Morgunblaðið - 05.03.1994, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 05.03.1994, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARZ 1994 Minning Dagur Sigurðarson skáld Fæddur 6. ágúst 1937 Dáinn 19. febrúar 1994 Líkt og margur hafði hann tvö andlit, annað fyrir heiminn og speg- ilinn, hitt við tveggja manna tal. Svo var og með skáldskap hans, þar mátti greina hróp götunnar og ljúflingslag. Mér var hann lengi spakvitrastur vina og mestur óvit- inn. A skemmtigöngu fyrir alllöngu austur í Kirgizíu, rákumst við á ííyttu, það var mynd af goði því sem þá huldi hvem auðan blett í miklu heimsveldi og þú bentir mér á að sá gamli væri orðinn skáeygur að hætti heimamanna. Alltaf gekk illa að gera þig ská- eygan og sjaldnast hugnaðist þér að þegja yfir því sem þú sást. Skipti þá engu þó margur gerði að þér hróp. Þakka þér fyrir að veita mér af skarpskyggni þinni. Geirlaugur Magnússon. „Litlu sætu lömbin í Guðspjöllun- um eru lærisneiðar á jólunum. (E.M.G.)" Dagur er dauður. Píslargöngu Dags Sigurðarsonar skálds og mál- ara lauk hinn 18. febrúar á heimili sonar hans í Svíþjóð. Vinur vors og blóma er hættur að slá kunn- ingja sína um kaffibolla á sinn hæverska gamansama hátt. Fylgi- fískur fátæktarinnar; útskúfunin frá borgaralegu samfélagi stofu- kommana og athafnaskáldanna var nístandi, grimm. Ekki síst með til- liti til þess að Dagur var sonur eins k<jlsta virkjunarfræðings þjóðarinn- ár, Sigurðar Thoroddsens, sem lagði öðrum fremur grundvöll að velferð allra íslendinga með störf- um sínum að virkjunarmálum. íslenskum höfðingjum fannst óþarft að greiða verkfræðingum mannsæmandi laun. Útreikningar og skipulagsáætlanir ögruðu geð- þóttaákvörðunum stjómmálamann- anna og söfnuðu ryki á meðan for- ystumenn þjóðarinnar röðuðu orku- verum, stíflugörðum og rafmagns- línum á undarlegustu staði. íhalds- sömum kotingjum og útsendurum þeirra á mölinni fannst óhæft að leyfa útlenskum verksmiðjum að hleypa upp kaupgjaldi verkafólks með arðbærum iðnrekstri. Það þótti aftur á móti hið besta mál að slá erlend lán til að byggja virkjanir svo framarlega sem heimafólk fékk vel launaða vinnu, leigu fyrir vélar og landeigendur rausnarlegar bæt- ur fyrir afnot af hálendi Islands. Fyrst eftir að Sigurður Thorodd- sen lauk verkfræðinámi sínu dró hann fram lífið með gerð landslags- málverka. Vakti hann áhuga Dags, launsonar síns, á málverkinu. Móðir Dags, Jakóbína Tulinius, og eigin- maður hennar, Sverrir Kristjáns- son, hinn rómaði sagnfræðingur, voru hreinræktaðir bóhemar, elsk að hinu ljúfa lífi fagurkeranna. Dagur Sigurðarson fékk í vöggu- gjöf einstæða persónutöfra, barns- lega innri gleði og gott útlit sem hreyfði við margri heimasætunni á hinu ísa köldu landi. Honum varð margra barna auðið og voru þau elsk að honum þó hann væri of lé- legur skaffari til að geta haldið í konur á tímum verðbólgu, dýrtíðar og lífsgæðakapphlaups. Dagur Sigurðarson átti samleið með bandarískum beatnikkum á borð við Allen Ginsberg og Henry Miller í ljóðlist sinni. Listiðkun þeirra snerist ekki síst úm lífsstíl einfarans sem hafnar viðteknum lífsgildum og bregst við tæknilegum og félagslegum básafasisma, með tómlæti einstaklingshyggjunnar gagnvart alræði meðaljónsins. Ég kynntist Degi áður en höfnun samfélagsins á skringilegum lífs- háttum hans og skeytingarleysi gagnvart köllun hans í lífínu atti honum út í darraðardans óreglunn- ar. Hann var alltaf kátur og hress. Kærleiksrík afstaða hans til sam- ferðamanna sinna byggðist á skiln- ingi og samúð. Að hans sögn var íslendingum ekki sjálfrátt. Lútersk- ir mótmælendur bönnuðu veraldleg- an söng, dans og hjóðfæraslátt í tvær aldir á meðan danskir kóngar og þýskir einokunarkaupahéðnar mergsugu mörlandann með guðsorð á vörunum. Kalvínskir kenninga- smiðir innrættu sauðsvörtum alm- úganum að auðsafnarar nytu sér- stakrar náðar æðri máttarvalda og því bæri hinum fátæku syndaselum heilög skylda til að þjóna handhöf- um peningavaldsins, kapítalistun- um, möglunarlaust. Fasisminn