Morgunblaðið - 05.03.1994, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARZ 1994
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Bjargvætturinn í Garði
HINN nýi trukkur Björg-unarsveitarinnar Ægis í Garði er framleidd-
ur í Rússlandi, en keyptur hingað frá Þýskalandi.
Björgunarsveitin Ægir í Garði
Keypti trukk á innan
við eina milljón króna
Verkefnaskortur blasir við
Aðalverktökum á næsta ári
VERKEFNI íslenskra aðalverktaka á þessu ári verða ekki nema
um 60% að umfangi af þeim framkvæmdum sem tíðakst hefur
hjá fyrirtækinu. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins verður
árið í ár ekki verra verkefnalega séð fyrir Aðalverktaka en liðið
ár. Hins vegar mun blasa .við verkefnaskortur þegar nálgast fer
mitt næsta ár, þar sem varnarliðið í Keflavík mun ekki huga á
neinar nýjar framkvæmdir, þegar þeim verkefnum sem nú hafa
verið sett á dagskrá eða eru þegar hafin, hefur verið lokið.
BJÖRGUNARSVEITIN Ægir
í Garði hefur keypt til lands-
ins frá Þýskalandi rússnesk-
an sex hjóla trukk, Ural, sem
sveitin hyggst nota við störf
sín. Að sögn Ásgeirs Hjálm-
arssonar er kostnaður við bif-
reiðina rétt innan við eina
milljón króna, það eina sem
eigi eftir að setja í hann séu
talstöð og annar fjarskipta-
búnaður.
Ásgeir segir að trukkurinn hafi
reynst mjög vel, en björgunar-
sveitin hefur verið að prufukeyra
hann undanfarið. „Ég held að
hann komist allt,“ segir hann.
„Þetta er algjör bylting fyrir sveit-
ina.“ Trukkurinn hefur hlotið
nafnið Bjargvætturinn, er árgerð
1988, en Asgeir segir að hann
hafi einungis verið ekinn um 4.000
kílómetra þegar hann var keyptur.
Bjargvætturinn er með 210
hestafla, átta strokka vél og með
drifi á öllum sex hjólunum. Hægt
er að hleypa lofti úr dekkjunum
og dæla í þau aftur innan úr stýris-
húsinu og aftan á trukknum er
sjö tonna spil. Alls tekur hann 14
manns í sæti. í Bjargvættinum er
allur búnaður sem nauðsynlegur
er í björgunarbíla.
Keyrt í 1,70 m djúpu vatni
Ásgeir segir að Bjargvætturinn
eigi að geta farið í vatn sem er
allt að 1,70 m djúpt, hjólin séu
1,24 m á hæð og 0,45 metrar séu
undir lægsta punkt. Trukkurinn
er 3,10 m á hæð.
Hann segir að Slysavamafélagi
íslands hafi verið boðnir tíu svona
trukkar til kaups, menn hafí mikið
velt fyrir sér hvort ætti að kaupa
þá en Ægir hafí riðið á vaðið,
enda hafí verðið verið mjög hag-
stætt því að björgunarbifreiðar
sem eru í notkun hér nú kosti allt
að þrjár milljónir króna.
Forsvarsmenn fyrirtækisins
munu hafa miklar áhyggjur af því
hvað taki við hjá Aðalverktökum
þegar eftir næstu áramót, en þó
einkum eftir mitt ár 1995 og því
er nú lagt höfuðkapp á að kanna
möguleika á alþjóðlegri verktöku á
vegum íslenskra aðalverktaka. Mun
ekki síst horft til Evrópu í þeim
efnum. M.a. þess vegna hafa ís-
lenskir aðalverktakar verið að
tengja sig inn á Evrópuútboðsbank-
ana að undanfömu.
Morgunblaðið hefur upplýsingar
um að forsvarsmenn Áðalverktaka
horfi ekki síst til þeirra möguleika
á verktöku sem með gildistöku
samninganna um Evrópskt efna-
hagssvæði ættu að hafa opnast.
