Morgunblaðið - 18.05.1994, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 18.05.1994, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1994 49 ÍÞRÓTTIR KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI MEISTARALIÐA Hvort er sterkara vopn í úrslitaleiknum í Aþenu? Sókn eða vöm? JOHAN Cruyff, knattspyrnutrúboðinn þekkti frá Barcelona, og hinir sókndjörfu lærisveinar hans verða heldur betur í sviðsljósinu í Aþenu ídag — en þá fer fram úrslitaleikur Evrópukeppni meistaraliða. Leikurtveggja ólíkra liða; leikur sóknarknattspyrnunnar gegn varnarknattspyrnunni. Mót- herji Barcelona verður varnarvél AC Milan. Sókn er besta vörnin — er boðorð Cruyff. Er sóknin sterkara vopn en vörn- in? Svar við þeirri spurningu fæst í Aþenu. Cruyff fyrirskipar sínum leik- mönnum að fara inná völlinn til að skemmta áhorfendum með sóknaraðgerðum, en Fabio Cap- ello, þjálfari AC Milan, leggur áherslu á vamarleik — að sjö manna varnarlína sé á vallarhelm- ingi liðsins. Árangur liðanna hefur verið svipaður hvað verðlaun varð- ar síðustu ár. Barcelona hefur orð- ið meistari á Spáni fjögur sl. ár, AC Milan Ítalíumeistari þrjú sl. ár. Barcelona hefur verið á mikilli sigurbraut — liðið fékk 28 stig í síðustu fimmtán leikjum sínum í Lykilmenn AC Milan í leikbanni Vamarmennirnir sterku hjá AC Milan Franco Baresi og Alessandro Costacurta verða ekki með I úrslitaleiknum gegn Barcel- ona þar sem þeir taka út leik- bann. Fabio Capello, þjálfari ít- ölsku meistaranna, mun líklega setja Filippo Gaili inn I stöðu Costacurta og færa vinstri bak- vörðinn Paoio Maldini í stöðu miðvarðar eins og Berasi lekur, en Christian Panucci komi inn á vinstri kantinn fyrir Maldini. Meiðsli hafa hijáð leikmenn AC Milan og er Stefano Eranio, miðvallarleikmaður, einn þeirra. Hann leikur ekki með í kvöld. Marco van Basten, sem hefur ekki leikið einn leik þetta keppnis- tímabil, æfði með liðinu í Aþenu í gær. Hann lék síðast með AC Milan í úrslitaleik Evrópukeppn- innar gegn Marseille í fyrra. Hann vonast til að vera orðinn góður af ökklameið8lunum næsta keppnistímabil. Capello þjálfari sagðist ekki reikna með að setja „yfírfrakka" á Brasilíumanninn Romario eða Búlgarann Hristo Stoíchkov. „Þeir eru báðir framlínumenn f heimsklassa og mjög hættulegir. Það má ekki gefa þeim eitt ein- asta tækifæri á að skora. Við munum leika öflugan vamarleik, án þess að taka þá úr umferð — það er okkar leikstíll," sagði Cap- ello. „Við leikum ekki upp á að stöðva einstaka leikmenn Barcel- ona, við komum til með að hugsa fyrst og fremst um að skipu- leggja okkar leik.“ Capello hafði aðeins áhyggjur af því að Króatinn Zvonimir Bo- ban yrði ekki orðinn góður af meiðslum sem hafa hijáð hann. Boban æfði með liðinu í gær og sagðist Capello gera sér vonir um að hann verði með f kvöld. Ef Boban getur ekki leikið tekur Daninn Brian Laudrup stöðu hans á miðjunni. Allir leikmenn Barcelona eru heilir. Eina vandamálið sem Cru- yff á við að glíma er spumingin um það hvom hami eigi að setja frekar út úr liðinu Michael Laudr- up eða Ronald Koeman. Liðin mega ekki nota nema þijá útlend- inga, en þeir eru fjórir hjá Barcel- ona og má telja víst að Romario og Stoichkov verði í byijunarlið- inu. 1. deildarkeppninni. Þá hafa leik- menn Barcélona skorað 45 mörk í þessum leikjum, en leikmenn AC Milan skoruðu 36 mörk í 34 leikjum í 1. deildarkeppninni á Ítalíu. Barcelona teflir fram tveimur af sókndjörfustu leikmönnum heims — Brasilíumanninum Rom- ario, sem skoraði 30 mörk á Spáni, eða sex mörkum faerri en allir leik- menn AC Milan á Ítalíu, og Búlg- aranum Hristo Stoichkov, sem skoraði 16 mörk. „Eg er viss um sigur okkar,“ sagði Romario. Sóknarkraftur Barcelona nær aftur í öftustu varnarlínu, þar sem Hollendingurinn Ronald Koeman ræður ríkjum, en hann hefur skor- að flest mörk Barcelona í Evrópu- keppninni, eða átta. Nær öll hefur hann skorað úr aukaspyrnum fyrir utan vítateig, en það var einmitt þannig mark sem hann skoraði er hann tryggði Barcelona Evrópu- meistaratitlinn 1992 — 1:0 gegn Sampdoría á Wembley. AC Milan tapaði úrslitaleik, 0:1, fyrir Marseille í Munchen í fyrra og er franska félagið það eina sem hefur lagt AC Milan að velli í Evrópukeppninni sl. sex ár sem AC Milan hefur leikið í Evrópu- keppni meistaraliða. Þegar AC Milan varð sigurveg- ari í Evrópukeppni meistaraliða 1989 og 1990 lék það