Morgunblaðið - 05.03.1994, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARZ 1994
29
r
JlEásíur
r
a
morgun
V_______
Æskulýðsdagur
Þjóðkirkjunnar
ÁSKIRKJA: Barna- og fjölskylduguðs-
þjónusta æskulýðsdagsins kl. 11.
Hildur Einarsdóttir guðfræðinemi
prédikar. Börn úr 10-12 ára starfi
Áskirkju sýna helgileik og félagar úr
Ásmegin, æskulýðsfélagi Áskirkju,
taka þátt í guðsþjónustunni. Veitingar
í safnaðarheimili Áskirkju eftir guðs-
þjónustu. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Hemmi Gunn taiar við börnin.
Æskulýðs- og fjölskylduguðsþjónusta
kl. 14. Sigurður Grétar Sigurðsson
prédikar. Fjölbreytt tónlist og léttir
söngvar. Ungmenni aðstoða við
messuna. Sóknarpresturinn þjónar
fyrir altari. Kirkjukaffi.
DÓMKIRKJAN: Æskulýðsguðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. María Ágústs-
dóttir. 10-12 ára börn sýna helgileik.
Unglingar lesa lestra og bænir.
Sunnudagaskólabörn syngja söngva.
Organleikari Marteinn H. Friðriksson.
Kl. 14. Föstumessa með altarisgöngu.
Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson.
GRENSÁSKIRKJA: Fjölskyldumessa
kl. 11. Barnakór Grensáskirkju syngur
undir stjórn Margrétar Pálmadóttur.
Söngur og leikræn tjáning. Anna Páls-
dóttir og sr. Gylfi Jónsson. Guðsþjón-
usta kl. 14 sérstaklega ætluð ferming-
arbörnum og foreldrum þeirra. Fjórar
fermingarstúlkur leika á klarinett.
Nemendur úr Nýja tónlistarskólanum
leika á hljóðfæri, 10-12 ára börn ann-
ast dagskrá. Organisti Árni Arinbjarn-
arson. Stutt prédikun sr. Gylfi Jóns-
son. Mikill almennur söngur. Bæn og
blessun. Sr. Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslustund
kl. 10. Sr. Karl Sigurbjörnsson: „Þau
tvö skulu verða eitt.“ Um fjölskylduna
og hjónabandið. Kl. 11. Fjöskyldu-
messa á æskulýðsdegi. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson. Barnakór Hallgríms-
kirkju syngur undir stjórn Kristínar
Sigfúsdóttur. Organisti Hörður
Áskelsson. Kl. 20.30. Kvöldmessa á
æskulýðsdegi. Unglingar leiða söng
og leika á hljóðfæri.
LANDSPITALINN: Messa kl. 10. Sr.
Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa í þjóðlagast-
íl kl. 11 í flutningi æskulýðsfélags og
barnakórs kirkjunnar og tónlistarfólks.
Skírn og helgileikur. Sr. Tómas Sveins-
son og sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Barnamessa kl. 13.
Nemendur Kórskólans syngja. Stjórn-
endur Signý Sæmundsdóttir og Helga
Björg Svansdóttir. Umsjón: Haukur
Ingi Jónasson. Æskulýðsmessa kl. 14.
Fermingarbörn lesa lestra og flytja
helgileik. Kór Kórskóla Langholtskirkju
syngur. Stjórnandi Signý Sæmunds-
dóttir. Organisti Helga Björg Svans-
dóttir. Fríða Björg Leifsdóttir og Lára
Bryndís Eggertsdóttir leika forspil og
eftirspil. Ungmenni leika á fleiri hljóð-
færi. Prestur sr. Flóki Kristinsson.
Kaffisala fermingarbarna eftir messu.
Ágóðinn rennur í Líknarsjóð Lang-
holtskirkju.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Félagar úr æskulýðsfélaginu
aðstoða. Gunnar Finnbogason préd-
ikar. Organisti Ronald Turner. Sr. Jón
D. Hróbjartsson. Barnastarf á sama
tíma í umsjá Þóarins Björnssonar.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11.
