Morgunblaðið - 18.05.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1994 13
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Heiðraður
fyrir vel
unnin störf
Keflavík - Nýlega heiðraði
slökkviliðið á Keflavíkurflug-
velli Áma Reyni Hálfdánarson
fyrir vel unnin störf. Um þess-
ar mundir eru 20 ár frá því
að Ámi Reynir hóf störf hjá
varnarliðinu, en hann slasaðist
í bifreiðaslysi fyrir tveim árum
og hefur verið óvinnufær síð-
an.
Árni Reynir starfaði hjá
flugþjónustudeild og hefur
hann fengið margar viður-
kenningar frá yfirmönnum í
hernum fyrir störf sín og þá
sérstaklega fyrir svokallaðar
þotugildrur. Áf þessu tilefni
buðu fyrrum vinnufélagar
Árna Reynis honum til grill-
veislu þar sem Haraldur Stef-
ánsson slökkviliðsstjóri afhenti
honum heiðurskjöld sem þakk-
lætisvott fýrir vel unnin störf.
Aukin að-
sóknað
söfnum
Húsavík - Í Safnahúsinu hér
í bæ er að finna þjóðminja-
safn, náttúrugripasafn, mál-
verkasafn, ljósmynda- og fil-
musafn, héraðsskjalasafn og
bókasafn, og Byggðasafnið að
Grenjaðarstað er einnig undir
sömu stjórn en safnvörður er
Guðni Halldórsson.
Aðsókn að söfnunum á
Húsavík jókst um 20% í fyrra
en að safninu að Grenjaðarstað
varð hún minni en áður vegna
mikilla viðgerða á bænum sem
staðið hafa yfír undanfarin ár.
Sú nýjung var tekin upp að
handverkskonur vom í safninu
vissa daga og kynntu gömul
handverk s.s. vefnað, ullarsp-
una og unnu úr hrosshári.
Einnig gekkst safnið fyrir
kynningu bókmennta og tón-
listar sem m.a. þjóðþekktir
listamenn sáu um.
Bókasafnið er alltaf nokkuð
vel sótt og voru þar um 500
fastir lántakendur á árinu. Sú
athyglisverða breyting varð að
útlánum skáldverka fækkaði
en útlánum fræðirita fjölgaði.
LAIMDIÐ
Áhugi bænda á uppgræðslu heimalanda sinna stöðugt vaxandi
Gervihnatta-
myndir notaðar
Laxamýri, S-Þing. - Mikill áhugi er meðal bænda á að auka beitar-
þol jarðar sinna með ræktun heimalanda og minnka um leið álag á
afréttagróður. Á fundum með Ólafi Arnalds frá Rannsóknastofu land-
búnaðarins í sveitahreppum S-Þing. var ástand gróðurs og jarðvegs
kynnt bændum með rafkortum og
Gervihnattamyndir sem sýna
rafflokka landsins geta mjög auð-
veldað mönnum að meta hvar
mest sé þörf á aðgerðum til að
hefta landfok. Á sameiginlegum
fundi með bændum á Tjörnesi og
í Reykjahreppi voru ræddar hugs-
anlegar aðgerðir til úrbóta í báðum
sveitarfélögunum.
Nú þegar eru fimm bæir á svæð-
inu í samstarfsverkefni með Land-
græðslu ríkisins við uppgræðslu á
litskyggnum.
Hvammsheiði og Reykjaheiði.
Mikið hefur verið borið á af áburði
og fræi en auk þess nýta bændur
heyrúllur, húsdýraáburð og moð
til þess að loka opnum melum með
góðum árangri.
Á fundinum með Ólafi skráðu
bændur sig á lista og pöntuðu loft-
myndir sem munu nýtast vel við
framkvæmdaáætlanir í land-
græðslu.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
JÓN H. Jóhannsson í Víðiholti hefur gefið mikið af heyrúllum
til uppgræðslu á Hvammsheiði.
Sumarblær færist
yfir Laugarvatn
Hjólhýsa-
svæðið
lifnar við
ÞAÐ má segja að sumarið
hafi byrjað lijá hjólhýsafólk-
inu á Laugarvatni um helgina,
þegar fjölmenni var í hjólhýs-
unum í veðurblíðunni. Á annað
hundrað hjólhýsi eru á svæð-
inu og hefur fjölda forfjalda
þegar verið tjaldað. Þegar vel
er mætt í hjólhýsin er mann-
margt og mikið um að vera.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
r „
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
ÝMISLEGT á hitaveitudögum á Seyðisfirði vakti athygli gesta.
Hitaveitudagar RARIK á Seyðisfirði
Hitaveituhermir
vakti athygli gesta
Seyðisfirði - Undanfarið hafa Raf-
magnsveitur ríkisins staðið fyrir svo-
kölluðum Hitaveitudögum á Seyðis-
fírði. Átakið hófst á því að starfsmenn
fyrirtækisins buðu til almennrar
kynningar á hitaveitunni í kyndistöð
fjarvarmaveitunnar þar sem sérstök
áhersla er lögð á upplýsingar varð-
andi upphitun húsa og varmanýtingu.
Mikil vinna hefur verið lögð í þessa
kynningu og undirbúningur vel unn-
inn til þess að sem best mætti tak-
ast. Nokkrum dögum fyrir Hitaveitu-
dagana var gengið í öll hús bæjarins
með upplýsingabækling um tilgang
átaksins. Þar var upplýst um kostn-
að, nýtingu heita vatnsins, varma-
þörf húsa og birt yfirlit yfir varma-
nýtingu húsa í bænum.
Á sýningunni voru m.a. sýndir
allir helstu hlutar húshitunarkerfa
svo sem varmaskiptar, ofnlokar,
hitastillar, þrýstijafnarar, ofnar og
margt fleira. Hitaveituhermirinn sem
Svavar Óskarsson smíðaði á sínum
tíma fyrir Samband hitaveitna var
til sýnis og vakti mikla athygli gesta.
Tölvubanki var á staðnum þar sem
menn gátu fengið að sjá upplýsingar
um eigin notkun, nýtingu og kostnað
auk þess sem gerðar voru tillögur
um hugsanlega sparnaðarmöguleika.
Til þess að fylgja þessu eftir býður
Rarik upp á ókeypis þjónustu orku-
ráðgjafa sem koma í heimahús og
gera úttekt á ofnakerfum, stilla kerfi
og gera tillögur um úrbætur. Þessi
þjónusta hefur mælst vel fyrir og
hafa mjög margir notfært sér hana,
enda til mikils að vinna.