Morgunblaðið - 05.07.1994, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JMtingttnlifðMto
C
1994
ÞRIÐJUDAGUR 5. JULI
BLAÐ
adidas
"t:
s Oll sigurlið helgarinnar
á HM leika í Adidas
KNATTSPYRNA
Pétur Pétursson
þjálfari Keflvfldnga
lan Ross sagði starfi sínu lausu á laugardagskvöld og hélt af landi brott á sunnudag
IAN Ross hætti mjög snöggt sem þjálfari Keflvfkinga um helgina
— hann tilkynnti forráðamönnum Knattspyrnuráðs Keflavíkur
ákvörðun sína á laugardagskvöld og var farinn til Englands á sunnu-
dag. „Þessi ákvörðun Ross kom flestum í opna skjöldu, þó svo að
hann hafi áður minnst á það að best væri fyrir alla að hann hætti,“
sagði Jóhannes Ellertsson, formaður Knattspyrnuráðs Keflavikur
við Morgunblaðið.
Við urðum því nauðugir viljugir
að ráða nýjan þjálfara og varð
Pétur Pétursson fyrir valinu. Pétur
stjórnaði fyrstu æfíngunni hjá okkur
í kvöld og hann mun stjóma liðinu
í sínum fyrsta leik gegn Skagamönn-
um uppi á Akranesi á fimmtudag-
inn,“ sagði Jóhannes í gærkvöldi.
- Hver er ástæðan fyrir því að
Ross hættir svona snöggt?
„Hann sagði okkur, að Keflavíkur-
liðið hafi ekki sýnt hvað í því býr
undir hans stjórn og að sökin væri
hans. Við vorum ekki sammála, því
að meiðsli hafa heijað á leikmenn
liðsins. Allir varnarleikmenn liðsins
hafa verið meiddir frá leiknum gegn
KR, en hafa verið að jafna sig og
allt verið á réttri leið.“
- Þetta er þá uppgjöf hjá Ross?
„Já, ekkert annað. Hann sagðist
ekki geta gert meira.“
- Er Ross búinn að fá atvinnutilboð
í Englandi?
„Við héldum það í fyrstu, en þeg-
ar við gengum á hann þvertók hann
fyrir það að hann væri að fara til
félags í Englandi. Þegar við spurðum
hvað hann ætlaði sér að gera, sagð-
ist hann byija á því að fara í sum-
arfrí með fjölskyldu sinni.“
- Hafa leikmenn ekki verið ánægð-
ir með störf Ross?
„Jú, það hafa allir verið ánægðir
með hans störf og liðið er sterkara
en það var í fyrra. Ross á stóran þátt
i því og því kom það flatt upp á alla
að hann sé hættur,“ sagði Jóhannes.
Keflvíkingar buðu Pétri þjálfara-
starfið, en hann hefur verið í fríi frá
knattspyrnunni síðan hann hætti sem
þjálfari Tindastóls sl. keppnistímabil.
„Við vorum allan sunnudaginn að
átta okkur á hlutunum og ræddum
við Kjartan Másson, sem var þjálfari
okkar í fyrra, til að fá ráð hjá hon-
um. Það kom ekki til greina að hann
tæki við liðinu, þar sem hann er
samningsbundinn Víkingum," sagði
Jóhannes.
Pétur er ekki ókunnugur í herbúð-
um Keflvíkinga. Hann lék með Ragn-
ari Margeirssyni, Ólafi Gottskálks-
syni, Sigurði Björgvinssyni og Gunn-
ari Oddssyni hjá KR.
Bebeto hetja Brasilíumanna
FRAMHERJINN Bebeto var hetja Brasilíumanna, er þeir sigruðu Bandaríkjamenn 1:0 í 16-liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar, á þjóðhátíðardegi Bandaríkja-
manna í gær. Hann gerði eina markið í seinni hálfleik, eftir sendingu frá Romario. Bebeto horfir hér á eftir knettinum framhjá Alexi Lalas varnarmanni og Tony
Meola markverði. I hinum leik gærdagsins sigruðu Hollendingar Ira 2:0. ■ Nánar um HM / C3 og C6-C9.
HESTAR: STÓRGLÆSILEGU LANDSMÓTI LOKIÐ / C10,11,12,13 OG 15
Pétur Pétursson stjórnar Keflvík-
ingum fyrst upp á Akranesi.
Bikar-
meist-
ararÍA
gegnKR
Austurbæjarliðin
Valur og Fram mæt-
ast í Laugardalnum
Bikarmeistarar ÍA taka á
móti KR-ingum í 16 liða
úrslitum bikarkeppninnar, en
dregið var í gær. Hörður Helga-
son, þjálfari ÍA, dró mótheija
liðs síns og var ánægður með
að hafa fengið heimaleik, en
sagðist frekar hafa viljað mæta
KR í úrslitum.
Leikurinn á Akranesi verður
föstudaginn 15. júlí, en þá mæt-
ast einnig Valur og Fram,
Grindavík og PH og KA og
Stjaman.
Kvöldið áður leika Breiðablik
og Keflavík, Víkingur og Þór,
Þróttur Reykjavík og ÍBV og
2. deildar liðin Leiftur og Fylkir.
Leikir í átta liða úrslitum bik-
arkeppni kvenna verða annað
kvöld. Þá leika Leiftur og Val-
ur, Sindri og ÍBV, Stjaman og
Breiðablik og Höttur og KR.