Morgunblaðið - 09.07.1994, Side 2

Morgunblaðið - 09.07.1994, Side 2
2 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Neytendasamtökin telja skilmála um greiðslukort ólögmæta Krafa um að samkeppnis- ráð banni kortaskilmála NEYTENDASAMTÖKIN hafa óskað eftir því við samkeppnisráð að það leggi bann við ákvæðum í skilmálum um debet- og kreditkort. Að mati samtakanna eru skilmál- amir óréttmætir og bijóta í bága við sam- keppnislög. í frétt frá Neytendasamtökunum segir að í samkeppnislögum sé kveðið á um að sam- keppnisráð geti lagt bann við skilmálum kor- taútgefenda telji ráðið að þeir feli í sér órétt- mæt skilyrði sem aðeins taki mið af hagsmun- um kortaútgefenda eða komi illa niður á hags- munum korthafa og séu ekki sambærilegir við það sem almennt gerist í helstu viðskiptaríkjum Islendinga. „Skilmálarnir eru settir einhliða af kortaút- gefendum og geta korthafar ekki haft áhrif á efni þeirra. Jafnframt áskilja kortaútgefendur sér rétt til þess að breyta skilmálunum ein- hliða,“ segir í fréttinni. Skilmálarnir settir einhliða af kortaút- gefendum sem geta firrt sig ábyrgð Neytendasamtökin gera einkum athuga- semd við skilmála um ábyrgð aðila. Korthafí ber mjög víðtæka ábyrgð á úttektum á kort en kortaútgefendur geta fírrt sig ábyrgð hafí þeir sýnt það sem heitir „eðilileg aðgæsla“ í skilmálum en samtökin telja það mjög rúmt orðalag. Auk þess komi það í hlut kortaútgefenda að túlka ákvæði skilmálanna ef deilumál, sem upp kæmi, er ekki lagt fyrir dýmstóla. í bréfí Neytendasamtakanna til samkeppn- isráðs segir m.a.: „Þeir samningsskilmálar sem hér hafa verið nefndir teljast óréttmætir því samkvæmt þeim er um að ræða ójafnvægi milli réttinda og skyldna annars vegar kortaút- gefanda og hins vegar korthafa. Skilmálar þessir eru mjög einhliða þar sem verulega hallar á neytandann, þ.e. korthaf- ann.“ Samræmist ekki EES Lögfræðingur Neytendasamtakanna telur að samningsskilmálar um greiðslukort falli undir tilskipun Evrópuráðsins um óréttmæta samningsskilmála. Hann telur að vænta megi þess að efni tilskipunarinnar öðlist lagagildi hér á landi ekki síðar en 31. desember á þessu ári í samræmi við samninginn um evrópskt efnahagssvæði. Að mati lögfræðingsins teljast skilmálamir óréttmætir á grundvelli tilskipun- arinnar. Rússneskur togari landaði 200 tonnum af þorski á Þórshöfn í gær Skipið var hreint og rottulaust Þórshöfn. Morgunblaðið. RÚSSNESKI togarinn Angrapa frá Múrmansk landaði tæpum 200 tonnum af þorski á Þórs- höfn í gær og er aflinn heil- frystur og hausaður og gott hráefni. í samtali við Gunnlaug Karl Hreinsson yfirverkstjóra þjá Hraðfrystistöð Þórshafnar kom fram að skipið er hreint og rottulaust og lagðist það strax að bryggju. Togarinn var á veiðum í Barentshafi og hefur haft um mánaðar útivist en komudagur hans til Þórshafnar er nokkru seinni en búist var við, að sögn Gunnlaugs. Fiskvinnslufyrirtækin þrjú, þ.e. Hraðfrystistöð Þórshafnar hf., Tangi hf. á Vopnafirði og Fiskiðjan á Raufarhöfn skipta með sér þessum rússafiski og Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir er hlutur Hraðfrystistöðvarinn- ar stærstur eða um 120 tonn. Góð samvinna hefur verið milli fiskvinnsluhúsanna á Þórshöfn og Vopnafirði varðandi vinnslu hráefnis og í síðustu viku lán- aði Tangi hf. Hraðfrystistöðinni rússaafisk til vinnslu svo hægt yrði að halda áfram samfelldri vinnslu. Hráefnislaust hefur verið í Hraðfrystistöðinni að sögn Gunnlaugs því gæftaleysi hefur verið hjá heimabátum undan- farið. Rússafiskurinn er því góð búbót og er unnið að því að fá annan togara til löndunar á Þórshöfn. Sjöfalt verð fyr- ir bréf í Stöð 2? HLUTHAFAR, sem mynda meirihluta í Stöð 2, fengu í gær upplýsingar um að þeir kynnu að geta selt hlutabréf sín á allt að sjöföldu nafnverði. Morgunblaðið hefur staðfest- ar heimildir fyrir því að Guð- mundur Franklín Jónsson verð- bréfasali í New York hafí í gær haft samband við nokkra