Morgunblaðið - 17.04.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 17.04.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRIL 1994 21 aði starfsmönnum upp í 300, þar af 150 gyðingar, og við árslok 1942 var starfsemin rekin á 45.000 fermetrum með 800 menn og konur í vinnu. Gyðingarnir, sem þá voru 370, komu frá gettóinu í Kraká. Herr Direktor Samskipti Schindlers og gyðing- anna einkenndust af mikilli var- færni. Á þessum tíma hafði hann ekki bein tengsl við aðra en þá, sem unnu á skrifstofunum, til dæmis Stern, en þeir vissu fullvel, að hlut- skipti þeirra var miklu betra en þeirra, sem unnu í öðrum verksmiðj- um svo ekki sé talað um þá, sem fengu ekki að fara út úr gettóinu en um þetta leyti var brottflutningurinn til Áuschwitz að hefjast. Þótt þeir vissu ekki hvers vegna, þá skildu þeir, að Herr Direktor var að gæta þeirra með einhverjum hætti. Andrúmsloftið í verksmiðjunni ein- kenndist af einhvetju öryggi og fljót- lega báðu menn um að ástvinir þeirra og vinir fengiu að njóta þess líka. Það barst fljótt út meðal gyðinga í Kraká, að verksmiðjan hans Schindl- ers væri góður staður og Schindler hjálpaði starfsmönnum sínum án þess þeir vissu það með því að falsa verk- smiðjuskrárnar. Aldrað fólk yngdist um 20 ár; börn voru skráð sem full- orðin og læknar, lögfræðingar og verkfræðingar voru skráðir sem málmsmiðir alls konar en þeir voru taldir ómissandi fyrir stríðsrekstur- inn. Það var á fárra vitorði meðal gyð- inganna hvernig Schindler eyddi kvöldunum en þau notaði hann til að veita og skemmta yfirmönnum SS-sveitanna og þýska hersins í Kraká. Þannig aflaði hann sér áhrifa- mikilla vina og persónutöfrar hans og að því er virtist pólitískur áreiðan- leiki gerðu hann mjög vinsælan með- al nasistaforingjanna í borginni. Vodkaveisla ó skrifstofunni Stem lét þó ekki öryggiskenndina blekkja sig. Hann vissi, að þeir stóðu allir á barmi hyldýpisins. Frá bók- haldaraborðinu sínu sá hann í gegn- um glerhurðina fyrir einkaskrifstofu Schindlers. „Næstum alla daga, frá morgni til kvölds, komu embættis- menn og aðrir gestir í verksmiðjuna og það gerði mig taugaóstyrkan. Schindler var vanur að veita þeim vodka og slá á létta strengi við þá en þegar þeir voru farnir kallaði hann á mig, lokaði dyrunum og sagði mér hljóðiega hvað þeir hefðu viljað. Hann sagði þeim alltaf, að hann vissi nú hvernig ætti að fá þessa gyðinga til að vinna og bað um fleiri og fleiri." Sehindler var aldrei með neinar skýr- ingar á gjörðum sínum og gaf aldrei í skyn, að hann væri andfasisti en smám saman fór Stern að treysta honum. Á sama tíma og fólkið í gettóinu var myrt á götunum, lést úr sjúkdóm- um eða var flutt til Auschwitz skammt frá, hélt lífið áfram í verk- smiðjunni eins og í lágum hljóðum. 13. mars 1943 kom síðan skipun um að loka gettóinu. Alla gyðingana skyldi flytja í nauðungarvinnubúðir í Plaszow fyrir utan borgina. Þar voru aðstæðurnar skelfilegar og mörg hundruð manna ýmist dóu í búðunum eða voru flutt til Auschwitz. Skipun- in um útrýmingu allra gyðinga hafði verið gefin. Stern var fluttur til búðanna í Plaszow eins og aðrir íbúar gettósins en hann og margir aðrir héldu áfram að vinna í verksmiðjunni. Dag einn veiktist hann alvarlega og sendi Schindler boð um hjálp. Hann hrað- aði sér til búðanna með nauðsynleg lyf og hélt áfram heimsóknum sínum þar til Stern hafði náð sér. Það sem Schindler sá í búðunum í Plaszow hafði augljóslega mikil áhrif á hann og hann