Morgunblaðið - 05.07.1994, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994 C 7
HM í KNATTSPYRNU
Rúmenar komnir í átta
liða úrslit í fyrsta sinn
Sigruðu stórskemmtilegt lið Argentínumanna 3:2 í frábaerum leik
RÚMENÍA leikur í átta liða úrslitum HM ífyrsta sinn eftir 3:2
sigur gegn Argentínu í Pasadena ífyrrakvöld. Leikurinn var mjög
góður, en Rúmenarnir llie Dumitre og Gheorghe Hagi reyndust
Argentínumönnum of erfiðir.
Argentína hefur þrisvar leikið til
úrslita í síðustu fjórum mótum
og liðið reyndi hvað það gat til að
jafna metin eftir að Rúmenía komst
í 3:1. Hins vegar lagði Rúmenía allt
kapp á að halda fengnum hlut og í
lokin fóru Dumitre og Hagi af velli,
þegar áhersla var lögð á vömina.
„Þetta er stærsti viðburður, sem
þjóð okkar hefur fagnað síðan í bylt-
ingunni," sagði Anghel Iordanescu,
þjálfari Rúmeníu. „Það er engin
spurning að þetta er stærsta stundin
í knattspymusögu Rúmeníu. „Leik-
mennirnir vom frábærir og samleik-
ur þeirra var eins og best verður á
kosið. Það er ekkert, sem ég get
■ TVEIR áhangendur argent-
ínska liðsins vom handteknir eftir
leikinn við Rúmeníu á sunnudag,
eftir að slagsmál brutust út fyrir
utan leikvanginn, og eiga á hættu
að verða reknir úr landi.
■ RÚMENAlR flykktust þúsund-
urrt saman út á götur höfuðborgar-
innar Búkarest, eftir að landslið
þjóðarinnar hafði slegið Argentínu
út úr heimsmeistarakeppnninni.
„Bless Argentína, Svíþjóð þú ert
næst,“ söng fólkið, og dansaði af
gleði. Rúmenar mæta Svíum í átta
liða úrslitum næsta sunnudag.
■ BELGÍSK dagblöð vom allt
annað en hress með frammistöðu
svissneska dómarans eftir leikinn
við Þýskaland á laugardag. Le Soir
sagði Kurt Röthlisberger ekki
hafa sýnt mikil merki um hlutleysi
í seinni hálfleiknum, og verst þótti
þegar hann sleppti því að dæma
vítaspyrnu, þegar Thomas Helmer
braut á Josip Weber, sem kominn
var einn í gegn í teignum. „Víta-
spyma var óumdeilanleg. Það er
hneyksli að hún skyldi ekki dæmd,“
sagði La Demiere Heure. Blaðið
bætti reyndar við að frammistaða
dómarans hefði ekki ráðið úrslitum
í leiknum, því Þjóðverjar hefðu
verið betri.
■ FLORIN Raducioiu, miðherji
Rúmeníu, var á kunnuglegum stað
meðan leikurinn við Argentínu fór
fram; á varamannabekknum. Kapp-
inn er liðsmaður AC Milan og eyddi
mestum hluta síðasta keppnistíma-
bils á bekknum, þar sem hann
komst ekki í liðið. Hann var hins
vegar í banni á sunnudaginn.
■ BERTI Vogts, landsliðsþjálfari
Þýskálands gagnrýndi ítalska fé-
lagið Roma harðlega um helgina,
fyrir „þræiahald" varðandi lands-
liðsmanninn Thomas Hássler, sem
hefur verið einn besti maður Þýska-
lands í HM. Hássler hefur verið
hjá Roma'undanfarin ár, en samn-
ingurinn hefur ekki verið endurnýj-
aður, og félagið hefur farið fram á
a.m.k. 5 milljónir dollara fyrir hann;
andvirði 350 milljóna króna.
■ VOGTS sagðist telja að FIFA
ætti að blanda sér í málið. „Það er
ekki hægt að binda leikmann svona;
setja á hann 10 milljónir marka
[5-6 millj. dollara], annars verði
ekki samið.“
sagt þeim að bæta.“ Hann sagði að
í leik á þessu plani væri mikilvægt
að ná andlegum yfírburðum og það
hefði Rúmenía gert. „Eftir að Arg-
entína hafði byijað mjög vel skoruð-
um við og vorum fljótir að bæta
öðru við eftir að þeir höfðu jafnað.
