Morgunblaðið - 05.03.1994, Side 5

Morgunblaðið - 05.03.1994, Side 5
Aukið verðmæti fiskeldisafurða MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARZ 1994 5 Heildar- sala tæpur milljarður VERÐMÆTI útfluttra fiskeldisaf- urða hefur ekki orðið meira en á árinu 1993, eða um 810 milljónir króna. Flutt voru út um 2.251 tonn af laxi og silungi. A innan- landsmarkað fóru u.þ.b. 400 tonn af laxi og silungi að verðmæti um 160 miHjónir króna, eða alls rúm- ar 970 milljónir króna. Framleidd voru tæplega 6 milljón gönguseiði í 75 fiskeldis- og hafbeitarstöðv- um á seinasta ári, og fóru rúm- lega 3,6 milljón gönguseiði í haf- beit en tæplega 2,3 milljónir í áframeldi, samkvæmt samantekt Veiðimálastofnunar. Fiskeldis- og hafbeitarstöðvar slá- truðu 2.844 tonnum af óslægðum laxi í fyrra og þar af komu 496 tonn úr hafbeit en framleiðsla af hafbeit- arlaxi hefur ekki orðið meiri frá 1989. Auk þess varð mesta aukning í framleiðslu á silungi í fyrra frá upphafi, eða um 566 tonn á móti 197 tonnum árið 1989. 2.400 tonn af laxi í ár Veiðimálastofnun skýrir fram- leiðsluaukningu á silungi með því að fyrirtæki hafa í auknum mæli hafið eldi á silungi á kostnað laxeldis, en silungseldi er stundað bæði í landeld- isstöðvum og kvíaeldisstöðvum. Mest var slátrað af bleikju eða rúmlega 340 tonnum, því næst 221 tonni af af regnbogasilungi og 5,2 tonnum af urriða. Framleidd voru tæplega 1,2 milljón gönguseiði af silungi. Á þessu ári er áætlað að framleidd verði 2.400 tonn af laxi til slátrunar í eldisstöðvum og að um 550 tonn endurheimtist úr hafbeit. Áætlað er að slátra um 590 tonnum af silungi. ----------♦ ♦ ♦---- Fryst loðnuhrogn Verðmæti á annan milljarð SAMIÐ hefur verið um sölu á meira en 6.000 tonnum af frystum loðnuhrognum og gæti útflutn- ingsverðmæti þeirra numið allt að 1,2 til 1,5 milljörðum króna. Sölumenn loðnuafurða, sem rætt var við í vikunni, tóku skýrt frain að enn væru margir óvissuþættir sem sett gætu strik í reikninginn. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna (SH) hefur gert samninga um sölu á 5.000 tonnum af frystum loðnu- hrognum, samkvæmt upplýsingum Jóns Magnúsar Kristjánssonar markaðsstjóra. Aðalsteinn Gott- skálksson, forstöðumaður fram- leiðslusviðs íslenskra sjávarafurða (ÍS), sagði að búið væri að ganga frá sölu á allri framleiðslu fyrirtæk- isins og reiknað hann með að hún gæti orðið á bilinu 800 til 1.000 tonn. Aðalsteinn taldi að söluverð- mætið (fob) gæti orðið 200 og allt upp í 250 milljónir króna. Auk SH og ÍS eru fleiri aðilar sem flytja út fryst loðnuhrogn. Almennt er reiknað með verð- hækkun frá í fyrra, en þá fengust innan við 150 krónur fyrir kíló af frystum hrognum. Reiknað er með að nú fáist yfir 200 krónur fyrir kílóið og heyrðust tölur um allt upp í 250 krónur nefndar. Það eykur mönnum bjartsýni að íslendingar eru nú einir um markað fyrir fryst loðnuhrogn í Japan. Árs- neysla þar í landi á loðnuhrognum er á milli 4 og 5 þúsund tonn. Sölu- menn loðnuafurða sem blaðið ræddi við tóku mönnum vara við of mikilli bjartsýni, nú þegar frysting loðnu- hrogna er rétt að hefjast. Margt gæti haft áhrif á útkomuna. VOLVO 400 LÍNAN '94 ÞAÐ ER ÓTRÚLEGT EN SATT AÐ ÞÚ GETUR KEYPT FRAMHJÓLADRIFINN VOLVO HLAÐINN BÚNAÐI Á 1.498.000 KR. KOMINN Á GÖTUNA. FRA: 1.498.000 kr. KOMINN Á GÖTUNA! Vökvastýri • samlæsing • veitistýri • rafknúnir speglar 2,0 lítra vél • plussáklæði • fellanlegt sætisbak bílbeltastrekkjarar • sjálfvirk aðlögun belta • fjölmargar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.