Morgunblaðið - 17.04.1994, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1994
23
Skagafjörður
Grásleppu-
vertíð fer
sæmilega
af stað
Hofsósi.
GRÁSLEPPUVERTÍÐ virðist
ætla að fara sæmilega af stað á
Skagafirði i ár. Frá Hofsósi eru
tveir bátar gerðir út á grásleppu
og hefur aflast nokkuð vel þegar
gefið hefur á sjó, en gæftir hafa
verið með eindæmum stirðar í vor.
Fréttaritari átti samtal við Þor-
björn Jónsson, en hann er eigandi
annars bátsins sem gerður er út á
grásleppu héðan. Hann sagði, að
það væri allt annað útlit nú en í
fyrra. Þó sagði hann að þorskur
væri svo mikill þar sem þeir væru
með grásleppunetin, að hann lokaði
hreinlega netunum á köflum svo
engin grásleppa kæmist þar í.
Ekki þýðir fyrir þessa báta að
hirða þorskinn þar sem þeir hafa
engan kvóta og sagði Þorbjörn, að
þeir mættu koma með þorskinn í
land en þeir yrðu að skila andvirði
hans til ríkisins ef þeir seldu hann
og kvaðst hann ekki nenna að koma
með þorskinn í land upp á þessa
kosti. Er álit manna að þetta stuðli
að því að þorski sé hent engum til
gagns, en svona eru nú lögin í okk-
ar landi.
Tveir smábátar hafa róið með línu
og hefur afli þeirra verið góður þeg-
ar gefið hefur á sjó, en algengt er,
að ekki hafi verið hægt að róa nema
einu sinni í viku og stundum ekki
það.
Einn bátur er gerður út á rækju
frá Hofsósi og hefur afli hjá honum
verið mjög góður, eins og öðrum
rækjubátum á Skagafirði. I upphafi
rækjuvertíðar sl. haust var úthlutað
200 tonna veiði á Skagafirði á fjóra
báta, en þrír þeirra eru gerðir út
frá Sauðárkróki. Síðar á vertíðinni
var svo bætt við 200 tonnum og
nú fyrir skömmu var enn bætt við
100 tonnum, enda segja sjómenn á
rækjubátunum að nóg sé af rækju
í firðinum. Rækjan er unnin í rækju-
vinnslunni Dögun á Sauðárkróki.
- Einar
-----» ♦ ♦----
G-listinn
íNes-
kaupstað
Neskaupstað.
BIRTUR hefur verið framboðslisti
Alþýðubandalagsins fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar í vor. Þrír
af núverandi bæjarfulltrúum
flokksins þau Klara Sveinsdóttir,
Sigrún Geirsdóttir og Einar Már
Sigurðarson gefa ekki kost á sér
til áframhaldandi setu í bæjar-
sljórn. Alþýðubandalagið hefur
nú 5 af 9 fulltrúum í bæjarstjóm.
Við uppstillingu listans var að
mestu leyti farið eftir úrslitum skoð-
anakönnunarinnar sem var 5. mars
sl. Listann skipa eftirtaldir: Smári
Geirsson, forseti bæjarstjórnar,
Stefanía Guðbjörg Gísladóttir,
bóndi, Magnús Jóhannsson, ijár-
málastjóri, Steinunn Lilja Aðal-
steinsdóttir, aðstoðarskólastjóri,
Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri,
Petrún Björg Jónsdóttir, íþrótta-
kennari, Guðmundur Rafnkell Gísla-
son, iðnnemi, Jón Már Jónsson, vél-
stjóri, Guðjón Björgvin Magnússon,
blikksmiður, Jóna Katrín Aradóttir,
húsmóðir, Eysteinn Þór Kristinsson,
íþróttakennari, Þórey Þorkelsdóttir,
skrifstofumaður, Kolbrún Skarp-
héðinsdóttir, verslunarmaður, Jón
Valgeir Jónsson, vélvirki, Oddný
Guðmundsdóttir, ræstitæknir, Val-
geir Guðmundsson, sjómaður, Klara
Sigríður Sveinsdóttir, húsmóðir og
Einar Már Sigurðarson, skólameist-
ari.
- Agúst.
KOMIDOG
DANSlD!
1
æstu
námskeið
19. -20. apríl
og 23. - 24. apríl
:RÐU
LÉTTA
DANSSVEIFLU
ÁTVEIM
dögumí 620700
Áhugahópur um almenna dansþátnöku á íslandi
hringdu núna
KANTRY-RANTRY
Fáksfélagar, haldið verður
KÁNTRÝKVÖLD
SÍÐASTA VETRARDAG
f Félagsheimili Fáks.
Miðar seldir á skrifstofu 18., 19. og 20. apríl.
Húsið opnað kl. 22.00 og hleypt er inn til kl. 24.00.
Tökum fram kántrý klæðnaðinn og dönsum inn í
sumarið með kúrekahattinn.
Aldurstakmark 20 ára.
Kvennadeild Fáks.
“upnunan/eisla”
DLl 1
líerslunin Rafha í Hafnarfirði og verslunin Rafha í Borgartúní hafa
nú verið sameinaðar í eina verslun á Suðurlandsbraut 16, Reykjavík
ZANUSSI
ELDHUS
BAD
FATASKAPAR
ELDHUS
Opiðs Laugardag frá kl. 9-18 og sunnudag frá kl. 10-17
Boðið er upp á kaffi, kók og nasl
Öll verð eru
staðgreiðsluverð.
MUNALAN
SUÐURLANDSBRAUT 16 • SIMI 880 500