Morgunblaðið - 14.06.1994, Page 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
LEIKVANGAR HEIMSMEISTARAKEPPNINNAR í KNATTSPYRNU1994
@ Stanford
leikvangurinn
í Palo Alto í Kaliforníu,
rúmar 86.019 áhorlendur
) Rose Bowl
leikvangurinn
I Pasadena i Kaliforníu,
rúmar 102.083 áhorlendur.
(eppn
eikvöi
leikvöngum, íjafn
mörgum borgum, vitt og
breytt um Bandarikin.
)Foxboro (
lelkvangurinn
I Foxboro I Massachusetls,
rúmar 61.000 áhoriendur.
Fyrsti lelkurlnn,
milll Bolivlu og Pýskalands, veröur
lelklnn é Soldier Fleld leikvangnum
I Chicago þann 17. junl og helsl
kl. 19.00 aö Islenskum llma.
)Giants leikvangurinn
I East Rutherford
í New Jersey,
rúmar 76.891 áhoriendur.
@ Cotton Bowl
leikvangurinn
í Dallas í Texas,
rúmar 72.000 áhoriéndur.
@Soldier Field
leikvangurinn
I Chicago í lllinois,
rúmar 66.814 áhoriendur.
@ Silverdome
lelkvangurinn
I Pontiac í Michigan,
rúmar 76.000 áhoriendur.
@ Róbert F. Kennedy
leikvangurinn
í Washington D.C.,
rúmar 56.500 áhoriendur.
@) Citrus leikvangurinn
í Orlando í Flórída,
rúmar 70.188 áhorlendur.
foúm
FOLK
■ BO Johannsson, fyrrum lands-
liðsþjálfari íslands í knattspymu,
verður ekki áfram með Silkeborg
sem varð danskur meistari í fyrsta
sinn um helgina. Johannsson þykir
of dýr fyrir félagið og því hefur ver-
ið ákveðið að annar Svíi, Bosse Ni-
elsson sem er þjálfari Helsingborg,
taki við liðinu eftir þetta tímabil.
■ ÖGMUNDUR Kristinsson _er
hættur að þjálfa meistaraflokk IR,
sem leikur í 2. deild Islandsmótsins
í knattspyrnu. Ástæðan er slakt
gengi liðsins, en það hefur enn ekki
hlotið stig. I gær var ekki búið að
ákveða hver tekur við liðinu.
■ BERGSVEINN Bergsveinsson,
landsliðsmarkvörður úr FH, hefur
gengið frá félagskiptum yfir í Aftur-
eldingu. Hann skrifaði undir leik-
mannasamning hjá nýja félaginu á
sunnudaginn. Jóhann Samúelsson,
sem lék með Þór frá Akureyri sl.
vetur, gekk einnig endanlega frá
félagskiptum sínum yfir í Aftureld-
ingu á sunnudag.
■ ALFREÐ Gíslason, þjálfari KA
og aðstoðarmaður hans, Arni Stef-
ánsson, fara í vikunni á þjálfranám-
skeið til Þýskalands.
■ HANNA Katrín Friðriksen og
Berglind Ómarsdóttir, handknatt-
Ieikskonur úr Val, hafa gengið til
liðs við Fram.
■ HILMAR Sigurgíslason, sem
þjálfaði Gróttu í 2. deild handboltans
í fyrra, hefur verið ráðinn þjálfari
ÍH sem Jeikur í 1. deild.
■ EIRÍKUR Þorvarðarson mark-
vörður lék sinn fyrsta leik með HK
á laugardaginn gegn Þrótti Neskaup-
stað. Hann kom frá Bandaríkjunum
þar sem hann nemur sálarfræði. Ein-
hverjir sögðu að það hefði bara vant-
að sálfræðing í hópinn því þetta var
fyrsti sigur HK-inga í 2. deild.
■ FIS, Alþjóða skíðasambandið,
hélt ársþing sitt í Rio de Janeiro í
Brasilíu um helgina. Þar var m.a.
ákveðið að HM í alpagreinum árið
1999 yrði í Vail í Bandaríkjunum.
St. Moritz í Sviss og Garmisch
Partenkirchen sóttu einnig um að
fá mótið. HM í norrænum greinum
verður sama ár í Ramsau í Austur-
ríki.
■ Á FIS fundinum í Ríó var ákveð-
ið að takmarka fjölda keppenda í
heimsbikarmótununum næsta vetur.
Þar fá aðeins 50 punkta bestu að
keppa og síðan tíu til viðbótar með
svokallað „wild-card“ eða undan-
þágu. Síðasta vetur voru keppendur
oft yfir 100 talsins.
