Morgunblaðið - 18.05.1994, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hugvitsmaður hannar búnað til að fylgjast með sundlaugargestum
BÚNAÐUR sem ætlaður er til að
fylgjast með fólki á sundstöðum,
og þá sérstaklega ósyndum böm-
um og veiku fólki, hefur verið
hannaður af Guðmundi H. Guð-
mundssyni rafeindavirkjameistari,
starfsmanni á eðlisfræði- og
tæknideild Landspítalans. Um er
að ræða lítið mælitæki sem fólk
ber á sér, en tækið skynjar ákveðn-
ar fyrirfram uppgefnar forsendur
og sendir boð um ástand á viðkom-
andi laugargesti til laugarvarðar.
Guðmundur segir að sig skorti um
fjórar milljónir króna til að ljúka
vinnu við að fullgera búnaðinn,
sem hann kallar Lífvaka, en bæði
Slysavarnafélag íslands og nefnd
um öryggismál á sundstöðum
hafa sýnt verkefninu mikinn
áhuga.
Guðmundur sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði hugs-
að búnaðinn þannig að fylgst yrði
með dýpt, hreyfingu, öndun og
jafnvel hjartariti, en hann sagði
ekki liggja alveg ljóst fyrir hvern-
ig best væri að fylgjast með
laugargestum og væri það hluti
af þróunarvinnunni sem ynna
þyrfti af hendi.
Styrkhæft en
ekki í forgang
„Ef þetta er t.d. haft um hálsinn
á börnum er auðvelt að fylgjast
með vatnsþrýstingnum og hreyf-
ingunni, en það er flókinn raf-
eindabúnaður sem ég lagði fram
hjá Rannsóknaráði ríkisins í fyrra.
Þar voru þessar hugmyndir sam-
þykktar og verkið talið styrkhæft,
en það var síðan fellt í forgangs-
Ánægður ef
líf bjargast
Morgunblaðið/Sverrir
GUÐMUNDUR H. Guðmundsson rafeindavirkjameistari á vinnu-
stofu sinni á Landspítala íslands.
röðun á verkefnum. Þetta er bún-
aður sem þarf að vera eins örugg-
ur og hægt er, því þetta er hjálpar-
tæki til að fylgjast með fólki. Það
þarf því að vinna alla forvinnu
mjög vel og jafnframt prófa bún-
aðinn mjög vel. Ég þarf að vera
með verkfræðing með mér í vinnu
en áætlun mín var að vera með
frumgerðina tilbúna eftir eitt ár,“
sagði hann.
Fjórar milljónir vantar
Guðmundur sagðist áætla að
fjórar milljónir skorti til að full-
vinna hugmyndina, en þar væri
aðallega um að ræða aðkeypta
vinnu verkfræðings og læknis auk
eigin launa. Hann kvaðst hafa lagt
hugmyndina fyrir formann nefnd-
ar sem sér um öryggisbúnað á
sundstöðum og óskað álits Slysa-
varnafélags íslands, og hefðu báð-
ir þessir aðilar lýst áhuga sínum
á verkefninu. Hann sagði ekki vit-
að til þess að búnaður af þessu
tagi væri til anfiars staðar í heim-
inum.
„Þeir sögðu mér hjá Slysavarna-
félaginu að það kostaði um 30
milljónir að halda þeim börnum
lifandi sem lent hafa í drukknun
og hlotið heilaskaða af. Meðalald-
ur þeirra er 30-40 ár en það kost-
ar eina miíijón á ári að annast
þau. Síðan má ekki gleyma sorg-
inni sem þessu fylgir. Hugsunin
hjá mér hefur fyrst og fremst ver-
ið sú að maður væri ánægður ef
hægt væri að bjarga einhveijum
mannslífum með þessum búnaði,“
sagði Guðmundur H. Guðmunds-
son.
