Morgunblaðið - 06.02.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.02.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1994 21 fyrirtæki hans, en sama ár hefur tímaritið Helgafell einnig göngu sína. Varð Ragnar nú brátt um- svifamesti forleggjari landsins og útgefandi bóka flestra bestu rithöf- unda þjóðarinnar. Markaði Helga- fell á margan hátt tímamót í út- gáfustarfsemi hér á landi með út- gáfu stærri upplaga og greiðslu mun hærri ritlauna en. áður höfðu tíðkast. Jafnframt sóttist hanri eft- ir verkum yngri rithöfunda og var boðinn og búinn til að styrkja efni- lega menn til starfa. Með fordæmi hans og útgáfustarfi voru því ís- lenskum rithöfundum tryggð betri skilyrði til starfa en þeir höfðu nokkru sinni áður þekkt. Myndlistin varð ekki heldur út- undan hjá Ragnari, en hann hóf snemma að safna listaverkum og átti að lokum ótvírætt besta safn íslenskra málverka og höggmynda, sem nokkum tíma hefur verið í eins manns eign hér á landi. Eins og á öðrum sviðum voru kaup hans á listaverkum oft gerð í því skyni sérstaklega að styrkja listamenn til starfa og leysa vanda þeirra sem áttu erfítt uppdráttar eða litlum almennum skilningi að fagna. Söfnun listaverka af fordild eða í auðgunarskyni var honum fjarri. Umfram allt vildi hann stuðla að því að gera alla góða list að al- sín í sköpun og nautn fagurra lista. Ragnar breytti ekki aðeins af- komu og starfsskilyrðum íslenskra skálda og listamanna meira en nokkur maður annar, heldur var hann einkavinur og hjálparhella flestra fremstu andans manna sem honum voru samtíða. Hann skildi, að öll listræn sköpun er eins og viðkvæmur gróður sem þarf að- hlynningar og skjóls ef hann á að dafna og ná fullum skrúða. Þetta átti ekki síst við um hinar nýju list- greinar sem þá voru að festa ræt- ur í fyrsta skipti í íslenskri mold. A sama hátt var Ragnar ætíð boð- inn og búinn til að hlúa að þeim mönnum sem hann fann að þurftu á stuðningi að halda til að fá notið hæfileika sinna og sköpunargáfu. Hvern ávöxt allt þetta bar í blóm- legra menningarlífi verður eðli málsins samkvæmt aldrei metið til fulls. Ragnar gerði sér manna best grein fyrir nauðsyn opinbers stuðn- ings við menningar- og listalíf með okkar fámennu þjóð og barðist af oddi og egg fyrir auknum framlög- um ríkis og borgar til þeirra mála. Engu að síður bar hann ætíð nokk- um ugg í bijósti vegna vaxandi afskipta ríkisvalds og stjómmála- afla af menningarmálum. Hann taldi mikilvægt að helstu menning- arstofnanir gætu notið sjálfsfor- Loks fánlegar í nýrri þýðingu Apokrýfar bækur Gamla testamentisins með formálum og skýringum Kynningarverð: kr. 3.850.- HIÐ ÍSLENSKA BIBLÍUFÉLAG Kjarval og Ragnar. menningseign. Þess vegna gerðist hann brautryðjandi í útgáfu vand- aðri listaverkabóka en hér höfðu áður sést, auk þess að láta prenta stórar litprentanir af úrvalsmál- verkum til upphengingar á heimil- um og vinnustöðum. Þannig kynnt- ist stór hluti þjóðarinnar í fyrsta skipti verkum sinna bestu lista- manna. Loks gaf Ragnar Alþýðu- sambandinu meginþorrann af lista- verkasafni sínu árið 1961 ásamt ríflegum fjárstyrk í því skyni að þessi stórbrotnu listaverk gætu orðið lifandi þáttur í lífi allrar al- þýðu í landinu. Ég mun ekki rekja hér frekar störf Ragnars og er þó margfalt fleira ósagt en upp talið, Sannleik- urinn er reyndar sá að engin grein- argerð fyrir sýnilegum verkum hans getur nokkru sinni nægt til að gefa eftirkomandi kynslóðum nema ófullkomna hugmynd um þau áhrif sem hann hafði á ís- lenskt menningarlíf. Þau Grettis- tök sem hann lyfti til eflingar