Morgunblaðið - 06.02.1994, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1994
33
taldar eru verðmætari en svo að
réttlætanlegt sé að hafa þær til út-
lána. Nákvæm tæki sjá um að halda
jöfnu raka- og hitastigi í bankahólf-
inu og tryggja að það raskist ekki
þrátt fyrir umgang.
Bókaverðir sækja bækur inn í
þennan hluta safnsins eftir óskum
og þar er sérstakt lestrarherbergi
þar sem öll aðstaða er fyrir hendi
til að lesa slíkar bækur og handrit.
Á borðum eru svamppontur, sem
ætlað er að veija viðkvæma kili
hnjaski. í lofti eru myndavélar á bak
við spegilgljáandi hálfkúlur og sagði
Mark Dimunation, umsjónarmaður
fágætra bóka í safninu, að „með
þeim mætti lesa yfir öxl safngesta".
í upphafi var ætlunin að koma
þeim hluta íslenska safnsins, sem
ekki er til útlána, þar fyrir ásamt
öðrum fágætum bókum og handrit-
um. íslenska safnið var áður í Olin-
safninu þar sem það var lokað frá
öðrum bókum með vírneti og hlaut
viðurnefnið „búrið“.
Mitchell lagðist eindregið gegn
þessum tillögum. „Ég hélt í upphafi
að ég hefði stuðning, en það reynd-
ist ekki á rökum reist,“ sagði Mitc-
hell í samtali við Morgunblaðið fyrir
stuttu.
Hickerson sagði að komið hefði
verið til móts við kröfur Mitchells.
í stað þess að setja íslensku bækurn-
ar í hina lofttempruðu bókageymslu
ásamt öðrum bókum, sem þar eiga
heima, voru þær settar í herbergi á
annarri hæð þar sem geymd eru
kort og munir frá flokksþingi repú-
blikana kosningaárið 1964.
Skammt frá Jónsbók frá fimmt-
ándu öld gægist undarlegur rani
fram af skápbrún. Þegar betur er
að gáð kemur í ljós að hann er áfast-
ur höfði af fíl, lukkudýri Repúblik-
anaflokksins. Islensku bækurnar
eru þó skildar að frá öðrum munum
í þessari géymslu; þær eru enn í
búri.
Hinum megin við vegg geymsl-
unnar er sá hluti íslenska safnsins,
sem er til útlána og almenningur
hefur aðgang að. Málamiðlun Hick-
ersons við Mitchell var að hafa sem
minnsta íjaúægð milli bókanna,
þótt ekki yrðu þær í sama herbergi.
Það var ekki nóg fyrir Mitchell.
í viðtalinu við Morgunblaðið í des-
ember sagði hann að safninu hefði
verið sundrað og hann hafði engu
við það að bæta nú.
„Hann vildi hafa bækurnar ná-
lægt hver annarri,“ sagði Hickerson.
„Við reyndum að semja þannig að
hann yrði ánægður og samt kvartar
hann.“
„Safnið er komið í nýtt um-
hverfi,“ sagði Stevens. „En það
hvað varðar stjómun þess og vits-
munalega heild er óskert, þótt bæk-
urnar séu ekki allar í sömu hillu.
Ég vil hvorki lofa Mitchell né
lasta,“ bætti hinn nýi umsjónarmað-
ur Fiske-safnsins við. „Ég myndi
fagna því að fá að heyra álit hans.
Ég er viss um að ég get lært ýmis-
legt af honum.“
Stevens kom ekki aftur til Corn-
ell-háskóla gagngert til að taka við
Fiske-safninú en fagnar því hvernig
komið er. Hann kveðst hafa ýmis-
legt á pijónunum.
„Ég ætla að færa safnið inn í 21.
öldina svo að það verði fleirum að-
gengilegt," sagði Stevens. Með til-
komu hinnar nýju stöðu verður
hægt að ganga í það að skrásetja
bækurnar á tölvukerfi skólans og
þar með verður hægt að fletta upp
í spjaldskránni yfir íslenska safnið
hvar sem er í heiminum í gegnum
tölvunetið Internet.
Hann vil efla safnið á sviði nú-
tímabókmennta, sagnfræði, stjórn-
mála, viðskipta, vísinda, mennta-
mála og opinberra skjala og gagna.
