Morgunblaðið - 05.07.1994, Qupperneq 4
4 C ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA
4 • - í '
MIÉi
l ií »
Sigurmarki fagnad
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
KRISTRÚN Lilja Daðadóttir tryggði Breiðabliki 1:0 sigur gegn bikarmeisturum ÍA og fagnar hér marki sínu, sem hún skoraði á 73. mínútu, með tilþrifum.
Breiðablik enn á sigurbraut
BREIÐABLIKSSTÚLKUR halda enn forystunni í 1. deild kvenna
eftir að hafa lagt ÍA að velli, 1:0, á Kópavogsvelli sl. laugardag.
KR vann Dalvík 6:1, Valur vann Hött 8:0 og Haukar unnu Stjörn-
una 9:1.
rátt fyrir að hafa átt leikinn frá
fyrstu mínútu þá ætlaði það
ekki að ganga þrautalaust fyrir sig
^^^^1 hjá Kópavogsfljóð-
j um að koma knett-
Benediktsson inum 1 markið og
skritar trygg]a ser stigm
þijú. Þær léku oft
mjög lipurlega saman úti á vellin-
um, en þegar nær kom markinu
voru þeim mjög mislagðar fætur
svo og var sterkur markvörður ÍA,
Steindóra Steinsdóttir, óþægur ljár
í þúfu. Kristrúnu Daðadóttur urðu
þó engin mistök á, þegar hún komst
á auðan sjó á 73. mínútu, eftir
fallega sendingu frá Sigrúnu Ott-
arsdóttur, og skoraði af _ öryggi
framhjá Steindóru í marki ÍA.
Breiðabliksliðið byrjaði leikmn af
miklum krafti og Margrét Ólafs-
dóttir fékk upplagt tækifæri strax
á fjórðu mínútu eftir að hafa ptjón-
að sig í gegnum vörn ÍA, en skot
hennar fór yfir. í kjölfarið fylgdu
þungar sóknir Breiðabliks en án
árangurs. Liðsmenn ÍA fengu litla
möguleika á að byggja upp sóknir,
því þær voru yfirleitt á bak aftur
brotnar af sterkri miðju Breiðabliks.
ÍA stúlkur komu ákveðnari til
leiks í seinni hálfleik og reyndu
hvað þær gátu til þess að skapa sér
færi, en sterk vörn Breiðabliks
stöðvaði flest ’það sem í gegnum
miðjuna komst. Eina færi IA kom
á 67. mínútu, þegar varnarmanni
Breiðabliks tókst ekki að hreinsa
frá marki og Aslaug Akadóttir náði
til boltans og reyndi skot frá mark-
teig, sem Sigfríður Sophusdóttir í
marki Breiðabliks varði í horn.
Breiðablik fékk mörg tækifæri
til þess að skora fyrir og eftir mark
Kristrúnar, en allt kom fyrir ekki.
Mikil hætta skapaðist oft þegar
Ásta B. Gunnlaugsdóttir var að
geysast upp hægri kantinn og gefa
fyrir markið. Ur einu slíku upp-
hlaupi fékk Olga Færseth þijú færi
í sömu sókninni, en Steindóra varði
í tvígang og vörnin einu sinni.
Sannfærandi sigur
Fylkis í Árbænum
ÁRBÆINGAR unnu sinn þriðja leik \ röð í 2. deildinni á laugardag-
inn, þegar lið þeirra lagði KA-menn að velli f Árbænum, 2:0.
Veðrið var frábært og höfðu leikmenn á orði að þeir hefðu feng-
ið „HM tilfinningu" þvíveðrið var frábært og hitinn mikill. Heima-
menn voru mestallan leikinn betri aðilinn og hefði sigurinn þess
vegna getað orðið stærri.
Létthjá
Lefftri
LEIFTUR sigraði Víking 3:0 í
léttum og skemmtilegum leik á
Ólafsfirði á laugardaginn.
Víkingar byijuðu af krafti og
náðu að skapa tvívegis hættu
við mark Leifturs, en færin runnu
út í sandinn. Eftir
Sigurður Það náðu Leifturs-
Björnsson menn yfirhöndinni
skrifar frá og héldu henni út
Ólafsfirði leikin. Fyrsta mark-
ið skoraði Gunnar
Már Másson á 33. mínútu, en seinni
tvö komu í síðari hálfleik. Sverrir
Sverrisson skoraði á 70. mínútu og
Páli Guðmundsson bætti því þriðja
við á 85. mínútu.
Sigur Leifturs var verðskuldaður,
en leikurinn var léttur og skemmti-
legur og oft ágætlega spilaður af
beggja hálfu. Bestur í iiði Víkinga
var Hörður Theódórsson sem gerði
oft góða hluti. Hjá Leiftursmönnum
stóð Gunnar Már Másson sig einna
best.
