Morgunblaðið - 09.07.1994, Side 4

Morgunblaðið - 09.07.1994, Side 4
4 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Menntamálaráðuneytið vill frekari rannsókn á Miðhúsa-silfursjóðnum Ekki þótti ástæða til að rannsaka silfrið árið 1988 ÞÓR Magnússon, þjóðminjavörður, segist ekki geta lagt neinn sérstakan dóm á skýrslu James Graham-Campbells, prófessors við University College í Lundúnum, um silfursjóðinn sem fannst í Miðhúsum við Egilsstaði árið 1980. Þór rann- sakaði fundarstaðinn og sjóðinn fyrstur manna ásamt Kristjáni Eldjám, fyrrum forseta og þjóð- minjaverði, og segist hann aldrei hafa efast um aldur silfursjóðsins, sem álitinn var vera frá 10. öld. Hefur menntamálaráðueytið óskað eftir að silfrið verði rannsakað frekar. Engin tök á að rannsaka munina hérlendis Sjóðurinn, sem samanstendur af 41 hlut og vegur samtals um 650 grömm, er álitinn vera frá 10. öld. Árið 1988 fórust fyrst að heyrast raddir um að einhver hluti sjóðsins væri yngri og segir Graham-Campbell í skýrslu sinn að niðurstaða rannsókna sinna sé að rúmlega 300 grömm silfurmunanna sé nútímaframleiðsla. Þór segir að ýmsar ástæður séu fyrir því að ekkert hafi verið gert í þessum málum fyrr en nú. „Ég vil ekkert reyna að veija mig eða aðra í því,“ segir hann. „Mönnum þótti ekki nógu mikil ástæða til þess. Enda 'voru engin tök á að framkvæma rannsóknina hér.“ Rannsókn sem þessa geti einungis sérfræðing- ar á víkingaaldarsviði og málmfræðingar gert og segir Þór að enginn hér á landi hafi búið yfir þeirri þekkingu sem til þurfti á þeim tíma. Síðan hafí margir nýir fornleifafræðingar bæst í hópinn. Einnig séu raunvísindi notuð í ríkara mæli við fornleifarannsóknir og hafi mikil breyt- ing orðið á síðasta áratug. „Þetta þekktist ekki í neinu mæli áður,“ segir hann. Hvað varði skýrslu Graham-Campbells þá geti hann ekki lagt neinn dóm á hana, en taka beri öllum mikilsverðum hlutum með fyrirvara. Graham-Campbell hafi örugglega unnið skýrsl- una eins vel og hann gat og af samviskusemi. Silfurmunir frá 10. öld Menntamálaráðuneytið hefur sent þjóðminj- aráði bréf þar sem óskað er eftir að gerðar verði frekari rannsóknir á silfrinu og á Þjóðminjasafn- ið á von á sams konar bréfi. Þór álítur að leita þurfí fyrst og fremst til erlendra sérfræðinga til þess að fá úr skorið um uppruna silfursjóðsins. Þór segir að flestir silfurmunir frá 10. öld hafi verið fluttir hingað til lands, en ekki smíðað- ir hér. Aðrir silfursjóðir sem fundist hafa bendi til þess, en nánast engar heimildir séu til um silfursmíði hér á landi á þeim tíma. Gull og silf- ur sé víða nefnt í fornum ritum, en yfírleitt svo ógreinilega að ómögulegt sé að segja til um hvort gripimir hafí verið smíðaðir hér. Úttektá fjárhag Strætis- vagnanna STJÓRN Strætisvagna Reykja- víkur hefur samþykkt að láta fara fram úttekt á íjárhagsstöðu SVR og Stjómarnefndar um almenn- ingssamgöngur, SNA, þannig að fyrir liggi hver fjárhagsstaðan sé nú þegar nýr meirihluti í borgar- stjórn hefur tekið við. Þá hefur forstjóra fyrirtækisins verið falið að láta semja samræmda fjár- hagsáætlun fyrir yfírstandandi ár nú þegar SNA og SVR hf. hafa verið sameinuð í borgarfyrirtækið Strætisvagnar Reykjavíkur. Stjórn SVR hefur jafnframt samþykkt að tillögu formanns stjórnarinnar að samið verði við ráðgjafafyrirtæki um að gera út- tekt á starfsskipulagi fyrirtækisins og gerð nýs skipurits fyrir það. Markmiðið verði m.a. að skoða og gera tillögu um með hvaða hætti eigi að standa að þeim þáttum sem færðir hafa verið yfír til SNÁ, svo sem leiðakerfi, fargjaldamál, al- mannatengsl, markaðssetningu og hins vegar rekstri strætisvagna fyrirtækisins. í tillögunni er jafn- framt gert ráð fyrir að ráðgjafafyr- irtækinu verði falið að koma með tillögur um með hvaða hætti sé hægt að efla starfsanda innan SVR ásamt nýsköpun í starfsskipulagi og er miðað við að tillögur ráð- gjafafyrirtækisins liggi fyrir í haust. Marglitar ljósaperur Morgunblaðið/Sverrir TÍVOLÍIÐ, sem hefur verið starfrækt á Faxagarði á hveiju sumri undanfarin ár, er enn komið til landsins og hjólin eru byijuð að snúast á hafnarbakkanum. í góða veðrinu í vikunni var verið að undirbúa starfrækslu þess og það virðist ærinn starfi að skrúfa marglitar ljósaperurnar í peru- stæðin. Sophia hitti ekki dæturnar SOPHIA Hansen átti að hitta dætur sínar í Istanbul í gær, samkvæmt úrskurði um