Morgunblaðið - 18.05.1994, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.05.1994, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 011 RH 0107fl L^RUS VALDIMAR8S0N framkvæmdastjóri L I I vUkl O/U KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiltur fasteignasali Morgunblaðið/Þorkell Gunnar I. Birgisson bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokks í Kópavogi Breytir engu um möguleika á meiri- hlutasamstarfi „ÉG HELD að yfirlýsing mín breyti engu varðandi samstarfsmöguleika okk- ar við Framsóknarflokk eftir kosningar. Ekki er von á öðru en samstarf flokkanna verði áfram gott,“ segir Gunnar I. Birgisson, formaður bæjarráðs Kópavogs, í tengslum yið ákvörðun sína um að verða bæjarstjóraefni Sjálf- stæðisflokks í komandi kosningum. Sigurður Geirdal, fulltrúi Framsóknar- fiokks og bæjarstjóri í Kópavogi, segir eðlilegt að flokkur sem keppi að meirihluta í bæjarstjórn kjósi sér bæjarstjóraefni. Sjálfstæðisflokkur með 5 menn og Framsóknarflokkur með 1 mann mynda meirihluta í bæjarstjórn. Alþýðuflokkur hefur 3 menn og Alþýðubandalag tvo. Gunnar segir að hann hafi tekið ákvörðun um að bjóða sig fram sem bæjarstjóraefni vegna áskorana frá félögum sínum á framboðslista Sjálf- stæðisflokksins og fjölmörgum bæj- arbúum. „Ég er líka þeirrar skoðun- ar að þeir flokkar sem bjóða fram í sveitarstjórnarkosningum eigi að hafa sín bæjarstjóraefni. Að minnsta kosti finnst mér þessi stefna eiga við Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi því hann er langstærsti flokkurinn í bænum,“ segir Gunnar. Hann segist því aðeins verða bæjarstjóri að flokknum takist að ná meirihluta eða samið verði um stöðuna við samstarfsfiokk. „Þetta er ekki krafa okkar í slíkri stöðu. Ógjörningur er að gefa spilin fyrir- fram,“ Gunnar. Hann sagðist vera bjartsýnn á niðurstöður kosninganna. „Ég finn fyrir byr í Kópavogi. Annars er ekk- ert öruggt fyrr en búið er að telja síðustu atkvæðin. En bæjarbúar virðast ánægðir með hvað gert hefur verið á kjörtímabilinu: endurbygg- ingu gömlu gatnanna, átak í leik- skóla- og skólamálum og málefnum eldri borgara. Við höfum líka haft þá stefnu að hver sem væri gæti fengið lóð og byggt. Enn hefur bær- inn verið fegraður, lokið við hálfkör- uð mannvirki, svo eitthvað sé nefnt,“ sagði Gunnar. Tíska Sigurður Geirdal lét þess getið að í tísku virtist vera að flokkar út- nefndu bæjarstjóraefni og væri í sjalfu sér ekkert athugavert við slíkt. „í öðru lagi er alveg greinilegt, mið- að við síðustu skoðanakannanir, að þeir eru mjög nálægt sjötta manni, eiginlega alveg við hann, og ósköp heiðarlegt markmið hjá þeim, eins og öðrum flokkum, að ætla að auka sitt fylgi. Bæti þeir við manni eru þeir sex og spyrja hvorki mig né einhveija aðra hvernig þeir ráða sem bæjarstjóra," sagði Sigurður. Engu að síður sagðist hann bjart- sýnn á að Framsóknarflokkur bæti fremur við sig manni en Sjálfstæð- isflokkur. „Ég sé ekki fyrir mér að einn flokkur nái hreinum meirihluta. En