Morgunblaðið - 17.04.1994, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1994
Minning
Ingunn H. Sigur-
jónsdóttir Hlíðar
Fædd 10. ágúst 1910
Dáin 7. apríl 1994
Tengdamóðir okkar er látin.
Ingunn fæddist á Dalvík, dóttir
hjónanna Sigurjóns Baldvinssonar
og Jónínu Ingvarsdóttur. Systkini
Ingunnar voru fimm, Guðjón, sem
er látinn, Anton, sem býr á Dalvík,
Guðlaug, sem býr á Akureyri, og
Þóra, sem er látin. Ingunn missti
móður sína ung og það reyndist
fðður hennar um megn að halda
heimili fyrir börnin fimm. Ingunn
var send I fóstur til Þorsteins Jóns-
sonar og föðursystur sinnar Ingi-
bjargar Baldvinsdóttur í Baldurs-
haga á Dalvík þegar hún var sjö
ára. Þar eignaðist hún mjög gott
heimili og oft nefndi hún hve vel
henni hefði liðið á því heimili.
Sigurjón faðir Ingunnar kvæntist
aftur Oddnýju Baldvinsdóttur og
eignaðist með henni tvö böm, þau
Þórdísi Helgu og Jón Stefán Brimar
sem bæði eru látin. Ingunn bjó á
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöf Aa 4 — slmi 681960
hOLl
® 10090
SKIPHOLTI50B, 2. hæðt.v.
Opiðídag kl. 14-17
FASTEIGNASALA
OPIÐHUS-KL. 14-17
Franz Jezorski, lögg. fast.sali.
Langholtsvegur 162
Björt og skemmtileg 86 fm íb. í kj. með
tveimur fullvöxnum svefnh. Verðið er
aldeilis frábœrt aðeins 5,8 milij. Áhv.
4,0 millj. Gakktu í bæinn. Opið hús!
Hlíðarvegur 20, 1. hæð
Falleg 117 fm sérh. á veðursælum stað
í Kópavogi. Stór og góður bflskúr. Stutt
i alla þjónustu. Gróin gata. Makaskipti
hugsanleg. Verð 10,2 mlllj. Oplð hús -
Uttu Inn f dagl
Hér á KR-svæðinu bjóðum viö þér að
kaupa gullfallega 75 fm 3ja-4ra herb.
íb. á 4. hæð með dýrölegu útsýni og
suðursv. Verðið er sérl. hagstœtt að-
eins kr. 6,9 millj. Þú skoðar i dag milll
kl. 14 og 17 og hringir á bjöllu hjá Olgu
og Magnúsi. KR-ingar, þlð eigið leiklnn!
Melabraut 14, Seltjn.
Á þessum rólega og góða stað á Nes-
inu býðst þár að skoöa bjarta og fellega
80 fm íb. á 1. hæð í þeasu virðulega
húsi. Hér leiðist engum, stutt í skóla
og alla þjónustu. Verðið er aldeilis
sprenghlægltegt kr. 0,9 mlllj. Áhv.
húabráfalán kr. 4,0 mlllj. Þú bankar
uppá I dag milll kl. 14 og 17. Jé, akoð-
aðu þessa!
Vorum að fá í sölu eina af þessum sívinsælu hæðum, 115 fm, við Vesturbrún nr. 8.
3 svefnh., 2 stofur. Ekki má gleyma rúmgóðum bllskúr. Laus i dag. Þorkell verður
með heitt á könnunni. Verð 10,4 mlllj. Vertu velkomin(n)!
Framnesvegur 58 - opið hús
Fallegt og mikið endurn. raöhús i eftirsóttum stærðarflokki i gamla góða vesturbæn-
um. 3 svefnh. Útsýni út á hafið blátt. laust. Áhv. 4,0 mlllj. Frábært verð 6,8 millj.