Gestirnir byijuðu með látum en
aðeins fyrstu mínúturnar. Þá
komust heimamenn inní leikinn og
sóttu upp kantana
Stefán en fyrsta skot að
Stefánsson marki kom ekki fyrr
skrifar en eftir hálftíma leik
og voru þá Fylkis-
menn að verki. Fyrra mark Fylkis
kom á 39. mínútu upp úr snöggri
sókn upp hægri kantinn er boltinn
barst síðan útí teig þar sem Ólafur
Stígsson kom aðvífandi og þrumað
í markið en boltinn kom fyrst við
varnarmann KA. Kristinn Tómas-
son átti frábært skot að marki rétt
fyrir leikhlé þegar hann snarsneri
sér á punktinum rétt utan vítateigs
og skaut en Eggert Sigmundsson
markvörður KA varði upp við efra
markhornið.
Sóknarþungi Árbæinga jókst eft-
ir hlé og á 61. mínútu komst Þór-
hallur Dan Jóhannsson enn upp
hægri kantinn og eftir örlítið dund-
ur inní markteig þrumaði hann upp
í þaknetið. Gestimir fengu síðan tvö
góð íæri en tókst ekki að nýta þau.
„Ég er ánægður með þetta; þijú
stig á leiðinni upp, en þangað er
stefnt. Við höfðum undirtökin mest-
allan leikinn og áttum að gera fleiri
mörk. Það er stígandi í þessu hjá
okkur en erfiðir leikir framundan,“
sagði Aðalsteinn Víglundsson Fylk-
ismaður sem var mjög góður í leikn-
um og hefur vaxið með hvetjum
leik. Ásgeir Ásgeirsson, Þórhallur
Dan, Kristinn og Ingvar Ólason
vom einnig góðir.
„Þetta var sanngjam sigur. Við
spiluðum ekki vel eftir fyrri hálfleik-
inn og vorum allan tímann heldur
á eftir í boltann. Með smáheppni
hefðum við getað skorað mark eða
mörk en það hefði líka getað farið
á hinn veginn og þeir skorað enn
fleiri. Annars erum við að fá of
mörg mörk á okkur og glutrum
leikjum þar sem við erum jafnvel
betri aðilinn," sagði Erlingur Krist-
jánsson þjálfari KA eftir leikinn.
Stefán Þórðarson og Bjarni Jónsson
voru með betri mönnum KA.
Jafntefli
hjá Þrótti
og Þrótti
eystra
ÞRÓTTUR Neskaupstað tók á
móti nafna sínum úr Reykjavík
á laugardaginn. Nafnarnir
skiptu stigunum bróðurlega á
milli sín þegar upp var staðið,
leikurinn endaði með jafntefli
2:2.
Heimamenn komust yfir á 15.
minútu er Zoran Zikic skoraði
úr vítaspyrnu. Tíu mínútum síðar
fækkaði um einn á
Magnús vellinum, er Ólafi
Brandsson Viggóssyni Þrótti
skrifarfrá Nes. var vikið af
Neskaupstað leikvelli fyrir að
sparka niður andstæðing. Þrátt fyr-
ir það bættu heimamenn við marki
áður en gestirnir komust á blað,
og var þar að verki Lúðvík Arnar-
son á 55. mínútu.
í síðari hálfleik kom Haukur
Magnússon inn á hjá Þrótti Reykja-
vík sem varamaður og átti hann
eftir að setja mark sitt á leikinn.
Hann minnkaði muninn á 65. mín-
útu og skoraði síðan jöfnunarmark-
ið þegar fimm mínútur voru til leiks-
loka.
Úrslitin voru sanngjörn þegar á
heildina er litið. Heimamenn voru
betri í fyrri nálfleik, en gestirnir
pressuðu stíft í þeim síðari. Kristján
Svavarsson var traustur í liði
heimamanna, en hjá Þrótturum frá
Reykjavík var Ágúst Hauksson
áberandi bestur.
Auðveld
ur sigur
hjá Grind-
víkingum
GRINDVÍKINGAR áttu ekki í
erfiðleikum með Selfyssinga í
2. deildinni í Grindavík á laug-
ardaginn. Þeir unnu 3:0 og mið-
að við færi voru þeir nær því
að auka muninn en Selfyssing-
ar að minnka hann.
Eg er mjög ánægður með leikinn
og nú spiluðu strákarnir bolta
eins og ég vil sjá. Boltinn gekk vel
milli manna en ekki
Frímann kýlingar eins og
Ólafsson hafa verið áður,“
skrifar frá sagði Lúkas Kostic
Grindavik þjálfari Grindvík-
inga en hann spilaði allan leikinn
sjálfur. Hann gerði nokkrar breyt-
ingar á liðinu frá því sem hefur
verið. Milan Jankovic spilaði á miðj-
unni og kom það vel út því hann
hélt boltanum vel og skapaði spil á
miðjunni. Þá komu tveir ungir
strákar inn í byijunarliðið sem skil-
uðu sínu vel.
„Ég vil líka gefa ungu strákunum
tækifæri því annars fá þeir ekki
reynslu og ég var mjög ánægður
með þá Jón Frey [Magnússonj og
Óla Stefán [Flóventssonj.“ Þeir
tveir spiluðu þarna sinn fyrsta heila
leik með meistaraflokki og Óli Stef-
án skoraði mjög gott mark í leikn-
um. Vondu fréttirnar fyrir Grinda-
vík eru að Þorsteinn Guðjónsson er
ristarbrotinn og missir væntanlega
af næstu tveimur leikjum Grinda-
víkurliðsins.