Morgunblaðið - 17.04.1994, Side 14

Morgunblaðið - 17.04.1994, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1994 ATVINNULEYSI Morgunblaðið/Sverrir Þorvqldur GyHnson prófessor er ósammqla skodun Peters Johqnnes Schjedts i bókinni Vellerd eöa vansæld qd stoóir velferdqrkerfisins séu brostnqr og vióvarqndi qtvinnuleysi biói milljónq mqnna i okkqr heimshlutq. eftir ðnnu G. Ólafsdóttur Á SKRIFBORÐINU liggja stafl- ar af blöðum og bókum. Fræði- rit fylla hillurnar fyrir aftan. Þorvaldur Gylfason, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Islands hallar sér aftur í stólnum og veltir bókinni á milli handa sér. Hann er augljós- lega ósammála. Varar við upp- gjafartóni. Víst sé að rætur at- vinnuleysis liggi djúpt. Skipulag á vinnumarkaði sé að mörgu leyti gallað. Of mikil skattlagn- ing ríkisins á einkarekstur var- hugaverð o.fl. Engu að síður sé ekki ástæða til að gefast upp. Möguleikar á lausn vandans séu margir. Við þurfum að bretta upp ermarnar og vinna á honum. Hugsi lýsir Þorvaldur sig algjör- lega ósammála þeirri grund- vallarskoðun danska þjóðfélags- fræðingsins Peters Johannes Schjodt að stoðir velferðarkerfisins séu brostnar og viðvarandi atvinnu- leysi bíði milljóna manna í okkar heimshluta. Hann þvertekur fyrir að um eins konar náttúrulögmál sé að ræða. „Við höfum þvert á móti, í okkar heimshluta, búið við fulla atvinnu langtímum saman og ekkert segir okkur að við getum ekki komið á slíku ástandi aftur svo fremi sem við högum okkar skynsamlega. Atvinnuleysi í Evrópu, Danmörku, hér heima og víða annars staðar á sér viðráðanlegar skýringar. Þær eru að vísu margar. Sumpart liggja þær í skipulagsgöllum á vinnu- markaði. Sumpart í óhóflegri skatt- Iagningu ríkisins á fyrirtæki sem dregur úr getu þeirra til að ráða fólk í vinnu. Sumpart af því að stjómvöld teija nauðsynlegt að fara mjög varlega í fjármálum ríkisins vegna þess að þau eru nýbúin að brenna sig illilega á verðbólgu. Allir þessir þættir vinna saman og hafa stuðlað að auknu og vaxandi atvinnuleysi sem mörgum virðist viðvarandi. En ég er bjartsýnn og tel að fyrsta skrefið felist í því að skoða vandamálið og rætur þess vand- lega. Ræturnar liggja djúpt og víða um þjóðlífíð. Á því er ekki vafi. Hins vegar er ekki þar með sagt að ekki sé hægt að rífa atvinnuleys- ið upp með rótum. Eg spái því að við völdum þessu verkefni og vara sérstaklega við því þegar menn segja að atvinnuleysi sé gefið og þörf sé á að leita einhverra leiða til þess að lifa með því, t.d. með því að skipta vinnunni. Óskir manna og þarfir eru ótakmarkað- ar. Engin takmörk eru fyrir því hvernig við viljum bæta heimkynni okkar, bílana okkar eða fjölga ferðalögum o.s.frv. Þar af leiðandi er óendanleg þörf fyrir vinnukraft til að fullnægja þessum þörfum. Menn mega því ekki loka sig inni í einhverju homi og gera lítið úr hagvexti. Hagvöxtur er þvert á móti lífsvon mikils fjölda fólks og ákaflega miklvægur, sérstaklega nú, vegna þess að atvinnuleysi hef- ur haft þjóðfélagsböl, fátækt, ójöfnuð og óréttlæti í för með sér. En mörgum, sem eru óskólaðir í hagfræði og hafa lagt meiri rækt við félagsfræði og heimspeki, hætt- ir til að falla í þessa gryfju. Slíkt er útaf fyrir sig skiljanlegt miðað við hvernig ástandið hefur verið í Danmörku. Aftur á móti er það um leið hættulegt því sú skoðun getur valdið því að menn annaðhvort sætti sig við óbreytt ástand eða grípi til ráðstafana sem skila miklu minni árangri en hægt væri að ná.