Morgunblaðið - 05.07.1994, Page 9
8 C ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
HM I KNATTSPYRNU
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994 C 9
■ EINNAR mínútu þögn var fyrir
HM-leikina á laugardag til að minn-
ast Andres Escobars, sem var
myrtur í Medellin fyrir að hafa
gert sjálfsmark í leik Kólumbíu
Segn Bandaríkjunum.
I LOTHAR Matthaus, fyrirliði
Þýskalands, var tæpur vegna
meiðsla fyrir leikinn gegn Belgum
og lék aðeins fyrri hálfleik.
■ ANDONI Zubizaretta, mark-
vörður, lék á laugardag 90. lands-
leik sinn fyrir Spán.
■ MARTIN Dahlin er kominn
með fjögur mörk í HM og hefur
enginn Svíi gert fleiri í úrslita-
keppni HM. Kurt Hamrin og Agne
Simonsson voru með fjögur mörk
hvor 1958, þegar Svíar léku um
gullið, og Ralf Edstrom náði fjórum
mörkum 1974.
■ THOMAS Ravelli, markvörður
Svía, leikur 115. landsleik sinn í
undanúrslitum og jafnar þar með
landsleikjamet Svia, en varnarmað-
urinn Björn Nordquist lék 115 leiki
og var það lengi heimsmet.
■ DANIEL Passarella hefur ver-
ið nefndur sem næsti landsliðsþjálf-
ari Argentínu, en talið er víst að
Alfio Basile verði ekki endurráðinn.
Altalað hefur verið í Buenos Aires
síðustu mánuði að Julio Grondona,
forseti knattspymusambands Arg-
entínu, hafi viljað fá Passarella
sem landsliðsþjálfara.
■ PASSARELLA var fyrirliði
heimsmeistara Argentínu 1978.
Hann lék með River Plate og síðar
Fiorentina og Inter Milan á Italíu
og hefur þjálfað River Plate að
undanfömu með góðum árangri; lið-
ið hefur orðið Argentínumeistari
þrisvar á síðustu fímm árum.
■ BASILE, sem tók við af Bilardo
eftir HM 1990, sagði fyrir keppnina
að alvarlegt væri að gera mistök
sem þjálfari félagsliðs, en 10 sinnum
alvarlegra, þegar um landslið væri
3,0 r06ð&
■ LEIKURINN gegn Rúmeníu á
sunnudag var að öllum líkindum
síðasti landsleikur Oscars Ruggeri,
fyrirliða Argentínu. Hann á 98
landsleiki að baki, fleiri en nokkur
Argentínumaður.
■ ARGENTÍNA hefur aldrei tap-
að leik fyrir Búlgaríu og Rúmeníu
fyrr en nú í HM.
■ SKOÐANAKÖNNUN sem dag-
blaðið Los Angeles Times gerði
meðal íbúa í Los Angeles gerði í
síðustu viku, sýnir að um tveir þriðju
íbúa í borginni hefur afskaplega lít-
inn áhuga á HM í knattspyrnu, en
úrslitaleikur keppninnar verður ein-
mitt leikinn í borginni. Yngra fólk
er þó mun áhugasamara en það
eldra, karlmenn höfðu meiri áhuga
en konur, og þeir Bandaríkjamenn
sem rætur eiga að rekja til Spánar
voru áberandi áhugasamastir.
■ KÖNNUNIN sýndi að um þriðj-
ungur hafði ekki séð einn einasta
leik í sjónvarpi, tæplega fjörutíu
prósent höfðu séð eitthvað af keppn-
inni, en um 14 prósent fylgdust með
af miklum áhuga. Yfir heildina lýstu
60 prósent því yfir að áhugi þeirra
fyrir keppninni væri lítill, en rúmlega
helmingur aðspurðra á aldrinum 18
til 29 ára sagðist hafa áhuga á
keppninni. Þrátt fyrir lítinn áhuga
íbúa á svæðinu hefur verið uppselt
eða svo gott sem á alla leikina á
Rose Bowl vellinum I Pasadena í
Los Angeles til þessa.