og kommúnisminn eru í raun og veru afleidd afbrigði af lútherstrú. Værukærir undanvill- ingar hinnar misskildu nytsemis- dýrkunar eiga skilið að þjást og veslast upp í örbirgð. Ýktustu af- brigði nytsemisdýrkunar var að finna í fangabúðum nasista þar sem andófsmenn, kommúnistar, anar- kistar, gyðingar, tatarar og sam- kynhneigðir voru svæfðir svefnin- um langa eftir að ríkisstjóm auð- magnseigenda hafði grætt á vinnu þeirra. Osjálfbjarga gamlingjum, geðsjúklingum og öryrkjum á fram- færi ríkisins var hreinlega slátrað til að kostnaðarsöm tilvera þeirra drægi ekki úr hagvexti. Dagur Sigurðarson fæddist inn í þennan andstyggilega heim nyt- semisdýrkunarinnar og vegferð hans um hið nýríka, vísitölutryggða velferðarríki hráefnisnýlendunnar í norðri þjónaði meiri tilgangi en hann sjálfan hefði órað fyrir. Hann afsannaði þá vafasömu kenningu fangabúðastjóra Hitlers að vinnan gerði mennina frjálsa. Dagur afrek- aði það að vera fijálsari en aðrir menn með því að gera sjálfan sig gagnslausan. Hann kaus það hlut- skipti af ásettu ráði til að undir- strika lífsvisku sína. Gerðu gagns- lausa hluti sem þú hefur gaman af og þá hættir Dagur Sigurðarson að vera þér lokuð bók. Gísli Þór Gunnarsson. „Grímur, veistu hvar hægt er að finna það sem ekki má nefna?“ Nei, en við hefðum örugglega fund- ið það í Kamerún, ef Lánasjóður íslenskra námsmanna tryði á slíkar ferðir, og ef nóvember hefði lyft okkur suður að miðbaug. Góða ferð, minn kæri Dagur. Grímur. Það var snemma sumars í fyrra að ég hitti Dag í Austurstræti og við settumst á bekk og töluðum saman, sem við höfðum oft gert áður. Hann var illa til reika og ég hafði áhyggjur af honum. Við kvöddumst á Lækjartorgi og hann rétti mér hönd og sagði: Það er ekki víst að við sjáumst oftar. Ég hitti hann nokkrum sinnum eftir þetta og síðast á okkar gamla samkomustað Mokkakaffí, þar sem hann sagðist á förum til útlanda eftir nokkra daga. Það reyndist síð- asta ferð og leit hann þó betur út en fyrr og hafði braggast. Hann sagðist byijaður að skrifa á ný og hafði uppi áætlanir þar um. Það tók Reykjavík langan tíma að verða borgarsamfélag, og að sumu leyti skortir víst á það enn. Borgarbúar voru flestir „af lands- byggðinni" og komnir í fín hús sem þeir reistu sjálfir, litu þeir á sig sem bændahöfðingja hér á mölinni. Menntamenn voru sömuleiðis flestir úr sveit, þar á meðal skáldin og embættismennirnir. Því var það að ‘Reykvíkingar gerðu eitt indælasta sveitaskáld allra tíma Tómas Guð- mundsson að sérstöku borgar- skáldi. Hin eiginlegu borgarskáld voru ekki mörg og varla samkvæm- ishæf að mati höfðingjanna. Þar voru líklega einna fyrstir til sögu Vilhjálmur frá Skáholti og Elías Mar. Dagur var í hópi þeirra sem komu næstir. Hann var af góðu fólki embættismanna og listamanna og hlaut í heimanfylgju marga bestu kosti ættar sinnar. Hann var víst snemma ráðinn í að fara sína leið í lífínu og naut til þess velvilja og skilnings hjá fólki sínu sem skildi hann og studdi í meira mæli en hann lét uppi. Honum var því leiðin auðveldari en mörgum öðrum, eink- um framanaf. Þegar ég kynntist Degi fyrst á árunum fyrir 1960 var hann kvænt- ur maður með heimili. í slíka hnapp- heldu kom hann sér á ný nokkru síðar og var þá með fullt hús bama. Dagur var einn þeirra sem ekki lét heimilishald raska högum sínum og hjónabönd hans steyttu á skeri. A þessum tímum var Dagur kaffí- húsamaður fyrst og fremst og lítill nautnamaður á annað en kaffí, tób- ak og tíma. Hann skrifaði og teikn- aði og honum virtust opnar ýmsa* leiðir. Fyrir 10 til 15 árum fór að halla undan fæti hjá honum og síð- ustu árin var hann nánast orðinn rekald. Hann fann þetta sjálfur og vissi að hveiju dró. A þessum árum varð til sá Dagur sem unga fólkið kynntist. Hann beitti kúnstum ýmiss konar og ólíkindalátum til að ná sambandi við fólk og gefa veröldinni dálítinn lit, og hafði þá gjaman sína aðferðina við hvern. En það vissi ég af stopulum sam- tölum við hann þessi ár