Morgunblaðið - 18.05.1994, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Norska strandgæslan við Svalbarða
Þrír íslenskir
togarar færð-
ir í Smuguna
ÞRÍR íslenskir togarar, Skúmur GK, Bliki EA og Drangey SK,
ásamt þremur færeyskum togurum, eru nú að veiðum í Smugunni.
Fyrir seinustu helgi sigldu skipin út af Smugusvæðinu í vestur í átt
að hafsvæðinu umhverfís Svalbarða í leit að vænlegri miðum. Skip
norsku strandgæslunnar kom þá strax á vettvang áður en þeim
tókst að kasta veiðarfærum og fylgdi togurunum til baka í Smug-
una, að sögn Eiríks Mikaelssonar, útgerðarmanns Skúms.
Eiríkur sagði að strandgæslan
virtist eiga auðvelt með að halda
uppi eftirliti þegar svona fá skip
væru á svæðinu. Varðskipin fylgdu
togurunum eftir þegar þeir væru á
siglingu út úr Smugunni en létu
skipin alveg afskiptalaus á meðan
þau stunduðu veiðar í Smugunni
og áreittu þau ekki á neinn hátt.
Að sögn Eiríks hefur ekki sést til
skipa rússnesku strandgæslunnar á
svæðinu en fregnir bárust af því
fyrir nokkru að Rússar hygðust
taka upp eftirlit í Smugunni í maí.
Fyrirmæli gæslunnar mild
Eiríkur sagðist ekki hafa neina
trú á að Norðmenn ætluðu að skipta
sér af veiðum í Smugunni og sam-
skiptin við þá væru góð. „Þeir voru
að selja mér olíu áðan, sem ég kaupi
af tankskipi frá Tromsö. Það virð-
ast því vera góð samskipti við þessa
menn og ég held að fyrirmæli gæsl-
unnar séu mjög mild.“
Eiríkur sagði veiði I Smugunni
nokkuð trega en afraksturinn væri
svipaður og ef skipinu hefði verið
haldið við veiðar á miðunum við
ísland. Skúmur kemur væntanlega
ekki heim fyrr en á sjómannadag
en Eiríkur kvaðst eiga von á að
nokkuð mörg skip myndu stefna á
veiðar í Smugunni eftir sjómanna-
daginn.
■ Deilan harðnar/miðopna
Fjarskiptabún-
aður í smábátum
Skoðun-
argjald
lækkar
SKOÐUN á fjarskiptabúnaði í
smábátum undir 10 tonnum
verður hluti af almennri skoðun
skipanna og framkvæmd af
Siglingamálastofnun en ekki
fjarskiptaeftirlitinu. Jafnframt
verður gjald fyrir skoðunina
lækkað verulega.
Mjög mikil hækkun, hátt í
700%, varð á gjaldi vegna
skoðunar á Fjarskiptabúnaði
um borð í skipum þegar Pjar-
skiptaeftirlitið varð sjálfstæð
stofnun. Hækkaði gjaldið úr
um 1.000 kr. í 6.500 kr. Sam-
gönguráðherra hefur nú ákveð-
ið að skoðun á fjarskiptabúnaði
smábáta, sem er mjög einföld,
verði færð yfír til Siglinga-
málastofnunar og framkvæmd
um leið og skoðun er gerð.
Morgunblaðið/CTK - Jaroslav Hejzlar
Boðið til sýningar
SÝNING á verkum Errós var opnuð í Prag í gærdag að viðstöddum forsetum Tékklands og íslands,
Václav Havel og Vigdísi Finnbogadóttur. Var létt yfir sýningargestum og brugðu forsetarnir meðal
annars á spjall við listamanninn Erró. Í bakgrunni er Gunnar Kvaran forstöðumaður Kjarvalsstaða.
Sýning á verkum
Errós opnuð í Prag
Prag. Morgunblaðið.
VIGDÍS Finnbogadóttir forseti
íslands og Václav Havel forseti
Tékklands voru viðstödd opnun
sýningar á verkum Errós í sýning-
arsal háskólans í Prag í gær. Sýn-
ingin er haldin í boði borgaryfir-
valda og eru sum verkanna í eigu
Reykjavíkurborgar en önnur úr
safni listamannsins.
í ávarpi við opnunina sagði
Hulda Valtýsdóttir, formaður
menningarmálanefndar Reykja-
víkur, það sérstaklega ánægjulegt
fyrir borgaryfirvöld að fá tæki-
færi til samskipta við Prag, sem
setið hafi í öndvegi meðal menn-
ingarborga Evrópu um aldaraðir
og geymi mikla sögu um stórkost-
leg afrek mannsandans. „I slíkum
arfi eru fólgnar þær sterku stoðir
sem þjóðum eru hvað mikilvægast-
ar á þeim umbrotatímum sem nú
ríkja víða um heim,“ sagði Hulda.
Hún sagði íslenska listamenn
sækja í ríkara mæli en fyrr út í
hinn stóra heim til að kynnast
straumum og stefnum á sviði lista
og menningar og eiga náin sam-
skipti við aðrar þjóðir. „íslenski
listamaðurinn Erró er í þeirra
hópi,“ sagði hún. „Hann hefur til-
einkað sér yfirsýn heimsborgar-
ans og honum hefur hlotnast al-
þjóðleg viðurkenning fyrir verk
sín. Það er mikils um vert fyrir
fámenna þjóð að eignast slíka
fulltrúa á vettvangi skapandi afla
mannsandans."
