Morgunblaðið - 05.03.1994, Side 1

Morgunblaðið - 05.03.1994, Side 1
64 SIÐUR B/LESBOK STOFNAÐ 1913 53. tbl. 82. árg. LAUGARDAGUR 5. MARZ 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Færeyingar hlýða kröfum Dana Lögþingið sam- þykkir kvótalög Þórshöfn. Frá Grækaris Djurhuus Magnussen, fréttaritara Morgunblaðsins. FÆREYSKA lögþingið samþykkti síðdegis í gær lög um framseljan- lega kvóta innan færeyskrar landhelgi. Utgerðarmenn hafa ákveðið að leggja togurum sínum vegna óánægju með lögin og er búist við að allur togaraflotinn verði kominn í höfn í dag. Marita Petersen, lögmaður Færeyja, vísar á bug fregnum um að færeyska landstjórn- in hafi logið að dönsku stjórninni til að fá hana til að fallast á að endurfjármagna erlend lán Færeyinga. Sautján þingmenn studdu frum- varpið, sem þurfti sextán atkvæði til að verða að lögum. Hart var deilt um frumvarpið við þriðju og síðustu umræðuna vegna kröfu dönsku stjórnarinnar um að setja heildar- kvóta, sem kemur einkum niður á togurunum. Meirihlutanum á lög- þinginu tókst þó að lokum að ná samkomulagi um heildarkvóta og samið var um að hluti línubátakvót- ans yrði fluttur yfir á togarana. Togararnir sigla í höfn Samtök færeyskra togaraútgerð- armanna eru enn óánægð með lögin um framseljanlega kvóta þótt togar- arnir fengju hluta af línubátakvótan- um. Emil Nolsoe, formaður samtak- anna, sagði eftir að lögin voru sam- þykkt að öllum togurunum hefði verið skipað að sigla í höfn. „Og öll skipin hafa tekið trollin inn og eru nú á leiðinni í land,“ sagði Nolsoe. Búist er við að allir togararnir verði komnir í höfn fyrir hádegi í dag. Aðspurður um hvað væri að lög- unum um framseljanlega kvóta sagði Nolsoe að lögin í heild væru óviðun- andi. Stjórnin sver af sér lygi Færeyska sjónvarpið sakaði í fyrrakvöld Maritu Petersen og land- stjórnina um að hafa logið að dönsku stjórninni til að fá hana til að leggja blessun sína yfir málamiðlun um framseljanlegu kvótana. Danska stjórnin hafði sett framseljanlega kvóta sem skilyrði fyrir endurfjár- mögnun erlendra lána Færeyinga. Sjónvarpið sagði að í greinargerð sem landstjórnin sendi Dönum hefði því meðal annars verið haldið fram að þegar hefði verið hafist handa við að lækka tekjutryggingu sjó- manna. Sjónvarpið sagði að það væri ekki rétt og að sú stofnun sem þyrfti að breyta tekjutryggingunni vissi ekki enn hvaða breytingar ætti að gera. Landstjórnin gaf út fréttatilkynn- ingu síðdegis í gær þar sem hún vísar þessu á bug. „Lesi menn grein- argerðina ættu þeir ekki að vera í neinum vafa um að talað er um fyrir- hugaðar breytingar, sem eftir er að móta,“ sagði í tilkynningunni. Bresku stj óminni heim- ilað að gangsetja THORP Óþolandi og í andstöðu við allar siðmenntaðar þjóðir að hefja starf- semi í THORP, segir Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra London. Reuter. „ÞETTA er svartur dagur fyrir okkur sem barist höfum fyrir að halda höfunum hreinum. Ég er fyrst og fremst hryggur og geri Bretar alvöru úr því að hefja starfsemi í THORP er það skammarlegt. Komi sú krafa fram að haldinn verði sérstakur Lýðræðissinnar handteknir í Kína Peking. Reuter. EINN þekktasti andófsmaður Kína, Wei Jingsheng, var handtekinn í gær í aðgerðum lögreglunnar gegn andófsmönnum. Þær eru tald- ar tengjast því að aðeins er vika þar til heimsókn utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, Warrens Christophers, til Kína hefst en ráð- herrann hyggst