“ Þúsundir dæmdir til atvinnuleysis Að gefnu viðvarandi atvinnuleysi varar Schjodt við því að atvinnu- lausum sé talin trú um að um tíma- bundið ástand sé að ræða með því að bjóða sífellt upp á meiri starfs- fræðslu í starfsgrein viðkomandi. Verið sé að gefa fólki falskar von- ir. Menntun skapi ekki fleiri störf. Þorvaldur telur sjónarmiðið útaf fyrir sig skiljanlegt en nært á rangri forsendu. „A hinn bóginn er auðvitað enginn hægðarleikur að komast fyrir rætur atvinnuleys- isins hér eða annars staðar í Evr- ópu. Hér heima hefur t.a.m. fé frá bönkum og sjóðum til atvinnuupp- byggingar verið sóað í stórum stíl. Eins og fram kom í umræðum á Alþingi fyrir nokkrum dögum hafa tugir milljarða tapast og verið af- skrifaðir, “ segir Þorvaldur og er krafinn nánari skýringa. „Jú, hugsaðu þér að þú takir lán í banka og í staðinn fyrir að festa féð í einhveiju fyrirtæki, sem getur veitt fólki vinnu, ákveður þú að fara í heimsreisu. Svo kemur þú heim úr ferðalaginu, alsæl, ægilega gaman úti í heimi. En þú hefur ekki skap- að atvinnutækifæri. Þú hefur eytt fénu en reikningnum verða lána- stofnanir að framvísa einhvers staðar annars staðar. Væntanlega til skattgreiðenda vegna þess að þeir bera áameiginlega, í gegnum ríkið, ábyrgð á banka- og sjóða- kerfínu. Svona erum við búin að fara ofboðslega illa að ráði okkar hér. Ég nefni dæmi af þessu tagi til að sýna hvað ræturnar geta legið djúpt og ég óttast að við séum, með ógætilegri stjórn peningamála og meðfylgjandi afskriftum og of- boðsiegum lántökum erlendis, búin að dæma þúsundir til atvinnuleysis eða lágra launa langt fram á næstu öld að öðru jöfnu," segir hann. Missum ekki kjarkinn Hann heldur áfram. „Af þessu dæmi geta menn séð að atvinnu- leysi er ekki spurning um að herða skrúfur hér, losa þar og fínstilla svo allt verði komið í lag í næsta mánuði eða á næsta ári. Sveiflurn- ar verða iðulega miklu lengri en svo og sum mistök eru af því tagi að menn kenna þeirra árum og jafnvel áratugum saman. Það er ekki þar með sagt, þó að dæmið sé svakalegt, að við eigum að missa kjarkinn. Þvert á móti eigum við að láta ástandið verða okkur að kenningu og brýna okkur til að ráðast í þarfar umbætur. Tökum dæmi frá Evrópu þar sem sóun almannafjár í gegnum pen- ingakerfið hefur verið miklu minni en hér. Þar fólst ein ástæða at- vinnuleysis, þegar bakslag kom í efnahagslífið fyrir nokkrum árum, í því að skipulag á vinnumarkaði reyndist verr á samdráttartímum heldur en uppgangstímanum ára- tugina á undan. Slíkt er aðeins eðlilegt. Ýmis mannanna verk reyn- ast ágætlega í einu árferði og svo afleitlega í öðru. Útaf fyrir sig þarf mönnum því ekki að koma þetta á óvart. Áhugi manna á skipulagi vinnumarkaðarins og umbótum var skiljanlega ekki mjög mikill meðan allt lék í lyndi. En nú hafa tímarnir breyst og menn hljóta að beina sjónum sínum að ýmsum göllum í innviðum samfé- lagsins sem ef til vill voru huldir áður. Ég er þeirrar skoðunar, að reynslan bendi til þess utan úr heimi að skipulag á vinnumarkaði sé stór partur af þessum vanda. Ég hef þá í huga samanburð, ann- ars vegar milli Evrópu og Ameríku og hins vegar milli Sviss og Jap- ans. í Evrópu eru laun u.þ.b. þriggja fjórðu hluta alls vinnandi fólks ákveðin í samningum milli heildarsamtaka launafólks og vinnuveitenda. Fyrirkomulag af þessu tagi þýðir einfaldlega að við tíðkum ekki markaðsbúskap á I 'I I ( i i ' < \i i ■ i « í N í i v í I Æ < € ý: !

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.