vissulega eru þeir ekki að skjóta neitt út í loftið því báðir meirihluta- flokkamir hafa bætt heilmikið við sig á kjörtímabilinu," sagði Sigurður. Skoðannakönn- un í Kópavogi B-listinn fengi einn fulltrúa frá A-lista SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR- INN fengi 5 bæjarfulltrúa í Kópavogi, Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur og Al- þýðubandalag 2 hver, en Kvennalisti engan, miðað við niðurstöður skoðanakönnun- ar Félagsvísindastofnunar á fylgi flokka við bæjarstjórn- arkosningar 28. maí. Miðað við þessar niðurstöður myndu Sjálfstæðisflokkur og Al- þýðubandalag halda sínu og Alþýðuflokkur missa einn fulltrúa til Framsóknarflokks. Könnunin var gerð í síma dagana 11.-12. maí. Stuðst var við 600 manna slembiúrtak á aldrinum 18-75 ára og fengust 418 svör. Spurtvar: „Ef bæjar- stjórnarkosningar væru haldn- ar á morgun, hvaða flokk eða lista heldurðu að þú myndir kjósa?“ Þeir sem sögðu „veit ekki“ við þessari spurningu voru spurðir áfram: „Én hvaða flokk eða lista heldurðu að lík- legast sé að þú myndir kjósa?“ 33,3% svarenda sögðu „veit ekki“ eftir fyrri spurninguna, en þegar svörum við seinni spurningunni er bætt við fer hlutfall óráðinna niður í 20,3%. Þeir sem neita að svara eru 7,2%. Sjálfstæðisflokkur með 42% Ef miðað er við niðurstöður beggja spurninganna saman- lagt fengi Alþýðuflokkurinn tæp 20% atkvæða, Framsókn- arflokkur tæp 15%, Sjálfstæð- isflokkur tæp 42%, Alþýðu- bandalag rúm 17% og Kvenna- listinn tæp 7% atkvæða. Ef miðað er við fyrri spurninguna eingöngu fengi Sjálfstæðis- flokkurinn meirihluta í bæjar- stjórn, eða 6 fulltrúa, Alþýðu- flokkur og Alþýðubandalag 2, en Famsóknarflokkurinn 1. Kvennalistinn fengi sem fyrr engan fulltrúa. I niðurstöðum Félagsvísinda- stofnunar segir, að þessum út- reikningum beri að taka með miklum fyrirvara, þar sem svarendahópur sé lítill og hvert svar geti breytt niðurstöðum talsvert. Kóngsbakki - 4ra - laus. Góð ca 90 fm íb. á 2. hæð. Þvottah. í íb. Gott verð. Áhv. veöd. ca 3 millj. Háaleitisbraut - 4ra. Tæpl. 100 fm endaíb. á 4. hæð. Góð stofa, björt og góð íb. Mikiö útsýni. Verð 7,6 millj., áhv. 4,4 millj. langtímal. Lyngmóar - Gbæ - 3ja + bflskúr. Mjög rúmg. og falleg ca 92 fm íb. á 1. hæð í litlu fjölb. Stórar svalir í suö- ur. Þægil. og góö aöstaða. Parket. Verð 8,3 millj. Áhv. 1 millj. Spóahólar - 3ja. gó« ca 76 fm íb. á 2. hæð. Húslö í góðu ástandi. Góð aðstaða fyrir börn. Verð 6,5 millj. Álftamýri - 3ja - laus. Góð ca 76 fm Ib. é 3. hæð. 2 rúmg. svefnherb. og gófl stofa. Parket. Áhv. 4,8 millj. langtlán. tyklar é skrlfst. Gerið tilboð. Gunnarssund - Hf. - 3ja - laus. Nýuppgerö ca 78 fm íb. á jaröhæö með sórinng. Allar innr. í íb. eru nýjar. Park- et. Nýtt rafmagn o.fl. Hjálmholt - 3ja - skipti. góa ca 71 fm íb. á jarðhæð í þríb. Gengið belnt Inn, engar tröppur. Þvhús og geymsla í íb. Verð 6,4 millj. Jöklasel - 2ja-3ja. ca es fm fb. á 1. hæð. Þvottah. f íb. Park- at Nýl. innr. 2 svefnherb. Áhv. 2,2 mllij. þar af vaðd. 1,8 millj. Neshagi - 2ja-3ja herb. Ca 65 fm ib, f kj. Búiö að skipta fb. í tvennt. Haagt að leigja fré sér herb. Hentar vel fyrir háskóla- nema. Verð 6 mllij. Áhv. veðd. 1,3 mil«. Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Lítil séríbúð - stór bílskúr Einstaklib. 2ja herb. tæpir 50 fm á jarðh./kj. v. Laugarnesveg. Mjög góð. Sérinng. Sérhiti. Góð sérgeymsla. Stór og góður bílsk./vinnuhús- næði 48,9 fm. Verð aðeins 4,5 millj. Suðuríbúð - Safamýri - gott verð 3ja herb. íb. á jarðh. um 80 fm í suðurenda. Sérhiti. Ágæt sameign. Rúmg. geymsla í kj. Úrvalsstaður. Laus fljótl. Tilboð óskast. í nágrenni Vesturbæjarskóla Mjög góð 5 herb. hæð í reisul. steinh. Eignaskipti möguleg. Vinsamleg- ast leitið nánari uppi. Góð eign - gott verð - eignaskipti Mjög gott timburh. um 150 fm á stórri ræktaðri eignalóð í Skerja- firði. Eignaskipti mögul. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga. • • • Húseign með 6-8 svefnher- bergjum óskast í borginni eða nágrenni. MMENNA FASIEIGNASALAW LAUGÁVÉGM8 SÍMAR 21150-21370 ■ r% DwrfwTii Ármúla 1, sími 882030 - fax 882033 Ægir Breiðfjörð, lögg. fastsali, hs. 687131. Stelkshólar - 3ja. Mjög björt og góð ib. á 3. hæð í litilli blokk. Bílsk. getur fylgt. Hagstætt verð. Laus strax. Æsufell - 2ja herb. ca 54 fm íb. á 7. hæö í lyftublokk. Laus fljótl. Gott verð. Áhv. veðd. 1450 þús. Gerið tilboð. Glæsilegur sumarbústaður Til sölu þessi glæsilegi nýlegi sumarbústaður sem stendur á kjarrivöxnu eignarlandi í Svarfhólsskógi, Borgarfirði. Bústaðurinn er um 50 fm og allur hinn vand- aðasti. Möguleiki á rafmagni. Góð greiðslukjör. Myndir á skrifstofu. Til sýnis næstu daga. Verð 3,6 millj. Framtíðin, fasteignasala, Austurstræti 18, sími 62 24 24. Norðmenn á íslandi fagna ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGUR Norð- manna var í gær 17. maí. Eins pg jafnan héldu Norðmenn á íslandi daginn hátíðlegan. Að þessu sinni fóru þeir í skrúð- göngu að Norræna húsinu, sungu ættjarðarlög og glödd- ust í góða veðrinu. Eins og til- heyrir þjóðhátíðardegi klæddu margir sig í þjóðbúninga og veifuðu norska fánanum. FÓLKSBÍLL skall framan á vörubíl á Vesturlandsvegi á móts við Korpúlfsstaði um kl. 20.30 á mánudagskvöld. Kona sem ók fólksbílnum slasaðist mikið við áreksturinn og þurfti tækjabíl frá slökkviliðinu í Reykjavík til að ná henni úr bílnum. Morgunblaðið/Ingvar Skall framan á vörubíl 51500 Hafnarfjörður Hjallabraut 33 - þjónustuíbúð Til sölu góð 2ja herb. ca 70 fm íb. á 3. hæð. Ekkert áhv. Verð 8,9 millj. Álfaskeið Góð ca 100 fm 4ra herb. íb. á 1. hæð í þríbýlishúsi. Klettagata Til sölu tvær 4ra-5 herb. íb. í tvíbýlishúsi auk bílskúrs. Geta selst saman. Arnarhraun Góð 5 herb. íb. á 3. hæð í þríb- húsi ca 136 fm. Sérinng. Áhv. ca 1,5 millj. Árni Grétar Finnsson hrl., jm Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl., miF® Llnnetsstíg 3, 2. hæð, Hfj., símar 51500 og 51501. v

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.