þrýsta á Kínversk sljórnvöld um að gera bragarbót í mannréttindamálum, ella séu viðskiptasamningar landanna í hættu. Wei varð holdgervingur kín- versks andófs þau fjórtán ár sem hann sat í fangelsi fyrir skoðanir sínar en hann var látinn laus í sept- ember sl. Hann hafði í gær sam- band við vin sinn í andófshreyfing- unni og sagðist vera í haldi á lög- reglustöð og bað um að áætlunum hans næstu vikuna yrði frestað. Kínversk yfirvöld vilja ekkert láta hafa eftir sér um Wei, en hafa Jingsheng hins vegar stað- fest að þrír aðrir andófsmenn hafi verið handteknir. Þá hafa tveir and- ófsmenn til við- bótar sagt að þeir hafi verið teknir höndum í síðustu viku en síðan látn- ir lausir.. aukafundur aðildarríkja París- arsáttmálans um varnir gegn sjávarmengun munum við styðja hana,“ sagði Össur Skarphéðins- son umhverfisráðherra í samtali við Morgunblaðið um þá ákvörð- un bresks dómara frá í gær að hafna þeirri kröfu umhverfis- verndarsamtakanna Greenpe- ace og sveitastjórna í vestur- hluta Englands að haldnar verði opinberar vitnaleiðslur vegna áforma sljórnvalda um að hefja rekstur kjarnorkuendurvinnslu- stöðvarinnar THORP í Sellafi- eld. Sagði dómarinn ríkissljórn- ina ekki hafa þurft að láta opin- bera rannsókn fara fram áður en hún tók ákvörðun um að gangsetja stöðina. Er bresku stjórninni því heimilt að gang- setja THORP-stöðina. I verksmiðjunni er ætlunin að endurvinna kjarnorkuúrgang í nýt- anlegt úraníum og plútoníum. Stjórnvöld á íslandi, öðrum Norð- urlöndum og Irlandi hafa mótmælt þessum áformum breskra stjórn- valda vegna mengunarhættu af völdum THORP. Bresk stjórnvöld segja hættuna hins vegar vera litla sem enga. Rekstraraðili THORP, British Nuclear Fuels, fagnaði niðurstöð- unni og sagði að þegar lægju fyrir pantanir að andvirði níu milljarðar punda frá níu ríkjum. Upphaflega var ákvörðun tekin um byggingu stöðvarinnar í kjölfar olíukreppunn- ar á fyrri hluta áttunda áratug- arins, er talið var að notkun kjarn- orku myndi halda áfram að aukast verulega. í frétt frá Greenpeace segir að samtökin hafi höfðað málið þar sem þau teldu bresk stjórnvöld hafa brotið lög með því að veita THORP starfsleyfi án þess að fram hafi farið opinber rannsókn á umhverfis- áhrifum af völdum hennar. Segir að með gangsetningunni muni magn geislavirkra efna, sem losuð verða út í andrúmsloftið, aukast um 1.100% og í sjó um 900%. Málið verður til umræðu á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í næstu viku og einnig hefur ríkis- stjórn írlands lagt til að haldinn verði sérstakur fundur aðildarríkja Parísarsáttmálans sem fyrst. Tvö aðildarríki til viðbótar verða að styðja þá kröfu til að boðað verði til fundarins. Össur til fundar við Gummer Össur Skarphéðinsson er á leið í opinbera heimsókn til Bretlands og sagðist þá myndu taka málið upp við John Selwyn Gummer um- hverfisráðherra. „Ég mun kynna honum afstöðu íslendinga. Það er á engan hátt þolandi að hefja starf- semi í THORP og það yrði gert í andstöðu við allar siðmenntaðar þjóðir sem barist hafa gegn mengun í höfunum,“ sagði Össur. Fisksölu- deila ieyst Washington. Reutor. MICKEY Kantor, viðskiptafulltrúi Bandaríkjastjórnar, sagði seint í gærkvöldi að samkomulag hefði náðst um lausn deilunnar um fisk- innflutning til Frakklands. Kantor sagði að innflutnings- hömlur yrðu úr sögunni og viðskipt- in með fisk yrðu komin í eðlilegt horf á mánudag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.