Spáð minnkandi atvinnuleysi víðast hvar á landinu í maí
Búist
ATVINNULEYSISDAGAR í apríl
jafngilda því að 7.061 maður hafi
að meðaltali verið á atvinnuleysis-
skrá í mánuðinum, og jafngildir
það 5,6% af áætluðum mannafla
á vinnumarkaði samkvæmt spá
Þjóðhagsstofnunar. Samkvæmt
yfirliti vinnumálaskrifstofu fé-
lagsmálaráðuneytisins um at-
vinnuástandið í apríl hefur at-
vinnulausum fækkað í heild að
meðaltali um 10,4% frá marsmán-
uði, og minnkar atvinnuleysið
hlutfallslega mest á Suðurlandi,
Austurlandi, Vesturlandi og höf-
uðborgarsvæðinu, en þar fækkar
atvinnulausum mest að meðaltali.
Búist er við að atvinnuleysi
minnki eitthvað í maímánuði við-
ast hvar á landinu og það geti
orðið á bilinu 4,7% til 4,9% í mán-
uðinum.
Atvinnuleysið hefur minnkað
úr 6,3% í 5,6% frá mars, en það
var 4,4% í apríl í fyrra. Atvinnu-
leysið á landsbyggðinni minnkar
nú i heild um 8,7% milli mánaða,
en hefur aukist um 7% frá apríl
í fyrra. Atvinnuleysið er nú 5,7%
af mannafla á landsbyggðinni, en
í mars var það 6,3% og í apríl í
fyrra var það 5,3%. Atvinnuleysið
á höfuðborgarsvæðinu minnkar
um 11,5% milli mánaða, en hefur
hins vegar aukist um 35% frá
apríl 1993. Það er nú 5,5% af
mannafla en var 6,3% í mars og
4,1% í apríl í fyrra. Að meðaltali
eni um 58% atvinnulausra á höf-
uðborgarsvæðinu og 42% á lands-
byggðinni. Á Norðurlandi eystra
eru 13% atvinnulausra að meðal-
tali, 7% á Suðurlandi, 6% á Vestur-
landi og á Suðurnesjum, 4% á
Austurlandi og á Norðurlandi
vestra og 3% eru á Vestfjörðum.
í yfirliti vinnumálaskrifstofu
félagsmálaráðuneytisins kemur
fram að breytingar á fjölda at-
vinnulausra í lok aprílmánaðar
bendi til að verulega dragi úr
atvinnuleysi í maí, enda megi gera
ráð fyrir 10% árstíðarsveiflu.
Ætti atvinnuástandið að batna
nokkuð á höfuðborgarsvæðinu og
Suðurlandi og víða annars staðar
á landsbyggðinni, að minnsta
kosti þar sem menn eru minna
háðir sjávarfangi og kvótastaðan
er viðunandi.
Tollaf-
greiddu
sjö hesta
TVEIMUR lögregluþjónum á
Hornafirði, sem sjá um tollaf-
greiðslu þegar þannig ber und-
ir, var fengið það nýstárlega
verkefni í gær að tollafgreiða
sjö hesta.
Lögreglumennina tvo, sem
samanlagt hafa 26 ára starfs-
reynslu að baki, rekur ekki
minni til þess að hafa áður
tollafgreitt hesta til útflutn-
ings. Hestarnir sjö, sem nú eru
á leið til Svíþjóðar, eru geymd-
ir í opnum gámum sem búið
er að hólfa niður, og væsir ekki
um þá að sögn lögreglunnar.
Eru ævintýrahestamir um borð
í Ms Viking frá Færeyjum, sem
annast áætlunarsiglingar fyrir
Samskip. Þeir eru þó ekki einir
um borð því auk áhafnarinnar
er Ms Viking með talsvert
magn af gámafiski til útflutn-
ings um borð.
Framboðs-
fundur á
Hamraborg-
arrásinni
ÍBÚAR í Hamraborg í Kópa-
vogi fengu frambjóðendur til
bæjarstjómar í heimsókn í
gærkvöldi. Frambjóðendurnir
þurftu ekki að ganga fyrir
hvers manns dyr, heldur guð-
uðu þeir á sjónvarpsglugga íbú-
anna með hjálp sjónvarpsstöðv-
arinnar Hamars í Hamraborg.
Sjónvarpsstöðin Hamar er
einkastöð fyrir húsasamstæð-
una. Þessi rás nær til um 600
íbúa. Allir þessir aðilar eru
tengdir sjónvarpskerfi sem
dreifir efni innlendra og er-
lendra sjónvarpsstöðva.
íbúar Hamraborgar leggja
yfirleitt sjálfír til dagskrárefni
sjónvarps Hamars. Þar hafa
verið sýndir leikþættir, upplest-
ur, tónlistaratriði og fleira. Auk
þess er rásin notuð fyrir hús-
fundi. Þá reifa menn málin við
sjónvarpsvélarnar og síðan
hringja íbúarnir og tjá afstöðu
sína.