Það var mikilvægt sálfræðilega og
þar höfðum við betur.“
Claudio Caniggia lék ekki með
Argentínu vegna meiðsla og Diego
Maradona aðstoðaði við sjónvarps-
lýsingu, en þetta var í fyrsta sinn
síðan 1982, sem Argentína kemst
ekki lengra. „Það er ekki við strák-
ana að sakast," sagði Maradona.
„Þeir gerðu það sem þeir gátu til
Argentínumaðurinn var svekktur
og sár í viðtali við argentíska
blaðið Clarin: „Ég er hættur í knatt-
spymu fyrir lífstíð. Ég er fyrrum
leikmaður. Ég tók upp þráðinn á ný
til að leika í fjórðu heimsmeistara-
keppni minni og lagði mikið á mig,
en endirinn var slæmur. Nú vil ég
vera með fjölskyldu minni eins mik-
ið og mögulegt er.“
Maradona sagði að FIFA hefði
tekið of hart á málinu. „Þetta var
ekki svo alvarlegt. Það er satt að
ég gerði mistök, en það hefði verið
að jafna, en ég held að þeir hafi
verið andlega niðurbrotnir eftir allt
sem á undan hefur gengið. Ég vil
segja félögum mínum að þeir gerðu
allt og það skal enginn dirfast að
segja að þeir hafi ekki staðið sig á
vellinum. Okkur tókst þetta ekki
vegna þess að ég var tekinn af vellin-
um fyrir leikinn gegn Búlgariu. Ég
finn til með öllum Argentínumönn-
um, sem áttu sér drauma og öllum
þeim, sem elska knattspyrnu. Þeir
sigruðu okkur ekki innan vallar held-
ur utan.“ Hann var samt ekki alveg
á sama máli í lýsingunni. „Þetta lið
lítur ekki út fyrir að vera það sama
og ég æfði og lék með,“ sagði hann,
þegar Rúmenía tók forystuna í fyrri
hálfleik. „Leikmennirnir, einkum
varnarmennirnir, leika eins og þeir
þekki ekki stöður sínar á vellinum."
Alfio Basile, þjálfari Argentínu,
hægt að leysa málið á annan og
vægari hátt. En af því að Maradona
á í hlut er allt lagt út á versta veg.“
Julio Grondona, forseti Knatt-
spyrnusambands Argentínu, sagði
að persónulegur næringaráðgjafi
Maradona, Daniel Cerrini, hefði „út-
búið pillurnar, sem enduðu með þess-
ari skelfingu. Sem formaður er ég
ábyrgur fyrir öllu, sem gerist innan
liðsins, en ég get ekki fylgt öllum
leikmönnum á salernið. Þeir vita
hvað þeir eru að gera.“
Maradona hefur oft sagt að hann
sagði að næsta skref væri að pakka
saman. „Þetta er ekki rétti tíminn
til að tala. Þetta er búið. Mestu sár-
indin eru núna. Gengið hefur verið
frá liðinu á tveimur dögum.“ Hann
sagði að leikurinn hefði verið erfiður
fyrir menn sína. „Við lékum vel eft-
ir að þeir skoruðu, en það var of
seint." Um vonbrigði Argentínu
sagði hann: „í byijun keppninnar
gekk allt vel, en sama var ekki upp
á teningnum síðar eins og allir vita.
Þrátt fyrir að missa tvær stórstjörn-
ur náðum við að stilla strengina.
Við gáfum allt sem við áttum og ég
er mjög hreykinn af liðinu."
Maradona sagðist ætla heim með
liðinu. „Ég vil fara heim með strák-
unum. ’82 fór ég heim eftir mikla
niðurlægingu, ég fór með þeim ’86
og ’90 og ætla ekki að vera fjar-
staddur ’94.“
væri hættur, en að þessu sinni mátti
skilja að ekki yrði aftur snúið. „Það
sem særir mig mest er að stærsti
draumur minn hefur verið tekinn frá
mér. Ég vildi verða meistari með
Argentínu og vera sá leikmaður, sem
hefði leikið flesta leiki í sögu úrslita-
keppni HM. En við Daniel gerðum
mistök. Við gleymdum að að segja
Ugalde [liðslækninum] frá meðölun-
um, sem ég var á. En ég hef aldrei
þurft lyf til að leika. Mér líður eins
og þegar ég var upp á mitt besta
og tók meira að segja þá áhættu
að leika á Nígeríumennina, sem eru
mjög sterkir og fljótari en ég.“ Hann
sagðist hafa tekið banninu 1991
þegjandi, en ekki væri hægt að bera
málin saman. „Allir vita að það var
annað mál. Þetta er óréttlæti, því
mistök mín voru léttvæg, en þeir
láta mig borga mjög hátt verð fyrir,“
Argentína
þáognú
Mikil breyting á
liðinu frá 1990
Argentínumenn komust að því
í Bandaríkjunum að menn
komast ekki endilega langt á því
að vera góðir við mótheijann.
