Morgunblaðið - 05.03.1994, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARZ 1994
9
Konur athugið!
Breytt símanúmer
Elín R. Finnbogadóttir,
Rauðagerði 39,
108 Reykjavík.
Sími687377 Sími687377
NordiskForum '94
kvennaþingiö í Ábo, Finnlandi, 1.-6. ágúst
Nú eru lausir til umsóknar
styrkir úr ferðasjódi Nordisk Forum 1994
Umsóknarfreslur er til 31. mars nk.
Úthlutunarreglur:
1. Umsækjendur séu 16 ára eða eldri.
2. Þeir einstaklingar, sem ekki eiga möguleika á styrkjum annars
staðar frá, ganga fyrir um úthlutun.
3. Þeir einstaklingar/hópar, sem verða með framlag á Forum
ganga fyrir um úthlutun að öllu jöfnu.
Umsóknir sendist til
Undirbúningsnefndar Nordisk Forum 1994,
Laugavegi 13, 4. hæð,
pósthólf 996,
121 Reykjavík,
merkt: „Ferðasjóður NF ’94.“
Skíðabogar með
segulfestingum
fyrir tvenn eða þrenn pör
af skíðum.
Mjög auðvelt í notkun.
Þægilegra getur það ekki verið.
Bílavörubúöin
FJÖÐRIN
Skeifan 2 Sími 812944
□□□□□□
SVEFNSÓFAR
- NÝ SENDING -
3 gerðir - Hagstætt verð
OPIÐ SUNNUDAG KL. 14-16
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66, HAFNARFIRÐI, SÍMI 654 100
Fiskur og samgöngur
Lífið á Vestfjörðum snýst um fisk og
samgöngur, segir í Vestfirzka fréttablað-
inu. Þar er lítið orðið um fiskinn, en bylt-
ing er að verða í samgöngum.
Spuming
dagsins
Vestfirzka fréttablaðið
birti nýlega forustu-
grein, sem nefndist
„Bylting í samgöngumál-
um“ og var hún skrifuð
í tilefni þess, að síðasta
haftið í jarðgöngunum
milli Súgandaíjarðar og
ísafjarðar hafði verið
sprengt og Súgfirðingum
boðið í ökuferð um jarð-
göngin (sjá mynd). For-
ustugreinin fer hér á eft-
ir:
„Einhvers staðar var
sagt að lífið á Vestfjörð-
um snerist um tvennt,
samgöngur og fisk.
Kannski má segja að það
sé nokkuð mikil einföld-
un á málum, en vissulega
eru þetta þeir málaflokk-
ar sem oftast ber á góma
í umræðum irnuma. Hvar
vaeru Vestfirðingar
staddir ef enginn væri
fiskurinn? Það er nú ein-
mitt spurning dagsins,
því aldrei hefur mönnum
verið (jósari nauðsyn
þess að geta aflað hrá-
efnis á tímum gegndar-
lausrar kvótaskerðingar.
Samgöngur eru líka
nauðsynlegur þáttur í
þjóðfélagi nútímans, þvi
án þeirra þrífst engin
byggð.
Bylting
Bylting er að eiga sér
stað í samgöngumálum á
norðanverðum Vest-
fjörðum og i fyrsta skipti
í sögtmni eru Súgfirðing-
ar komnir varanlega inn
á vegakortið íslenska
með tilkomu jarðgang-
anna. Innan árs verður
búið að tengja svæðið á
norðanverðum Vest-
fjörðum í eina sam-
göngulega heild og um
þamæstu áramót þurfa
menn ekki að spá í það
lengur hvort ófært er eða
ekki um Botns- og
Breiðadalsheiðar. Þá
verður þetta svona rétt
eins og akstur á milli
hverfa í Reykjavík. En
mikill vill meira og betur
má ef duga skal. Með
bættum samgöngum inn-
an svæðis eykst enn frek-
ar þörfin á betri teng-
ingu við vegakerfið á
„meginlandi" fslands.
Ráðherra samgöngu-
mála hefur gefið tóninn
um næstu skref í sam-
göngubótum fyrir Vest-
firði. Þar er nefndur veg-
ur yfir Kollaljarðarheiði
og brú á GiLsfjörð. Vega-
gerðarmenn hafa líka
sett á sinn óskalista jarð-
göng úr Dýrafirði yfir í
Amarfjörð.