var farinn að hafa miklar áhyggjur af ástandinu að öðru leyti. Vaxandi halur Gyðingahatrið var orðið slíkt og þvílíkt, að Schindler gat ekki lengur gcrt að gamni sínu við þýsku embætt- ismennina, sem komu til að líta eftir í verksmiðjunni. Þetta tvöfalda líf hans var að vcrða æ erfiðara og ýmis hættuleg atvik urðu æ tíðari. Einu sinni komu þrír SS-menn í verk- smiðjuna fyrirvaralaust og áttu í þrætu sín í milli. „Ég segi ykkur, að gyðingar eru jafnvel á lægra plani en skepnurnar," sagði einn þeirra, tók upp skammbyssu og skipaði FYRSTU eiginlegu endurfundimir ó veitingahúsi í París 1949. Þó höfðu flestir Schindlergyðinganna ekki hitt þau hjónin |lengst til hægrijí fjögur ðr. hringiðu siðleysis og mannfyrirlitn- ingar. Um það leyti sem ríki nasista var að hrynja til grunna var hringt til hans frá brautarstöðinni í Brnenec og spurt hvort hann kærði sig um tvo lestarvagna fulla af hálffrosnum gyð- ingum. Þeir voru 100 talsins, nær dauða en lífi, og gaddurinn var svo mikill að það var ekki hægt að opna vagnana. Enginn annar verksmiðju- stjóri hafði viljað taka við þeim en Schindler bað um, að vagnarnir yrðu sendir til hans strax. Ekki var hægt komast inn í vagn- ana nema með öxum og logskurðar- tækjum og síðan voru fangarnir born- ir út eins og frosnir kjötskrokkar. Þrettán voru látnir en með hinum var enn lífsmark. Alla nóttina og í marga daga og nætur unnu Schindler og kona hans og nokkrir menn með þeim að því að hlynna mönnunum. Áðrir þrír létust en hinum tókst að bjarga. Þannig gekk lífið fyrir sig í Brnenec þar til Rússarnir komu 9. i'náf. Þegár Sc'nindier var orðinn viss um, að starfsmenn hans væru hólpn- ir hvarf hann leynilega á braut ásamt Emilie, konu sinni, og nokkrum nán- ustu vina sinna meðal gyðinganna. Til þeirra fréttist síðan ekkert fyrr en nokkrum mánuðum síðar á herná- mssvæði Bandaríkjamanna í Austur- ríki. Sem yfirmaður í nauðungarvinn- unni taldi Schindler vissara að eiga ekki á hættu, að Rússarnir skytu hann að óathuguðu máli. Búinn aó missa fótfesluna Bókhaldarinn og verksmidjustjórinn ITZHAK Stern og Oskar Schindler á skrifstofu kanadíska blaðamannsins Her- berts Steinhouse. nærstöddum manni að taka upp rusl af gólfinu og éta það. „Éttu það,“ öskraði hann og mundaði byssuna og gyðingurinn tróð ruslinu ofan í sig. „Sjáið,“ sagði SS-maðurinn um leið og þeir gengu burt. „Þetta hefði engin skepna gert.“ í annað sinn, þegar opinber SS- nefnd kom til eftirlits í verksmiðjuna, kom einn þeirra auga á gamlan gyð- ing, Lamus, sem dróst yfir verk- smiðjulóðina hörmulega á sig kom- inn. Formaður nefndarinnar spurði hvers vegna gyðingurinn væri svona dapur á svip og honum var sagt, að hann hefði misst konu sína og einka- barn við nauðungarflutninginn úr gettóinu. SS-maðurinn virtist komast við og skipaði aðstoðarmanni sínum að skjóta gyðinginn svo hann gæti „sameinast fjölskyldu sinni á himni“. Síðan sneri hann sér að öðru. Schindler stóð eftir með aðstoðar- manninum og Lamus. „Leystu niður um þig buxurnar og gakktu af stað,“ skipaði aðstoðarmaðurinn Lamus, sem eins og í leiðslu gerði eins og honum var sagt. „Þú ert með af- skipti af mínum agamálum," sagði Schindler í örvæntingu en SS-maður- inn virti hann ekki viðlits. „Þú ert að eyðileggja starfsandann í verk- smiðjunni, þetta hefur slæm áhrif á framleiðsluna fyrir das Vaterland,“ muldraði Schindler um leið og SS- maðurinn dró upp skammbyssuna. „Þú færð vínflösku ef þú skýtur hann