Morgunblaðið - 17.04.1994, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNA/RAÐ/SMÁ
SUNNUDAGUR 17. APRIL 1994
Minning
Krislján Knútur
Jónasson Isafirði
Kristján Knútur Jónasson lést af
völdum snjóflóðsins sem féll yfir
skíðasvæðið og sumarbústaða-
byggðina að morgni þriðjudagsins
5. apríl sl. Menn setti hljóða á
ísafirði þegar fréttin um snjóflóðið
barst út. Eyðileggingu á mannvirkj-
um er hægt að bæta, en mannslífíð
ekki.
Kristján Knútur var fæddur á
ísafirði 19. nóvember 1934. Hann
var sonur Jónasar Guðjónssonar
húsasmíðameistara, og Jónu Petó-
línu Sigurðardóttur.
Kristján var gagnfræðingur frá
Gagnfræðaskólanum á ísafirði og
lauk húsasmíðanámi frá Iðnskólan-
um á ísafirði og var meistari í húsa-
smíðaiðn.
Kristján vann ýmis störf til sjós
og lands frá blautu barnsbeini.
Kunnastur er hann þó af vett-
vangi, sem framkvæmdastjóri hf.
Djúpbátsins.
Kristján var fæddur á kreppuár-
unum þegar lífsbaráttan var hörð
á ísafirði eins og annar staðar.
Víst hefur ekki verið mulið undir
Kristján í uppvextinum. Á ísafirði
ríkti hins vegar framfarasókn á
þessum árum. Framfarahuginn og
áræðið hefur Kristján drukkið í sig
í uppvextinum. Það ásamt góðum
gáfum, hugrekki og hrífandi per-
sónuleika reyndist Kristjáni gott
veganesti í öllu því sem hann tók
sér fyrir hendur síðar á lífsleiðinni,
öðrum ísfirðingum til hagsbóta.
Með fráfalli Kristjáns er genginn
einn af þeim mönnum sem settu
mestan svip á ísafjörð síðustu árin.
Kristján var um langan tíma einn
af forystumönnum íþróttamála á
Isafirði og sat um tíma í stjórn
Knattspyrnusambands Islands.
Hann var mikilsvirkur í atvinnumál-
um, var hvatamaður að stofnun og
endurreisn margra fyrirtækja, svo
sem Togaraútgerðar ísafjarðar og
rækjuverksmiðjunnar Bakka í
Hnífsdal. Þá lagði hann mikið af
mörkum til ferðamála, m.a. í gegn-
um starf sitt sem framkvæmda-
stjóri Djúpbátsins.
Kristján var alla tíð virkur á hinu
pólitíska sviði. Hann var um skeið
formaður Alþýðuflokksins á ísafirði
og gegndi mörgum trúnaðarstörf-
um fyrir Alþýðuflokkinn. Kristján
var kjörinn bæjarfulltrúi á ísafirði
3. júní 1982 og sat í bæjarstjóm
samfleytt í 12 ár. Forseti bæjar-
stjórnar var hann í átta ár. Krist-
jáni voru falin margvísleg trúnaðar-
störf á sviði sveitarstjórnarmála og
á öðrum opinberum vettvangi, var
hann m.a. formaður stjórnar Heil-
sugæslustöðvar og Fjórðungs-
sjúkrahúss til dauðadags.
Kynni okkar Kristjáns hófust að
ráði árið 1987 þegar ég kom sem
aðalmaður inn í bæjarstjórn ísa-
fjarðar. Kristján var þá forseti bæj-
arstjómar og stýrði meirihlutasam-
starfi Alþýðuflokks, Framsóknar og
Alþýðubandalags. í hlutverki for-
seta bæjarstjórnar nutu margir
kostir Kristjáns sín vel. Hann var
mjög fljótur að sjá aðalatriði hvers
máls og eiginlegt að laða menn til
samstarfs. Hann var snjall samn-
ingamaður, rökfastur en sá þó vel
rök annarra. Harin var óþreytandi
eldhugi við allt sem hann taldi
ísafírði vera til hagsbóta, má þar
t.d. nefna byggingu nýs íþrótta-
húss. Hann var óvenju reiknings-
glöggur maður og var oft búinn að
reikna í huganum það sem við hin
vomm að reikna á vélar. Þrátt fyr-
ir alla þessa eiginleika hreifst mað-
ur þó mest af Kristjáni fyrir hlýlegt
viðmót og létta lund. Honum var
létt að sjá hið skoplega í hlutunum
og sagði skemmtilega frá og var
einstaklega hnyttinn í tilsvörum.
