Morgunblaðið - 05.07.1994, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.07.1994, Blaðsíða 16
MM GOLF Fyrsti sig- ur Helga á stigamóti Herborg Arnarsdóttir sigraði Karenu í meistaraflokki kvenna HELGI Þórisson, Golfklúbbi Suðurnesja, gerði sér lítið fyr- ir og sigraði á opna Mitsubis- hi mótinu hjá Golfklúbbi Akur- eyrar um helgina — fyrsta stigamóti sumarsins til lands- liðs. Helgi hafði forystu eftir fyrri daginn, ásamt Björgvin Þorsteinssyni, GA. Þeir höfðu leikið á 72 höggum. Helgi lék svo á 74 höggum á sunnudag, samtals 146, og sigraði en Björgvin náði sér ekki á strik seinni daginn, og endaði í 15. sæti. Jafnir í öðru til þriðja sæti, með 147 högg, komu Sæmundur Pálsson og Sigur- jón Arnarsson, báðir GR. Sæ- mundur hafði betur í bráða- bana og náði öðru sætinu. Þess má geta að hann lék á 70 höggum seinni daginn, sem var besti árangur á ein- um hring í mótinu. Helgi Þórisson, sem komst upp í meistaraflokk í fyrrasumar, og hefur tekið miklum framförum frá því í fyrra var að sigra á fyrsta FráReyni stigamóti sínu. Eiríkssyni „Þetta var frekar á Akureyri erfitt mót og ég er mjög ánægður með árangurinn. Það er frábær æfing að koma hingað norður og spila fyrir Lands- mótið, ég er á uppleið og lít hýru augu til þess að koma hingað aft- ur og leika um íslandsbikarinn,“ sagði Helgi við Morgunblaðið í mótslok á sunnudag. 163 keppendur tóku þátt í mót- inu í sjö flokkum, og var keppni spennandi í flestum. Veðrið lék við keppendur, sól og blíða, um 20 stiga hiti og logn, báða keppnis- dagana. I kvennaflokki var það Herborg Arnarsdóttir, GR, sem fagnaði sigri. Hún lék á 155 höggum en í öðru sæti varð íslandsmeistarinn Karen Sævarsdóttir, GS, á 157 höggum. Þriðja varð Ragnhildur Morgunblaðið/Frostí Herborg hafði betur HERBORG Arnarsdóttir, t.v., og Karen Sævarsdóttir. Sú síðarnefnda hafði eins höggs forystu eftir fyrri dag, en Herborg sigraði með tveggja högga mun. Sigurðardóttir, GR, á 158 högg- um. Karen hafði forystu eftir fyrri dag, lék þá á 76 en Herborg not- aði 77. Seinni daginn lék Herborg á 78 höggum en Karen var langt frá sínu besta og fór á 81 höggi. Urslit / C13 FRJALSAR Ezinwa náði besta tímanum í 100 m íár Nígerímaðurinn Davidson Ez- inwa náði besta tíma ársins í 100 m hlaupi á alþjóðlegu frjáls- íþróttamóti í Linz í Austurríki í gærkvöldi. Ezinwa hljóp á 9,94 sek. Bandaríkjamaðurinn Dennis Mitchell varð annar á 9,97 og heims- og Ólympíumeistarinn Lin- ford Christie frá Bretlandi, sem var ósigraður á árinu, varð að láta sér lynda þriðja sætið. Christie hljóp á 10,03 sek. Ezinwa sigraði í sínum riðli í undanriðlum mótsins, var á undan Mitchell í mark á 9,98 sek. og bætti svo um betur í úrslitunum. Árangur hans þar er Afríkumet. Christie hljóp á 10,01 sek. í undan- riðlum, en fékk svo lakari tíma í úrslitahlaupinu. Hann neitaði að ræða við fréttamenn að hlaupinu loknu og strunsaði til búningsher- bergis. Derrick Adkins frá Bandaríkjun- um sigraði í 400 metra grinda- hlaupi á 47,70 sek. sem er besti tími sem náðst hefur í ár. Hann átti reyndar sjálfur besta árangur ársins þar til í gær. Mark McKoy, sem lengi keppti fyrir Kanada en fékk austurrískan ríkisborgararétt fyrir þremur vik- um, náði bestum tíma í heiminum í ár í 110 m grindahlaupi er hann fór vegalengdina á 13,15 sek. Það er jafnframt austurrískt met. A mótinu hljóp kona í fyrsta skipti undir 11 sek. í 100 m hlaupi í ár, og náðu reyndar tvær þeim árangri: Gwen Torrence frá Bandaríkjunum, sem sigraði á 10,89 sek., og Shanna Tarnop- olskaya frá Úkraínu, sem var 0,10 sek. á eftir. FOLK I ÓLI Barðdal, kylfíngur úr GSS, var aðeins 18 sentímetrum frá því að vinna sér inn utanlands- ferð á stigamótinu