Munið kirkjubílinn. Guðmundur Óskar
Ólafsson. Guðsþjónusta kl. 14. Söng-
hópur fermingarbarna syngur við und-
irleik hljómsveitar Guömundar Karls
Brynjarssonar. Málmblásarakvintett
unglinga í Nessókn leikur undir stjórn
Jóhanns Ingólfssonar. Guðmundur
Karl Brynjarsson guðfræðinemi préd-
ikar. Sr. Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Æskulýðs-
messa kl. 11. Unglingar úr æskulýðs-
félaginu lesa ritningarlestra og biðja
bæna. Börn úr sunnudagaskóla og
TTT starfi hafa stutta hugleiðingu um
efni dagsins, sem er: Trú, von og
kærleikur. Andri Heide æskulýðsleið-
togi prédikar. Barnakórinn leiðir al-
mennan söng. Organisti Hákon Leifs-
son. Prestur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Barna- og fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Æskulýðs-
guðsþjónusta kl. 14. Sr. Þór Hauksson
þjónar fyrir altari. Lilja K. Þorsteins-
dóttir, guðfræðinemi, prédikar. Ungl-
ingar úr Æskulýðsfélagi Árbæjar sýna
helgileik, flytja bænir og ritning-
arlestra. Sveinn B. Tómasson spilar
undir á gítar. Barnakór Árbæjarsóknar
syngur undir stjórn Guðlaugs Viktors-
sonar og Sigrúnar Gísladóttur org-
anista. Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 14. Barnakórinn og Ten-Sing
hópurinn syngja. Kaffisala kirkjukórs-
ins á eftir. Organisti Daniel Jónasson.
Samkoma Ungs fólks með hlutverk
kl. 20.30. Sr. Gísli Jónasson.
DIGRANESPRESTAKALL: Guðsþjón-
usta Æskulýðsdagsins verður í Kópa-
vogskirkju kl. 11. Vænst er þátttöku
fermingarbarna og foreidra þeirra.
Guðspjall dagsins: (Lúk. 11.)
Jesús rak út illan anda.
Kirkjubíll fyrir sunnudagaskólabörn fer
frá safnaðarheimilinu kl. 10.45. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Æskulýðs-
guðsþjónusta kl. 11. Börn úr Æsku-
lýðsstarfinu sjá um ritningarlestur,
helgileik, prédikun og bænalestur.
Tónlist í umsjón Ten-Sing hljómsveit-
ar. Prestur sr. Guðmundur Karl Ág-
ústsson. Organisti Lenka Mátéová.
Veitingar í boði Æskulýðsfélagsins
eftir guðsþjónustuna. Fermingarbörn
og foreldrar þeirra eru sérstaklega
hvött til að mæta. Kl. -18. Guðsþjón-
usta með altarisgöngu. Prestur sr.
Guðmundur Karl Ágústsson. Organ-
isti Lenka Mátéová. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Æskulýðs-
dagurinn: Barnamessa kl. 11. Barna-
kórinn syngur, strengjasveit Tónlist-
arskóla Grafarvogs leikur undir stjórn
Wilmu Young. Helgileikur á vegum
Æskulýðsfélagsins. Guðsþjónusta kl.
14. Biskup íslands, herra Ólafur Skúla-
son, visiterar Grafarvogssöfnuð og
prédikar í guðsþjónustunni. Dómpró-
fastur, sr. Guðmundur Þorsteinsson,
ávarpar söfnuðinn. Barna- og kirkju-
kórar Grafarvogskirkju syngja undir
stjórn Sigurbjargar Helgadóttur org-
anista. Helgileikur á vegum Æskulýðs-
félagsins, strengjasveit Tónlistarskóla
Grafarvogs leikur. Fundur með sókn-
arnefnd og starfsfólki kirkjunnar eftir
guðsþjónustuna. Sr. Vigfús Þór Árna-
son.
HJALLAKIRKJA: Æskulýðsguðsþjón-
usta kl. 11. Fermingarbörn aðstoða
við guðsþjónustuna. Barnastarf á
sama tíma. Organisti Oddný J. Þor-
steinsdóttir. Sr. Kristján Einar Þor-
varðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barnastarf í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 11.
Guðsþjónusta á Æskulýðsdegi í Kópa-
vogskirkju kl. 14. Börn úr 10-12 ára
starfi og börn úr Æskulýðsfélagi sókn-
arinnar taka virkan þátt í guðsþjón-
ustunni. Kökusala Æskulýðsstarfsins
í Borgum eftir messu. Organisti Örn
Falkner. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Laugardagur 5. mars.
Guðsþjónusta í Seljahlíð kl. 11. Biskup
íslands, herra Ólafur Skúlason, visit-
erar og prédikar í guðsþjónustunni.
Sunnudagur: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.
Barnakórinn syngur undir stjórn Mar-
grétar Gunnarsdóttur. Félagar úr
Æskulýðsfélaginu sýna helgileik. Sr.