Um leið hyggst hann tryggja við-
hald þeirra bóka, sem í safninu eru.
„Nýja testamentið frá árinu 1542
er að segja má verðmætasta bókin
í safninu, en þar eru margar bæk-
ur, sem ég kann að meta og virði,“
sagði Stevens. „Ég gerði það ljóst
áður en ég tók að mér starfið að
ég vildi fara til íslands. Þegar ég
hef tekið við störfum og kynnt mér
safnið á ný læt ég af því verða.“
Bókakaup hafa legið niðri við
Fiske-safnið, en Hickerson sagði að
þar yrði breyting á þegar Stevens
tæki við. „Við fórum þess meðal
annars á leit við Tómas Tómasson
[fyrrverandi] sendiherra íslands í
Washington, að framlag íslenska
ríkisins til bókakaupa yrði ekki af-
greitt fyrr en nýr umsjónarmaður
væri kominn til starfa,“ sagði Hick-
erson. „Þeirri málaleitan var vel
tekið og ég fagna því að umfjöllun
fjölmiðla skyldi ekki hafa áhrif á
það.“
TONLISTARKENNSLA
Hafnarfjörður - Reykjavík
Kennum á píanó, orgel
og hljómborð.
Innritun í síma 68 30 31.
Tónsmiðja Ingimars.
su marlisti n n
.... . .
Góð verð - vandaðar vörur
Verð kr. 200,- án burðargj.
Pöntunarsími 52866.
BYRJENDA-
NÁMSKEIÐ í
þriðjudagskvöldin 8. og 15. febrúar kl. 20.00-23.00
(eitt námskeið tvö kvöld) í sal S.V.F.R. Háleitisbraut
(Austurveri, 2 hæð).
Ágúst Pétursson kennir hagnýt undirstöðuatriði í
stjörnuspeki, sem nýtast í daglegu lífi. Ágúst hefur
haldið mörg samsvarandi námskeið á undanförnum
árum við góðar undirtektir. Útbúið er stjörnukort fyrir
þátttakendur á námskeiðinu og þeim kennt að lesa úr
þeim, læra að þekkja tákn stjörnumerkjanna,
elementin og önnur grunnfræði til að vera sæmilega
að sér í stjörnuspeki.
Öll námsgögn innifalin - Verð kr. 3.600,-
Boðin er frí þátttaka fyir ákveðinn hóp fólks sem
hefur erfiðar aðstæður.
Skráning á námskeiðið í versluninni Betra líf, sfmi 811380,
eða í sfmsvara Nýaldarsamtakanna síma 813419.
•crans montana • crans montana • crans monta^
Skíðaferð til Sviss
c
o
E
«
c
co
V.
O
10 daga páskaferð til Crans Montana
25. mars til 3. apríl.
Eitt af allra bestu
skíðasvæðum Alpanna.
Verö frá kr. 72.325,- á mann.
Flugvallaskattur (1.310,- kr.)
ekki innifalinn.
íslensk fararstjórn.
Leitið nánari upplýsinga.
Ferðaskrifstofa
GUDMUNDAR JÓNASSONAR HF.
Borgartún! 34, sími 683222
05
13
<Z>
3
o
3
I—
03
3
03
O
—t
03
13
C/D
3
o
3
r~f'
03
3
03
o
—*
03
zs
03
3
o
Z3
03
O
03
O
03
o
Co
OBJO ■ BUBþUOLU SUBJO • BUB^UOLU SUBJO - BUBþUOV^
BETAPlv. ,
Bcta-karóctn, C- og E- vítamía.
SINÐUKVARI
BETAPLÚS
ANDOXUNAREFNI SEM VERJA
VEFI LÍKAMANS
GEGN SKEMMDUM
OG ÓTÍMABÆRRI
HRÖRNUN
BETAPLÚS inniheldur Beta-
karótín, C- og E-vítamín sem em
andoxunarefni eða sindurvarar.
Andoxunarefni verja líkamann
gegn óæskilegum efhum s.s.
nítrósuamínum sem finnast t.d. í
- reyktum mat og tóbaksreyk.
BETAPLÚS er æskilegt að taka
með fjölvítamínum eins og
VfTAPLÚS eða VÍTAMÍNUS.
I3ICMIEGA
-fást í apótekum
OMEGA FARMA