Morgunblaðið - 17.04.1994, Side 42

Morgunblaðið - 17.04.1994, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1994 Kappróður fór fyrst fram á Islandi sem heimild er til um 1. desember 1870 á Akureyrarpolli. Þar var keppt á tveimur sexæringum og tveimur fjögramannaförum (ferær- ingum). Nú er til einn feræringur í Reykjavík og annar kemur frá Noregi í júní. Aðstæður fyrir kappróður á íslandi hafa ekki verið nægilega góðar í gegnum árin. Ræðarar í Reykjavík hafa alla tíð haft aðstöðu í Nauthóls- vík. Ármenninga og KR-ingar höfðu aðstöðu þar þegar þeir byrjuðu að æfa róður 1920, en þá fyrst var keppt um „Kappróðrarhorn íslands". I akka varð öllum róðrar- Iáhöldum niður í Nauthóls- I víkinni 1940 þar sem breski herinn tók bátahús til umráða og lokaði Fossvognum og Skerjarfirði fyrir umferð smábáta. Kappróðrabátar Ármanns og KR voru settir í geymlu í bifreiðaverkstæði Egils Vilhjálmssonar. Posillipo heitir róðrafélagið, sem ítalski þjálfarinn Leone Tinganelli, keppti með í Napolí, eða Circols Nautics Posillipo. Tinganelli er geysi- lega áhægður með áhugann og hvað íslensku strákarnir leggja hart að sér til að ná árangri. Róðrarfélag Reykjavíkur var stofnað 1950 að frum- kvæði Ludvigs Ziemsens, sem hafði fram að því ver- ið leiðbeinandi hjá róðrardeild Glímu- félags Ármanns. 1951 hófst keppni aftur í kappróðri eftir seinni heims- styrjöldina, en síðást var keppt um Kappróðrahorn íslands 1960. Oslitin sigurganga kappróðr- arliðs Ármanns var á ár- unum 1953-1955, en síð- asta árið unnu Ármann- ingar það afrek að vinna þrjá bikara til eignar — meistarabikarinn, Reykja- víkurbikarinn og Ármannsbikarinn. Fyrst var keppt um Meistarabikarinn 1952. Danmörk var fyrsta landið sem ræðarar frá íslandi heimsóttu til að keppa. Það var 1937. Þess má geta til gamans að fyrstu kappróðrar- bátar Ármanns komu frá Danmörku 1921 — það voru svonefndir mennta- skólabátar. Upphaf róðrarkeppninnar má rekja langt aftur í tím- ann, en á 14. öld var farið að keppa reglulega í Fen- eyjum — bæði í karla- og kvenna- flokki. Nútímakappróður á rætur sín- ar að rekja til 1715, en þá kepptu ferjumenn reglulega á Thames-ánni í Englandi. Róður hefur alltaf verið Ólympíuíþrótt, en það byrj- aði ekki vel, því að fella varð róðrarkeppnina á Ólympíuleikunum í Aþenu 1896 nið- ur. Ástæðan fyrir því var að það var svo mikill sjógangur. Það var svo á ÓL 1900 í París sem fyrsta Ól-gullið í róðri vannst. Hin sigursæla sveit ís- lands í Noregi. Friðrik Öm Guðmundsson, Guðmund- ur Gísli Ingólfsson, Leone Tinganelli, þjálfari, Rób- ert Öm Amarson, Geir Steinþórsson, Ármann Jónsson og stýrimaðurinn Jón Einar Sverrisson. Eins og sést á myndunum vom aðstæður til æfinga frá- bærar. Á ÖLDUM áður héldu víkingar fleyum sínum frá Noregi, til að gera strandhögg víðs vegar um Evrópu. Það er ekki langt síðan sex ungir víkingar frá íslandi héldu til Noregs, þar sem þeir sýndu stórhug og baráttuskap — og skutu jafnöidrum sínum ref fyrir rass. Þeirra vopn var róðrarbátur. Hér er um að ræða drengi frá Reykjavík sem fóru til að etja kapp við jafnaldra sína í Nor- egi og fóru með sigur af hólmi. Þótt Islendingar hafi verið og séu miklir sjósóknarar, hefur róðraríþróttin aldrei náð teljandi vinsældum hér á landi. Mestu er þar um að kenna aðstöðu- leysi, en einnig spilar veðurfar þar inní — keppni í róðri feryfir- leitt fram á kyrru vatni, stilltum sjó eða þá á tilbúnum róðrar- brautum. Á árum áður