undir stjóm núverandi landsliðsþjálfara Ítalíu, Arrigo Sacchi. Þá lék liðið svipaða knattspymu og Barcelona undir stjórn Cruyffs. Sacchi fyrirskipaði sóknarleik og aðalmenn hans í sóknaraðgerðunum vom Hollend- •ingarnir fljúgandi Marco Van Basten, Ruud Gullit og Frank Rijkaard. Capello hefur aðrar hug- mundir um leikaðferðir — hann heldur upp á varnarleik. Það er þess vegna sem hann hefur ekki haft not fyrir markaskorarann mikla Jean-Pierre Papin. Vömin er svo ríkur þáttur í leik liðsins, að leikmenn þurftu ekki að hirða knöttinn nema fímmtán sinnum úr netinu hjá sér í 34 deildarleikjum á Ítalíu og þeir hafa ekki þurft að ná í knöttinn nema fjórum sinnum úr netinu hjá sér í síðasta 21 Evrópuleik. Þeir leikmenn sem koma til með að leika í Aþenu, eru: Barcelona: Andoni Zubizarreta, Albert Ferrer, Ronald Koeman, Miguel Angel Nadal, Sergi, Ivan, Josep Guardiola, Jose Maria Ba- kero, Guillermo Amor, Romario, Hristo Stoichkov. AC Milan: Sebastiano Rossi, Mauro Tassotti, Filippo Galli, Pa- olo Maldini, Christian Panucci, Demetrio Albertini, Marcel Desa- illy, Zvonimir Boban (eða Brian Laudrup), Roberto Donadoni, Dej- an Savicevic, Daniele Massaro. Sigur fyrir knatt- spymuna ef Barcel- ona vinnur - segir Johan Cruyff- að yrði mikill sigur fyrir knattspyrnuna ef Bárcel- ona næði að vinna Evrópumeist- aratitilinn, segir Johan Cmyff, þjálfari Barcelona. Cmyff sagði í gær að það væri afar mikil- vægt fyrir knattspyrnuna ef lið sem leikur sóknarknattspymu næði að sigra varnarlið. Áhorf- endur kunna að meta lið sem leikur sóknarleik og skorar mörk. „Tæknin í knattspyrnunn^ r hefur verið á undanhaldi síðustu ár og við þurfum að vera á varð- bergi og breyta þeirri þróun. Ef við getum sýnt fram á það að léttleikandi sóknarlið geti unnið kraftalið er það gott fyrir knattspyrnuna," sagði Cruyff. Cruyff var einn besti knatt- spyrimmaður heims er hann lék með Ajax og hollenska landslið- inu upp úr 1970. Hann hefur lengi verið talsmaður sóknar- knattspyrnunnar. Hann hefur tekið áhættu og oft stillt upp aðeins þremur varnarmönnum — unnið út frá þeirri megin reglu að ef lið hans fær á sig fjögur mörk þurfi það bara að skorg . fimm i staðinn. Leikaðferð hans hefur skilað góðum árangri hjá Barcelona. Liðið hefur verið meistari síðustu ijögur árin und- ir stjórn hans og leikið fjórum sinnum til úrslita í Evrópu- keppninni á síðustu sex áram. Stoichkov, Barcelona. Leid liðanna Barcelona 1. umferð: Dynamo Kiev — Barcelona..3:1 Barcelona — Dynamo Kiev..4:1 2. umferð: Barcelona - Austria Vín. Austria Vín - Barcelona..1:2 ÚrslitariðiII: Galatasaray — Barcelona..0:0 Barcelona — Mónakó.......2:0 Sp. Moskva — Barcelona....2:2 Barcelona — Sp. Moskva....5:1 Barcelona — Galatasaray..3:0 Mónakó — Barcelona......0:1 Undanúrslit: Barcelona — Porto........3:0 AC Milan 1. umferð: FC Aarau — AC Milan......0:1 AC Milan — FC Aarau......0:0 2. umferð: Kaupmannah. — AC Milan....0:6 AC Milan — Kaupmannah.....1:0 Úrslitariðill: Anderlecht — AC Milan....0:0 AC Milan — Porto.........3:0 AC Milan — Werder Bremen ..2:1 Werder Bremen — AC Milan..l:l AC Milan — Anderlecht....0:0 Porto — AC Milan.........0:0 Undanúrslit: AC Milan — Mónakó.........3:0 Savlcevlc, AC Milan. TENNIS Tennishúsið nánast tilbúið Þrír gervigrasvellir teknir í notkun í sumar Iikill uppgangur er í tennisíþróttinni í Kópavogi og þar hefur verið reist fyrsta tennishúsið á Islandi auk þess sem ráð- gert er að vígja þijá útivelli við húsið í sumar. Gunnar Birgisson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, tók skóflustungu að nýju völlunum fyrir skömmu, en Kópavogsbær hefur ákveð- ið að greiða Tennisfélagi Kópavogs 20 milljón- ir króna á næstu fímm ámm vegna fram- kvæmdanna. Um er að ræða þijá afgirta gervigrasvelli, sem verða með flóðljósum. Að sögn Ægis Breiðfjörðs hjá Tennisfélagi Kópa- vogs breytir þessi aðstaða öllu fyrir áhuga- fólk um íþróttina, því aðstaða verður fyrir hendi til að æfa árið um kring. Styrkur frá Alþjóðasambandinu Þróunarsjóður Alþjóða tennissambandsins færði Tennissambandi íslands 20.000 dollara styrk (um 1,4 millj. kr.) til uppbyggingar fyrsta tennishúss á íslandi og var fjárhæðin afhent í Kópavogi á dögunum, en húsið er nánast tilbúið. TennlshúslA í Kópavogi. Fremst til vinstri sér í Kópavogsvöll. Morgunblaðið/RAX

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.