tón- listar, bókmennta og myndlistar bera vissulega vitni um einstæða atorku og þrautseigju, enda var hann löngu orðinn þjóðsagnaper- sóna í eigin lífi. Óteljandi sögur eru sagðar um athafnasemi hans, hugmyndaauðgi og úrræðasemi. Ekkert virtist honum óviðkomandi sem stefndi til framfara í menning- armálum og alltaf var hann fyrstur á vettvang, þegar þörf var skjótra viðbragða eða fjárhagslegs stuðn- ings. Ahrif hans hefðu þó aldrei orðið þau sem raun ber vitni, ef hann hefði ekki unnið öll störf sín af þeirri óeigingirni sem ekki biður um önnur laun en að sjá aðra njóta ræðis í sem ríkustum mæli og byggt starf sitt sem mest á áhuga almennings og leiðsögn listamann- anna sjálfra, en yrðu aldrei of háð- ar opinberum fjárveitingum og þeim pólitísku áhrifum sem þeim eru oftast samfara. Sjálfur fýlgdi hann þessari stefnu fram með því að veija eigin fjármunum ótæpi- lega til að styrkja þá starfsemi sem hann bar fyrir bijósti. Þess vegna voru það helstu vonbrigði hans, einkum á síðustu árum ævinnar, að sjá hugsjónir sínar í þessu efni á undanhaldi fyrir aukinni forsjá hins opinbera í menningarmálum. Tíminn líður hratt og nú eru bráðum tíu ár síðan Ragnar féll frá eftir langa og erfiða sjúkdóms- baráttu. Það er því nokkrum árum lengra síðan hann var enn í fullu ijöri, á sífelldum þönum um bæinn að sinna hugðarefnum sínum og hvetja menn og styrkja. Það var eins og brygði birtu og dofnaði yfir öllu sviðinu, þegar hann var horfinn. Engu að síður héldu verk hans áfram að lifa í því fjölbreyti- lega listalífi borgarinnar sem hann lagði öllum öðrum fremur grund- völl að. Þótt margir samtíðarmenn hans verði vafalaust fyrirferðar- meiri á spjöldum sögunnar og skilji sumir eftir sig áþreifanlegri minn- ismerki, hafa fáir þeirra verið jafn- áhrifamiklir í samtíð sinni og Ragnar í Smára. Hann var aflgjafi flestra bestu listamanna þjóðarinn- ar á einu gróskumesta tímabili í sögu íslenskrar menningar og áhrif hans eru samofin því besta sem skapað var í íslenskum bókmennt- um og listum um hálfrar aldar skeið. r//^0»spen„andifci&a^un9,febrU8f°»fl»9/s/ AIR sem þig dreymir um og óendanlega margt annað. Er hægt að hugsa sér það betra undir sólinni? ► Verslanamiðstöðvar eins og þær gerast stærstar, bestar og ódýrastar. ► Einstök náttúrufegurð og yfir öllu brosii sólin sínu breiðasta. ► Fyrsta flokks gisting í bandarískum klassa. Beint flug til Fort Lauderdale. Þríréttuð máltíð, Saga Boutique tollfrjálsa flugbúðin, bíómynd, blöðin, úrvals þjónusta - fyrr en varir er vélin lent í sólskinsparadísinni. Saga Class munaður gegn 8.000 kr. viðbótargjaldi hvora leið. Fjölbreytt úrval bíómynda, stærri og þægilegri sæti, matseðill, fríir drykkir og aukin þjónusta. Kvikmyndir um borð í febrúar og mars. Til Fort Lauderdale: The Age of Innocence (Daniel DayLewis, Michelle Pfeiffer). Frá Orlando: Malice (Alec Baldwin, Nicole Kidman). á mann í tvíbýli á Best Western Oceanside Inn í 3 nætur/4 daga. Önnur hótel í boði: Holiday Inn, Lago Mar Resort og Guest Quarters. 45.890 kr. í 4 nætur/5 daga*. Bílaleigubíll í einn dag fylgir. Flogið út síðdegis á föstudögum og í hádeginu á laugardögum. Flogið heim á þriðjudagskvöldum frá Orlando. QATLfAS^ © B * 5% staðgreiðsluafsláttur. Börn 2ja -11 ára fá 15.000 kr. afslátt. Börn yngrl en 2ja ára greiöa 3.000 kr. Allir skattar innifaldir. Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn um allt land, ferðaskrif- stofumar eða í sima 690300 (svaraö alla 7 daga vikunnar frá kl. 8-18). FLUGLEIDIR Traustur íslenskur ferðafélagi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.