Morgunblaðið - 17.04.1994, Side 28

Morgunblaðið - 17.04.1994, Side 28
41 MORGUNBLAÐIÐ MIIMIMIIMGAR SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1994 Halldóra Sigurjóns- dóttir - Minning Fædd 26. júní 1905 Dáin 10. apríl 1994 Þegar þú svífur enn í norðurátt, indæla vor, þá mátt þú ekki gleyma að gróðursetja í gömlu túni, hátt í grænni hlíð, þann draum að ég sé heima. (Kínverskt ljóð, þýð. Helgi Hálfdanarson.) Langri og farsælli ævi ömmu okkar, Halldóru Sigurjónsdóttur, er lokið. Hún lést 10. apríl sl. eftir erf- iða sjúkralegu. Amma fæddist á Sandi í Aðaldal 26. júní 1905 og hefði því orðið 89 ára í vor. Foreldrar hennar voru Kristín Jónsdóttir og Siguijón Frið- jónsson, skáld og bóndi. Foreldrar Kristínar voru Jón Olafsson og Hall- dóra Ásmundsdóttir, en foreldrar Sigutjóns Sigurbjörg Guðmundsdótt- ir og Friðjón Jónsson. Amma var sjöunda í röðinni af 10 börnum Kristínar og Siguijóns, sem upp komust. Þau voru Arnór, f. 1893, d. 1980, Unnur f. 1896, d. 1993, Áskell, f. 1898, Dagur, f. 1900, d. 1978, Fríður, f. 1902, Sigurbjörg, f. 1904, Ingunn, f. 1906, d. 1931, Asr- ún, f. 1908, d. 1984 og Bragi, f. 1910. Fósturbróðir þeirra var Gísli T. Guðmundsson, f. 1915, d. 1991. Hún fluttist með foreldrum sínum — og systkinum að Einarsstöðum í Reykjadal árið 1906 og síðan árið 1913 að Litlu-Laugum í sömu sveit. Litlu-Laugar þóttu víst ekki merkileg jörð þá, nema vegna þess að þar var nokkur jarðhiti. Húsakynnin voru léleg fyrstu árin og alllangt til næstu bæja. Nú er þama þétt byggð sveita- bæja, skóla og bústaða þeirra, sem starfa við skólana og ýmsa þjónustu fyrir sveitina. Skólasetrið á Laugum er í landi Litlu-Lauga. Þar er nú grunnskóli, framhaldsskóli og tón- listarskóli. Þar var einnig húsmæðra- ■"■gkóli, sem amma kenndi við alla sína starfsævi. Þau húsakynni heyra nú að mestu undir framhaldsskólann. Blömastofa Friöfinm Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sfmi 31099 Opið öll kvöld til ki. 22,- einnig umhelgar. Skreytingar við öil tilefni. Þrátt fyrir lítil efni brutust flest systkinin til mennta. Amma sat einn vetur í skóla á Breiðumýri í Reykjad- al og annan í héraðsskólanum á Laugum, sem tók til starfa árið 1924. Hún var þar veturinn 1926-27, en veturinn eftir hélt hún utan til Sví- þjóðar til þriggja ára náms í hús- mæðrafræðum, og útskrifaðist þaðan með kennararéttindi árið 1930, 25 ára gömul. Á þeim árum var hreint ekki algengt, að ungar stúlkur - allra síst stúlkur úr sveit - tækju sig upp og héldu út í heim til náms. Það hefur þurft hugrekki og vilja- styrk til, og þá eiginleika átti amma okkar í ríkum mæli. Ferðin var löng og erfið, hún var nánast mállaus fyrstu vikumar, og bréfin voru lengi að berast á milli landa. Ekki var um það að ræða að skjótast heim í jói- afrí og sumarfrí, eins og námsmenn gera núna, heldur vann hún fyrir sér þar úti á milli anna. Það var henni afar þungbært að frétta lát móður sinnar haustið 1928, en hún dó úr berklum. En þrátt fyrir alla erfíðleika minntist amma þessara ára í Svíþjóð með þakklæti og gleði. Þar bjó hún sig undir lífsstarfíð, og þar eignaðist hún góðar