■ LINFORD Christie frá Bret-
landi náði besta tíma sem náðst
hefur í 100 metra hlaupi á breska
meistaramótinu um helgina. Hann
hljóp á 9,91 sek. en meðvindur var
of mikill (3,7 m/s) og því fæst
tíminn ekki staðfestur sem heims-
met. Christie, sem er 34 ára, hljóp
100 metrana á 10,09 á móti í
Niirnberg í Þýskalandi á föstudag.
MARKMK)
Islenska landsliðið í fijálsum
íþróttum keppti um helgina í
Evrópubikarkeppni landsliða í
Dublin á írlandi. íslensku liðin í
karla og kvennaflokki eru bæði
í 2. deild, og lentu bæði í sjötta
sæti af sjö keppnisliðum. Árang-
urinn er viðundandi,
en íslensku íþrótta-
mennirnir öttu þarna
kappi við marga
mjög sterka íþrótta-
menn og í sumum
tilvikum þá sterk-
ustu í heimi, en
þama kepptu bæði
Ólympíu- og heimsmeistarar auk
þess sem heimsklassa árangur
náðist í mörgum greinum, meðal
annars besti tími sem náðst hefur
í ár í heiminum í 10.000 metra
hlaupi kvenna.
Það er auðvitað augljóst að
íslenskir íþróttamenn eiga nokk-
uð í land að vera meðal þeirra
bestu í þessari deild. Hins vegar
er stutt í að liðið geti farið að
hafa ýmsar þjóðir undir í þessari
keppni, og í rauninni óheppni að
írar skyldu ekki lúta í lægra haldi
gegn íslendingum í kvenna-
kepjininni.
Arangur Mörthu Ernstsdóttur
var frábær, en hún setti glæsilegt
íslandsmet í 10.000 metra hlaupi.
Frammistaða Þórdísar Gísladótt-
ur var líka góð, og hlýtur árang-
ur hennar í Evrópubikarkeppn-
inni gegnum tíðin að vekja at-
hygli, en hún hefur tíu sinnum
keppt i Evrópubikarkeppni og 8
sinnum verið meðal þriggja efstu
í hástökkinu.
Evrópubikarkeppnin er nú
haldin á hveiju ári, en var áður
á tveggja ára fresti. Það eru allir
sammála um að þessi breyting
sé mikil lyftistöng fyrir íþróttina,
og var það mál manna að vægi
hennar ykist ár frá ári. í Evrópu-
bikarkeppninni í Dublin mættu
liðin með sína sterkustu íþrótta-
menn, og lögðu mikið upp úr því
að ná góðum árangri.
Það væri auðvitað gaman að
sjá íslensku íþróttamennina í bar-
áttu í stigakeppninni, en eins og
Þráinn landsliðsþjálfari bendir á,
þá eru enn of margar veikar
greinar svo hægt sé að ætlast til
að liðið blandi sér í þá baráttu á
allra næstu árum. Með marvissu
starfi og uppbyggingu yngii af-
reksmanna ætti þetta markmið
liins vegar að nást, en FRÍ hefur
sett í gang átaksverkefni sem
vonandi skilar umtalsverðum
árangri á næstu árum.
írar stóðu ágætlega að Evr-
ópubikarkeppninni og var aðbún-
aður allur eins og best verður á
kosið. Áhorfendur voru ekki eins
margir og við var búist, en þeir
sem mættu á völlinn fengu góða
þjónustu frá þuli vallarins. Hann
var staðsettur uppi í blaðamanna-
stúkunni og lýsti hann mjög vel
því sem fyrir augu bar og sagði
frá úrslitum um leið og þau bár-
ust. Auk þess gætti hann þess
að upplýsa áhorfendur um stöð-
una í kast- og stökkgreinum
meðan á þeim stóð. Þetta var
afskaplega áhorfendavænt atriði
sem auðvelt væri að hafa í góðu
lagi á fijálsíþróttamótum á
Laugardalsvelli.
Fijálsar íþróttir eru á uppleið
og margir efnilegir íþróttamenn
á leiðinni í fremstu röð. Þeir verða
hins vegar að vera þolinmóðir og
falla ekki í þá gryfju að stytta
sér leið að markinU'. Kröfurnar
mega heldur ekki að vera of miki-
ar, raunhæf markmið á að setja
og náist þau geta allir verið
ánægðir.
Stefán
Eiríksson
Verða að vera þolin-
móðir og stytta sér
ekki leið að markinu
Hvernig ferATLI EIIMARSSOIVI að þvíað skora alttafá KR-velli?