um- gengnisrétt sem kveðinn var upp í vikunni. Fór hún ásamt fulltrúa fógeta og lögreglu að heimili Halims Als en enginn var heima þegar þangað var komið. Umgengnisréttur Sophiu við dæturnar gerir ráð fyrir að hún hafi þær um hveija helgi frá kl. 17 á föstudegi til kl. 17 á sunnudegi fram að næsta úrskurði undirréttar. í frétt frá samtökunum Börnin heim, segir að vitað sé að Halim A1 hafi verið tilkynnt formlega um umgengnisrétt- inn en þetta er í 25 sinn sem hann er brotinn. Fram kemur að rétta átti í forræðismálinu 23. júní fyrir undirrétti en lögmenn Halims mótmæltu úrskurði Hæsta- réttar. Varð undirréttur við bón þeirra og sendi mótmæli ásamt gögnum aftur til Hæstaréttar. Dagsetning rétt- arhaldanna fyrir undirrétti hefur enn ekki verið ákveðin. Tilraun með líf- rænt sorp TUTTUGU heimili á Kjalar- nesi munu taka þátt í tilraun sem Iðntæknistofnun hefur umsjón með sem felst svokall- aðri heimajarðgerð. Munu fjölskyldurnar endurvinna líf- rænt sorp sem til fellur á heimilum þeirra. Einnig munu 20 íbúar í Færeyjum og 10 á Grænlandi taka þátt í tilraun- inni. íbúarnir fá ílát þar sem þeir setja matarúrgang, garð- aúrgang og lífrænt efni sem til falla á heimilunum og er gert ráð fyrir að úrgangurinn brotni niður á um þremur mánuðum og verði að mold í ílátunum. í verkefni stofnunarinnar sem lauk fyrir um ári síðan kom í ljós að hægt væri að lækka sorphirðukostnað smærri sveitarfélaga verulega ef íbúarnir flokkuðu sorp og stunduðu heimajarðgerð. Kostnaður við SVR hf. Að ósk meirihluta stjórnar SVR hefur verið samþykkt að aflað verði svara um hver heildarkostn- aður hafi verið í sambandi við breytingu SVR í hlutafélag á síð- asta ári og tilkomu stjómamefndar um almenningssamgöngur. Meðal annars er óskað upplýsinga um kostnað við gerð skýrslu um breyt- inguna í hlutafélag, verktakaút- tekt, viðbótarkostnað SNA vegna flutnings og uppbyggingu á nýjum stað, viðbótarkostnað og hækkun launa vegna nýrra ráðningarsamn- inga og stjómsýslukostnað SVR hf. Er óskað eftir því að þessar upplýsingar verði gefnar í skrif- legri skýrslu eigi síðar en 1. ágúst næstkomandi. Kristján Jóhannsson syngur aftur í Aidu í Covent Garden Mögulegt með mikilli reynslu „ÞAÐ ÞARF mikla reynslu til að geta þetta, ég myndi ékki gera það annars, padrone della voce, segja þeir á Ítalíu. Annars myndi ég ég ekki mæla með þessu.“ Kristján Jóhannsson óperusöngv- ari var enn á leið í flug frá heim- •ili sínu við Garda-vatn á Ítalíu til Englands. Morgunblaðið náði í hann um hádegisbil í gær, en í kvöld syngur hann aftur í Covent Garden-ópemnni í Lundúnum. Þar stökk hann síðastliðinn miðvikudag með einnar nætur fyrirvara í hlutverk Radamesar í óperunni Aidu eftir Verdi vegna forfalla tenórs. Sýningin þá um kvöldið þótti takast feiknavel og Kristján kveðst ekki hafa fundið til þreytu eftir erfiðið fyrr en heim var komið í fyrradag. Ekki gafst þó langur hvíldartími, enn bilaði rödd tenórsins í óperunni og Kristján var beðinn að koma strax aftur. Vel má vera, að hans sögn, að hann syngi einnig í Aidu á þriðjudaginn og ef til vill öllum sýningunum fimm sem eftir eru. Sungið hlutverkið 70 sinnum Kristján kveðst hafa sungið þetta hlutverk einum 70 sinnum og fafið eins að nú og fyrr. Stjórnandinn í Covent Garden hafí fylgt honum mjög vel eftir á miðvikudagskvöldið og allt gengið að óskum. Starfsfólk óp- emnnar sé afar elskulegt og eins hjálpi að hann þekki hina söngvarana persónulega. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Kristján skellir sér upp á óperusvið án fyrirvara. í vetur náði hann rétt að fara úr skíðaskónum áður en hann söng í Múnchen og sömu- leiðis hefur hann bmgðist við kalli Vínaróperunnar. Áhættan er engu að síður fyrir hendi og ........ _ Kristján Jóhannsson ekki á hvers manns færi að taka konsert í hana. Strákarnir okkar þurfa að fá að í ferðinni nú um helgina ætlar skoða svolítið heimahagana." Kristján að lesa .áfram og læra óper- una Vald örlaganna sem hann syngur hér heima í haust. Svo styttist í mánaðarfrí sem hann hefur geymt sér lengi. Hann ætlar með fjöl- skyldu sinni til Sví- þjóðar í ágúst og síð- an heim til íslands „þar sem kannski næst að keyra hring- inn áður en sumarið er úti. Þetta verður gott frí og aðeins einn Ósló sem rýfur það. I I I I i I i ■ E | i E É I I . s I i i I f-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.