Morgunblaðið - 18.05.1994, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 18.05.1994, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1994 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ HANDKNATTLEIKUR 18 manna landsliðshópur tekur þátt í undirbúningi fyrir HM 1995 KNATTSPYRNA FOLK ■ MARK Hughes, framhetji Manchester United, fékk 500.000 pund í vasann — 54 milljónir króna — eftir vináttuleik gegn Glasgow Celtic á Old Traff- Frá Bob ord á mánudags- Hennessy kvöld. Um var að / Englandi ræða ágóðaleik fyrir kappann, eins og félög veita mönnum gjarna til að þakka þeim dyggja þjónustu. ■ ÁHORFENDUR á ofannefnd- um leik voru 42.000, þar af 10.000 sem fylgdu Celtic frá Glasgow. Upphæðin er sú mesta sem leikmað- ur á Bretlandi hefur fengið í að- Sangseyri á ágóðaleik. I HUGHES, sem er þrítugur, og hefur gert 151 mark í 404 leikjum, er að ganga frá nýjum samningi við United og mun fá 7.000 pund í vikulaun — 756.000 kr. ■ PETER Schmeichel, danski landsliðsmarkvörðurinn hjá Manc- hester United, hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við fé- lagið, sem tryggir honum 8.000 pund í vikulaun á samningstíman- um; um 864 þúsund kr. á viku — tæpar 3,5 milljónir á mánuði. ■ BRYAN Robson, fyrrum fyrir- liði enska landsliðsins og Manc- hester United, sem orðinn er 37 ára, lék kveðjuleik sinn með United í fyrrakvöld — í áðurnefndum ágóðaleik Marks Hughes gegn Celtic. Robson gerist í dag fram- kvæmdastjóri 1. deildarliðs Midd- lesbrough. Hann gerir þriggja ára samning við félagið og verður jafn- framt leikmaður fyrsta árið. Rob- son fær samtals um eina milljón punda í laun á þremur árum — um 08 milljónir króna, og hann er þar með einn launahæsti „stjóri“ á Eng- landi. ■ GRAHAM Taylor keypti í gær fyrsta leikmanninn til Wolves, síð- an hann tók við stjóminni. Hann borgaði 1,3 milljónir punda — um 140 millj. kr. — fyrir útheijann •Tony Daley frá Aston Villa. Það var einmitt Taylor, þá stjóri Villa, sem gaf Daley fyrst tækifæri í aðalliði Villa fyrir nokkrum árum. _JVEIR nýliðar eru komnir í landsliðshópinn í handknattleik, sem erað hefja undirbúning fyrir heimsmeistarakeppnina á íslandi 1995. Það eru þeir Bjarni Frostason, markvörður úr Haukum og Róbert Sighvatsson, línumaður úr Aftureldingu. Átján leikmenn eru í hópi landsliðsþjálfarans Þorbergs Aðalsteinssonar. Morgunblaðið/Sverrir Nýliðarnir FYRSTA æfing landsliðshópsins fyrir Portúgalsferðina var í gærkvöldi og þar voru nýliðarnir Róbert Sighvats- son til vinstri og Bjami Frostason — í fyrsta sinn á æfingu með landsliðinu. KR:STÚLKUR sigruðu íþriðju Meistarakeppni KSÍ með því að vinna bikarmeistara ÍA 3:1 á Ásvöllum í Hafnarfirði í gærkvöldi. íslands- meistararnir lentu marki undir, en voru marki yfir f hálfleik og bættu einu við eftir hlé. KR-ingar spiluðu mun betur og höfðu meiri yfir- ferð, en þvert gegn gangi leiksins komst Laufey Sigurðardóttir í opið færi fyrir miðju marki og_skoraði ■■HHI ein og óvölduð á 20. mínútu. íslands- Stefán meistararnir skiptu um gír og jöfnuðu Stefánsson sjö mínútum síðar með marki Ásthildar skrifar Helgadóttur. Hrafnhildur Gunnlaugs- dóttir bætti um betur mínútu fyrir hlé eftir stórkostlegan samleik KR-stúlkna upp allan völl- inn frá eigin vítateig. Skagastúlkur voru heppnar að fá ekki fleiri mörk á sig fyrir hlé, en þær komust meira inn í leikinn í byrjun seinni hálfleiks. Þær gerðu samt út um möguleika sína með sjálfsmarki um miðjan hálfleikinn._ Helena Ólafsdóttir, fyrirliði KR, sagði lið sitt í mjög góðri æfingu, „en við spiluðum ekki eins og við gerum best og eigum nóg inni.