Morgunblaðið - 06.02.1994, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 06.02.1994, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1994 KVIKMYNDIR/HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til sýninga kvikmyndina Carlito’s Way eftir Brian De Palma með óskarsverðlaunaleikarann A1 Pacino í aðalhlutverki Á heimavelli dómarans Carlito AL Pacino leikur Carlito Brigante, dæmdan bófa sem Undirheimadaðrari UNDIRHEIMARNIR toga í lögfræðing Oarlitos, sem Sean Penn leikur. Á ÞRIÐJA sunnudegi í ágúst er haldinn gaml- ingjadagur í spænska Harlem í New York. Fólk fylllir gangstéttarnar og horfir hafnaboltaleik sem fram fer á götunni en í þetta skipti, sumarið 1975, dregur það-athygli frá leiknum að gamall stórlax úr spænska Harl- em, Carlito Brigante (A1 Pacino) er laus úr fang- elsi og farinn að kominn á heimslóðir. Carlito er þjóðsagnapersona í spænska Harlem fyrir at- hafnasemi í undirheim- um; hann var aðaltöffar- inn á svæðinu þar til hann var ranglega dæmdur í fangelsi; Iögreglan og saksóknarinn brutu lög til að hafa betur og koma Carlito bak við lás og slá. Áfrýjunarrétturinn færði eiturlyfjasalanum Carlito svo réttlætið og lét hann lausan. Nú þegar Carlito er kom- inn heim og ákveðinn í að snúa baki við undirhei- munum. Carlito finnst enda hverfið sitt ekki svipur hjá sjón. Ungir bófaforingjar hafa leyst þá gömlu af hólmi og Carlito er ekki sáttur við þróunina; hann er meyrari en áður og búinn að fá nóg. Gagnvart nýju foringjunum er Carlito í svipaðri stöðu og gömlu byssubófamir í villta vestrinu. Strákamir vita að sá sem drepur Carlito verður sjálfur þjóðsagnapersóna. Carlito finnst þess vegna kominn tími til að forða sér áður en hann missir annað hvort orðstírinn eða lífið og hann dreymir um að hefja nýtt líf á Bahamaeyjum með ástinni sinni (Penolope Ann Miller). Til að láta drauminn rætast vantar peninga og vill byrja nýtt líf. Carlito ætlar að ná sér í þá með því að reka næturklúbb fyrir lögfræðinginn sinn, Kleinfeld sem (Sean Penn), sem finnst gaman að leika sér að eldi undirheimanna. Kynnin af lögfræðingnum verða Carlito örlagarík. Sagan um Carlito Brig- ante er hugverk manns sem heitir Edwin Torres og er dómari við fylkisdómstólinn í New York. Sem dómari hefur Torres fjallað um nokkur af sögufrægustu glæpamálum vestanhafs hin síðari ár. Torres hefur getið sér orð fyrir að taka glæpa- menn engum vettlingatökum og hefur verið kallaður Tíma- vélin vegna þess yfirleitt líð- ur langur tími frá því að glæpamenn ganga út úr hans réttarsal og þar til þeir verða frjálsir menn að nýju. „Skil- orðseftirlitsmaðurinn þinn er ekki fæddur enn þá,“ sagði Tímavélin einu sinni við mann sem hann dæmdi til langdvalar í fangelsi og þau ummæli þykja lýsandi fyrir viðhorf hans til starfsins. Myndin Carlitos Way er byggð á tveimur skáldsögum Torres, Carlito’s Way og After Hours. í sögunni um Carlito fy'allar Torres um tvo heima sem hann þekkir mætavel; spænska Harlem þar sem hann er sjálfur bor- inn og barnfæddur og banda- ríska réttarkerfið sem hefur verið starfsvettvangur hans í 36 ár. Með lögfræðingnum, sem Sean Penn leikur, segist Torres vera að lýsa týpu sem hann hefur margoft rekist á. Brian De Palma leikstjóri myndarinnar segir að Carlito Brigante sé klassísk kvik- myndahetja — rómantískur töffari sem setur heiður sinn ofar öðru. Þetta