á Akureyri. Boltinn stöðvaðist 18 sentímetrum frá 11. holu eftir upphafshögg hans, en aukaverðlaun fyrir holu í höggi á mótinu var golfferð fyr- ir tvo til Portúgal, gefin af Heldi hf., umboðsmanni Mitsubishi á Akureyri, og Úrvali Útsýn. ■ ÞAR sem enginn fór holu í höggi á mótinu var ákveðið að draga golfferðina úr nöfnum allra keppenda. Eitt skilyrði var sett; að maðurinn yrði að vera í salnum. Það kom svo á daginn að fyrst var dregið upp nafn aðila sem ekki var viðstaddur, en Jóhann Pétur Andersen úr GA, reyndist sá heppni, þegar næst var dregið. ISI / AFREKSMANNASJOÐUR Magnús Scheving og Guð- mundur Stephensen styrktir Framkvæmdastjóm ÍSÍ stað- festi á síðasta fundi sínum tillögur Afreksmannasjóðs um styrki og var m.a. ákveðið að styrkja Magnús Scheving, þol- fímimann, um 250.000 krónur til endurgreiðslu á útlögðum kostn- aði vegna þátttöku í mótum og Guðmundur Stephensen, borð- tennismaður, fær 200.000 kr. ein- greiðslu til að standa undir kostn- aði vegna móta og æfíngabúða erlendis. Sjóðurinn styrkir auk þess 12 íþróttamenn á tímabilinu 1. júlí til 30. september og er Pétur Guðmundsson kúluvarpari, eini styrkþeginn í a-flokki, en hann fær 80.000 krónur á mánuði. Aðrir fá 40.000 krónur á mán- uði, en þeir eru Tryggvi Nielsen, badmintonmaður, fijálsíþrótta- mennirnir Sigurður Einarsson, spjótkastari, Vésteinn Hafsteins- son, kringlukastari, Einar Vil- hjálmsson, spjótkastari, og Jón Arnar Magnússon, tugþrautar- maður; golfmennirnir Úlfar Jóns- son og Siguijón Arnarsson; júdó- mennimir Vemharð Þorleifsson og Halldór Hafsteinsson og sund- fólkið Arnar Freyr Ólafsson og Eydís Konráðsdóttir. Sem fyrr eru styrkirnir til við- komandi sérsambanda en eyrnar- merktir íþróttafólkinu. FIMLEIKAR Evrópumót í trompfimleikum ÁKVEÐIÐ hefur verið að að halda Evrópumót ítrompfim- leikum til að koma til móts við smærri þjóðir, sem eiga litla sem enga möguleika á að vera á meðal þeirra fremstu á al- þjóða fimleikamótum. Þetta kom fram hjá Klaus Lotz, formanni Fimleikasambands Evrópu, á 12. ársþingi þess í Reykjavík um helgina. Lotz sagði að mikilvægt væri að styðja vel við bakið á almennum fímleikum, því um íþrótt við allra hæfi væri að ræða og miklu skipti að bera hag allra fyrir bijósti. Evrópa er ráðandi í fimleikum á heimsvísu og sagði Lotz tak- markið vera að auka enn útbreiðsl- una og vinsældirnar í álfunni. Til að gera það mögulegt yrði að gera íþróttina áhugaverðari fyrir áhorf- endur, starfa náið með fjölmiðlum og taka mið af þörfum þeirra, einkum sjónvarps. Hann sagði að mótin mættu ekki taka lengri tíma en tvær klukkustundir, einfalda þyrfti stigagjöfina og gera hana skiljanlegri fyrir áhorfendur. „Með auknum vinsældum fáum við fleiri styrktaraðila og þá verður upp- byggingin auðveldari viðfangs,“ sagði hann. Margrét Bjarnadóttir, formaður Fimleikasambands íslands, sagði að Islendingar hefðu í samvinnu við hin Norðurlöndin unnið að uppbyggingu trompfímleika og því væri samþykktin um Evrópumót í greininni mjög ánægjuleg. KNATTSPYRNA í Eyjum og á Akureyri Mikið fjör var bæði í Vestmanna- eyjum og á Akureyri um helg- ina, þegar árleg pollamót í knatt- spyrnu fóru fram á Akureyri í 5. flokki í Eyjum í 6. flokki. I Eyjum fögnuðu FH-ingar sigri í keppni A- og C-liða en Fylkismenn í keppni B-liða. A Akureyri sigruðu Valsmenn í keppni A-liða, Framarar í B, ÍBK í C og Þórsarar frá Akureyri í keppni D-liða. • Úrslit frá báðum mótum eru í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag, á bls. C 13, en nánar verður fjallað um mótin í íþróttablaðinu á morgun. GETRAUNIR: 121 211 121 12X1 LOTTO: 10 12 15 29 37 + 25

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.