Morgunblaðið - 17.04.1994, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1994
5
Vigdís Gunnarsdóttir og
Baltasar Kormákur.
Listaklúbburinn
Þýðenda-
kvöldið
helgað
Brecht
ÞÝÐEND AK V ÖLDIÐ verð-
ur í Þjóðleikhúskjallaranum
næstkomandi mánudag,
klukkan 20.30. Kvöldið verð-
ur að þessu sinni helgað þýð-
ingum á verkum þýska
skáldsins Bertolds Brechts.
Leikararnir Vigdís Gunnars-
dóttir og Baltasar Kormákur
sýna stutt atriði úr Kákasíska
krítarhringnum og Góðu sálinni
frá Sezúan í þýðingu Þorsteins
Þorsteinssonar, undir leikstjórn
Brétar Héðinsdóttur. Skáldin
Þorgeir Þorgeirson og Þor-
steinn frá Hamri, auk leikar-
anna Erlings Gíslasonar og
Helgu Bachmann, lesa þýðing-
ar á ljóðum skáldsins.
Að lokum syngja Þuríður
Baxter og Jóhanna Þórhalls-
dóttir nokkur lög við texta
Brechts. Þuríður syngur við
undirleik Bjarna Jónatanssonar
ljóð í þýðingu Þorsteins Gylfa-
sonar og frumflytur meðal ann-
ars lag eftir Egil Gunnarsson.
Undirleikari Jóhönnu verður
Þóra Fríða Sæmundsdóttir.
Arndís Björk Ásgeirsdóttir
Tónleikar
*
í Islensku
óperunni
TÓNLEIKAR verða haldnir á
vegum Tónlistarskólans í
Reykjavík í íslensku óperunni
þriðjudaginn 19. apríl og hefjast
þeir kl. 20.30. Tónleikarnir eru
burtfararpróf Arndísar Bjarkar
Ásgeirsdóttur, píanóleikara, frá
skólanum.
Á efnisskránni eru Passacaglia í
g-moll eftir Hándel-Rachlew, Són-
ata op. 28 (Pastorale) eftir Beethov-
en, Pavane eftir Ravel, Ballade nr.
2 í h-moll eftir Liszt og Orage eftir
Liszt.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Fengu styrk frá sænska fyrirtækinu AGA til grunnrannsókna á æðaþelinu
Hleypir krafti í rannsóknirnar
- segir Guðmundur Þorgeirsson læknir
GUÐMUNDUR Þorgeirsson, læknir og samstarfsmenn hans hafa fengið
styrk frá sænska lofttegundaframleiðandanum AGA til að rannsaka
hvernig myndun köfnunarefnisoxíðs (NO) í æðarþeli er stjórnað. Nemur
styrkurinn um 34.000 sænskum krónum, eða tæpum 330 þúsund íslensk-
um krónum. Guðmundur segir að styrkurinn auðveldi rannsóknirnar
og hleypi krafti í þær.
Rannsóknirnar, sem Guðmundur
vinnur að ásamt þeim Haraldi Hall-
dórssyni lífefnafræðingi og Óskari
Jónssyni læknanema, eru grunnrann-
sóknir á æðaþelinu. „Við erum að
rannsaka hvemig myndun köfnunar-
efnisoxíðs fer fram í æðaþeli og hvaða
líffræðilegu og lífefnafræðilegu kerfi
það eru í æðaþelsfrumunum sem
stjórna myndun þess,“ segir Guð-
mundur.
Köfnunarefnisoxíð myndast í æða-
þelinu og víkkar út æðarnar. Efnið
hamlar gegn blóðflöguklumpum og
blóðflöguviðloðun og er aðferð líkam-
ans til að halda æð opinni og koma
í veg fyrir að hún stíflist. Þessi mynd-
un á köfnunarefnisoxíði truflast í
æðasjúkdómum eins og æðakölkun
og einnig við háa blóðfitu, segir Guð-
mundur.
Köfnunarefnisoxíð er einnig efnið
sem losnar úr nítróglyseríni, eða svo-
kölluðum sprengitöflum, sem hjartá-
og kransæðaæðasjúklingar taka til
að víkka út æðar. Guðmundur segir
að mikið sé vitað um myndun köfnun-
arefnisoxíðs og talsvert hafi verið
rannsakað úr hveiju það myndaðist.
„Við erum að skoða hvaða innri
boðkerfi taka þátt í þessu,“ segir
Guðmundur. Hann segir að það þurfi
áreyti til að örva frumuna til að
mynda köfnunarefnisoxíð og það
færi í gegnum flókið innra boðkerfi
í frumunni og ætluðu þeir að reyna
að kortleggja það. Nýjungin í þeirra
rannsóknum sé að þeir ætli að kanna
hvort ákveðin efnabreyting, svokölluð
ADP-ribosylering, hafi hlutverki að
gegna.
Styrkurinn frá AGA er auglýstur
á öllum Norðurlöndunum og segir
Guðmundur að hann geri þeim kleift
að borga Óskari laun í allt að hálft
ár og hluta af efniskostnaði. Hann
segir að erfitt sé að segja til um
hvernig hægt verði að nýta niðurstöð-
ur rannsóknanna til meðhöndlunar á
hjarta og æðásjúkdómum. „Allur
grundvallarskilningur er hagnýtur"
segir Guðmundur. „Ef maður veit
hvernig hlutirnir virka er hægt að
nota lyf á miklu skynsamlegri hátt.“
Fyrsti þáttur af fimm um íslenska skóga og skógrækt er á dagskrá í Ríkissjónvarpinu í kvöld í boði
Skeljungs hf. í þessum fyrsta þætti er fjallað um friðland Reykvíkinga - Heiðmörk.
Pættirnir eru unnir í samvinnu við Skógrækt ríkisins, sem leggur áherslu á að sem flestir
landsmenn bætist í hóp þeirra sem vilja sinna skógrækt.
Skeljungur hf. leggur Skógrækt ríkisins lið með árlegu framlagi. Þegar þú verslar á
bensínstöðvum Skeljungs leggur þú þitt af mörkum til skógræktar á íslandi. Saman getum við lyft
grettistaki undir faglegri forystu Skógræktar ríkisins og í samvinnu við alla sem eiga þá hugsjón
að klæða landið skógi.
Skeljungur leggur rœkt við land og fijóð
Skógrækt með Skeljungi