Skemmtileg-
asti völlurinn
ATLI Stefán Einarsson knattspyrnumaður hefur verið KR- ing-
um erfiður á KR-velli síðustu árin og sett mark sitt á völlinn.
Árið 1989 gerði hann annað mark Víkings íjafnteflisleik 1:1,
1990 — annað mark Víkings í 2:1 tapleik, 1991 — bæði mörk
Víkings f sigurleik 1:2,1993 — eitt mark í 1:4 sigri með Fram
og loks sigurmark FH, 0:1, sl. fimmtudag, eða alls sex mörk
á sex árum. Atli er mjög sprettharður og hefur oft splundrað
vörnum andstæðinganna með hraða sínum. Hann hefur gert
31 mark 11. deild og leikið 4 A-landsleiki, 2 U-18 ára og 3
U-16 ára.
Atli er 27 ára rekstrarfræðing-
ur og starfar hjá Rafmagns-
veitum ríkisins. Hann er fæddur
^^^1 20. október 1966
£:ffjr og er í sambúð með
Val B. Ingunni Helga-
Jónatansson dóttur. Hann lék
fyrsta leik sinn í
1. deild með IBI gegn Fram á
Laugardalsvelli 4. sepember 1982,
þá 15 ára og 319 daga gamall.
Hann er ísfirðingur og var einn
efnilegast skíðamaður landsins og
margfaldur unglingameistari.
Hann var kominn í skíðalandsliðið
17 ára gamall, en þá ákvað hann
að snúa sér alfarið að knattspyrn-
unni — fluttist til Reykjavíkur og
gekk til liðs við Víkinga 1985.
Hvers vegna tókst þú knatt-
spyrnuna framyfír skíflin'!
„Ég man að þetta var mjög erf-
ið ákvörðun á sínum tíma að hætta
á skíðunum og ég sé alltaf eftir
því. Það var búið að velja mig í
skíðalandsliðið á þessum tíma og
það var því freistandi að halda
áfram og reyna að komast á
Ólympíuleika eins og pabbi [Einar
Valur Kristjánsson] gerði — það
var alltaf draumurinn. En það var
of dýrt að vera í skíðalandsliðinu
og það var helsta ástæðan fyrir
því að ég valdi knattspyrnuna.
Annars voru skíðin alltaf númer
eitt, tvö og þijú hjá mér og ég var
í knattspyrnunni á sumrin ein-
göngu til að halda mér í æfingu.
Eg hef kraftinn og snerpuna frá
skíðaíþróttinni."
Þú hefur verið KR-ingum erfiður
á KR-velli undanfarin ár, sex mörk
á sex árum. Hver er galdurinn á
bak við það að skora í Vesturbæn-
Atli Stefán Einarsson starfar sem rekstrarfræðingur hjá Rafmagn-
sveitum ríkisins.
um?
„Ég hef enga skýringu á því
hvers vegna mér gengur svona vel
á KR-velli. KR-völlurinn er
skemmtilegasti völlurinn á landinu
og alltaf gaman að skora þar.
Aðstaðan er mjög góð og stemmn-
ingin í kringum leiki á KR-velli er
mjög sérstök. Mér hefur alltaf
þótt gott að spila þar.“
Þú hefur líklega haft það mark-
mið þegarþú komst inná sem vara-
maður hjá FH í síðustu umferð;
að skora?
„Já, það er engin spuming. Ég
varð að sýna og sanna hvað ég
gæti því það er mikil samkeppni
um hveija einustu stöðu í liðinu.
Það var æðisleg tilfinning að sjá
á eftir boltanum í netið eftir að
hafa setið á varamannabekknum
í einn og hálfan leik. Ég er aldrei
sáttur við að sitja varamanna-
bekk.“
Þið FH-ingar eruð komnir með
10 stig eftir 5 umferðir, en hafíð
þó ekki skorað nema þrjú mörk,
er sóknarleikurinn veiki hlekkurinn
í liðinu?
„Sóknin hefur ekki alveg náð
að smella saman, en þessi þijú
mörk hafa engu að síður fært okk-
ur dýrmæt stig. Vörnin hefur verið
að spila frábærlega og eins hefur
Stefán í markinu reynst okkur
mikilvægur. En ég er ekki í nokkr-
um vafa um að mörkin fara að
koma, þetta er aðeins spurning um
tíma. Stefnan er að vera í toppbar-
áttunni í sumar og sanna að FH
er ekki með eitthvað jó, jó-lið.“