var dæmi- gert hlutverk fyrir A1 Pacino en samt ólíkt flestu öðru sem hann hefur leikið. Svo sem frægt er leggur A1 Pacino flestum mönnum meira á sig við að búa sig undir hlutverk og þótt hann hafi heldur slakað á í þeim efnum síðari árin hefur hann ekki látið af þeim vana sínum að búa í og samlaga sig því samfé- lagi sem myndin fjallar um. Það kom í hlut dómarans að leiða Pacino inn í spænska Harlem, sýna honum það sem hann þurfti að sjá og kynna hann fyrir þeim sem hann þurfti að hitta. „Við fórum um austurhluta Harl- em til þess að A1 gæti drukk- ið í sig götulífíð. Það var magnað að sjá hvemig hann drakk þetta allt í sig eins og svampur; hreyfingarnar, frasana, táknmálið og svip- brigðin," sagði Torres. Leikstjóri Carlito’s Way, Brian De Palma, hefur áður unnið með Pacino þvi hann leikstýrði Scarface þar sem Pacino var í hlutverki kúb- verska glæpaforingjans Tony Montana. „Þegar A1 lék Tony „Scarface" Montana þá lét hann sér ekki nægja að leika; hann var Montana allan sól- arhringinn í eitt ár. A1 býr yfir ótrúlegum hæfileikum sem hann hefur virkjað og þroskað í gegnum árin. Þeg- ar hann er annars vegar þá veistu aldrei á hveiju þú átt von. Það er stórkostlegt að fylgjast með honum,“ segir De Palma. Pacino, sem fékk óskars- verðlaun í fyrsta skipti í átta tilraunum síðastliðið vor fyrir leik sinn í Konuilmi, er hins vegar búinn að læra að slaka á með árunum ef marka má orð eins elsta samstarfs- manns hans, framleiðandans Martins Brest: „Á tökustaðn- um er A1 alltaf fastur í hlut- verkinu og alltaf jafn næmur og lifandi en nú orðið er hann farinn að leyfa sér það að fara bara heim á kvöldin og vera A1 Pacino í smástund inn á milli," segir Brest en hann var upphafsmaður að gerð myndarinnar um Car- lito. Hann las sögu Torresar dómara og réði handritshöf- undinn David Koepp, sem skrifaði handritin að Jurassic Park og Death Becomes Her til þess að breyta sögunni í kvikmyndahandrit sem tæki mið af því að Pacino yrði í titilhlutverkinu. „Þetta hlut- verk var eins og sniðið fyrir Pacino en samt ólíkt öllu því sem hann hefur áður gert.“ Martin Brest er gamalreynd- ur framleiðandi og hefur bor- ið ábyrgð á mörgum af bestu myndum Pacinos. Þannig framleiddi hann Serpico og Dog Day Aftemoon, og einn- ig Scarface eftir DePalma og einnig Sea of Love. Aðstandendur Carlito’s Way leggja áherslu á að þrátt fyrir að að í myndinni. sé full af spennu og hasar sé þetta umfram allt rómantísk saga. „í raun og veru er þetta saga um mann-sem á sér draum. Hann hefur gert eitt og annað af sér og hefur setið inni en nú sér hann fram á tækifæri til að byija nýtt líf með konuni sem hann elskar," segir De Palma. Carlito’s Way var frum- sýnd vestanhafs snemma vetrar og hefur fallið gagn- rýnendum jafnt og áhorfend- um býsna vel í geð. Margir telja hana meðal betri mynda hins mistæka De Palma. Stórleikur frá A1 Pacino telst ekki til tíðinda en leikur Sean Penn í hlutverki lögfræðings- ins þykir mörgum með því besta sem hann hefur gert og talsverður leiksigur fyrir Penn sem haft hefur hægt um sig síðustu misserin. Oftast á jaðrinum A1 Pacino sem leikur Carlito Brigante hlaut sem kunnugt er óskarsverðlaunin síðastliðið vor fyrir besta leik í aðalhlutverki í myndinni Konu- ilmi. Þrátt fyrir átta tilnefningar var það ekki fyrr en í vor að Pacino sem hefur skapað nokkr- ar af