F>rir fjórum árum fengu þeir það
orð á sig að vera ruddalegir, við-
mót þeirra var neikvætt og stöð-
ugt voru þeir að jagast í dómur-
um, en þá léku þeir til úrslita.
Að þessu sinni þóttu þeir leika
einna skemmtilegustu sóknar-
knattspymuna, sem áhorfendur
kunnu vel að meta, fengu 50
aukaspymur dæmdar á sig gegn
85, misstu engan mann út af með
rautt spjald og mótmæltu yfirieitt
ekki dómum, en duttu út í 16 liða
úrslitum.
1990 léku þeir tvo markalausa
leiki og fengu fleiri gul spjöld en
nokkurt annað lið í keppninni.
Þegar að úrslitaleiknum kom voru
margir á hálum ís og þeir brutu
blað í sögu úrslitaleiks á HM,
þegar tveir leikmannanna fengu
að sjá rauða spjaldið, en það var
í fyrsta sinn, sem
mönnum var vikið af
velli í úrslitaleik HM.
Heppnlr 1990
Heppnin var með
Argentínumönnum
1990. Þá unnu þeir
Brasilíumenn 1:0 í 16
liða úrslitum og sluppu
með skrekkinn, en mót-
heijamir áttu m.a. þijú
skot í rammann. Sigur
vítaspymukeppni
fleytti þeim í gegnum
átta liða úrslit og und-
anúrslit, en að þessu
sinni lék lánið ekki við
þá. Diego Maradona
var settur í ótímabund-
ið keppnisbann eftir að
hafa fallið á lyfjaprófí
og Claudio Caniggia
gat ekki leikið gegn
Rúmeníu í 16 liða úr-
siitum vegna meiðsla.
En liðið barðist vel og
féll með sæmd.
Angel lordanescu,
þjálfari Rúmeníu, dáð-
ist af leik Argentínu-
manna. „Þrátt fyrir að
vera úr leik lék Arg-
entína mjög vel og lið-
ið er eitt hið besta í
heiminum."
Basile svekktur
Alfío Basile, þjálfari
Argentínu, var að von-
um svekktur. „Fjarvera tveggja
stórstjama var mikið áfall, en ég
er mjög ánægður með leikmenn
mina. Við töpuðum með sæmd
og meira er ekki um það að
segja."
ArgentSnumenn fengu mikla
samúð vegna banns Maradona.
„Hann fórnaði gríðariega miklu
til að komast hingað, náði að
byggja sig upp, lék vel og svo
gerist þetta," sagði Gerson, fyrr-
um landsliðsmaður Brasilíu.
„Hann hlýtur að þjást mikið."
Leikmennimir viðurkenndu að
málið varðandi Maradona hefði
haft slæm áhrif, en neituðu að
kenna því um hvemig fór. „Á
íjórum dögum hafa allir góðu
hlutirnir, sem við höfum gert,
fallið í skuggann fyrir þessu,“
sagði Oscar Ruggeri, sem tók við
fyrirliðastöðunni. „Ég er sár eins
og allir Argentínumenn, en við
náðum okkur á strik aftur. Það
var sterkt að hafa Maradona í
liðinu, en fjarvera hans útskýrir
ekki tap okkar."
Argentínumenn vom ekki sátt-
ir við að falla úr keppninni. „Við
lékum vel og töpuðum með
sæmd,“ sagði miðjumaðurinn Di-
ego Simeone, „en ég vildi frekar
spila illa og sigra samt.“
Reuter
Gheorghe Hagl, leikstjórnandinn í liði Rúmeníu, fagnar eftir að hafa gert þriðja og síðasta markið gegn Argentínu
með þmmuskoti úr teignum eftir frábæra skyndisókn; sigurmarkið, sem kom liði hans í átta liða úrslit HM í fyrsta skipti.
Maradona viðurkenndi
mistök og er hættur
DIEGO Maradona, einn fremsti knattspyrnumaöur sögunnar,
viðurkenndi um helgina að hafa gert mistök i sambandi við
lyf janeyslu og sagðist vera hættur í knattspyrnu. Hann áréttaði
samt að of hart hefði verið tekið á broti sfnu, því hann hefði
fallið á lyfjaprófi fyrir að taka meðal, sem fæst án lyfseðils. „Ég
tók það eins og fólk tekur aspirín og þúsundir leikmanna gera
það.“