var keppt um Kappróðrarhorn íslands, eða allt fram til ársins 1960, en þá tók aðeins eitt félag þátt í róðramóti íslands á Akureyri — lið heimamanna. Hljótt hefur farið um róðraríþróitina sfðan, en nú hafa tveir menn tekið hönd- um saman til að endurvekja íþróttina og er sjósókn hafin. Þetta eru þeir Jón Magnús Jónsson, sem kynntist íþróttinni í háskóla í Bandaríkjunum, og ítalinn LeoneTinganelli, margfaldur Ítalíu- meistari. Sigmundur Ó. Stéinarsson skrífar Það var fyrir fjórum árum að Tinganelli fékk hingað ferær- ing með stýrimanni frá Italíu. „It- alska róðrarsam- bandið lét okkur fá bátinn á vægu verði, eða um þúsund doll- ara (72.500 kr.), en svona bátar kosta eina milljón og þtjúhundruð þúsund krónur,“ sagði Leone Tinganelli, sem er búsettur hér á landi — á íslenska eiginkonu og tvö börn. Tinganelli er frá Nap- olí og svo skemmtilega vill til að hann keppti á bátnum sem kom hingað til lands á heimsmeistara- mótinu á Ítalíu 1982, þar sem sveit hans hafnaði í fjórða sæti. Báturinn geymir því skemmtilegar minningar fyrir hann. Jón Magnús sagði að það hafi verið gerðar tilraunir á hverjum vetri undanfarin ár til að koma íþróttinni af stað. „Tinganelli einn einu sinni, við saman einu sinni, ég einn einu sinni og núna erum við saman á ný. Það hefur aldrei geng- ið eins vel og núna. Það hjálpaði okkur mikið að við fengum tvær róðrarvélar gefins frá Italíu," sagði Jón Magnús. Auglýst eftir róðrarmönnum Þeir félagar auglýstu í skólum eftir strákum til að æfa róður. „Ástæðan fyrir því að við auglýsum í skólum er að við sáum að það gæti orðið uppgangur í íþróttinni við að hafa róður sem framhalds- skólaíþrótt — skólarnir gætu æft og keppt sín á milli um allt land. Norska róðrarsambandið gaf okkur annan bát síðastliðið haust, en heppnin var ekki með okkur því að báturinn brotnaði í spón á leiðinni í skip í Noregi. Það var þá sem við urðum að kippa að okkur höndun- um, því að það var ekki hægt að gera stórt átak með aðeins einn bát. Við vorum búnir að fá góða svörun frá fjórum skólum, en fimm strákar úr Kvennaskólanum og einn úr Menntaskólanum í Reykjavík mættu strax til æfinga. Við ákváð- um þá að einbeita okkur að þjálfa þá upp,“ sagði Jón Magnús. - Höfðu strákarnir nokkra hug- mynd í hvað þeir væru að fara? „Nei, það höfðu þeir ekki. Aðeins séð kappróður á milli skólanna í Oxford og Cambridge í Englandi í sjónvarpi. Þetta voru strákar sem vildu prófa eitthvað nýtt. Við vorum heppnir að þessir strákar voru ekki búnir að festa sig í öðrum íþrótt- um,“ sagði Tinganelli. Til Noregs í æfingabúðir Jón Magnús sagði að til að skerpa áhuga strákanna og gefa þeim tækifæri til að kynnast róðraríþrótt- inni við bestu ástæður, hafi verið ákveðið að fara til Svíþjóðar í vet- ur. „Það breyttist og við fórum í æfingabúðir til Posgrun í Noregi, þar sem Norðmenn voru með æf- ingabúðir fyrir sitt unglingalandsl- ið.“ „Áhuginn fyrir ferðinni til Nor- egs var mikill hjá strákunum, en þeir lögðu hart að sér og æfðu á hverjum degi,“ sagði Tinganelli, en íslensku strákarnir komu sáu og sigruðu — komu á undan í mark eftir 1.750 m róður. „Fjölmargir áhorfendur voru og reiknaði enginn með sigri okkar. Þessi sigur ver mikil lyftistöng fyrir strákana, sem þroskuðust mikið við að kynnast Mæta á æfingar klukkan sex á morgnana fimm daga vikunnar, en æfa ellefu sinnum í viku fyrir opið Norðurlandamót í Noregi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.