Grjótbam-
ingur
Brú yfir Gilsfjörð mun
stytta vegalengdina mik-
ið á mUli Reykjavíkur og
Vestfjarða, en enn er
talsvert í land að Djúp-
vegur geti talist boðlegur
almennri umferð. Þar
verður að gera stórátak
í lagningu slitlags og losa
menn við böivaðan gijpt-
baming, sér í lagi á Og-
urnesinu og utan við
Hjalla i Skötufirði. Það
þarf ekki að búast við
auknum ferðamanna-
straumi landveg um Djúp
á meðan menn þurfa að
aka þann spotta með lífið
í lúkunum og senda síðan
bUa sína Ula lemstraða
með skipi til baka. Á tím-
um þegar menn verða að
hafa allar klær úti varð-
andi sköpun atvinnutæki-
færa og ferðaiðnaður er
ein bjartasta vonin, þá
riður á að hafa sam-
göngumálin í lagi. Þó
Djúpvegur sé fær flesta
daga ársins, er það varla
nema jeppum og stómm
bQum.
Kannski em þessi orð
þó eintóm tímaskekkja,
því þegar kvótinn verður
uppurinn nú í sumar, þá
duga þessir troðningar
þokkalega tU að aka
Vestfirðingum öUum í
sina siðustu ferð á brott
úr deyjandi byggðariög-
um, suður á mölina við
Faxaflóann.
- Þegar lífið á Vest-
fjörðum hættir að snúast
um fisk, þá þarf líklega
engar samgöngur leng-
ur.“
Minningarskjöldur um
fyrrverandi röntgenlækni
AFHJÚPAÐUR verður sunnudaginn 6. mars kl. 14 minningarskjöldur
um Dr. Gunnlaug Classen, fyrsta röntgenlækni á íslandi og yfirlækni
röntgendeildar Landspítalans frá 1931 til 1948. Minningarskildinum
verður komið fyrir á húsinu Hverfisgötu 12 í Reykjavík þar sem rönt-
genstofa Dr. Gunnlaugs var fyrst til húsa.
Dr. Gunnlaugur var fæddur á
Sauðárkróki 3. desember 1881 og
lést í Reykjavík 23. júlí 1948. Hann
var brautryðjandi í röntgengreiningu
og kennslubók hans í röntgengrein-
ingu frá 1940 var árum saman notuð
við kennslu lækna og læknastúdenta
hér og erlendis.
Anna dóttir Dr. Gunnlaugs mun
afhjúpa skjöldinn. Prófessor Asmund-
ur Brekkan flytur erindi um Dr.
Gunnlaug og störf hans. Formaður
Læknafélags íslands mun stjóm at-
höfninni. í framhaldi af afhjúpuninni
verður boðið upp á veitingar í húsa-
kynnum að Hverfisgötu 12 en núver-
andi eigandi hússins er Sævar Karl
Ólason.
Minningarskjöldurinn er gerður af
rússneskum listamanni, Pyotr E.
Shapiro. Listamaðurinn er nú hér á
landi og verður viðstaddur athöfnina.
Félag íslenskra röntgenlækna, Félag
íslenskra röntgentækna og Læknafé-
lag íslands standa að þessari athöfn.
LAXINN HF,
Meistaramót Reykjavíkur:
Dorgveiði
Á Reynisvatni í Reykjavík er hafið meistaramót Reykjavíkur í dorgveiði.
Mótið er opið öllum landsmönnum og eru glæsileg verðlaun í boði.
1. verðlaun: Gisting fyrir tvo í hótel Stykkishólmi í tvær nætur ásamt
áletrun með nafni vinningshafa á glæsilegan farandbikar.
2. verðlaun: Dorgveiðitjald ásamt stól frá Seglagerðinni Ægi.
3. verðlaun: Kvöldverður fyrir tvo á veitingastaðnum Við Tjörnina.
Verðlaunin eru veitt fyrir stærstu fiska, sem veiddir verða í vetur í
dorgveiði.
Opið er alla virka daga þegar veður leyfir frá kl. 13.00-19.00 og um
helgar frá kl. 9.00-19.00.
Veiðileyfið kostar kr. 2.000 og eru fimm fiskar innifaldir í veiðileyfinu.
Veiðimenn fá inneignarnótu nái þeir ekki að klára veiðikvótann þann
dag sem veiði hefst og gildir hún þar til kvótinn 5 fiskar er tæmdur.
Mótinu lýkur um leið og ís tekur af vatninu.