Morgunblaðið - 06.02.1994, Qupperneq 2
2 FRETTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1994
EFNI
Sigurður Einarsson í Vestmannaeyjum
um rækjukvóta sem loðnuskip hafa
Sjónarmið um
flutning byggð
á misskilningi
SIGURÐUR Einarsson, forsljóri ísfélags Vestmannaeyja, segir sjón-
armið um að flytja rækjukvóta loðnuskipa á skip Vestfirðinga byggj-
ast á misskilningi. Þá segir hann það einnig misskilning, að loðnu-
skipin hall fengið rækjukvóta vegna loðnubrests.
Slagsmál
áHöfn
LÖGREGLAN á Höfn þurfti að
hafa afskipti af nokkrum mönnum
i slagsmálum um sexleytið í gær-
morgun.
Tveir menn á aðkomubáti höfðu
farið í samkvæmi í bænum sem end-
aði í slagsmálum fyrir utan húsið þar
sem samkvæmið fór fram. Þar rifu
menn upp girðingu og að sögn lög-
reglu var slegist með girðingarefn-
inu. Þá var ein rúða í húsinu brotin.
Aðkomumennimir voru fluttir á
lögreglustöðina, þar var gert að sár-
um þeirra og síðan voru þeir fluttir
í bát sinn. Læknir á Höfn var látinn
vita og ætlaði hann að líta á þá sem
lemstruðust í slagsmálunum síðar í
gærdag.
Að sögn lögreglu voru kvennamál
tilefni slagsmálanna.
„Árið 1988 var sett aflamark á
rækjuveiðar og kvótanum skipt á milli
skipa. Einn þriðji af þeim kvóta fór
til loðnuskipanna og þá var bæði tekið
tillit til reynslu loðnuskipanna í botn-
fiski og rækjuveiðum. Þá var einnig
úthlutað rækjukvóta sem skiptist jafnt
á loðnuskipin,“ sagði Sigurður.
Sigurður segir flölmörg loðnuskip
hafa stundað rækjuveiðar undanfarin
ár með góðum árangri. Hann segist
ekki sjá hvemig það eigi að ganga
upp, að taka kvótann af þeim og fyr-
ir því sjái hann heldur engar forsendur.
„Ég harma að þessi umræða skuli
hafa komið upp og skil hana að sumu
leyti ekki. Ég harma að menn skuli
koma fram með sjónarmið sem byggj-
ast á ákveðnum misskilningi. Ég vil
líka vekja athygli á því, að við upp-
töku kvótakerfísins 1984 voru loðnu-
bátamir skertir mikið í bolfiski vegna
loðnuveiðanna og það gagnaðist þá
öðrum útgerðum," sagði Sigurður.
Aðspurður um rækjukvóta ísfé-
lagsins og ráðstöfun hans sagðist
Sigurður ekki vilja tjá sig um það í
þessu samhengi heldur aðeins ræða
málið almennt.
ilij-f 1:
//Mm
I'
■ - ' ■ ••■■■■;' -j
i 1 _ J 1 r
Morgunblaðið/Ingvar
Rúðubror
LOGREGLUMENN virða fyrir sér tvær rúður sem unglingar brutu
á lögreglustöðinni i Mosfeílsbæ eftir að lögreglumenn höfðu tekið
af þeim landa.
Málverkum, listmim-
um og áfengi stolið
BROTIST var inn í geymslu í húsinu við Austurstræti 16 á föstu-
dagskvöld. Þaðan var stolið áfengi, málverkum og listmunum.
Ekki er vitað hverjir voru að verki.
Á föstudagskvöld var brotist inn
á tveimur stöðum öðrum. í Breið-
holtskjöri var rótað til og ein-
hveiju stolið en tveir menn sem
brutust inn í myndbandaleigu við
Dunhaga náðust á staðnum.
Lögregla gerði á föstudags-
kvöld upptækan landa sem ung-
lingar í Mosfellsbæ höfðu undir
höndum. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins reiddust ungling-
amir þessu, fóru að lögreglustöð-
inni í bænum og brutu þar tvær
rúður.