ekki,“ hrópaði Schindler næstum og var að missa stjórn á sér. „Stimmt". Schindler til mikillar furðu samþykkti SS-maðurinn þetta brosandi, stakk byssunni í hulstrið og leiddi Schindler inn á skrifstofu eftir flöskunni. Schindler heróir róóurinn Atvik af þessu tagi og það, sem Schindler hafði séð í búðunum i Plaszow, voru líklega ástæðan fyrir því, að hann færðist nú allur í auk- ana í baráttu sinni fyrir gyðinga. Vorið 1943 hætti hann að hafa áhyggjur af framleiðslunni fyrir her- inn en byijaði fyrir alvöru á makkinu og mútugreiðslunum, sem urðu að lokum svo mörgum til bjargar. Schindler tók sér það nú fyrir hendur að reyna að hjálpa föngunum í Plaszow. Þá var búið að loka ýmsum öðrum búðum í Póllandi og drepa fangana, til dæmis í Treblinka og Majdanck, og ekkert annað virtist bíða gyðinganna í Plaszow. Stern átti hugmyndina en kvöld eitt tókst Schindler að fá einn diykkjufélaga sinna, Schindler hershöfðingja, sem var ekkert skyldur Oskar Schindler en áhrifamikill sem yfirmaður birgða- halds hersins í Póllandi, til að sam- þykkja, að vinnubúðirnar í Plaszow væru ákjósanlegar til raunverulegrar stríðsframleiðslu. Á þeim tíma var eina starfsemin þar viðgerðir á ein- kcnnisbúningum. Aðstæðurnar í búð- unum breyttust að vísu lítið en þær voru teknar af listanum yfir þær, sem leggja átti niður. Þetta olli því, að Schindler fékk góðan aðgang að Hauptsturmfiihrer Amon Göth en staða hans vænkaðist einnig mjög við þessa breytingu. Þeg- ar Schindler lagði til að gyðingarnir, sem unnu í verksmiðjunni hans, yrðu fluttir í sérstakar búðir skammt frá henni „til að spara tíma“ féllst Göth á það og upp frá því átti Schindler auðvelt með að smygla þangað mat og lyfjum. Allt lagt undir Þegar kom fram á vorið 1944 var undanhald Þjóðvetja á austurvíg- stöðvunum í algleymingi. Skipun barst um að tæma Plaszow og allar aðrar búðir. Schindler og starfsmenn hans vissu hvað það þýddi og nú var komið að því fyrir. Oskar Schindler að spila út trompinu, djarfri áætlun, sem hann var með tilbúna. Hann gerði sér nú títt við alla drykkjufélaga sína og treysti sam- böndin, sem hann hafði innan hersins og meðal iðnrekenda í Kraká og Var- sjá. Hann skjallaði menn og mútaði og barðist örvæntingarfullri baráttu fyrir því, sem allir töldu vonlaust. Hann leitaði til manna í Berlín og linnti ekki látum fyrr en einhver ein- hvers staðar í valdakerfinu, sem kannski var orðinn leiður á þessu naggi um þetta „smámál", gaf honutn loks leyfi til að flytja 700 menn og 300 konur frá búðunum í Plaszow til verksmiðju í Brnenec t Súdetahér- uðunum í Tékkóslóvakíu. Flestir hinna fanganna 25.000 í Plaszow voru sendir til Auschwitz. Allt þar til stríðinu lauk vorið 1945 héldu Schindler og starfsmenn hans áfram að leika á nasistana nteð því einu að halda lífi. í orði kveðnu átti nýja verksmiðjan að framleiða hluti í V2-flaugarnar en í þessa tíu mán- uði, frá júlí 1944 til maí 1945, var framleiðslan nákvæmlega engin. Gyðingar, sem tókst að flýja þeg- ar verið var að flytja eftirlifandi fanga frá Auschwitz áður en Rúss- arnir kæmu, fundu sér griðastað í verksmiðjunni hans Schindlers og hann gerðist jafnvel svo ósvíftnn að biðja Gestapo að senda sér alla gyð- inga, sem teknir væru á flótta „með tilliti til hagsmuna stríðsframleiðsl- unnar“. Þannig tókst honum að bjarga 100 manns að auki. „Börnin" hans Schindlers urðu 1.098, 801 karlmaður og 297 konur. Allar eigurnar i mal, föt og ly* Schindlergyðingarnir