Lifa mörg tilsvör hans enn á vörum
samferðamannanna.
Eftirlifandi eiginkona Kristjáns
er Hansína Einarsdóttir frá Hnífs-
dal. Eignuðust þau fimm börn.
Voru þau hjón samhent og heimili
þeirra rómað fyrir gestrisni og
hlýju. Af þeirra fundi fór fólk ævin-
lega ríkara en það kom, enda voru
þau vinamörg.
Ég færi fjölskyldu Kristjáns sam-
úðarkveðjur frá mér og Helgu konu
minni og óska þeim guðsblessunar.
Smári Haraldsson,
bæjarstjóri á Isafirði.
Þegar veröldin er allt í einu hætt
að vera lítið, einangrað sjávarþorp
og hefur breyst í kaupstað er ekki
undarlegt þótt átta ára snáða finn-
ist hann hálf ruglaður í ríminu.
Og ekki bætir það úr skák fyrir
ungum Iandnema þegar litli barna-
skólinn í þorpinu, sem hann þekkti
orðið svo vel, er allt í einu orðinn
að stærðarinnar húsi á tveimur
hæðum með mörgum herbergjum
og jafn mörgum krökkum í hverju
herbergi og voru í öllum litla skólan-
um.
Þegar þannig stóð á fyrir mér,
nýfluttum með fjölskyldu minni frá
Bolungarvík til ísafjarðar fyrir
röskum 50 árum, var mikils virði
að kynnast fljótt strákum í hverfinu
og eignast leikfélaga. Ég átti heima
á Bökkunum. Bak við húsið var
stórt port. Þar hafði augsýnilega
átt að byggja geymslu, sem aldrei
varð meira en grindin ein, upplagt
leiktæki enda klifurgrindur vinsæl-
ar á sérhönnuðum leikvöllum nú-
tímans.
Þótt portið væri til margra hluta
gagnlegt fullorðna fólkinu var það
tíðum leikvöllur. I snúrustólpa, sem
faðir minn setti upp, negldum við
nagla með jöfnu millibili, kræktum
á band og til að fá snúruna lárétta
út frá staurnum hélt einhver okkar
strákanna í hinn endann.
Við þessar frumstæðu aðstæður
komst ég fyrst í kynni við „fijálsar
íþróttir". Þarna æfðum við stangar-
stökk, stundum við takmarkaðan
fögnuð foreldra okkar þegar ómjúk
lending á harða mölina gataði
buxnarass eða blóðgaði lófa.
Meðal þessara ungu og áhuga-
sömu íþróttagarpa var drengur, ljós
yfírlitum, ákaflega grannur og ekki
líklegur til afreka þótt annað ætti
eftir að koma í ljós, bæði þarna í
portinu og síðar á lífsleiðinni hvort
heldur var í leik eða starfi. Alls
staðar átti hann eftir að láta að sér
kveða. Hann var strax til forustu
fallinn, enda oftast miðdepill allra
okkar athafna og uppátekta sem
sjaldan fullnægðu þörfinni.
Þessi einn af mínum fyrstu leik-
félögum á ísafirði, Kristján Knútur
Jónasson, var nágranni minn, átti
heima í Myllunni, litlu húsi við
Tangagötuna, hjá móður sinni, Jónu
Petólínu, og Högna bróður sínum,
sem forlögin klipptu á lífsþráðinn
hjá með sama hætti og hjá Krist-
jáni fyrir tæpum tuttugu árum.
Eldri systkini þeirra bræðra voru
þá farin að heiman.