Ekið var á þrjú böm við Fífu-
rima í Grafarvogi á föstudags-
kvöld. Tvö þeirra vom flutt á
slysadeild með minniháttar meiðsl.
U ndirbúningnr að uppsetningu GSM-farsímakerfis er í fulium gangi
Fyrsti búnaðurinn væntan-
legur til landsins á næstunni
FYRSTI búnaður til uppsetningar á GSM-farsímakerfi er væntan-
legur til landsins i iok þessa mánaðar, en þar er um að ræða
stjórnstöð og radíóstöðvar, og að sögn Haraldar Sigurðssonar,
aðstoðarframkvæmdastjóra fjarskiptasviðs Pósts og síma, er kostn-
aður búnaðarins á bilinu 250-300 milljónir króna. Hann sagði að
farið yrði að vinna að uppsetningu búnaðarins strax og hann
væri kominn til landsins, en svæðið sem hann mun ná til nær frá
Leifsstöð og upp í Mosfellsbæ og í austurátt að Lækjarbotnum.
Að auki verður ein stöð austan Eyjafjarðar og mun hún þjóna
Akureyrarsvæðinu. Gert er ráð fyrir að hægt verði að taka búnað-
inn í notkun í lok júlímánaðar.
Að sögn Haralds þarf nýjan bún-
að fyrir GSM-farsímakerfíð (Global
System Mobile), og er gert ráð
fyrir að verð á honum verði fyrst
um sinn svipað og á núverandi far-
símabúnaði, en hins vegar muni
það lækka eitthvað þegar fram líða
stundir. GSM-kerfíð er stafrænt
kerfí sem hefur ýmsa eiginleika
umfram núverandi farsímakerfí,
sem starfrækt verður áfram vel
fram yfír næstu aldamót. Til dæm-
is verður ekki hægt að hlera sam-
töl í GSM-kerfínu, og síðar mun
það gefa möguleika á yfírfærslu
tölvusamskipta og aukaþjónustu á
borð við flutning skilaboða.
„í GSM-kerfínu verður mun
meira úrval af handstöðvum, enda
verður kerfíð uppbyggt þannig að
það á að ná til handstöðva víðast
hvar á þessu svæði þó þær séu inni
í húsi eða bíl, þar sem miklu meiri
sviðsstyrkur er frá þessu kerfí en
núverandi kerfi sem einungis var
miðað við bílstöðvar. Kostnaður við
fyrsta áfanga farsímakerfísins
verður á milli 250 og 300 milljónir
króna, en gert er ráð fyrir að hann
geti annað 3.000 notendum. Fjölg-
un úr því verður síðan hlutfallslega
miklu ódýrari því það er miðstöðin
sem er svona dýr og hún getur
þjónað miklu fleiri en þessum 3.000
notendum sem við gerum ráð fyrir
í upphafí," sagði Haraldur.
Hann sagði að ætlunin væri að
útfæra GSM-farsímakerfíð smátt
og smátt út frá því svæði sem byij-
að verður með bæði í norðurátt og
austurátt og þá byijað á þéttbýlis-
svæðum meðfram þjóðvegi 1. Áætl-
að væri að hægt yrði að ráðast í
þetta að miklu leyti á næsta ári,
en það væri hins vegar háð fjár-
lagaheimildum, og stefnt væri að
því að koma kerfínu á um allt land
á örfáum árum.
Dæmi um að fólk segi
upp leikskólaplássum
vegna atvinnuleysis
ÞESS hefur orðið vart upp á síðkastið að fólk hafi sagt upp leik-
skólaplássum barna sinna í kjölfar þess að það hafí misst at-
vinnu. „Við verðum auðvitað aðeins vör við það ef fólk á ekki
peninga að þá neitar það sér um þennan hlut,“ sagði Bergur
Felixson, framkvæmdastjóri Dagvistar barna, í samtali við Morg-
unblaðið.