“ Ásthildur var mjög öflug á miðjunni hjá KR, en Laufey var mest áberandi á miðj- unni hjá Skagastúlkum. Þetta var fyrsti sigur KR í keppninni, en Helena, Guðlaug Jónsdóttir og Sigurlín Jónsdóttir fögnuðu sigri í annað sinn — áður með ÍA. Landsliðshópurinn heldur í fjög- urra daga æfingabúður til Blönduóss á morgun, en síðan fer landsliðið til Portúgals á miðviku- daginn kemur og leikur þar þijá landsleiki gegn Portúgölum í Porto. Þaðan mun liðið síðan halda í æf- ingabúðir í Algarve 31. maí og heim verður komið 8. júní. Landsliðshópurinn er skipaður þessum leikmönnum: Markverðir: Bergsveinn Berg- •sveinsson, FH, Guðmundur Hrafn- kelsson, Val og Bjarni Frostason, Haukum. Aðrir leikmenn: Bjarki Sigurðs- son, Víkingi, Dagur Sigurðsson, Val, Einar Gunnar Sigurðsson, Sel- fossi, Geir Sveinsson, Alsíra, Gunn- ar Beinteinsson, FH, Gústaf Bjamason, Selfossi, Héðinn Gilsson, Dússeldorf, Jón Kristjánsson, Val, Tveir sigurleikir Svía í Porto Portúgalir eru nú að undirbúa landslið sitt fyrir úrslitakeppni Evrópu- keppni landsliða, sem verður í Portúgal í júní. Þeir léku tvo lands- leiki gegn Svíum í Porto um sl. helgi og veittu fyrrum heimsmeistur- um harða keppni. Svíar unnu fyrri leikinn 27:25 og seinni leikinn 30:29. Magnús Wislander skoraði sigurmark Svía úr vítakasti þegar leiktími var úti. Morgunblaðið/Sverrir Annar bikar í höfn HELENA Ólafsdóttir, fyrirliði KR, með bikarinn í Meistara- keppni kvenna. Þetta er annar bikarinn, sem hún tekur við á fáum dögum, en fyrir skömmu varð KR Reykjavíkurmeist- ari. Júlíus Jónasson, Gummersbach, Konráð Olavson, Stjömunni, Ólafur Stefánsson, Val, Patrekur Jóhann- esson, Stjörnunni, Róbert Sighvats- son, Áftureldingu, Sigurður Sveins- son, Víkingi og Valdimar Grímsson, KA. Sterkt mót í Reykjavík Í byijun nóvember verður hér á landi sterkt handknattleiksmót, Reykjavík-International. Átta þjóð- ir taka þátt í mótinu og fyrir utan landslið íslands leika landslið frá Svíþjóð, Noregi, Spáni, Króatíu, Frakklandi, Ítalíu og Danmörku. KSÍ og Ríkissjónvarpið semja til fjögurra ára KNATTSPYRNUSAMBAND ís- lands og Ríkissjónvarpið gengu í gær frá samningi til fjögurra ára, vegna sýninga frá leikjum á íslandsmóti, bikarkeppni og frá landsleikjum. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sagðist við undirskrift í gær, meta samninginn til 20 millj- óna króna fyrir knattspyrnuhreyf- inguna. Eggert samdi fyrir hönd KSÍ og Samtaka 1. deildarfélaga, og er því um að ræða samning um sýningarrétt frá öllum knattspyrnu- leikjum hér á landi; öllum deildum karla og kvenna og bikarkeppni beggja sömuleiðis. Þær 20 milljónir króna sem Egg- ert nefndi koma ekki sem greiðsla frá RÚV, heldur eru um að ræða ýmis konar kynningu á íþróttinni, sem RÚV tekur að sér og þjónusta stofnunarinnar við beinar sendingar frá landsleikjum til útlanda, auk peningagreiðslna. Samningurinn felur ekki í sér einkarétt hvað íslandsmót og bikar- keppni varðar — KSÍ er fijálst að semja við aðrar sjónvarpsstöðvar um sýningar frá þeim leikjum, en RÚV hefur einkarétt á sýningum frá landsleikjum íslands sem fram fara hér á landi næstu fjögur árin. Ekki hefur stöðin þó leyfi til beinna útsendinga frá