Ósjálfrátt hrökk hugurinn þessi
ár aftur í tímann þegar mér bárust
þau hörmulegu tíðindi að morgni
þriðjudags 5. þ.m. að snjóflóð hafði
þurrkað út skíðasvæðið á Selja-
landsdal og sumarhúsabyggðina í
Tunguskógi, Kitti Jónasar hefði lát-
ið lífið og Hanna, kona hans, lægi
slösuð á sjúkrahúsi.
Á vissum augnablikum stöðvast
tíminn, svo frnnst manni að minnsta
kosti þar til maður áttar sig á því
að klukkan tifar og verður ekki
færð til baka. Og þá fyrst verður
manni ljós smæð okkur þegar dauð-
ans óvissi tími kemur í opna skjöldu.
í þessum fáu orðum mínum ætla
ég ekki að rekja æviferil Kristjáns
Jónassonar og störf hans til sjós
og lands, jafn margbreytileg og þau
voru, né festa á blað frekar en orð-
ið er allar þær æskuminningar sem
nú hrúgast upp og tengjast árunum
þegar hann átti heima í Myllunni
og síðar í Fjarðarstrætinu. Bara til
að gera minningunum skil þyrfti
heila bók. Og þótt þær séu þess
eðlis að fyrir allra augu mættu
koma eru þær kærari hljóðum huga
í einrúmi. Þess vegna bíða þær
betri tíma, ef þeim á annað borð
er ætlað að verða annað og meira
en hugarþægð þess er notið hefur.
Leiðir okkar Kristjáns sköruðust
oftar en á Mylluárunum. Við áttum
_______________________________41
samleið í íþróttahreyfingunni og
síðar í pólitíkinni, þótt ég hafi
reyndar verið hættur afskiptum þar
af þegar hann haslaði sér völl á
þeim vettvangi. En hvort heldur lit-
ið er til íþróttahreyfingarinnar eða
á svið bæjarmála þá stöndum við
öll í mikilli þakkarskuld við Krist-
ján. Störf hans að þessum málum
munu um ókomin ár halda nafni
hans á loft. Kristján unni heima-
byggð sinni. Það er skarð fyrir skildi
við fráfall hans.
Kristján Jónasson gaf áhugamál-
um sínum ómældan tíma. Og hann
gerði það í svo ríkum mæli að ókleift
hefði verið ef annar eins klettur og
Hansína Einarsdóttir, eiginkona
hans, hefði ekki staðið honum að
baki. Hugur þeirra var einn og það
væri létt verk að leiða fram tugi
vitna um heimilið að Engjavegi 29,
sem stóð öllum opið nánast hvenær
sem var.
Þeim Kitta og Hönnu varð fimm
barna auðið, fjögurra sona og einn-
ar dóttur. Öll eru þau hin mannvæn-
legustu og hafa fengið ríkulega í
vöggugjöf þá eðliskosti foreldranna,
sem lífsstarf þeirra hjóna ber
gleggst vitni.
I dag kveðjum við góðan dreng,
mætan borgara sem allir ísfírðingar
þekktu. Við fráfall hans myndast
skarð, sem af mörgum ástæðum
verður ekki fyllt.
Að leiðarlokum bið ég hinum
látna skólabróður og æskuvini
blessunar á Guðs vegum.
Elsku Hanna. Við hjónin sendum ,
þér, börnunum, tengdabörnum,
barnabörnum og öllu ykkar fólki,
innilegustu samúðarkveðjur og biðj-
um ykkur blessunar þess er yfir
öllu vakir. Megi minningin um eig-
inmann, föður, tengdaföður, afa og
bróður vera sproti huggunar sem
leiðir ykkur út úr dimmum dal sakn-
aðar inn í ljós þakklætisins fyrir
að hafa átt og notið Kristjáns vinar
míns Jónassonar.
Sigurður J. Jóhannsson.
Fleiri minningagreinar um Krist-
ján Knút Kristjánsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
□ GIMLI 5994041819 III = 1
I.O.O.F. 3 = 1744188 = O
□ M(MIR 5994041819 I 1 Fri.