af þeim hluthöfum, sem mynda meirihluta í Stöð 2, og sagt þeim að hann gæti selt hluta- bréf þeirra á sjöföldu nafnvirði. Hlutabréf í.Stöð 2 hafa hingað til selst hæst á um þreföldu nafnverði. Hráefni skortir LOÐNUVERKSMIÐJUR á austan- og norðanverðu landinu eiga hráefni til tveggja til þriggja sólarhringa vinnslu, en verksmiðjur á Suður- og Vest- urlandi hafa hins vegar ekki getað haldið samfelldri vinnslu sökum hráefnisskorts. Sæmileg veiði var á miðunum síðasta sólarhring. Skipin hafa verið að fylla sig á tveimur til þremur sólarhring- um og flest hafa þurft að kasta nokkuð oft. Víkingur frá Akra- nesi náði t.d. 1.100 tonnum í tíu köstum. Skipið kom til Akra- ness í gærkvöldi. Ekkert hrá- efni var þá til í verksmiðjunni. Sama var upp á teningnum í Vestmannaeyjum. Sighvatur Bjamason kom þangað í gær- morgun með um 680 tonn. Verksmiðjan hafði þá verið stopp í nokkra klukkutíma. Sig- hvatur Bjarnason hélt strax aftur út á miðin þegar búið var að landa, en gert er ráð fyrir að Kap komi til Vestmannaeyja um helgina. Á Norður- og Austurlandi hafa verksmiðjumar hráefni til tveggja til þriggja sólarhringa vinnslu. Skipin sækja frekar í að landa þar enda tekur sigling af miðunum skamman tíma. Sigling til Raufarhafnar tekur t.d. 15 tíma á meðan sigling til Vestmannaeyja tekur 37 tíma. Kartöflurækt Góðar uppskeru- horfur KARTÖFLUUPPSKERA verður töluvert mikil og fyrr en í meðalári ef veður helst áfram bjart og hlýtt. Fyrstu íslensku kartöflurnar koma væntanlega á markað í þarnæstu viku. Að sögn Matthíasar Guðmunds- sonar, framkvæmdastjóra Ágætis hf., byijaði kartöfluræktun frekar illa í vor en síðustu dagar hafa breytt heilmiklu. en veðrið næstu tvær til þijár vikur mun ráða úrslit- um um hversu mikil uppskeran verði. „Hnýðin eru að myndast núna og það þarf ekki nema næturfrost eina nótt til að minnka uppskeru það mikið að allt verði búið fyrir jól. í fyrra kom næturfrost tvær nætur í röð 10.-12. júlí sem varð þess valdandi að kartöflur voru búnar í maí. Ef veðrið helst áfram gott þá mun uppskeran duga í heílt ár þar til tekið verður upp á næsta ári. Slíkt magn yrði töluvert meira en í meðalári," sagði Matthías. Neyslan hefur minnkað Kartöfluneysla íslendinga hefur minnkað undanfarin ár. Að sögn Matthíasar er erfitt að segja ná- kvæmlega til um magn en hann áætiar að hún hafí farið úr rúmum 10.000 tonnum á ári í um 7.000 tonn á ári nú. Forseti Bridssambandsins um nýtt hús sambandsins Húsakaupin munu valda byltingu í bridsstarfsemi Mögnleikar á að stórauka fræðslustarf Bridssamband íslands hefur keypt nýtt húsnæði í Þöngla- bakka 1 í Mjóddinni í Reykjavík. Forseti sambandsins segir þessi húsakaup eiga eftir að valda byltingu i bridsstarfsemi hér á landi. Um er að ræða þriðju hæð hússins við Þönglabakka 1, efsta hæð hússins þar sem Kaupstaður var áður til húsa og verslunin Kjöt og fískur er nú. Er þetta um það bil þrisvar sinnum stærri en fyrra húsnæði sambandsins. Helgi Jóhannsson, forseti Brids- sambandsins, segir að markmið- ið með húsakaupunum sé að sameina alla bridsstarfsemi á höfuðborgarsvæðinu, en fyrra húsnæðið hafi löngu verið sprungið. í nýja húsinu verður einnig hægt að halda öll lands- mót sem Bridssamband íslands stendur fyrir. „Ég óska öllum bridsspilurum til hamingju með að búið er að koma sambandinu í framtíðar- húsnæði. Nú opnast nýir mögu- leikar á að stórauka fræðslu og námskeiðshald og að efla enn frekar bridsíþróttina sem hefur verið í stöðugum vexti undanfar- in ár,“ sagði Helgi. Flutt í haust Bridssambandið keypti hús- næðið af Landsbanka Islands og sagði Helgi Jóhannsson að bank- inn hefði lagt sitt af mörkum til að gera sambandinu húsakaupin möguleg. Bridssambandið seldi Landsbankanum jafnframt hús- næði sem það átti við Sigtún 9 í Reykjavík. Starfsemi sam- bandsins verður áfram á gamla staðnum í sumar en flyst í haust í nýja húsið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.