Morgunblaðið - 06.02.1994, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 06.02.1994, Blaðsíða 34
 ATVINNURAD- OG SMÁAUGLÝSINGAR ATVIN N U A UGL YSINGAR Upplýsingastarf Opinber stofnun óskar eftir starfsmanni til upplýsinga- og fræðslustarfa. Góð kunnátta í íslensku og erlendum tungu- málum áskilin a.m.k. í ensku og einu Norður- landamáli. Reynsla í kennslu eða fjölmiðla- starfi og tölvuumbroti kæmi sér vel. Háskóla- menntun æskileg og lipurð í mannlegum samskiptum nauðsynleg. Laun skv. launa- kerfi opinberra starfsmanna. Umsókn berist auglýsingadeild Mbl. fyrir 12. febrúar nk. merkt: „Upplýsingastarf - 13078“. Snyrtivörudeild HAGKAUP óskar að ráða starfsmann í snyrti- vörudeild í verslun fyrirtækisins á Akureyri. Æskilegt er að umsækjendur uppfylli eftirfar- andi skilyrði: - Hafi menntun í snyrtifræði og reynslu af sölu á snyrtivörum. - Hafi góða og örugga framkomu. - Geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir deildarstjóri á staðnum (ekki í síma) og starfsmannastjóri, Skeifunni 15, 108 Reykjavík. HAGKAUP SKATTJ RANNSÓKNIR Ákveðið hefur verið að fjölga starfsmönnum hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins. Eru því lausar til umsóknar stöður rannsóknar- manna. Um er að ræða störf sem felast í rannsókn á skattskilum og eftir atvikum bókhaldi fyrir- tækja til að upplýsa skattsvik og önnur brot á skattalögum. Umsækjendur þurfa að hafa lokið prófi í lög- fræði, viðskiptafræði eða hagfræði, vera lög- giltir endurskoðendur eða hafa yfirgrips- mikla þekkingu á skattskilum, reikningshaldi og skattframkvæmd. Þá þurfa umsækjendur að hafa óflekkað mannorð, vera agaðir í vinnubrögðum og hæfir til að tjá sig skipu- lega á rituðu máli. Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun, fyrri störf og önnur atriði sem máli þykja skipta sendist skattrannsóknar- stjóra ríkisins, Borgartúni 7, 150 Reykjavík, fyrir 8. febrúar nk. SKA TTRANNSÓKNARSTJÓRI RÍKISINS Prentari Vantar fjölhæfan prentara, helst vanan lita- prentun. Alprent, Glerárgötu 24, 600Akureyri, símar 96-22844 og 96-23209. Varahlutaverslun Sölumann vantar í sölu á varahlutum, verk- færum og fleiru. Áhugasamir leggi inn umsókn með upplýs- ingum um fyrri störf ásamt meðmælum ef til eru á auglýsingadeild Mbl. merkta: „Framtíð - 10211“. Fatahönnuður óskast til starfa strax. Þarf að hafa til að bera frjóa hugsun, góða þekkingu á efnum, grundvallarþekkingu á fatasaum og upp- byggingu fatnaðar. Einnig næmt auga fyrir pössun, litum og litasamsetningu. Laun eftir samkomulagi. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 15. febrúar ’94 merkt: „Hönnun - 1194“. Afgreiðslustarf Sérverslun á Stór-Reykjavíkursvæðinu óskar eftir vönum starfskrafti til afgreiðslustarfa. í boði er heilsdagsstarf og hálfsdagsstarf. Umsóknum, með upplýsingum um aldur og fyrri störf, sé skilað til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 10. febrúar ’94 merktum: „Reyklaus - 13077“. Sölumaður óskast Laust er til umsóknar starf sölumanns hjá vel þekktu þjónustufyrirtæki. Æskilegur aldur 25-35 ára. Starfið felst í sölu og dreifingu. Umsóknarfrestur er til 10. febrúar. Umsóknir skal senda til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „E - 10567“. Sölufólk Viljum ráða sölufólk. Góð vinnuaðstaða. Góð verkefni. Símasala og/eða heimakynningar. Reynsla af sölumennsku ekki skilyrði. Upplýsingar veittar í síma 28787 á milli 14 og 17 í dag, sunnudag, og fyrir hádegi næstu daga. IÐUNN • VANDAÐAR BÆKXJR í 45 ÁR • Næturvörður Þekkt þjónustufyrirtæki óskar að ráða næt- urvörð í 40% starf. Unnið er aðfaranótt laug- ardags og sunnudags frá kl. 22.00-6.00. Starfið er krefjandi og viðkomandi vinnur einn að nóttu til. Ábyrgðarstarf. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu- blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar merktar „31“ fyrir 11. febrúar. Hagvangur h if Skeifunni 19 Reykjavík Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir Atvinnurekendur Norræn ungmenni á aldrinum 18-26 ára óska eftir vinnu á íslandi í sumar á vegum NORDJOBB. Ef ykkur vantar starfskraft í styttri eða lengri tíma og hafið áhuga á norrænu samstarfi, haf- ið þá samband við Nordjobb hjá Norræna félag- inu í Reykjavík, s. 91-19670 eða Norrænu upp- lýsingaskrifstofuna á ísafirði, s. 94-3393. Bændur Viljið þið ráða norræn ungmenni á aldrinum 18-26 ára í sumarvinnu? Hafið samband við NORDJOBB hjá Norræna félaginu í Reykja- vík, s. 91-19670 eða Norrænu upplýsinga- skrifstofuna á ísafirði, s. 94-3393. Ert þú á aldrinum 18-26 ára? NORDJOBB er samnorrænt verkefni sem stuðlar að vinnumiðlun ungs fólks á Norður- löndum. Ef þú hefur áhuga á að vinna sumar- vinnuna þfna á Norðurlöndum getur þú nálg- ast umsóknareyðublöð fyrir Nordjobb í öllum framhaldsskólum, hjá Norræna félaginu í Norræna húsinu, 101 Reykjavík og Norrænu upplýsingaskrifstofunni í Stjórnsýsluhúsinu á ísafirði. Viltu skipta á sumarstarfinu þínu? NORDJOBB er vinnumiðlun ungs fólks á Norðurlöndum. Ef þú getur útvegað þér sum- arstarf í þínu landi þá bjóðum við þér að skipta á þínu starfi og-Nordjobb starfi. Allar nánari upplýsingar hjá Norræna félag- inu í Reykjavík, sími 91-19670.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.