□ HELGAFELL 5994041819
IV/V 2
I.O.O.F. 10 = 1744188 =
Kristniboðsfélag karla,
Reykjavík
Fundur verður i Kristniboðssaln-
um, Háaleitisbraut 58-60, mánu-
dagskvöldið 18. aprfl, kl. 20.30.
Séra Sigurjón Árni Eyjólfsson
sér um fundarefnið.
Allir karlmenn velkomnir.
Stjórnin.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma kl. 11.00 og
20.30. Bengt Sundberg prédikar
á báöum samkomunum. AIEir
hjartanlega velkomnir!
Sjónvarpsútsending á OMEGA
kl. 16.30.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 16.30.
RæÖumaður Hafliði Kristinsson.
Niðurdýfingarskírn. Unglinga-
kórinn undir stjórn Kim Fitzger-
ald syngur. Barnagaesla og
barnasamkoma á sama tíma.
Állir hjartanlega velkomnir.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Söfnuðurinn Elím
Grettisgötu 62
Kristilegar samkomur:
Sunnudaga kl. 17.00.
Þriðjudaga kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Nýja
postulakirkjan
Islandi,
Ármúla 23,
108 Reykjavík.
Guðsþjónusta sunnudag kl. 11.00.
Wilfried Ceh prestur messar.
Hópur frá Bremen í heimsókn.
Verið velkomin í hús drottins.
Sðmhjálp
Almenn samkoma í Þríbúðum í
dag kl. 16.00. Fjölbreyttur söng-
ur. Samhjálparkórinn tekur lag-
ið. Vitnisburðir. Barnagæsla.
Ræðumaður Brynjólfur Ólason.
Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
KROSSÍNN
AifiVwfefeti 2 • KopmodHf
Almenn samkoma í dag kl. 16.30.
Þriðjudagur bibliulestur kl.
20.30. Laugardagur unglinga-
samkoma kl. 20.30.
auglýsingar
Kvöldmessa með altarisgöngu í
Breiðholtskirkju í kvöld kl. 20.30.
Séra Magnús Bjömsson og séra
Gísli Jónasson þjóna.
Allir hjartanlega velkomnir.
Fjallið
mannræktar-
stöð,
Krókhálsi 4,
(Harðviðar-
valshúsið),
s. 91-672722.
Einkalestrar
Breski miðillinn Connie Baker
er með einkalestra til 30.4.
Tímapantanir í síma 672722 milli
kl. 10 og 15 daglega.
Túlkur.
UTIVIST
Hallveigarstig 1 • sirni 614330
Dagsferð sun. 17. april
Kl. 10.30. Gamla þjóðleiðin yfir
Hellisheiði. Gengið verður frá
Kambabrún að Kolviðarhól.
Skfðagönguferð frá Húsafelli
um Kaldadal að Þingvöllum
21.-24. aprfl
Gist í skála og tjöldum, ferð fyr-
ir vel þjálfað skíðagöngufólk.
Nánari upplýsingar á skrifstofu.
Dagsferð á sumardaglnn fyrsta
21. aprfl kl. 10.30.
Gengið um Esjuhlíöar.
Dagsferð sunnud. 24. aprfl
kl. 10.30 Selatangar.
Útivist.
Frá Sálarrannsókna-
félagi íslands
Breski miðillinn Joan Hughes
starfar hjá félaginu 18.-30. april.
Hún verður með einkatíma (re-
adings) og eru bókanir hafnar í
símum 18130 og 618130.
Stjómin.
VEGURINN
Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Fjölskyldusamvera kl. 11.00.
Unglingablessun, barnablessun
og brotning brauðsins. Almenn
samkoma kl. 20.00 Eiður H. Ein-
arsson prédikar.
Allir velkomnir.
Munið biblíulestur sr. Halldórs
S. Gröndal miðvikudaginnn kl.
18.00, þeir eru öllum opnir.
„Annan grundvöll getur enginn
lagt en þann, sem lagður er, sem
er Jesús Kristur."