■ PANTANIR á pappír, frátveim-
ur pappírsverksmiðjum í Svlþjóð,
hafa aukist gríðarlega upp á síðkast-
ið, vegna útgáfu aukablaða um
heimsmeistarakeppnina, á vegum
dagblaða víðs vegar um heiminn.
Timbrið sem þarf í þann pappír, sem
pantaður hefur verið aukalega í
HM-blöðin, nemur því, að sögn for-
ráðamanna verksmiðjanna, að 500
flutningabílar, 24 metra langir, yrðu
fylltir af trjástólpum...
HM IKNATTSPYRNU
+
Maradona átrúnadargoð
89% Argentínumanna
Diego Maradona er átrúnaðar-
goð 89% Argentínumanna
samkvæmt skoðanakönnum argen-
tíska dagblaðsins Clarin. Spurt var:
Er Diego enn átrúnaðargoð? 8,8%
svöruðu nei og 2,2% voru óákveðnir.
40,8% aðspurðra trúðu að Mara-
dona hefði tekið lyfið ephedrine og
önnur skyld efni á bannlista FIFA
án þess að gera sér grein fyrir hvað
hann var að gera og 37,2% sögðu
að hann hefði aðeins verið að reyna
að ná sér af kvefi. 13,3% töldu
hann hafa tekið lyfin til að styrkja
sig og efla, en 8,7% sögðust ekki
vita hvers vegna hann tók þau.
Carlos Menem, forseti Argent-
ínu, hélt upp á 64 ára afmæli sitt
á laugardag og sagðist vera tilbúinn
að skerast í málið hjá FIFA og biðja
um vægan dóm. Hann sagðist eiga
von á hringingu frá Maradona, sem
myndi óska eftir hjálp, og bað þjóð-
ina að gera það sem hún gæti fyrir
hann. „Það minnsta, sem Argent-
ínumenn geta gert fyrir þennan
mann, sem er aðeins 33 ára, dóttur
hans, eiginkonu og foreldra, er að
aðstoða hann við að sigrast á
vandamálum sínum.“
Knattspymuleiðtogar for-
dæma morðið á Escobar
Rudi „gamliá<
Völler hetja
Þýskalands
Maradona
leik írlands og Mexíkó og hefur
verið safnað fyrir sektinni í ír-
landi, en Charlton ætlar að gefa
upphæðina, sem var sögð kominn
í sem samsvarar um 10,5 millj.
kr., til góðgerðarmála. „Auðvitað
á ég ekki þessa peninga, en ef
til vill gef ég fjölskyldu leik-
mannsins einhverjar krónur ef
hún þarfnast þeirra.“
Miguel Mejia Baron, þjálfari
Mexíkó, var á sama máli og aðr-
ir. „Þetta er sorglegt, en leiðir
hugann að því í hvers konar heimi
við búum og hvert við stefnum.“
Framherjinn Luis Alves sagði
morðingjana ógeðfellda og allt
liðið hefði af þessu áhyggjur. „Ég
vona að svona gerist aldrei í
Mexíkó. Við erum ástríðufullir en
ekki öfgafullir."
Cesar Gaviria, forseti Kólumb-
íu, sagði þjóðarsorg í landinu og
borgarstjórinn og lögreglan í
Medellin buðu sem samsvarar um
60 millj. kr. í verðlaun fyrir upp-
lýsingar, sem leiddu til handtöku
morðingjanna. Strax á sunnudag
hafði einn játað á sig verknaðinn,
en leitað var að karli og konu,
sem talin voru samsek. Útför
Escobars var gerð á sunnudag
og fylgdu 6 þúsund manns honum
til grafar.
Reuter
Marco Pascolo, markvörður Sviss, handsamar knöttinn örugglega í leiknum
gegn Spánverjum. Það er Fernando Ruiz-Hierro, sem gerði fyrsta mark leiks-
ins, sem sækir að honum. Fyrir miðju er vamarmaðurinn Alain Gaiger.
