Morgunblaðið - 05.03.1994, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARZ 1994
21
Listasafnið
Sýning á
portrett-
teikningum
Kjarvaís
SÝNING á portrett-teikningum
Jóhannesar S. Kjarvals verður
opnuð í Listasafninu á Akureyri í
dag, laugardaginn 5. mars kl. 16.
Sýningin stendur til 30. mars
næstkomandi. Safnið er opið alla
daga frá kl. 14-18 en það er lokað
á mánudögum.
Andlitsmyndirnar sem valdar hafa
verið á sýninguna eru allar frá árinu
1926 og þær teiknaði Kjarval á
bernskuslóðum sínum á Austijörð-
um. Flestar eru fyrirsæturnar roskið
fólk markað þreytu og lífsreynslu,
andlitin eru oft veðurbarin og rúnum
rist en í teikningunni sjálfri er eins
og línan og fletimir renni saman við
skaplyndi fyrirmyndanna.
Fjölbreytileiki persónutjáningar-
innar gerir það að verkum að
skemmtilegt er að skoða myndirnar
margar saman en 17 þessara Aust-
flarða portrett-teikninga Kjarvals
verða til sýnis í Listasafninu.
(Úr fréttatilkynningu.)
-----♦.♦.♦-----
Fjögur þús-
und titlar
ÞÚSUNDIR bóka bíða norðlenskra
lestrarhesta, en stóri bókamarkað-
urinn var opnaður í Blómahúsinu við
Hafnarstræti í gær, föstudag, og
verður hann opinn daglega frá kl.
10 til 19 fram til 15. mars næstkom-
andi. Á ijórða þúsund titlar eru í
boði á markaðnum sem nú er fyrst
opnaður á Akureyri en áður hefur
hann byijað í Reykjavík og síðan
komið norður. Starfsfólk bókasafna
fékk að taka forskot á sæluna í gær
og grúskaði þá í bókunum af innlifun.
-----♦ ♦ ♦-----
Eyþing fagn-
ar flutningi
stofnana
Húsavík.
I SAMBANDI við yfirlýsingar ráð-
herranna Halldórs Blöndal og
Össurar Skarphéðinssonar um
flutning ríkisstofnana út á land
hefur stjórn Eyþings, sambands
sveitarfélaga i Eyjafirði og Þing-
eyjarsýslum, fagnað þessum hug-
inyndum.
í samþykkt um starfsemi ferða-
málaráðs segir: ,”.og væntir stjórnin
þess að hér sé aðeins stigið fyrsta
skrefið að ferðamálamiðstöð á Ak-
ureyri“.
Úm flutning embættis veiðimála-
stjóra segir: „Stjórn Eyþings fagnar
þessari ákvörðun og tekur undir
nauðsyn þess að efla það akademíska
umhverfi sem varð að veruleika með
stofnun Háskólans á Akureyri. Með
flutningi embættis veiðistjóra til
Akureyrar er virt í verki sú stefna
að flytja út á landi stofnanir sem vel
eru til þess fallnar." - Fréttaritari.
Paskati I boð
Mackintosh Quality Street
2 skrautdósir saman 750 gr. og 400 gr. stgr. 1
(a meðan birgðir endast). _
á heildsöluverði
frá Toblerone, Mars, Rowntree Mackintosh, Suchard, Cadbury,
Nestlé o.fl. komin afturí verslunina á Fosshálsi!
Hljómtækjasamstæður, útvarpstæki, bækur á forlagsverði
o.m.fl.
Verðdæmi: Stór ferðataska m/hjólum stgr. 2.831
Stál Parkerpennar, stgr. 1.143
Northern Feather Caravan svefnpoki ±0°, stgr. 4.900
Northern Feather Caravan svefnpoki +12°, stgr. 6.900
HeStir kjúklingar á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum.
Við seljum íslenskar vörur á lágmarksverði, en við verslum
einungis með vörur frá íslenskum framleiðendum, sem mis~
muna ekki viðskiptavinum sínum gróflega. Við sýnum þannig í
verki samstöðu með „kaupmanninum á horninuu, sem við
teljum nauðsyn í íslensku samfélagi.
Nýir korthafar!
Verslun F&Aer opin öWum landsmönnum 16 ára og eldri.
Ný kort eru gefín út endurgjaldslaust.
Við erum sunnan við Ölgerðarhús Egils
og norðan við Osta- og smjörsöluna.
Birgðaverslun F&A
Fosshálsi 27,
110 Reykjavík,
sími 683211, fax 683501.
Opiö alla virka daga frá
kl. 12.00-19.00,
laugardaga kl. 12-18 og
sunnudaga kl. 13-18