Morgunblaðið - 06.02.1994, Page 10

Morgunblaðið - 06.02.1994, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1994 KROFTUG eftir Guðna Einarsson FKJOR Morgunblaðið/Kristinn hvern sinn fingur í þeim efnum og samdi „Ekki frétta“-þætti þar sem beinlínis var ráðist á mig. Ég gat ekki borið hönd fyrir höfuð mér og tók afleiðingum -vissulega gjörða minna.“ Takmörkun á umfangi í Reykjavík samþykktu flestir frambjóðendur á sameiginlegum fundi að auglýsa ekki í útvarpi og sjónvarpi, en máttu auglýsa_í dag- blöðum og gefa út bæklinga. í Hafn- arfirði var frambjóðendum nú í fyrsta sinn leyft að kynna sig með eigin útgáfu, en allar fjölmiðlaaug- lýsingar voru bannaðar. Nú gefa menn út allt frá kynning- um í sendibréfsformi upp í margra síðna litprentuð glæsirit sem send eru 12 þúsund Reykvíkingum á kjör- skrá. Lesmálinu var ýmist dreift með pósti eða stuðningsmenn báru það til viðtakenda. Auk beinna aug- lýsinga skrifuðu frambjóðendur og stuðningsmenn þeirra fjölda kynn- ingargreina í dagblöð. Ekki lögðu allir frambjóðendur í jafn viðamikla kosningabaráttu og hér er lýst og að minnsta kosti einn, Amal Rún Qase, kostaði ekki til neinum fjármunum að eigin sögn. Þrátt fyrir ódýra kosningabaráttu fór ekki framhjá neinum að hún tók þátt í prófkjörinu. Framboð hennar er og líkast til það eina sem þótti fréttnæmt í útlöndum. í stað auglýs- inga og útgáfu hélt hún vinnustaða- fundi og ræddi í síma við þá sem hringdu. rj ÁRANGURSRÍK þátttaka í prófkjör- um á borð við þau sem sjálfstæðis- menn í Reykjavík og Hafnarfirði héldu um síðustu helgi krefst nákvæmrar skipulagningar, mikillar vinnu og tals- verðra fjármuna af hálfu frambjóð- enda. Vaknað hafa spumingar um hvort prófkjörin séu í réttum farvegi eða hvort umfangið sé orðið of mikið. Eins og endranær sannaðist hið fom- kveðna að margir em kallaðir en fáir útvaldir. Nokkrir standa uppi með pálmann í höndunum en aðrir, bæði reyndir og óreyndir, fengu aðra útreið en þeir hefðu óskað. Kosningaundir- búningur frambjóðenda fyrir prófkjör hefur þróast í áranna rás og nú var undirbúningur margra líkt og smækk- uð útgáfa af flokksmaskínu í almenn- um kosningum. Frambjóðendur í Reykjavík, töldu yfirleitt að prófkjörs- baráttan hafi verið heiðarleg og einkennst af prúðmennsku. Til marks um andrúmsloftið var nefnt að frambjóðendur hefðu farið í kurt- eisisheimsóknir hver til annars og fylgst með stöðu mála. Leiðinlegir fylgifískar á borð við söguburð og persónuníð hafi ekki verið áberandi. Einn frambjóðandinn, Amal Rún Qase, taldi sig þó óneitanlega ha,fa fengið ómælt af sögusögnum. Segir hún að verulegur hluti kosningaund- irbúnings síns hafi farið í að bera til baka alls kyns slúður. í Hafnarfirði var baráttan snarp- ari og harðari en áður. Fyrir próf- kjörið hafði verið óeining um oddvita flokksins í bæjarstjórn og setti það sitt mark á kosningabaráttuna. Þá setti það annan stíl á baráttuna en áður að frambjóðendur í Hafnarfirði opnuðu í fyrsta skipti kosningaskrif- stofur og efndu til útgáfu bæklinga og blaða með tilheyrandi kostnaði. Talsvert bar á umræðu um biokka- myndanir milli frambjóðenda og fylkingar kringum íþróttaféiögin FH annars vegar og Hauka hins vegar. Þá var rætt um að Mathiesen-fjöl- skyldan beitti áhrifamætti sínum af fullum þunga í þágu Þorgils Óttars Mathiesen bæjarfulltrúa, án tilætl- aðs árangurs. Hann var í 3. sæti listans og stefndi á 1. sæti. „Mathi- esen nafnið varð mér ekki til fram- dráttar í þessu prófkjöri, það var notað gegn mér leynt og ljóst. Ég hafði gagnrýnt oddvita flokksins fyrir að misnota aðstöðu sína og það er oft svo að sendjboðum er refs- að,“ sagði Þorgils Óttar sem lenti í 5. sæti. Alvöru kosningastarff Fyrir prófkjörin spruttu upp kosn- ingaskrifstofur mannaðar sjálfboða- liðum og jafnvel föstum starfsmönn- um sem hringdu út eftir kjörskrám og öfluðu frambjóðendum stuðnings. Þeir sem þegar gegna pólitískum embættum eru þekkt andlit og njóta þannig forskots á nýliðana í sam- keppninni um athygli kjósenda. Póli- tískur frami virðist þó geta verið tvíbent vopn í höndum frambjóð- enda. Nokkrir frambjóðendur, sem hlutu slæma útreið, hafa kennt því um að þeir hafi verið gerðir að blóra- bögglum sem persónugervingar erf- iðra málaflokka á kjörtímabilinu. Margir höfðu spáð Júlíusi Haf- stein tryggu sæti, en sem kunnugt er náði hann því ekki og kennir meðal annars um uppákomu sem varð í miðri prófkjörsbaráttunni. „Þetta mál með Örnólf Arnason og Rithöfundasambandið stórskaðaði framboð mitt. Ríkisútvarpið lék við Kostnaóur Af viðtölum við frambjóðendur í Reykjavík má ráða að útlagður kostnaður við einstök framboð hafi verið frá sama sem engu og upp undir milljón krónur. Samkvæmt upplýsingum nokkurra frambjóð- enda virðist sem „alvöru“ kosninga- barátta, með tilheyrandi útgjöldum vegna kosningaskrifstofu, útgáfu og auglýsinga, hafi kostað frá 500 og til um 800 þúsund krónur. Fáir frambjóðendur fóru fram úr þeirri upþhæð og margir sluppu með minna. í Hafnarfirði var á mönnum að heyra að kostnaður hafi verið töluvert lægri þar við fullburðugt framboð en í Reykjavík. Þar nefndu frambjóðendur tölur frá um 100 til 200 þúsund og upp undir 500 þús- und í kostnað. Fjáröflun Kosningasjóða var aflað með ýms- um hætti. Ymist leituðu þeir sem rætt var við sjálfír til stuðnings- manna og báðu um framlög eða skip- uðu íjáröflunarnefndir sem leituðu eftir framlögum og forðuðust sjálfir allt peningavafstur. Flestir höfðu auk þess söfnunarbauk á kosninga- skrifstofunni. Tveir ungir frambjóð- endur héldu íjáröflunarveislur, líkt og tíðkast viða erlendis. Seldi annar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.