vinkonur, sem hún hélt sambandi við alla ævi. Þegar amma kom heim frá Svíþjóð hóf hún þegar kennslustörf við Hús- mæðraskóla Þingeyinga á Laugum, en hann var stofnaður árið 1929. Hún kenndi þar fyrst og fremst matreiðslu, en auk þess stjórnaði hún skólanum frá árinu 1946 og allt til 1966. Þær skipta því hundruðum stúlkumar, sem hún átti þátt í að búa undir lífíð. Öllum hlaut hún að kynnast náið, því þær bjuggu í skól- anum, sem var eins og stórt heimili. Margar þeirra bundu mikla tryggð við skólann og kennarana þar og sýna þeim ræktarsemi enn í dag. Starfíð var erfítt og illa launað, en ömmu fannst það bæði ánægju- legt og gefandi, og aldrei kvartaði hún yfír kjörum sínum. Hún var kröfuhörð við nemendur sína og kennara, en ekki síst við sjálfa sig. Hún tók nærri sér, þegar viðhorfín tóku að breytast gagnvart hús- mæðrafræðslu og aðsókn minnkaði að skólanum. Henni tókst þó að snúa þróuninni við og fylla skólann að nýju, áður en hún hætti störfum 1966. Fáum árum síðar var hætt að reka húsmæðraskólann á Laugum sem heilsársskóla. Þegar skólanefndin vildi heiðra ömmu fyrir 36 ára starf við skólann með einhverri gjöf, óskaði hún eftir því, að í stað þess að henni yrði gef- ið eitthvað, yrði komið fyrir lista- verki í garðinum við skólahúsið. Þar stendur því listaverk eftir Ásmund Sveinsson, Ljóðið við rokkinn. Það lýsir einmitt henni ömmu, sem var listunnandi og vildi leyfa öðrum að njóta þess sama. Amma giftist árið 1933 Halldóri Víglundssyni, smið á Laugum. Hann var sonur Svanborgar Bjömsdóttur og Víglunds Helgasonar, sem bjuggu á Hauksstöðum í Vopnafírði. Ámma og afí byggðu lítið hús í landi Litlu- Lauga í brekkunni fyrir ofan skóla- setrið og nefndu það Varmahlíð. Þau skildu árið 1941. Afí lést árið 1977. Börn þeirra urðu þijú: Halldór, fæddur 1934, eryfirlækn- ir Kristnesspítala, giftur Birnu Björnsdóttur. Börn þeirra eru fjögur: Siguijón, er við nám í Frakklandi; Rún, er læknir, gift Reyni Eyvindar- syni og þau eiga einn son; Pétur, er íslenskufræðingur í sambúð með Jó- hönnu Kristjánsdóttur; og Halidór Björn, háskólanemi, er í sainbúð með Álfheiði Hrönn Ástvaldsdóttur. Svanhildur, fædd 1938, er félags- málafulltrúi BSRB. Hún var gift Arnaldi Valdimarssyni, en þau eru skilin. Börn þeirra eru fjögur: Arn- hildur, íslenskufræðingur, er í sam- búð með Hilmari Garðarssyni og eiga þau tvo syni; Óttar, fulltrúi, er í sam- búð með Kristínu Magnúsdóttur og eiga þau einn son; Gauti er bókbind- ari og Daði er menntaskólanemi. Kristín, fædd 1939, er starfskona þingflokks Kvennalistans og gift Jónasi Kristjánssyni. Börn þeirra eru líka fjögur: Kristján, jarðfræðingur, er giftur Katrínu Harðardóttur og þau eiga eina dóttur; Pálmi, sagn- fræðingur, er í sambúð með Sigrúnu Thorlacius og þau eiga eina dóttur; Pétur og Halldóra eru bæði mennta- skólanemar. Þegar amma hætti kennslu árið 1966 settist hún að hjá Kristínu móður okkar í Reykjavík og síðar á Seltjamarnesi. Amma var okkur hlý og góð, og það var ómetanlegt að hafa hana á heimilinu. Við systkinin komum aldrei að tómu húsi, þótt foreldrar okkar væru að heiman í vinnu eða á