Líttu inn i dag!
heimili fósturforeldra sinna öll ung-
lingsárin þar sem hún sinnti ýmsum
störfum bæði á heimili og utan
þess. Ingunn lauk barna- og ung-
linganámi á Dalvík en að því loknu
fór hún í Húsmæðraskólann á
Blönduósi.
Góðmennska og hjálpsemi átti
djúpar rætur í Ingunni og má því
segja að það hafi verði henni eðlileg
leið að fara suður til Reykjavíkur
og setjast í Hjúkrunarskóla Islands.
Hún lauk námi 1940 og hóf störf
á Akureyri. Ingunn vann þar í
bæjarhjúkruninni og einnig starfaði
hún á Kristneshæli og við Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri, Þar
kynntist hún ungum læknastúdent
Gunnari Hlíðar.
Árið 1941 giftust þau Gunnar
og Ingunn og bjuggu fyrst á Akur-
eyri. Þar eignuðust þau fyrsta bam
sitt, Guðrúnu Ingibjörgu. Þau fluttu
með kornabam að Krossum á Ár-
skógsströnd þar sem þau bjuggu í
tvö ár. Á Krossum eignuðust þau
tvær dætur, Brynju og Hildigunni.
Á Krossum leið þeim vel. Margsinn-
is nefndi Ingunn að þar hefði hún
viljað búa lengur.
Árið 1944 fluttu Ingunn og
Gunnar til Vestmannaeyja með
dætur sínar sem þá voru þrjár og
enn áttu þau eftir að eignast dætur
því þar fæddust tvær þær yngstu,
Jónína Vilborg og Sigríður. í Vest-
mannaeyjum starfaði Gunnar sem
dýralæknir og heilbrigðisráðunaut-
ur.
Eftir nærri sjö ára dvöl í Vest-
mannaeyjum fluttust þau til Borg-
amess með dætur sínar fimm.
Gunnar var símstöðvarstjóri í Borg-
amesi og Ingunn var skólahjúkrun-
arkona. Þar auðnaðist þeim að búa
til ársins 1957, en þá dó Gunnar
af slysförum í desember skömmu
fyrir jól. Stóð nú Ingunn uppi ein
með fimm ungar dætur. Fráfall
Gunnars fékk mjög á Ingunni sem
nærri má geta. Hún fluttist tii
Reykjavíkur. Hún fékk góða aðstoð
hjá mági sínum, sr. Jóhanni Hlíðar,
sem þá var prestur í Vestmannaeyj-
um, við að ala önn fyrir dætmnum
og mennta þær og bjuggu þijár þær
elstu hjá honum um tíma. Ingunn
hóf störf á Vífilsstöðum þegar hún
hafði jafnað sig eftir fráfall eigin-
mannsins. Um skeið vann hún á
Sólheimum og síðustu árin sem hún
Líkldstuvinnustofa Eyvindap Árnasonap
Stofnað 1899
------♦--------
Utfapafijónusta
t
LíkLislusmíði
Vesturhlíð 3 ♦ Sími: 13485 ♦ Davíð Osvaldsson ♦ Heimasími: 39723
Halldór Jónsson SH-217
- FORKAUPSRÉTTUR
Ólafsvíkurkaupstað hefur verið boðinn forkaupsrétt-
ur að Halldóri Jónssyni SH-217 í samræmi við 11.
gr. 3. mgr. laga nr. 38/1990.
Upplýsingarvarðandi ofangreint veitir bæjarstjóri í
síma 93-61153.
Ólafsvík, 15. aprfl 1994,
Bæjarstjórínn í Ólafsvík.
Urðarstígur 5 - Hafnarfirði
Oðið hús í dag
Petta skemmtilega hús I gamla bænum í Hafnarfirði ar til sölu. Þetta er steinhús,
hæð og ris alls rúml. 120 fm. Allt í góðu ástandi. Áhvílandi eru um 4 millj. í húsbr.
Tll sýnls f dag kl. 14.00-16.00. Gjörlð svo vel að Ifta Inn.
EIGNASALAN, Ingólfsstræti 12, s. 19540 og 19191.
starfaði við hjúkrun vann hún á
Landakoti.