\x—T7
KFUM
V
SÍK, KFUM/KFUK, KSH
Háaleitisbraut 58-60.
Samkoma i kvöld kl. 20.00 í
Kristniboðssalnum. Gestir frá
Kristilegum skólahreyfingum á
Norðurlöndum taka þátt í sam-
komunni. Upphafsorð hefur Ár-
sæll Aðalbergsson en hugleið-
ingar hafa þeir Leif Andersen frá
Danmörku og Stefan
Gustafsson frá Svíþjóð.
Allir eru velkomnir á samkom-
una. Kaffi á eftir.
Kristilegt
félag
heilbrigðisstétta
Fundur mánudaginn 18. april
kl. 20.00 í safnaöarheimili Laug-
ameskirkju.
Gestir kristniboðamir Skúli
Svavarsson S(K og Kjellrún
Svavarsson hjúkrunarfræðingur.
Allir velkomnir.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SIMI 682533
Sunnudagur 17. aprfi kl.
13.00.
Lýðveldisgangan 1. áfangi
Bessastaðir - Gálgahraun -
Hraunholtslækur. Lýðveldis-
gangan er skemmtileg raðganga
fyrir alla í tilefni 50 ára afmælis
lýðveldisins í 8 áföngum frá
Bessastöðum til Þingvalla. For-
seti fslands mun setja gönguna
af stað á Bessastöðum, en
fyrsta áfanganum lýkur við
brúna á Hraunsholtslæk í
Garðabæ.
Fjölskyldufólk á kost é styttri og
auðveldari göngumöguleika í öll-
um áföngunum.
Allir fá þátttökuseðil sem gildir
sem happdrættismiði. Ferðir í
verölaun. Brottför með rútu frá
BSÍ, austanmegin kl. 13.00.
(Stansað m.a. við Ferðafélags-
húsið Mörkinni 6, biðskýlið
Bitabæ Garðabæ og Engidal
v/Hafnarfjörð.) Verð aðeins kr.
400 og frítt f. börn 15 ára og
yngri. Sjá grein um gönguna og
kort í ferðablaði Mbl. föstudag.
Þátttakendur geta einnig komið
á eigin farartækjum að Bessa-
stöðum fyrir kl. 13.30. Verið með
í öllum átta ferðunum. Lýðveldis-
göi;gunni lýkur sunnudaginn 26.
júni og helgina þar á eftir (1.-3.
júlí) verður fjölskylduhelgi f Þórs-
mörk sem þátttakendur og aðrir
eru hvattir til að mæta á. Muniö
ferðina út á Reykjanes sumar-
daginn fyrsta 21. aprfl kl. 13.00
(65 ár frá fyrstu ferð F.I.).
SkíAaganga sun. 17. apnl
kl. 10.30.
Bláfjöll-Kleifarvatn
Skíöagöngurnar halda áfram af
fullum krafti meðan snjóalög
leyfa. Brottför kl. 10.30 frá BSI,
austanmegin (og Mörkinni 6).
Næstu helgarferðir: Fimmvörðu-
háls-Eyjafjallajökull 21.-24.
apríl og sumri heilsaö í Þórs-
mörk 22.-24. aprfl.
Snæfellsjökull 22.-23. apríl, ný
ferð.
Ferðafélag íslands.
Kl. 11.00: Helgunarsamkoma
og sunnudagaskóli.
Kl. 20.00: Hjálpræðissamkoma.
Kapteinn Miriam Óskarsdóttir
stjórnar og talar á samkomum
dagsins.
Bókamarkaður
Trúarlegar bækur í versluninni
Jötu dagana 5. aprfl-3. maí.
Úrval bóka á hreint ótrúlegu
verði, einnig er boðið upp á not-
aöar bækur á GJAFVERÐI.
Hljómplata fylgir hverri bók sem
keypt er.
Gerðu þér ferð, það borgar sig.
Opið virka daga frá kl. 9.00-18.00.
Laugardaga frá 10.00-13.00.
Jata, fyrir þig.
dHfllini ir
l/grslunin ÍKTT/j
Hátúni 2, JPr I
sími 25155.