ALÞJÓÐA knattspyrnusam-
bandið, FIFA, fordæmdi
morðið á kólumbíska knatt-
spyrnumanninum Andres
Escobar ítilkynningu, sem
send var út á laugardag.
Ódæðið kallaði á ámóta við-
brögð víðs vegar í knatt-
spyrnuheiminum.
Escobar var myrtur aðfararnótt
laugardags skömmu eftir að
hann gekk út af veitingastað í
Medellin. Hann var skotinn tólf
skotum og lést á sjúkrahúsi stuttu
síðar. Ástæðan var talin vera
sjálfsmark, sem hann gerði í leik
gegn Bandaríkjunum.
I tilkynningunni fordæmdi
FIFA verknaðinn og vonaði að
brotamennirnir yrðu leiddir fyrir
dómstóla, en vottaði íjölskyldu
hins látna, vinum og Knatt-
spymusambandi Kólumbíu sam-
úð sína fyrir hönd allra í hreyfing-
unni.
Skipuleggjendur HM í Banda-
ríkjunum sendu frá sér tilkynn-
ingu á sömu nótum og Arrigo
Sacci, þjálfari Ítalíu, sagði ódæðið
vera mjög alvarlegt mál. „Knatt-
spyma er eitthvað sem hefur jafn-
vel meiri áhrif á fólk en við höld-
um. Við verðum að vita hvernig
Frakklandi, en var á allra
vömm í Þýskalandi um helg-
ina. Hann var hreint óstöðv-
andi gegn Belgum og bjarg-
aði andliti Þýskalands og
starfí Vogts.
„Allt liðið var ánægt með
hann,“ sagði miðjumaðurinn
Thomas Hássler. „Það var
ótrúlegt að sjá yfirferðina hjá
honum 34 ára gömlum."
Jurgen Klinsmann átti
einnig stórleik. „Þetta var
eins og í gamla daga með
Rudi og ég er ánægður með
hann.“
„Ég átti ekki von á að leika
alla leikina," sagði hann, „en
ég vissi að þegar ég fengi
tækifærið gæti ég hjálpað lið-
inu. Miðherjar eru dæmdir
eftir mörkunum og þó þettá
hafí ef til vill ekki vcrið mitt
besta var ég mjög nálægt
því.“
Reuter
Andres Escobar á æfíngu fyrir
leikinn afdrifaríka við Bandaríkin.
við getum haft áhrif á skoðanir
almennings.“
Jack Charlton, þjálfari írlands,
sagði alla í hópnum sára og
hrygga. „Hver vill leika landsleik
ef maður á á hættu að verða
myrtur fyrir það?“ spurði hann.
„Það er ótrúlegt að fólk geri
svona og það er hræðilegt.“
Charlton var sektaður um 20.000
svissneskra franka (um eina millj'.
kr.) fyrir óprúðmannlega fram-
komu við dómara og línuverði í
BERTI Vogts, landsliðs-
þjálfari Þýskalands, var
víða gagnrýndur, þegar
hann bætti Rudi Völler í
hópinn á síðustu stundu.
„Gleymdu því, hann er of
gamall og útbrunninn,"
sögðu sumir. En Völler,
sem er 34 ára og hætti
með landsliðinu f október
1992, sannaði tilverurétt
sinn, þegar hann fór á
kostum gegn Belgum og
gerði tvö mörk í 3:2 sigri
í 16 liða úrslitum HM.
Völler, sem lék fyrst fyrir
Þýskaland 1982, hand-
leggsbrotnaði í Evrópukeppn-
inni í Svíþjóð og dagar hans
í landsliðinu virtust taldir, en
hann lék einn vináttuleik um
haustið og kvaddi síðán
landsliðið og stuðningsmenn-
ina. Síðustu sjö árin hefur
hann leikið á Ítalíu og í
Reuter
Völler fór á kostum
RUDI Völler kom inn í lið Þjóðveija gegn Belgum og gerði gæfumuninn. Á
efri myndinni er knötturinn á leið í netið þrátt fyrir góða tilraun Preud’homme
til að veija, og á þeirri neðri fagnar Völler eins og hann er þekktur fyrir.
