Morgunblaðið - 05.03.1994, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 05.03.1994, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARZ 1994 7 Tillösfur um úrræði í atvinnumálum hjá Reykjavíkurborg Jafnréttisnefnd yrði jafnframt heimilt að auglýsa sérstaklega eftir átaksverkefnum fyrir konur. Samstarf Guðrún Ágústsdóttir, Alþýðu- bandalagi, lagði fram viðaukatil- lögu um að borgarstjórn samþykkti að leita eftir samstarfí við atvinnu- rekendur og verkalýðsfélög í borg- inni um skipun fastanefndar sem hefði þau verkefni að fylgjast með sveiflum í atvinnulífi. Áuk þess að koma á reglulegu samstarfi við ein- staka atvinnurekendur um upplýs- ingastreymi að því er varðar rekst- ur fyrirtækja og mannafla. Enn fremur að vinna með þessum aðilum að gerð tillagna í atvinnumálum og að stefnumótun til lengri og skemmri tíma og loks að hafa skipu- legt samráð við sveitarstjórnir á höfuðborgarsvæðinu um atvinnú- mál. er ódýr og örugg leið til að kynnast nýju fólki. Með einu símtali getur þú á þægilegan og skemmtilegan hátt hlustað á skilaboð frá fólki í leit að félagsskap. Vertu með á SÍMAstefnumótinu. Verð 39.90 kr. mínútan. SÍMAstefnumðt 99 1895 Á NÆSTIJ vikum verður ráðið í 170 störf á vegum Reykja- víkurborgar og í apríl er gert ráð fyrir að lokið verði við ráðn- ingu í samtals 380 störf, í maí í samtals 570 störf og í 662 störf samtals í júní. Þetta kom fram í ræðu Markúsar Arnar Antons- sonar borgarsljóra er hann mælti fyrir tillögu sinni um úr- ræði í atvinnumálum á fundi borgarstjórnar á fimmtudag. Tillagan var samþykkt sam- hljóða með öllum greiddum at- kvæðum en fulltrúar minnihlut- ans mæltu fyrir viðaukatillög- um sem samþykkt var að vísa til borgarráðs. Borgarstjóri lagði áherslu á að samráð hafi verið haft við verka- lýðshreyfinguna um framkvæmd átaks í atvinnumálum í borginni. Fyrir lægi listi yfir þau átaksverk- efni sem til greina koma en sá listi væri ekki endanlegur og gæti átt eftir að taka breytingum. Fram kom að auk þeirra ráðninga sem fyrr er getið yrði ráðið i 200 störf á vegum borgarinnar til'sumarafleys- inga. Síðar í umræðunni kom fram hjá borgarstjóra að gert er ráð fyrir að skipting ráðninga verði þannig að ráðnir verða 900 úr hópi ófag- lærðra, 250 úr hópi lærðra og 60 úr hópi háskólamenntaðra. Naglasúpa Sigrún Magnúsdóttir, Framsókn- arflokki, sagðist fagna framkom- inni tillögu borgarstjóra um úrræði í atvinnumálum. Hún gagnrýndi til- löguna og líkti henni við naglasúpu að hluta, þar sem borgin kæmi með naglann en öðrum væri ætlað að leggja til efni í súpuna. Sigrún vék að Átvinnuleysistryggingasjóði og sagðist ekki skilja tilgang hans. Sveitarfélögum væri ætlað að leggja honum til fé sem sjóðstjórnin ráðskaðist síðan með og segði til um hversu mikið fengist endur- greitt og til hvaða verkefna. Vildi hún helst leggja hann niður og að borgin hætti að greiða sinn hlut. Borgaryfirvöld gætu þá sjálf ráðið í hvaða verkefni yrði ráðist. Jafnræði Guðrún Ögmundsdóttir, Kvenna- lista, lagði fram viðaukatillögu um að samþykkt verði að tryggja jafn- ræði kynjanna í átaksverkefnum borgarinnar. Jafnréttisnefnd yrði falið að skoða hugmyndir þær og umsóknir sem fram komu í átaks- verkefnum fyrir konur, sem félags- málaráðuneytið stóð fyrir á síðast- tiðnu ári og ekki var veitt fé til. Það er langur laugardagur í verslun okkar að Sætúni 8 í dag. Þess vegna viljum við bjóða íólk velkomið að koma og skoða í rólegheitum fjölbreytt úrval hluta til fermingargjafa. Verslunin er opin í dag ld. 10 - 16 og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni. Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 63 15 OO Ef spurningin er um góða fermingargjöf gæti svarið verið hjá okkur í dag! Kynning og kaffi Ráðið í 170 störf í mars

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.