Gera menn sér í hugarlund að á
næstu fímm til sex vikum muni
verkefnastaðan skýrast, að því leyti
hvaða möguleikar séu á verktöku
og samkeppni við evrópsk verktaka-
fyrirtæki.
Starfsmönnum fjölgað í sumar
Liðlega 300 manns starfa nú hjá
Aðalverktökum og þegar vorið
nálgast verður um einhveija fjölgun
starfsmanna að ræða, þannig að
yfir sumarmánuðina gæti starfs-
Ekki liggja fyrir nákvæmir út-
reikningar á áhrifum dómsins en
samkvæmt honum eiga flugumferð-
arstjórar inni um það bil 14% launa-
hækkun í áföngum á tímabilinu.
Upplýsingar Morgunblaðsins
mannaíjöldinn nálgast 400 manns,
þar sem talsvert mikil malbikunar-
verkefni bíða fyrirtækisins í sumar.
Áætlað er að framkvæmdir verði
á þessu ári fyrir upphæð sem nem-
ur 35 til 36 milljónum dollara, eða
um 2,5 til 2,6 milljaörðum króna.
Þegar umsvif Aðalverktaka fyrir
vamarliðið á Keflavíkurflugvelli
hafa verið hvað mest, hefur verið
framkvæmt fyrir um 60 milljónir
dollara, eða um 4,3 milljarða króna.
Ljóst er af þessu, að umtalsverður
samdráttur hefur orðið í fram-
kvæmdum á vegum vamarliðsins.
herma að ekki sé fjarri lagi að
ætla að flugumferðarstjóri á með-
allaunum stéttarinnar eigi inni
nálægt því eina milljón króna
vegna málsins auk þess sem laun
hans hækka um nær 14%.
Umsóknir um stöður bankastjóra í Seðlabanka Islands eru 358 talsins
Beðið með upplýsingar um
nöfn að beiðni ráðherra
Steingrímur Hermannsson skilaði viðskiptaráðherra umsókn sinni
Ágúst Einarsson sagði í gær að hann hefði
ákveðið að verða við þessari ósk viðskiptaráð-
herra, þar sem hann hefði óskað eftir því að
hann ætti kost á því, þegar umsóknarfrestur
væri liðinn og áður en bankaráð myndi hefja
umflöllun um umsækjendur, að æskja umfjöllun-
ar ráðsins um fleiri einstaklinga sem til greina
gætu komið en þá sem skilað hefðu umsóknum
til bankaráðs. „Þetta er ósköp eðlileg málsmeð-
ferð. Við erum að gera tillögu til ráðherra og
það eru fordæmi fyrir því í sögu Seðlabankans
að ráðherrar hafí haft frumkvæði eða komið
með ábendingar varðandi menn í stöður,“ sagði
Ágúst.
Ágúst sagði að ráðið myndi koma saman til
fundar á mánudag og þá hæfíst umfjöllun þess
um umsóknirnar. A þeim fundi yrði ákveðið
með hvaða hætti sú umijöllun færi fram. Ágúst
sagði að ekki lægi fyrir hversu langan tíma við-
skiptaráðherra ætlaði sér, til þess að koma fram
með sínar ábendingar, en hann kvaðst telja að
það hlyti að verða fljótlega.
Ágúst upplýsti jafnframt að konur væru með-
al umsækjenda, en hversu margar vildi hann
ekki upplýsa. Morgunblaðið hefur upplýsingar
um að Edda Helgason sé meðal umsækjenda.
BANKARÁÐ Seðlabanka íslands hafði feng-
ið 31 umsókn um bankastjórastöður í Seðla-
banka í sínar hendur, síðdegis í gær, auk
þeirra 327 umsókna sem nemendur Mennta-
skólans við Hamrahlíð höfðu lagt inn. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins skilaði
Steingrímur Hermannsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, sinni umsókn til Sighvatar
Björgvinssonar viðskiptaráðherra. ^ Við-
skiptaráðherra óskaði eftir því við Ágúst
Einarsson, formann bankaráðsins, í gær að
hann upplýsti ekki um nöfn umsækjenda,
fyrr en honum hefði gefist ráðrúm til þess
að óska eftir umfjöllun ráðsins um ákveðna
einstaklinga. Talið er að viðskiptaráðherra
muni óska umfjöllunar ráðsins um tvo til
þrjá einstaklinga, þar á meðal Steingrím
Hermannsson.