Azkargorta fór fínt í að
skamma dómarann
XABIER Azkargorta, hinn spænski þjálfari Bolívíu-
manna, fór fínt í það að gagnrýna mexíkanska
dómarann Arturo Carter Brizio, sem rak Marco
Etchevarry út af í fyrstu umferð HM í Bandaríkjun-
um. Etchevarry kom inn á sem varamaður og hafði
aðeins verið á vellinum í þijár mínútur er Mexíkan-
inn sýndi honum rauða spjaldið. „Það er ein af
grundvallarreglum mínum að gagnrýna aldrei dóm-
ara og ég geri ekki undantekningu á því vegna
þessa hálfvita," sagði þjálfarinn!
Heimsmet: útvarpað frá
HM allan sólarhringinn
FORRÁÐAMENN annarrar stærstu útvarpsstöðvar
Kólumbíu, RCN, halda því fram að þeir hafi sett
heimsmet. Stöðin hefur útvarpað efni um HM í
Bandaríkjunum allan sólarhringinn; 19 klukku-
stundir hafa verið í beinni útsendingu: lýsingar á
leikjum, viðtöl við leikmenn, þjálfara, forráðamenn
landsliðanna og keppninnar og blaðamenn, og 5
klukkustundir á sólarhring hveijum — frá mið-
nætti til klukkan 5 að morgni — hefur verið sent
út alls kyns annað eftii um HM. 45 fréttamenn
starfa við útsendinguna, sem sögð er kosta eina
og hálf milljón dollara; andvirði 105 milljóna króna.
Hið góða við hítann í
Bandaríkjunum
HITINN er mikill meðan leikirnir fara fram á HM,
enda spilað um miðjan dag vestra. Margir höfðu
áhyggjur að hitinn yrði leikmönnum hreinlega
hættulegur, enda léttast þeir um heil ósköp í hveij-
um leik þar sem hitinn er mestur. Flestir leik-
manna Þýskalands og Bólivíu misstu t.d. 3 til 5 kíló
í viðureign liðanna í riðlakeppninni. Sá eini sem
léttist ekki um gramm í leiknum var Bodo Ilgner,
markvörður Þjóðveija. Hann var 77,4 kg eftir leik-
inn sem fyrir. „Bodo er sá eini af leikmönnum
okkar sem þarf að léttast," sagði eiginkona hans,
Biana, og var hreint ekki ánægð...
Yashin sagður ætla að
fylgjast með keppni á HM
MILLJÓNUM rússneskra lesenda brá heldur í brún
þegar þeír sáu fréttir áf því að blað í Vfetnam
hefði birt einkaviðtal við Lev Yashin, rússneska
markvörðinn gamalkunna. Yashin, eini markvörð-
urinn sem kosinn hefur verið knattspymumaður
Evrópu, árið 1964, mat alla þá 24 markverði sem
tóku þátt í HM að þessu sinni og einnig var haft
eftir Yashin að hann ætlaði til Bandaríkjanna með-
an á HM stæði, og yrði viðstaddur þegar verðlaun,
sem nefnd eru eftir honum, yrðu afhent. í ljós kom
að greininni var „stolið" úr rússnesku blaði, en
blaðamennirnir í Víetnam, sem birtu „einkaviðtalið“
hafa greinilega misskilið rússneskuna eitthvað.
Yashin lést nefnilega árið 1990...
Salenko óvænt í sviðsljósinu
Rússinn Oleg Salenko var lítt
kunnur utan fyrrum Sovét-
ríkjanna og Spánar, þar sem hann
hefur leikið með Valencia síðan í
fyrra, áður en flautað var til leiks
Rússlands og Kamerún í síðustu
viku, en að leikslokum var hann
á allra vörum. Miðheijinn, sem lék
fyrsta landsleik sinn í nóvember
á liðnu ári, skráði nafn sitt á spjöld
HM-sögunnar með því að gera
fímm mörk í 6:1 sigri og er eini
leikmaðurinn, sem hefur gert
fímm mörk í leik í úrslitakeppni
HM, en níu spilarar hafa náð fjór-
um mörkum í leik.