ferðalögum. Það hefðu þau ekki getað á sama hátt, ef amma hefði ekki alltaf verið til staðar og eins konar önnur móðir okkar. Hún bjó hjá okkur allt til ársins 1991, þegar hún flutti í eigin íbúð skammt frá okkur á Nesinu. Kannski fannst henni hlutverki sínu lokið á heimili okkar, þar sem við systkinin töldum okkur vera orðin sjálfráða og ekki lengur jafn fús að hlíta hennar góðu ráðum. Þótt hún væri þá orðin 86 ára, bjó hún sér nýtt heimili af ná- kvæmni og dugnaði, valdi alla hluti sjálf og kom fyrir með aðstoð barna og bamabama. Á sumrin dvaldi amma alltaf í Varmahlíð, húsinu sínu í sveitinni fyrir norðan, og þar áttu börnin hennar athvarf með sínar fjölskyld- ur. Á hveiju einasta sumri fylltist litla húsið af fólki, barnabörnunum fjölgaði jafnt og þétt, það var sofíð í hveiju skoti, og stundum var jafn- vel tjaldað í túninu. Og þegar barna- börnin urðu fullorðin, fóru þau að koma með bömin sín í sumarheim- sókn í Varmahlíð. Alltaf var pláss fyrir fleiri börn, sem uxu í kapp við trén, sem amma hafði látið gróður- setja í kringum húsið. Og hún var alltaf að láta laga húsið og snyrta lóðina. Síðast fyrir þremur árum dreif hún í því að kaupa pott og láta koma honum fyrir í túninu, svo að afkomendumir gætu notið þeirrar ánægju að busla þar í laugarvatninu ofan úr brekkunni. Sjálf var hún þá farin að eiga svo bágt með hreyfíng- ar, að hún gat ekki notið þess með þeim. Amma og Varmahlíð eru óaðskilj- anleg í hugum okkar, og við verðum ævinlega þakklát fyrir sumarat- hvarfíð okkar og allt annað sem hún gerði fyrir okkur. Amma var hraust, létt á fæti og atorkusöm vel fram yfír áttrætt, en upp úr því fór að halla undan fæti. Síðastliðið ár var heilsan orðin léleg, en norður vildi hún fara, og hún fékk að eyða síðasta sumrinu í Varmahlíð eins og vanalega. Líklega hefur hana grunað, að þetta væri síðasta ferðin, því hún lagði á sig að heimsækja gamla vini og ættingja, sem hún hafði ekki komið til nokkuð lengi. Hún var með hressara móti fyrst eftir að hún kom að norðan, en smám saman þrutu kraftarnir, og í nóvemb- erlok var hún lögð inn á Borgarspít- ala. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir 10. apríl. Vorið var tíminn hennar ömmu. Hún var morgunhani og náttúruunn- andi og var oft búin að fara í göngu- ferð um þvert og endilangt Seltjarn- ames, þegar aðrir komu á fætur. Hún kunni vel við sig hér, en hún var eins og farfugl, friðlaus að kom- ast norður, þegar voraði. Þar leið henni best „... í gömlu túni, hátt í grænni hlíð...“. Við minnumst ömmu okkar með þakklæti og söknuði. Dóra, Pétur, Pálmi og Kristján. Amma okkar, Halldóra Siguijóns- dóttir, er látin. Þegar svo náinn ætt- ingi fellur frá leita margar minning- ar á hugann. Þó einkennilegt megi virðast er amma okkur minnisstæð- ust frá því við vorum börn og þá einkum af samverustundum okkar í Varmahlíð. Hvert einasta sumar eftir að amma flutti suður fór hún norður í Varmahlíð. Þar var hennar ríki. Dætur hennar fylgdu síðan í fótspor hennar með börn sín. í barnæsku okkar má segja að hafi verið þrír stórviðburðir á ári hveiju; afmælin okkar, jólin og að fara í