfram með gömlu vísuna,
Krummi krunkar úti.
Nú er verið að slátra hrossum á
Japansmarkað í sláturhúsi KS á
Króknum. Krummarnir fréttu það
og komu tveir fljúgandi að sunnan,
hafa talið að þeir kæmust í feitt,
enda hrossin feit.
Hversvegna tveir? Sennilega svo
að þeim leiddist minna. Þeir settust
hjá Hótel Mælifelli og fóru svo að
krunka í hrossaketið í sláturhúsi
KS. Mér dettur í hug að þeir á slát-
urhúsi KS sem vinna við sláturstörf
allt árið og eru glöggir menn, hafi
meira vit á því að meta kjötið en
þessir krummar að sunnan.
Nú þarf ég að fá að vita hvað
þessi ferð kostaði. Til dæmis hve
marga hrossaskrokka? Þessi óþarfa
aukakostnaður lækkar endanlegt
verð til þeirra sem áttu hrossin og
var það þó ekki hátt fyrir.
Málefni landbúnaðarins hafa ver-
ið í hinum mesta ólestri síðan farið
var að gera tilraun til að stjórna
honum af þessum pappírsbúkum
fyrir sunnan, þeir vita ekki sitt ijúk-
andi ráð.
Ýmsar tillögur hafa komið fram
um stjórnun landbúnaðarmála,
sumar fáránlegar. Nefnt hefir verið
að hagkvæmast sé að hafa búin
stór og fá. Ég tel að hagkvæmast
sé að hafa búin ekki stærri en svo
að meðal fjölskylda ráði við að reka
þau, án þess að kaupa vinnuafl að.
Núverandi formaður Stéttarsam-
bands bænda er búinn að prófa að
búa stórt, og allir sem eitthvað
fylgjast með vita hvernig það ævin-
týri endaði.
SIGFÚS STEINDÓRSSON,
Víðigrund 8,
Sauðárkróki.
VELVAKANDI
HEILAHUFI
ELÍN og David Phifer og fjöl-
skylda þeirra, sem búa á jarð-
skjálftasvæðinu í San Fernando-
dalnum í Kaliforniu, báðu fyrir
þau skilaboð til ættingja og vina
á íslandi, að þau væru heil á
húfi og ekkert amaði að. Þau
báðu fyrir sérstaklega góðar
kveðjur til allra ættingja og vina
heima.
GÓÐ ÞJÓNUSTA
HJÁ BRIMBORG
MIG langar að þakka starfsfólki
þjónustudeildar Brimborgar á
Bíldshöfða 6 fyrir góða þjónustu
til margra ára. Sérstaklega
þakka ég Birgi, skrifstofustúlk-
unni og viðgerðarmönnum fyrir
þægilegheitin og einnig fyrir
kaffisopann sem alltaf stendur
til boða.
ZY-502
ÁSKORUN TIL
BÆNDA
GUNNAR Ingimundarson
hringdi og vill skora á sauma-
stofur og gæruframleiðendur að
nýta nú íslensku gæruna til þess
að sauma og markaðssetja 1.
flokks varning, t.d. kerru- og
vagnapoka fyrir börn. Þetta hef-
ur hann séð markaðssett með
góðum árangri í Svíþjóð og hví
skyldum við íslendingar ekki
gera þetta sama?
Hráefnið er til, saumastofur
eru reknar með hálfum afköst-
um og þeir eru margir sem vant-
ar vinnu. Þetta sparar gjaldeyri
og við eigum að markaðssetja
það sem okkur hefur nýst vel í
gegnum aldirnar. Horfum fram
á veginn. Þetta er áskorun til
bænda um að fara vel með ullina
og gærurnar.
ÚTRÝMUM
ATVINNULEYSI
OKKAR ástkæri söngvari, Krist-
ján Jóhannsson, og fleiri segja
við eigum fyrst að gera kröfur
til okkar sjálfra. Þetta er rétt.
Væri ekki möguleiki fyrir Dags-
brún, það stóra og öfluga félag,
að stofna sitt eigið fyrirtæki sem
gæti veitt tugum ef ekki hund-
ruðum manna vinnu. Yrði þetta
að veruleika þá yrði atvinnuleysi
Dagsbrúnarmanna úr sögunni.
Það hefur ætíð verið, og mun
ætíð verða undir hælinn lagt
hvort Pétur eða Páll taki mann
í vinnu. Þetta ættu Dagsbrúnar-
menn að athuga.
JH
TAPAÐ/FUNDIÐ
Hjól fannst
FJÓLUBLÁTT 21. gírs karl-
mannshjól fannst í húsagarði við
Hæðargarð. Upplýsingar í síma
32999.
Peningar töpuðust
PENINGAR í umslagi töpuðust
í Austurstræti sl. föstudag.
Heiðarlegur finnandi hafi vin-
samlega samband í síma 73383.
Fundarlaun.
Lyklakippa fannst
LYKLAKIPPA með fimm lykl-
um, þar af einum bíllykli, fannst
á Furumel við Grenimel sl.
sunnudagskvöld. Upplýsingar í
síma 10849 eða 686809.
fikeypis iögfræöiaöstoö
á hverju fimmtudagskvöldi milli
kl. 19.30 og 22.00 í síma 11012
0RAT0R# félag laganema
Guðrúnu Zoéga
borgarfulltrúa
í 3. sæti
í prófkjöri 30. og 31. janúar nk.
Skrifstofa stuðningsmanna er í
Síðumúla 8., 2. hæð.
Opið kl. 14-22 virka daga
og 13-18 um heigar.
Símar684490 og 684491.
Stuðningsmenn.
Upplýsingaskrifstofa
Björgólfs Guðmundssonar
Vatnagörðum 28
S 88 30 44 • 88 30 45
gP Opið 13-22. Allir velkomnir!
PROFKJOR SJALFSTÆÐISMANNA
RRENTDUFT
A BESTA
VERDINU!
I
I
i
Við bjóðum prentduft (toner) / alla Hewlett
Packard prentara á besta verðinu í bænum.
Og meira en það:
Við kaupum af þér
gömlu prenthylkin!
Njóttu öryggis með
rekstrarvörum frá...
£,e'Vi_err
-5££í<4flo
, \
Tæknival
Skeifunni 17 - Sími (91) 681665
Stuðningsmenn
Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar
borgarfulltrúa og varaformanns borgarráðs
hafa kosningaskrifstofu í
Skeifunni 11,3. hæð
(í sama húsi og Fönn)
Opið alla daga ki. 13-21
Símar: 682125 og 682512
Verið velkomin
[ Vilhjálmur óskar eftir stuðningi í eitt efsta
sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins.
Stöndum saman og veljum hæfa einstaklinga
til forystu. Sterkur framboðslisti tryggir
áframhaldandi trausta forystu
| Sjálstæðismanna í Reykjavík.
I - Kjósum Vilhjólm Þ. Vilhjálmsson
í eitt efsta sæti prófkjörslista Sjálfstæðisflokksins.
Stuðningsmenn