Salenko er 24 ára fjölskyldu-
maður, fæddur í Pétursborg (þá
Leningrad) 25. október 1969.
Hann lék með Dynamo Kiev í fjög-
ur ár og skoraði grimmt, m.a.
þrennu í 6:1 sigri í úrslitum bikar-
keppninnar 1990. Hann gerði 16
■ mörk fyrir Valencia í vetur og var
kominn með fjögur' mörk fyrir
rússneska landsliðið áður en
keppnin hófst í Bandaríkjunum.
Salenko var ekki í byijunarliði
Rússlands í fyrsta leiknum, gegn
Brasilíu, en er nú markahæstur í
keppninni með sex mörk. Síðar
kom reyndar í ljós að hann skorar
ekki meira í þessari keppni; úrslit
annarra leikja urðu þannig að
Rússar komust ekki áfram í 16-
liða úrslitin.
„Svona nokkuð gerist aðeins
einu sinni á ævinni," sagði hann
um mörkin fímm gegn Kamerún.
Hann vissi ekki að hann hefði
slegið met fyrr en hann heyrði
það tilkynnt á vellinum. „Ég vissi
ekki hvað metið var og hugsaði
ekki um möguleika á að setja
met.“
Salenko sagði árangur sinn af-
rakstur mikillar samvinnu og
sterkrar liðsheildar, sem hefði
lært að slappa af eftir slæma út-
reið gegn Brasilíu og Svíþjóð.
„Undirbúningur okkar fyrir leik-
inn gegn Kamerún var minni en
venjulega og við mættum alger-
lega afslappaðir til leiks. Það er
eitthvað í okkur, sem gerir það
að verkum að við leikum betur
afslappaðir en þegar við erum
spenntir." -
Pavel Sadyrin, þjálfari Rúss-
lands, sagði að Salenko hefði loks
sýnt hvað í honum býr. „Hann
er mjög hæfíleikaríkur framheiji,
sem kom berlega í ljós, þegar
hann gerði 16 mörk á liðnu tíma-
bili á Spáni.“ Sadyrin var óánægð-
ur með Salenko fyrir fyrsta leik
og vanmat hann fyrir viðureignina
gegn Kamerún. „Fyrir leikinn fór
ég til Oleg og sagði: „Ef þú gerir
þitt besta getur þú gert tvö mörk.“
Það hvarflaði ekki að mér að hann
næði fimm.“
ÞÝSKALAND lék mun betur gegn Belgíu í 16 liða úrslitunum
á laugardaginn heldur en í riðlakeppninni og gerði Rudi Völler
gæfumuninn. Belgar réðu alls ekki við þennan 34 ára mið-
herja, sem gerði tvö mörk og lagði upp eitt fyrir Jurgen Klins-
mann í 3:2 sigri og skapaði hættu hvað eftir annað.
Völler byijaði með miklum látum
og var allt í öllu þar til yfir
lauk. Samvinna hans og Klins-
manns í fremstu röð minnti á HM
1990 og þeir fengu tækifæri til að
gera fleiri mörk, en það var fyrst
og fremst frábær markvarsla Pre-
ud’Homme sem kom í veg fyrir það.
Berti Vogts, landsliðþjálfari, var
ánægður. „Að þessu sinni mátti sjá
þýska landsliðið í hæsta gæða-
fiokki. Við áttum skilið að sigra
vegna þess að við lékum agað og
vorum fastir fyrir gegn mjög erfið-
um mótheijum. Það hefur staðið
til að láta Rudi spila og
það lá alltaf fyrir að
hann myndi gera gæfu-
muninn. Ég er viss um
að hann á eftir að halda
áfram á sömu braut. Frá
fyrri leikjum var aug-
ljóst að breytinga var
þörf og dæmið gekk
upp, en persónulega vil
ég þakka Rudi fyrir
frammistöðuna."