Ingileif Malmberg prédikar. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Órg-
anisti Pavel Smid. Cecil Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Hámessa
kl. 10.30. Messa kl. 14. Ensk messa
kl. 20. Laugardaga messa kl. 14 og
ensk messa kl. 20. Aðra rúmhelga
daga messur kl. 8 og kl. 18.
KFUM/KFUK, SÍK, KSH, Háaleitis-
braut 58-60: Vitnisburðasamkoma kl.
20 í Kristniboðssalnum. Upphafsorð
hefur Hilmar Þórhallsson. Niðurlags-
orð Tómas Ingi Torfason. Góðu frétt-
irnar spila. Helga Vilborg og Agla
Marta syngja.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa kl.
11. Alla rúmhelga daga messa kl.
18.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN FHadelfia:
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Svanur Magnússon. Almenn sam-
koma kl. 16.30. Ræðumaður Hafliði
Kristinsson. Barnasamkoma á sama
tíma.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Kl. 14 fjöl-
skyldusamkoma. Kl. 20 hjálpræðis-
samkoma. Kafteinn Erlingur Níelsson
og Ann Merete stjórna og tala á sam-
komunum.
FÆR. sjómannaheimilið: Engin sam-
koma verður á sunnudag vegna bas-
ars kl. 15.
MOSFELLSPREST AKALL: Fjöl-
skyldumessa í Lágafellskirkju kl.
13.30. Ath. breyttan messutíma.
Barnakór Varmárskóla syngur. Ferm-
ingarbörn aðstoða. Barnastarf í safn-
aðarheimilinu kl. 11. Bíll frá Mosfells-
leið fer venjulegan hring. Jón Þor-
steinsson.
GARÐASÓKN: Fjölskylduguðsþjón-
usta í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl.
13. Elínborg Sturludóttir flytur hug-
vekju. Nemendur Hofstaðaskóla taka
þátt í athöfninni og nemendur úr Tón-
listarskólanum. Unglingar úr Æsku-
lýðsfélagi Garðakirkju munu standa
fyrir kökubasar í safnaðarheimilinu frá
kl. 14-17. Æskulýðssamkoma með
„poppivafi" í umsjá Æskulýðsfélags *
Garðakirkju í Kirkjuhvoli kl. 20.30.
Jazzhljómsveit sér um tónlist. Andri
Heide flytur hugvekju. Veitingar að
athöfn lokinni. Allir unglingar í
Garðabæ og á Álftanesi eru hvattir
til að fjölmenna. Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐASÓKN: Barna- og fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Væntanleg
fermingarbörn gefa til Hjálparstofnun-
ar kirkjunnar. Börnunum skipt í hópa
eftir aldri. Guðsþjónusta í Hrafnistu
kl. 13. Kór Víöistaðakirkju syngur.
Organisti Úlrik Ólason. Ólafur Jó-
hannsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn.
Æskulýðs- og fjölskylduguðsþjónusta
kl. 14. Sr. Þórhallur Heimisson æsku-
lýðsleiðtogi predikar. Fermingarbörn
sýna helgileik. Barnakórinn syngur.
Nemendur tónlistarskólans leika á
hljóðfæri. Kaffisamvera i Álfafelli eftir
guðsþjónustuna. Vænst er þátttöku
fermingarbarna og fjölskyldna þeirra.
Gunnþór Ingason.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barnasam-
koma kl. 11. Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 14. Sigríður Kristin Helgadóttir,
guðfræðinemi prédikar. Fermingar-
börn flytja ritningarorð og bænir. Org-
anisti Kristjana Þ. Ásgeirsdóttir. Sr.
Einar Eyjólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa
kl. 10.30. Rúmhelga daga messa kl.
18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl. 8.30.
Rúmhelga daga messa kl. 8.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli
laugardag í Stóru-Vogaskóla kl. 11.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14. Ferm-
ingarbörn taka virkan þátt i athöfn-
inni. Bragi Friðriksson.
KEFLAVIKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Munið skólabílinn. Æsku-
lýðs- og fjölskylduguösþjónusta kl. 14.