LIA Frey-Rabine hefur tekið við hlutverki Brynhildar í Nifl-
ungahringnum. Hér æfir hún með Hauki Páli Haraldssyni.
Niflungahringurinn sýndur 27. maí
Ný söngkona tek-
ur að sér hlut-
verk Brynhildar
RÁÐIN hefur verið ný söngkona
til að fara með aðalsönghlut-
verkið í Niflungahringnum eftir
Richard Wagner. Ameríska
söngkonan Anna Linden átti að
syngja hlutverk Brynhildar, en
nú hefur verið ákveðið að landa
hennar Lia Frey-Rabine syngi
þetta hlutverk. Óperan verður
frumsýnd 27. maí.
Að sögn Rutar Magnússon,
framkvæmdastjóra Listahátiðar,
eru persónulegar ástæður fyrir
því að Anna Linden hættir við
að syngja hlutverk. Hún sagði
að þessi breyting myndi ekki
hafa nein áhrif á áætlaðan frum-
sýningardag. Lia Frey-Rabine
væri komin til landsins og farin
að æfa með hljómsveitinni. Rut
sagði að Frey-Rabine hefði oft
áður sungið hlutverk Brynhildar
og því myndi þessi breyting ekki
tefja æfingar.
Listahátíð í Reykjavík, Sinf-
óníuhljómsveit íslands, Þjóðleik-
húsið og íslenska óperan standa
sameiginlega að uppsetningu
Niflungahringsins. Það er stjórn
listahátíðar sem átti frumkvæði
að uppsetningunni og hún tók
þá ákvörðun að erlendir söngv-
arar skyldu syngja þijú aðalhlut-
verkin í sýningunni. Stjómin réð
einnig í þessi hlutverk, en ís-
lenska óperan sá um að velja
íslenskásöngvara í hin sönghlut-
verkin. Alls tekur á annað
hundrað manns þátt í sýning-
unni.
Sveitarstjórn Neshrepps
Vill yfirtaka
húseignimar
á Gufuskálum
SVEITARSTJÓRN Neshrepps utan Ennis hefur samþykkt að óska
eftir því að fá að yfirtaka eignir Lóranstöðvarinnar á Gufuskálum.
Eignirnar eru í eigu vamarliðsins sem mun hætta rekstri stöðvarinnar
um næstu áramót. Gunnar Már Kristófersson, sveitarstjóri í Nes-
hreppi, sagði að ýmsar hugmyndir séu innan sveitarfélagsins um nýt-
ingu húseignanna á Gufuskálum, en sagði að eining væri um það að
fela nýrri sveitarstjóm að taka ákvörðun um það.
Samþykki utanríkisráðherra ósk
sveitarstjómar Neshrepps verður
hún lögð fyrir viðræðunefnd
bandarísku strandgæslunnar sem
kemur til fundar við íslensk stjórn-
völd í næsta mánuði. Það mun
ráðast á þeim fundi hver niðurstað-
an verður. Vamarliðið hefur lýst
því yfir að það vilji rífa húseignim-
ar og koma þannig í veg fyrir að
þær grotni niður sem aftur gæti
þýtt að varnarliðið yrði gert ábyrgt
fyrir þeim skaða sem húsin valda
á umhverfinu. Varnarliðið hefur
jafnframt lýsti sig tilbúið til við-
ræðna ef hugmyndir koma fram
um einhvers konar nýtingu á
mannvirkjunum. Andstaða hefur
verið við það meðal heimamanna
að húseignimar verði rifnar, en
um er að ræða þijár blokkir með
18 íbúðum og tvö einbýlishús.
Fimm manna nefnd
Gunnar Már sagði að þessi sam-
þykkt sveitarstjómar Neshrepps
feli í sér að sveitarstjórnin sé reiðu-
búin til að taka að sér viðhald
húseignanna og ábyrgð á um-
hverfi og hugsanlegum umhverfis-
spjöllum vegna þeirra.