Sighvatur Björgvinsson, viðskiptaráðherra,
sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ekki
lægi fyrir hvenær tekin yrði ákvörðun um hveij-
ir yrðu skipaðir í stöður seðlabankastjóra, en
hann kvaðst þó telja að það yrði að gerast fyr-
ir 11. apríl, en þá hættir Jón Sigurðsson og
tekur við starfí aðalbankastjóra NIB (Norræna
§ árfestingabankans).
Umsóknir
BJÖRN Tryggvason, aðstoðarbankasljóri
Seðlabankans og Ágúst Einarsson, formaður
bankaráðs með umsóknir sem borist höfðu.
100 millj. til flug-
umferðar slj óra?
TALIÐ er að um það bil 100 flugumferðarstjórar í landinu eigi inni allt
að 100 miiyónir króna í vangoldnum launum, í lýölfar Hæstaréttardóms
þar sem því var hafnað að bætur til þeirra vegna skertra ævilauna í
kjölfar 60 ára eftirlaunaaldurs hefðu fallið undir bráðabirgðalög sem
fyrrverandi ríkisstjórn setti í kjölfar þjóðarsáttarsamninganna 1990.
í dag
Úrbætur i atvinnumálum
Ráðið verður í 170 störfhjá Reykja-
víkurborg í mars og enn fleiri til
viðbótar á næstu mánuðum 7
MS 25 ára_____________________
Nemendur og starfslið Menntaskól-
ans við Sund halda upp á 25 ára
afmæli skólans í dag 17
Ráðist á Harding______________
Óþekktur maður réðst á banda-
rísku skautadrottninguna Tonyu
Harding í almenningsgarði í Port-
land 22
Leiðari
Árangur 1993 24
Nord
fótóart
í Varsjá
Menning/Listir
► Tónleikar helgarinnar
Heimsfrægur baritonsöngvari á
ísland - Suzanne Brogger líka
- Trommari semur balletttónlist
Lesbók
► Oddur sterki af Skaganum -
Hin nýja söguskoðun - Islending-
ur í Amsterdam - Arkitektúr:
Golfskáli í Hafnarfirði - ísfískur
og póstur til Englands 1895.
Samþykkt ríkisstjómar í gærmorgnn
Háskólinn geri út-
tekt á ESB-aðild
RÍKISSTJORNIN samþykkti í gær tdlögu utanríkisráðherra að Há-
skóla íslands verði falið að gera fræðilega úttekt á kostum og göllum
aðildar íslendinga að Evrópusambandinu.
Samkvæmt tillögunni verður
stofnunum Háskólans falið að gera
fræðilega könnun á áhrifum ESB-
aðildar íslands. Þannig geri Laga-
stofnun úttekt hvemig slík aðild sam-
rýmist fullveldinu, Hagfræðistofnun
úttekt á efnahagslegum áhrifum og
Sjávarútvegsstofnun geri úttekt á
sameiginlegri fiskveiðistefnu sam-
bandsins.
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra sagði við fréttamenn eftir
ríkisstjómarfundinn, að úttektinni
eigi að vera lokið á vordögum. Síðan
sé áformað að fulltrúar samtaka at-
vmnuveganna skoði málið frekar á
grundvelli úttektarinnar. Hann tók
það fram, að sú stefna íslenskra
stjomvalda hefði verið mótuð fyrir
alllöngu um að í framhaldi af samn-
íngnum um Evrópska efnahagssvæð-
íð, myndi ísland ekki slást í hóp
þeirra EFTA-ríkja sem nú em að
semja um aðild að ESB.