þeim leikjum. KR meistari meistaranna Frá Blöndu- ósi til Porto ÍÞRÖmR FOLK ■ FORMAÐUR læknanefndar Al- þjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, hefur séð ástæðu til að vara keppendur við hitanum í Bandaríkj- unum meðan á HM stendur. Sér- staklega hefur hann áhyggjur af leikjum, sem eiga að hefjast kl. 12.30 að staðartíma, þegar hitastig- ið og rakinn eru í hámarki. Liðs- læknir Hollendinga tekur í sama streng og segir að leikmenn í Or- lando eigi á hættu að léttast um fimm til 10 kg í leik, en eina vörnin sé mikil vatnsdrykkja. ■ LUIS Oliveira, miðheiji Cagl- iari, verður ekki í belgiska lands- liðshópnum á HM vegna ummæla sem hann lét falla um Paul Van Himst, þjálfara, og Enzo Scifo. „Ég vel ekki leikmenn, sem eru með kröfur, segjast vilja spila í ákveðinni stöðu,“ sagði þjálfarinn. „Ef sonur minn segir „ég vil fá Porce“ verður hann að leita að öðrum föður.“ ■ VAN Himst valdi 22 leikmenn og þ.a. átta varnarmenn, m.a. Mich- el De Wolf hjá Anderlecht, sem er 36 ára. „Það eru margir 25 ára, sem eru mun seinni en hann,“ sagði Van Himst. ■ CLEMENS Westerhof ætlar að hætta sem landsliðsþjálfari Níg- eríu eftir HM. „Ég er fórnarlamb eigin velgengni," sagði Hollending- urinn, sem tók við fyrir fimm árum. Ég er of vinsæll og fyrir bragðið á ég of marga óvini. Sex íþróttamála- ráðherrar og sjö formenn knatt- spyrnusambandsins hafa reynt að reka mig vegna þess að ég er vin- sælli en þeir. En þeir voru allir rekn- ir og ég er enn að.“ ■ RENE Higuita, markvörður, var ekki valinn í landslið Kólumbiu fyrir HM. ■ LUIS Fernandez, fyrrum fyrir- liði PSG, tekur við þjálfarastarfi frönsku meistaranna fyrir næsta tímabil og Joel Bats, fyrrum lands- liðsmarkvörður, verður aðstoðar- maður hans. Fernandez, sem hefur þjálfað Cannes síðan í janúar 1993, tekur við af Artur Jorge frá Port- úgal, sem hætti vegna mikillar gagnrýni. ÚRSLIT Knattspyrna Vináttulandsleikir England - Grikkland..............5:0 Darren Anderton (24.), Peter Beardsley (37.), David Platt (45. vsp., 54.), Alan She- arer (65.). 23.659. Pólland - Austurríki............3:4 Andrzej Juskowiak (22., vsp.), Jerzy Brzeczek (47.), Kazimierz Moskal (89.) - Peter Stöger (5., 26., 65.), Walter Hochmai- er (69.). 5.000. Íshokkí NHL-deildin Úrslitakeppni Austurdeildar: New York - New Jersey...........3:4 ■Eftir tvíframlengdan leik. New York vann alla sex innbyrðis leiki liðanna í vetur og markatalan úr þeim var 24:9, en New Jers- ey leiðir nú 1:0. Urslitakeppni Vesturdeildar: Toronto - Vancouver.............3:2 ■Eftir framlengingu. Toronto, sem vann San Jose Sharks 4:2 í sjöunda leik liðanna í undanúrslitum, er 1:0 yfir. FELAGSLIF Uppskeruhátíð Vals Uppskeruhátíð handknattleiksdeildar Vals verður haldin í íþróttahúsi Vals að Hlíðar- enda í kvöld, miðvikudag, kl. 20.00. Lokahóf HSÍ Lokahóf Handknattleikssambands íslands verður haldið á Hótel Sögu 23. mai og hefst kl. 20.00. Veislustjóri verður Guðmundur Árni Stefánsson. Hljómsveitin Pláhnetan leikur fyrir dansi, en auk þess munu Radíus- bræður skemmta. Miðar seldir hjá HSÍ. Mót á Akureyri Undanfarin ár hefur KA á Akureyri verið með mót fyrir 5. flokk (11-12 ára) og keppt f a, b, c og d-liðum. Þau félög sem hafa hug á að vera með verða að tilkynna þátttöku með símbréfi (96-11839) fyrir 23. mai. Mótið verður 29. júní til 2. júlí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.