Fyrir liggja erindi frá nokkrum
félagasamtökum og einstakling-
um um afnot af húseignunum á
Gufuskálum. Gunnar Már vildi
ekki greina frá því hvað fælist í
þessum erindum. Hann sagði að
skipuð hefði verið fimm manna
nefnd fulltrúa úr Neshreppi og
Ólafsvík til að fara yfir allar hug-
myndir um nýtingu á mannvirkj-
unum. Það kæmi síðan í hlut nýrr-
ar sveitarstjórn í nýju sameigin-
legu sveitarfélagi á vestanverðu
Snæfellsnesi að taka ákvörðun í
málinu.
Ráðherra vill að RÚV fái
mastrið
RARIK hefur óskað eftir því að
fá að nýta díselrafstöðvar á Gufu-
skálum og hefur verið fallist á það
erindi. Þá hefur menntamálaráð-
herra lagt fram tillögu í ríkisstjóm-
inni um að mastur Lóranstöðvar-
innar verði nýtt fyrir langbylgju-
sendingar Ríkisútvarpsins. Af-
staða hefur ekki verið tekin til ti-
lögunnar ennþá, en afstaða verður
að liggja fyrir eigi síðar en um
mánaðamót þegar viðræðurnefnd
bandaríksu strandgæslunnar kem-
ur hingað til lands. Áætlað er að
nauðsynlegar breytingar á mastr-
inu svo að það geti þjónað RÚV
kosti 390 milljónir, en kostnaður
við byggingu nýs mastur hefur
verið áætlaður 800 milljónir.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Tregt við
Torfunefíð
VINKONURN AR Kristbjörg
og Sigurbjörg hafa síðustu
daga rennt fyrir fisk á Torfu-
nefsbryggju á Akureyri með
misjöfnum árangri. I gær-
morgun höfðu þær ekkert
orðið varar en ætluðu ekki
að gefast upp því skammt var
síðan þær höfðu farið heim
með ágætis afla að loknum
veiðidegi.
Keflavíkurflug--
völlur
Utanríkis-
ráðherra
ræðir um at-
vinnumál
JÓN Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra mun í dag
halda fundi um vamarliðið og
atvinnumál með íslenskum
starfsmönnum á Keflavíkur-
flugvelli. Að sögn Bjama Vest-
mann hjá upplýsingadeild utan-
ríkisráðuneytisins eru fundimir
haldnir að beiðni viðkomandi
stéttarfélaga á suðumesjum og
starfsfólks á Keflavíkurflug-
velli.
Utanríkisráðherra heldur
fund með starfsmönnum ís-
lenskra aðalverktaka og Kefla-
víkurverktaka í mötuneyti ís-
lenskra aðalverktaka og hefst
hann kl. 12, og fundur með
íslensku starfsfólki varnarliðs-
ins verður haldinn í Andrews
Theater kl. 16.15.
Reiðhjólin
hverfa
ÞJÓFNUÐUM á reiðhjólum fer
nú ört fjölgandi með hveijum
deginum, eins og venja er á
þessum árstíma.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar eru reiðhjóla-
þjófnaðir algengastir í maí og
júní. Nú er bylgja þessara
þjófnaða enn skollin yfir og
lögreglan bendir reiðhjólaeig-
endum á að skilja hjólin ekki
eftir ólæst.
Hreindýr
naga golf-
völlinn
Egilsstöðum, Morgunblaðið.
NOKKRAR geldkýr og tarfar
hafa undanfarið haldið til á
golfvellinum á Ekkjufelli í
Fellabæ . Að sögn Skafphéðins
Þórissonar líffræðings má gera
ráð fyrir að dýrin geti ílengst
hér eitthvað fram á sumar. Þá
munu þau að öllum líkindum
fara upp á heiðar. Vart þarf
að taka fram að hreindýr eða
önnur klaufdýr eru ekki vel-
komin á viðkvæmar flatir golf-
valla, hvorki á Ekkjufelli né
annars staðar.