að þetta var honum erfíður tími. Dagur var fyrst og fremst skáld síns tíma í Reykjavík og þó fyrst og fremst skáld miðbæjarlífsins. Þar var heimavöllur hans og þótt hann flæktist burt öðru hveiju kom hann alltaf heim aftur. Laugaveg- urinn og Austurstrætið drógu hann til sín, þótt hann vandaði þeim ekki alltaf kveðjurnar. Þótt ritverk Dags séu ekki mikil að vöxtum, eru áhrif þeirra meiri en margra annarra sem meira létu eftir sig og hærra var hampað af pakkinu eins og hann nefndi höfðingjana og sleikjur þeirra. Minnisstæðastur mér er þó maðurinn sjálfur, hreinn og beinn, einlægur og hversdagsgóður, þrátt fyrir öll ólíkindalætin og uppá- þrengingamar sem sumir áttu vont með að þola. Hann var hluti af miðbænum eins og miðbærinn var hluti af honum. Nú er hann horfinn og miðbærinn er ekki samur eftir, ekki í vitund okkar sem þekktum hann. Jón frá Pálmholti. Dagsverkinu er lokið. Ég kynntist Degi Sigurðarsyni fyrst á árunum 1968-69. Tjarnar- búð, Sigtún og Borgin var þá hring- sól hinna glaseygðu og gangandi og svo Óðal. Tími glötuðu kynslóð- arinnar sem var hreint ekki svo glötuð held ég, frekar að það hafi verið Presley-kynslóðin svokallaða, en það er önnur saga. Viðtal við Dag kostaði oft kaffi- bolla eða nokkra hundraðkalla ef svo má segja. Eða, ef dæmið sneri öðruvísi, gaukaði hann því sem hann átti að viðkomandi, aleigunni, sem sjaldan var mikil að vöxtum. Stöku sinnum hitti ég Dag gegn- um árin. Stundum bauð ég honum heim eða á vinnustofu mína eða við skáluðum í einhveiju portinu í borg- inni. Ég hafði gaman af fantahúm- ornum í honum, svona í hæfilegum skömmtum allavega. Líka því hversu ærlegur Dagur gat verið. Venjulega kjaftaði á honum hver tuska og maður vissi ekki öllum stundum hvort hann var að koma eða fara eða hvert hann var að fara enda skipti það sjaldnast miklu máli. Sólskinsdag einn í júlí-ágúst þeg- ar sólin skein og merki ljónsins ber Dagur Sigurðarson Ég I Ég segi það satt: Ég er ekkert andskotans séní grátt í framan af geðvonsku og hroka. Ég er að vísu dálítið fölur og viðreisnin leikur skóna mína grátt en þetta stendur allt til bóta: Sólin elskar mig. II í gær klukkan hálf tólf játaði sólin mér ást sína. Ég hundsaði hana í hrifníngu k hljóp heim og kyssti konuna mína. III Enda þótt ég sé ekkert séní er mér margt til lista lagt. Ég er afbragðs hljóðfæraleikari spila á striga sem ég er leikinn að strekkja. Svo get ég líka málað á strigann. Ég er hagmæltur vel kemst oft hnyttilega að orði. Ég á skeyti á lager frátekin fyrir Húnvetnínga, Skagfírðínga og aðra skepnuníðínga ráðherra, okrara og aðra bamamorðíngja. IV Ég er bam fortíðarinnar: Ég skeggræði við Náttfara og Gvend góða kveðst kumpánlega á við Bólu-Hjálmar og Æra-Tobba faðma að mér Stephan G. og Gretti Ásmundarson blanda geði og svita við Guðrúnu Ósvífursdóttur. Ég er bam nútímans: Ég fleygði atómspreingju á Hírósíma tættist sundur í atómspreingíngu í Hírósíma ligg og þjáist af geislasámm í Hírósíma. Ég er barn framtíðarinnar: Á segulmagnaðri rákhettu þeysi ég um þvert og endilángt himnaríki. V Þótt undarlegt kunni að virðast er ég samansaumaður skynsemisdýrkandi og menníngarpostuli. Sumir halda að menníng sé mönnum tiltölulega óviðkomandi að menníng sé bara nokkrar rykfallnar skræður eða tveir kallskröggar úti í heimi Pund og Eljótur sem rembast við að hæla hvor öðmm uppí hástert. En mér er næst að halda að menníng sé meðal annars það hvemig maður tekur í hönd góðum félaga og lætur broddborgara snæða sem mestan skít. VI Ég er ekkert séní. Ég er kolbítur. Ég ligg í öskustó, róta og rýti. Einusinni var ég útburður. Ég gerði hvað ég gat. Ég gólaði gat á hlustir stertimenna. Þá var ég útburður. Nú er ég kolbítur. Einn góðan veðurdag verður öskustóin auð. Hvað hefur orðið um ónytjúnginn? pískrar fólk og skekur kollana. Og fyrren nokkurn varir verður Prinsessan í faðmi mér Ríkið við tær mér. Úr Hundabænum eða Viðreisn efnahagslífsins (1963).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.