Belgar voru allt ann-
að en ánægðir með dóm-
arann og sögðu hann
hafa breytt gangi mála
með því að sleppa því að dæma
vítaspyrnu á Þjóðveija og reka
Thomas Helmer af velli. Roger Van
Den Stock, talsmaður þeirra, sagði
að þeir ætluðu að krefjast skýringa
frá FIFA um reglurnar og kröfur
til dómara. „Svo virðist, sem einn
dómari sé fyrir minni samböndin
og annar fyrir þau stærri." „Fyrir
mörgum mánuðum sagði FIFA
okkur að hart yrði tekið á brotum,
en aílir sáu hvað gerðist að þessu
sinni,“ sagði Guido De Windt hjá
Knattspyrnusambandi Belgíu. „Það
er ekki einu sinni farið eftir gömlu
reglunum hvað þá þeim nýju+
„Þetta var víti,“ sagði Georges
Grun, sem gerði fyrri mark Belga.
„Ef þetta var ekki víti á aldrei að
dæma víti. Ef dómarinn hefði dæmt
það hefði Helmer fengið rauða
spjaldið, við hefðum skorað og stað-
an 3:2, þegar 20 mínútur voru til
leiksloka."
Talsmenn Belga vildu að dómar-
inn yrði sendur heim öðrum dómur-
um til viðvörunar. Paul Van Himst,
þjálfari, tók í sama streng og sagði
að Kurt Röthlisberger ætti ekki að
dæma alþjóða leiki framar. „Það
er óþolandi að sjá svona lagað.“
Mjög nálægt
mínu besta
Zubizarreta var
maður leiksins
- sagði Javier Clemente þjálfari Spánar
SPÁNVERJAR tryggðu sér sæti
í átta liða úrslitum á laugardag-
inn þegar þeir lögðu Svisslend-
inga með þremur mörkum
gegn engu. Leikurinn var lítið
fyrir augað, Spánverjar skor-
uðu fljótlega og tóku enga
áhættu eftir það, og Svissiend-
ingar virtust aldrei hafa trú á
því að þeir gætu klárað dæmið.
Mörk Spánveija gerðu Fern-
ando Hierro, Luis Enrique
Martinez og Aitor Beguiristain.
Fyrsta markið sem Hierro skoraði
var kennslubókardæmi um það
hvemig á að leika á flata rangstöðu-
vöm. Hann stakk sér sjálfur í gegn-
um vörnina þegar flestir bjuggust
við sendingu og skoraði með hnit-
miðuðu skoti fyrir utan vítateig.
Eftir það bökkuðu Spánveijar, léku
með einn mann frammi, og gáfu
Svisslendingum litla möguleika á
því að jafna. Þeir áttu samt sem
áður nokkur ágæt færi, en mark-
vörðurinn Andoni Zubizarreta stóð
sig frábærlega í markinu og bjarg-
aði stundum meistaralega. Eftir því
sem örvænting Svisslendinga varð
meiri og sóknarmönnum fjölgaði
urðu skyndisóknir Spánveija
hættulegri, og tvær slíkar skiluðu
tveimur mörkum undir lokin.
íjálfari Spánveija, Javier Cle-
mente, sagði að Zubizarreta hefði
verið maður leiksins. Vangaveltur
vom um það fyrir leikinn að hann
yrði tekinn úr liðinu, en Clemente
sá ekki eftir því að treysta á hann.
„Hann var besti maðurinn á vellin-
um,“ sagði Clemente eftir leikinn.
Roy Hodgson þjálfari Sviss sagði
að úrslitin gæfu ekki rétta mynd
af liðunum, Spánveijar væru ekki
þremur mörkum betri en þeir.
Landslið Sviss saknaði augljós-
lega Alain Sutter, sem var meidd-
ur, en hann hefur leikið frábærlega
á miðjunni hjá þeim og stjómað
spilinu. Spánveijar léku af skyn-
semi, en tóku þó áhættu með að
bakka jafn mikið og raun bar vitni.
En dæmið gekk upp hjá þeim og
því komust þeir í átta liða úrslit í
þriðja sinn á HM. Þar mæta þeir
sigurvegaranum í leik Ítalíu og Níg-
eríu, sem leikinn verður í dag.
+