voru nú al- gerlega upp hann komnir og urðu óttaslegnir væri hann hvergi nærri. Manngæska hans og fórnir áttu sér engin takmörk. Hann fór með hvern einasta pening, sem hann átti eftir í eigu sinni og seldi skartgripi konu sinnar fyrir mat, föt, lyf og brenni- vín til að múta SS-mönnunum. Em- ilie, kona hans, eldaði og sinnti sjúk- um og gat sér ekki minna orð en maður sinn. Þótt fólkið lifði allt í eilífum ótta virðist Schindler hafa haldið ró sinni á hvetju sem gekk. „Ég er líklega fæddur forlagatrúar,“ segir hann nú. „Eða kannski var ég bara hræddur við það ástand, sem skapaðist ef menn misstu vonina og stjórn á sjálf- um sér. Ég varð að vera bjartsýnn þeirra vegna.“ Ef til vill er eftirtektarverðust sú mynd, sent Schindlergyðingar í fjór- um heimsálfum draga upp af Schindler í hlutverki sjálfskipaðs verndara og bjargvættar í miðri Fyrir Schindler sjálfan tóku við- erfiðir tímar. Sem Súdetaþjóðveiji átti hann enga framtíð í Tékkóslóvak- íu og hann gat ekki lengur hugsað sér að búa í Þýskalandi. Hann reyndi þó að koma sér fyrir í Regensburg og síð.ar í Munchen en lifði oft aðal- lega á gjöfum, sem Schindlergyðing- arnir í Ameríku sendu honum. Loks- ins varð úr, að sérstök hjálparstofn- un, sem hafði yfírumsjón með aðstoð við gyðinga, tæki mál hans að sér. Þannig er sagan um Schindler en þeirri spurningu er enn ósvarað að mörgu leyti hvað það var, sem gaf honum kjark og þor. Líklega veit enginn Schindlergyðinganna rétta svarið en sumir hafa getið sér til, að utn einhvers konar sektarkennd haft verið að ræða. Hann hefði ekki feng- ið verksmiðjuna í Kraká nema af því að hann var félagi í flokki Súdetaþjóð- vetja, nasistasamtökum, sem störf- uðu fyrir stríð, en þegar spurst er fyrir um hann á heimaslóðunum verð- ur myndin jafnvel enn óskýrari en áður. Gyðingurinn Ifo Zwicker var ekki aðeins einn þeirra, sem Schindler bjargaði, heldur bjó hann áður í Zwit- tau og þekkti til hans. Eftir að hafa lofað Schindler einlæglega getur hann þó að ser gert að bæta við eins og hikandi: „í Zwittau hefði mér aldr- ei dottið í hug, að hann væri fær um þetta. Ég á við, að fyrir stríð var hann alltaf kallaður Gauner (svindl- ari).“ „Persónuleikinn bjargaói okkur" Schindler er nú (1949) fertugur að aldri, hár og myndarlegur og oft- ast með bros á vör. Gráblá augun brosa líka nema þegar talinu víkur að liðnum tíma. Þá verður hann illi- legur á svip og ber saman krepptum hnefum í niðurbældri reiði. Þegar hann hlær, hlæja allir með honum. „Það var persónuleiki hans umfram allt sem bjargaði okkur,“ segir einn gyðinganna. Fyrir nokkrum mánuðum og eftir nokkurra ára tilraunir fékk Sehindler að flytjast burt frá Þýskalandi. Hjálp- arstofnun gyðinga lét hann fá pen- ingaupphæð, vegabréfsáritun til Arg- entínu og farmiða. Oskar og Emilie Schindler munu taka skipið í Genúa og sigla þaðan á vit nýrrar framtíð- ar. I Suður-Ameríku bíða mörg „börn- in“ hans eftir honum. (Sehindler-hjónin komust til Argent- ínu en fyrir Oskar var lífið að stríðinu loknu ein samfelld sorgarsaga. Þau hjónin skildu 1957 og hann lenti í gjaldþroti. Hann fór til Vestur-Þýska- lands og lifði þar á gjöfum frá Schindlergyðingunum, sem stóðu í ævarandi þakkarskuld við hann. Þeg- ar hann lést 1974 var einsta'ð saga hans enn lítt kunn annars staðar en í ísrael þar sem honum var gefið virð- ingarheitið „ærlegur maður". Hann hvílir nú á Zíonfjalli í Jerúsalem.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.