Fermingarbörn aöstoða. Æskulýðs-
og fjölskyldusamkoma í Bókasafni
Keflavíkur kl. 20.30 með fermingar-
börnum og nemum úrTónlistarskólan-
um í Keflavík. Prestarnir.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavik:
Messa kl. 16.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta á Æskulýðsdegi
kl. 11. Helgileikur og ritningarlestrar
í umsjá fermingárbarna. Að athöfn
lokinni kaffisala fermingarbarna til
styrktar feröasjóði. Baldur Rafn Sig-
urðsson.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Barnastarfið
kl. 11. Fjölskyldusamkoma í kirkjunni
um kvöldið kl. 20.30. Lífleg dagskrá í
höndum ungs fólks. Boöskapur trú-
arinnar fluttur með leikrænni tjáningu,
tónlist og söng. Flytjendur fermingar-
börn, táningar úr unglingastarfi kirkj-
unnar, barnakór, gospelkór og stór-
hljómsveit skipuð kunnu hljómlistar-
fólki í Grindavík. Samkomunni lýkur
með kaffiveitingum í safnaðarheimil-
inu sem eru framreiddar af fermingar-%
börnum og foreldrum þeirra. Jóna
Kristín Þorvaldsdóttir.
HVALSNESKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Börn borin til skírnar.
Fermingarbörn og foreldrar þeirra eru
hvött til að mæta. Fundur í lok guðs-
þjónustu með foreldrum fermingar-
barna. Organisti Ester Ólafsdóttir.
Hjörtur Magni Jóhannsson.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14. Flutt verður létt trúar-
leg tónlist. Fermingarbörn og foreldr-
ar þeirra eru hvött til að mæta. Fund-
ur í lok guðsþjónustu með foreldrum
fermingarbarna. Hjörtur Magni Jó-
hannsson.
HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnudaga-’"
skóli kl. 11. Messa kl. 14. Stefanía
Steinþórsdóttir prédikar. Lúðrasveit
og barnakór. Tómas Guðmundsson.
SELFOSSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Messa kl. 14. Barna- og
unglingakórar syngja í æskulýösguðs-
þjónustu. Sóknarprestur.
ÞORLÁKSKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Börn og unglingar
aðstoða. Sóknarprestur.
HJALLAKIRKJA, Ölfusi: Messa kl. 14.
Rúta fer frá grunnskólanum í Þorláks-
höfn kl. 13.30 og til baka að messu
lokinni. Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa kl. 14.
STÓRA-Núpsprestakall: Fjölskyldu-
guðsþjónusta verður í Stóra-Núps-
kirkju kl. 14. I tilefni Æskulýðsdags
munu börn úr barnakór kirkjunnar
leiða safnaðarsönginn. „Trú, von og
kærleikur" er merki þessa dags, bæði
Guðs og manna. Foreldrar hvattir til
að mæta með börn sín i kirkjuna sem
og fermingarbörn.
ODDAKIRKJA: Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Sunnudagaskól-
inn sameinast guðsþjónustunni.
Sóknarprestur.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 14. Skírn.
Kirkjuskóli alla laugardaga kl. 11.
Sóknarprestur.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum: «
Barna- og fjölskylduguðsþjónustur í
Landakirkju og á Hraunbúðum kl. 11.
Guðsþjónusta á Æskulýðsdegi með
þátttöku fermingarbarna og unglinga
í KFUM & K í Landakirkju. Fyrir guðs-
þjónustu syngja unglingar nokkur ís-
lensk og afrísk sálmalög. Að lokinni
guðsþjónustu verður vöfflusala
mömmumorgna i safnaðarheimilinu.
Kl. 17 verður guðsþjónustu Æskulýðs-
dagsins útvarpað á Úvaff 104. Popp-
messa kl. 20.30. Hljómsveitin Dans á
rósum leiðir safnaðarsönginn. Ungl-
ingar flytja frumsamið efni um píslar-
göngu Krists.
AKRANESKIRKJA: ( dag, laugardag,
barnaguðsþjónusta í kirkjunni kl. 11.
Stjómandi Haukur Jónasson. Kirkju-
skóli yngstu barnanna í safnaðarheim-
ilinu kl. 13. Stjórnandi Axel Gústafs-
son. Fjölskylduguðsþjónusta sunnu-
dag kl. 14. Fermingarbörn aðstoða.
Barnakór Brekkubæjarskóla syngur.
Vænst er þátttöku fermingarbarna og
fjölskyldna þeirra. Kvöldvaka Æsku-
lýðsdagsins í safnaðarheimili kl.
20.30. Fjölbreytt og vönduð dagskrá.
Mikið tónlist og almennur söngur.
Fermingarbörn flytja frumsamið efni.
Ræðumaður sr. Árni Pálsson á Borg.
Björn Jónsson.
BORG ARPREST AKALL: Barna- og
æskulýðsmessa verður í Borgarnes-
kirkju kl. 11. Sóknarprestur.