sveitina til ömmu. Við börnin nutum þess að vera úti í náttúrunni, áttum bú uppi í brekku, lékum okkur f tijánum hennar ömmu, fórum í sund og skruppum í Laugafell að skoða dýrin. I minningunni fínnst okkur alltaf hafa verið gott veður þessi sumur. Amma stjómaði þessu „sumar- búðalífí“ af mikilli röggsemi og re- glufestu. Hún var alltaf fyrst á fæt- ur og hafði komið mörgu í verk áður en aðrir dröttuðust á fætur. Hlaupa upp á bæjarhól, baka kleinur, flat- brauð, rúgbrauð, bollur, vínarbrauð eða annað það sem hún taldi að vant- aði handa mannskapnum, fara í morgunleikfimi með Ornólfí og taka til morgunmatinn. Síðan sá hún einn- ig um aðrar máltíðir dagsins og brýnt var fyrir okkur börnunum að koma nú á réttum tíma í mat. Amma var sístarfandi og þegar hún var ekki að snúast í eldhúsinu var að mörgu að hyggja. Það þurfti að hugsa um trén, snúa nokkrum flekkjum úti á túni og kannski að mála þakið á Varmahlíð. í Reykjadal og sérstaklega á Laugum átti amma systkini, ættingja og vini næstum á hveijum bæ. Þegar hún fór að heimsækja þetta fólk var hún yfirleitt fótgangandi. Stundum fengum við börnin að fara með henni og máttum þá hafa okkur öll við að fylgja henni eftir. bví amma var létt og kvik á fæti. Sólbjartir sumardagar bernskunn- ar liðu, við urðum stór, fórum að vinna fyrir okkur á sumrin og færri sáu sér fært að dvelja langdvölum í Varmahlíð. Trúlega hefur amma saknað þessara tíma þegar hún safn- aði um sig börnum og barnabörnum í litla húsinu sínu fyrir norðan. Nú hin síðari ár höfum við eldri systkin- in notið þess að geta komið í Varma- hlíð með maka okkar og börn. Þó amma hafí búið nær þijátíu ár sunnan heiða þá voru hennar rætur norður í Reykjadal. Þangað leitaði hugur hennar nú hina síðustu mánuði í veikindum hennar. Hún rifj- aði upp löngu liðna atburði, hugsaði um fólkið sem lifði og hafði lifað í þessum dal og um húsið sitt, Varma- hlíð. Vonandi berum við niðjar henn- ar gæfu til að varðveita og rækta áfram þennan reit sem ömmu þótti svo vænt um. Það er margs að minnast og með- an við eigum minningar um ömmu Halldóru lifír hún með okkur. En mikið eigum við eftir að sakna þess að hún standi ekki í dyrunum á Varmahlíð að taka á móti okkur á sumrin, með þessari spurningu: „Eru þið ekki óskaplega þreytt og svöng?“ Sennilega hefur ömmu grunað að hveiju stefndi, því síðastliðið sumar hélt hún veglega upp á afmælið sitt. Nær allir afkomendur hennar gátu komið og gert sér glaðan dag sam- an. Henni tókst líka að dvelja síðasta sumarið sitt í Varmahlíð. Það átti ekki við ömmu að vera veik og upp á aðra komin, því var dauðinn henni lausn og hún var til- búin að fara. Friður hefur færst yfir mig. Dásamlegur friður. Nú get ég farið þegar þú kallar, og hvert sem þú kallar mig. Þvi þú hefir tekið þjáningu mína burtu. Og þjáning þeirra, sem ég elska mun að engu verða í þinni hendi. (Siguijón Friðjónsson, úr Skriftamálum einsetumannsins) Elsku amma, við þökkum þér sam- fylgdina. Arnhildur, Ottar, Gauti og Daði. Látin er í Reykjavík Halldóra Sig- uijónsdóttir, frv. skólastjóri Hús-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.