eftirminnilegustu kvikmyndapersónum síðustu áratuga — fólk eins og guðföðurinn Michael Corleone, lögguna Serpico, bankaræn- ingjann í Dog Day Aftemoon — hlaut náð fyrir augum akademíunnar sem útdeilir vegtyllunum sem mest er lagt upp úr í Holllywood. Sennileg skýring er sú að Pacino hefur aldrei komist jafnnálægt því að leika almennilegan mann — geðfellda hetju — og í Konuilmi; flest hans fólk hefur annað hvort verið ógeðfelldir morðingjar eða hrærst í spillingu og jaðarlífemi af því tagi sem Hollywood vill halda í hæfilegri fjarlægð. Al Pacino ólst upp í Bronx í New York og bam að aldri fór hann að setja upp sýningar fyrir fjölskyldu sína og herma eftir því sem hann hafði séð í bíó. Kennarar hans hvöttu hann til að sækja um vist í High School of Performing Arts í New York sem er nafntogaður fram- haldsskóli fyrir efnilega leik- ara. Meðfram námi vann hann fyrir sér sem sætavísir í leikhúsi. Að loknum skóla hóf Pacino framhaldsnám hjá Herbert Berghof og síðar hjá hinum nafntogaða Lee Stras- berg en við hann er kennd aðferðin sem Pacino hefur gert hvað frægasta og felst í því að lifa sig inn í hlutverk- ið eins og kostur er. Þeirri stefnu hefur Pacino lengst af fylgt út í ystu æsar og löngum verið bókstaflega heltekinn af vinnu sinni en aldrei þó eins og þegar hann var að vinna að gerð myndar- innar um lögguna Serpico. Þá gekk honum svo illa að skilja sjálfan sig frá karakt- emum að hann var staðinn að því að handtaka fólk með látum út á götu. A1 Pacino og leikstjórinn Brian De Palma unnu saman við gerð myndarinnar Scarface og aftur nú við Carlit- o’s Way. Feril sinn hóf Pacino í Off- Broadway-leikhúsum og hlaut snemma Obie-verðlaun fyrir framúrskarandi frammistöðu á sviði. Hann lék í fyrsta sinn í kvikmynd árið 1971 en sú hét Panic in Needle Park. Á eftir fylgdi hlutverk Michael Corleones í The Godfather og með þeirri mynd fyrsta óskarsverð- launatilnefningin og heims- frægðin. Síðan hefur ferillinn verið samfelld sigurganga að kalla — ef undan eru skilin vandræðin með óskarsverð- launin, sem leystust loks í fyrra. Uppúr standa hlutverk Serpicos í samnefndri mynd, bankaræningjans í Dog Day Aftemoon og Tony “Scarface” Montana, ásamt hlutverki Slaters ofursta í Konuilmi. Fyrir öll var hann tilnefndur til óskarsverðlaun- anna margnefndu og einnig fyrir leik í ...And Justice for All, Godfather II og fyrir aukahlutverk í Dick Tracy og Glengarry Glen Ross. Meðal annarra mynda A1 Pacinos má nefna Godfather IH, Sea of Love, Revolution, Bobby Dearfield, Cmising, Frankie and Johnny og Scarecrow sem gerð var 1973 og færði Pacino verðlaun besta leikara í Cannes það ár. Allan sinn feril hefur Pac- ino jafnframt lagt áherslu á sviðsleik, verið virkur þátt- takandi í leikhúslífínu og hlotið margvíslegar viður- kenningar fyrir frammistöðu á sviði. Hann hefur sóst eftir að starfa ekki aðeins á svið- um hinna stærri og þekktari leikhúsa heldur einnig með leikhópum og í tilraunaleik- húsi á eigin eða annarra veg- um. Pacino þykir fremur sér- lundaður og feiminn. Hann forðast sviðsljósið, býr á bú- garði í New York-fylki og hefur löngum verið illa við ónæði en ku vera að skríða úr skelinni seinni árin. Sú viðurkenning sem hann hlaut með óskarsverðlaununum langþráðu síðastliðið vor er sögð hafa skipt hann miklu máli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.