Það er á þessum árum sem við
eignumst Ingunni sem tengdamóð-
ur. Við komum allir inn í fjölskyld-
una á sjöunda áratugnum. Við
tengdasynir Ingunnar hugsum með
hlýhug til hennar. Manngæska
hennar og hjartahlýja var einstök.
Það var ávallt gott að leita til henn-
ar. Bamabömin sem nú eru nítján
talsins nutu samvista við hana. Hún
hafði sérstakt yndi af því að vera
með þeim og hugsa um þau. Bama-
bamabömin sem eru níu talsins
höfðu einnig fengið að njóta hlý-
hugar hennar nú á síðustu ámm.
Arið 1978 fékk Ingunn heilablóð-
fall sem leiddi til þess að hún hætti
að starfa sem hjúkrunarfræðingur
á Landakoti. Þá var það sem einn
tengdasonanna, Hörður Árnason,
eiginmaður Brynju, tók hana að sér
og bjó henni skjól á heimili þeirra
í Bakkaseli í Breiðholti. Það var
ekki í fyrsta skipti sem Hörður
reyndist tengdamóður sinni vel
hann hafði einnig verið henni stoð
og stytta þegar hún kom sér upp
eigin íbúð á árinu 1963. Hjá Brynju
og Herði bjó Ingunn þar til síðastlið-
ið sumar þegar Hörður lést af slys-
fórum í Kaupmannahöfn. Fráfall
Harðar fékk mjög á Ingunni sem
átti honum svo margt gott að
þakka.
Nú er sæti Ingunnar í fjölskyldu-
boðunum tómt, en öll minnumst við
hennar sem einstakrar móður og
ömmu.
Guð blessi minningu göfugrar
konu.
Jean Jensen,
Birgir Dagfínnsson,
Reynir Aðalsteinsson,
Karl Jeppesen.
Nú legg ég augun aftur,
6, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vðm í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. S. Egilsson.)
Þetta er ein af bænunum sem
amma Inga kenndi mér þegar ég
var lítil. Amma Inga hafði alltaf
nægan tíma fyrir bamabörnin sín,
hún bað með mér á kvöldin, kenndi
mér að spila og var alltaf tii í að
leika hvaða leik sem mér datt í hug
þá stundina. Amma bjó hjá okkui*
alltaf af og til á meðan ég var að
alast upp og þegar við fluttum til
Svíþjóðar, þegar ég var sjö ára, þá
kom hún og var hjá okkur um tíma.
Hún var nánast eini leikfélagi minn
og var óþreytandi í alls kyns dúkku-
leikjum. Eitt lifir þó sterkt í minn-
ingunni og það var hversu litaglöð
hún var þegar litabækur vora ann-
ars vegar. I dag er hlegið að fjólu-
bláum köttum með grænar lappir
en ég man að mér var ekki skemmt
þá.
Amma Inga hafði alltaf gaman
af sjónvarpi og þá sérstaklega ára-
mótaskaupinu, hún kunni þau bók-
staflega öll utanbókar og þuldi
brandarana upp. Hún var bæði
sterk og góð kona og hennar verður
sárt saknað af okkur öllum.
Okkur systuraar langar til að
þakka ömmu fyrir allt það góða sem
hún gaf okkur og alla þá væntum-
þykju sem hún sýndi okkur. Við
viljum biðja góðan Guð um að
geyma hana. Sofðu rótt, amma.
Ingunn Þóra Jeppesen,
Anna Kristín Jeppesen.
Mig langar að minnast með
nokkrum orðum indællar vinkonu
minnar, Ingunnar Hlíðar, hjúkrun-
arkonu. Við kynntumst vel því börn-
in okkar voru gift í 30 ár.
Lífið var ekki alltaf dans á
rósum hjá Ingunni, en hún missti
sinn góða mann af siysförum ung
íslandskostur
Ij'fidrvkkjiu
Verð frá 750 kr. á mann
(> I 48 49