Bergur sagði að þegar ljóst
hefði verið að atvinnuleysi færi
vaxandi hefði stjóm Dagvistar
bama samþykkt að biðja leik-
skólastjóra að líta sérstaklega til
þessa þannig að það kæmi ekki
niður á bömum ef fólk væri að
missa leikskólapláss vegna fjár-
skorts. Framfærsla væri hins veg-
ar á vegum fjölskyldudeildar Fé-
lagsmálastofnunar og þangað
hefði fólki verið beint undir þess-
um kringumstæðum,,
„Ef við verðum vör við að fólk
er að segja upp plássi vegna pen-
beina því og báðum við leikstjóra-
skóla að vera vakandi yfír því og
tilkynna ef mikið yrði vart við
slíkt. Ég get hins vegar fullyrt
ingaleysis þá reynum við að leið- það að þetta hefur ekki verið í sagði Bergur.
neinum miklum mæli. Ástæðan
held ég að sé sú að þó að þrengi
að hjá fólki þá láti það það síðast
koma niður á bömum sínum,"
Margir kallaöir, fáir
útvaldir
►Prófkjör fyrir væntanlegar
sveitastjómarkosningar hafa stað-
ið yfir að undanfömu. Niðurstöður
þeirra hafa vakið ýmsar spurning-
ar./lO
Óskabörn Rússa ráða
ekki lengur
►Forsetakjör markar þáttaskil í
finnskum þjóðmálum./12
Nútímalist rykfellur á
íslandi
►Segir Magnús Kjartansson
myndlistarmaður, en sýning hans
á Kjarvalsstöðum hefur vakið
mikla athygli./14
Suðupunktur í Seðla-
banka
►Það getur orðið þrautum þyngra
að manna seðlabankastjórastól-
anna sem bíða eftirmanna þeirra
Tómasar Ámasonar og Jón Sig-
urðssonar/16
Ragnar í Smára
►Níutíu ár em liðin frá fæðingu
Ragnars Jónssonar í Smára./20
B
► 1-32
í söngspegli
►Óperan kallar á stórt svið, stóra
hljómsveitargryfju og stórt hús,
segiróperusöngvarinn Sigurður
Bjömsson, sem hefur ekki aðeins
stórar og ákveðnar hugmyndir um
óperahús, heldur líka um hag-
kvæma stjómun þess. Á fjöratíu
ára söngafmæli lítur Sigurður á
líf óperusöngvarans og segir skoð-
un sína á tónlist og óperu hér á
landi./l
Huldar bækur Bibl-
íunnar
►Verið er að gefa út nýja þýðingu
á aprokrýtum bókum Gamla texta-
mentisins./4
Keith Richards
►Gripið niður í nýútkomna ævi-
sögu Keith Richards, einnar fræg-
ustu rokkstjömu okkartíma./8
í húsi andanna
►Viðtal við danska leikstjórann
Bille August, en mynd hans, Hús
andanna, verður framsýnd hér á
landi á næstunni./14
C
BILAR
► l-4
Eldsneytissparnaður
upp á tugmilljónir
► Þingályktunartillaga um notkun
eldsneytis- og mengunarvamar-
búnaðar í ríkisbifreiðir /1
Mazda 323 reynsluek-
ið
►Snarpur og rúmgóður bíll með
góða aksturseiginleika /2
FASTIR ÞÆTTIR
Fróttir 1/2/4/6/bak
Kvikmyndahús 22
Leiðari 24
Helgispjall 24
Reykjavfkurbréf 24
Minningar 26
íþróttir 42
Útvarp/sjónvarp 44
Gárur 47
Mannlifsstr. 6b
Kvikmyndir 8b
Dægurtðnlist 9b
Fólk f fréttum 16b
Myndasögur
Brids
Stjömuspá
Skák
Bíó/dans
Bréftil blaðsins 24b
Velvakandi 24b
Samsafnið 26b
18b
18b
18b
18b
22b
INNLENDAR FRÉTTIR-
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR-
1-4