Krisijón Guðbrands-
son, Kirkjubæjar-
klaustri — Minning
Fæddur 3. ágúst 1947
Dáinn 26. febrúar 1994
Mig setti hljóðan þegar Páll móð-
urbróðir minn hringdi í mig á laug-
ardagskvöldið 26. febrúar og sagði
mér að bróðir sinn Kristjón hefði
orðið bráðkvaddur rétt fyrir kvöld-
mat þegar hann var á leið í hesthús-
ið sitt til að gegna. Það var eins
og tíminn hefði stöðvast og upp í
huga minn kom söknuður og ýmsar
spumingar vöknuðu sem ekki fást
svör við.
Kristjón var fæddur í Hafnarfirði
3. ágúst 1947 og ólst hann þar upp
til 14 ára aldurs. Foreldrar hans
voru lvjónin María Markúsdóttir frá
Dísukoti, Þykkvabæ, og Guðbrand-
ur Pálsson, ættaður úr Grímsnes-
inu. Kristjón var yngstur sex systk-
ina en þau eru Klara, Esther, lést
28. maí 1992, Páll, Fjóla og Mark-
ús. Föður sinn missti hann sex ára
en hann fórst með mb. Eddu 16.
nóvember 1953 og móður sína
missti hann 14 ára en hún lést 27.
febrúar 1962. Það má segja um
afa, ömmu og Kristjón að þau voru
öll kölluð til æðri starfa langt um
aldur fram, öll fyrir fimmtugt.
Þegar amma lést kom Kristjón
til foreldra minna að Þorleifskoti
og var okkur systkinum sem elsti
bróðir. Snemma réðst hann til
kaupavinnu aö Stóra-Ármóti lijá
þeim heiðurssystkinum Ingileif og
Jóni Arnasyni en þau eru nú fallin
frá og var hann þar um tveggja
ára skeið. Fór í vegavinnu í Kefla-
• vikurveginn og hom svo.til .stfirfa
að Laugardælum þar sem hann
kynntist Elínu eiginkonu sinni. Þau
hófu sinn búskap á Tindum. Þar
var gott að koma og var ég tíður
gestur á Tindum í þá daga. Fluttu
þau austur að Klaustri 1972 og
bjuggu fyrst í leiguhúsnæði á
Klaustri og þar í kring þar til þau
fluttu í eigið húsnæði sem þau
byggðu á Skaftárvöllum 13.
Kristjón starfaði hjá Ræktunar-
sambandinu Hjörleifi og var á jarð-
ýtu á þess vegum við vegagerð yfir
Skeiðarársandi og víðar og var lát-
ið vel af hans störfum fyrir natni
og útsjónarsemi. Hóf hann störf hjá
Bifreiðaverkstæði Gunnars Valdi-
marssonar 1986 og var vel liðinn
af viðskiptavinum verkstæðisins og
yfirmanni sínum. Starfaði hann þar
til dauðadags.
Veiðimaður var Kristjón bæði
með byssu og stöng og fengsæl!
var hann. Hann var minn lærifaðir
í meðferð skotvopna og fékk ég oft
að fara með honum til veiða á mín-
um uppvaxtarárum og má segja að
hann hafi gert mig að þeim veiði-
maiuiLsara ,ég er ,og kennt mér. þau
undirstöðuatriði sem hverjum veiði-
manni eru nauðsynleg. Við frænd-
urnir stunduðum saman veiðar í
mörg ár og margar góðar minninjff
ar á ég úr þeim ferðum, en ekki
förum við saman til veiða í sumar
og haust einsog við vorum búnir
að undirbúa, þar verður djúpt skarð
sem erfitt verður að fýlla. Hjálp-
samur var hann mér með viðgerðir
á bílum mínum og lagði á sig ferð-
ir til Þorlákshafnar til að aðstoða
mig og taldi það ekki eftir sér og
svona mætti lengi telja.
Kristjón og Elfn eignuðust fjögur
börn og eru þau Eyjólfur, f. 16.
nóvember 1964, giftur Sigrúnu
Hörpu Baldursdóttur, eiga þau tvö
börn, Védísi Ernu og Ellert Mána,
og búa að Lambleiksstöðum; Guðný
María, f. 29. september 1969, býr
á Höfn; Einar Árni, f. 29. apríl
1975; og Katrín, f. 15. september
1983, en þau eru í foreldrahúsum.
Missir okkar samferðamanna
hans er mikill og bið ég algóðan
Guð að styrkja Elínu, börnin,
tengda- og barnabörnin í sorg sinni.
Guðbrandur Einarsson.