Morgunblaðið - 09.07.1994, Side 9

Morgunblaðið - 09.07.1994, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994 9 AKUREYRI - Morgunblaðið/Rúnar Þór Sjómenn í slysa- varnarskóla SLYSAVARNASKÓLI sjó- manna efndi til björgunaræf- ingar á Akureyri í gær þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, gegndi stóru hlutverki. Skip skólans, Sæbjörg, hefur legið í höfninni seinustu vikur meðan námskeið fyrir sjómenn frá Akureyri og Skagaströnd hefur staðið yfir. Er þetta 10. námskeið skól- ans í sumar, en Sæbjörg hefur siglt á milli bæja, og jafnframt það seinasta fyrir sumarfrí sem skólinn fer nú í fram á haust- mánuði, en Sæbjörg mun liggja áfram við bryggju á Akureyri yfir sumarmánuðina, bæjarbú- um til augnayndis. Hafsteinn Hafsteinsson, for- stjóri Landhelgisgæslunnar, Hilmar Snorrason, skólsfjóri Slysavarnaskóli sjómanna, og Jón Ingi Halldórsson, skipstjóri á Margréti EA, voru meðal þeirra sem fylgdust grannt með björgunaræfingunni á Akur- eyri í gær. Listasumar ’94 Laugardagur 9. júlí SJÓNÞING 1994, vísindaaka- demía í Deiglunni í boði Bjarna H. Þórarinssonar opnar og stendur til 17. júlí. Leyndir draumar, leik- listarnámskeið fyrir fólk eldra en 25 ára hefst undir stjóm Hlínar Agnarsdóttur. Borg- hildur Óskarsdóttir og Adolfo Has- enkamp opna sýningar á verkum sínum í Myndlistarskólanum á Ak- ureyri. Sunnudagur 10. júlí SUMARTÓNLEIKAR í Akur- eyrarkirkju klukkan 17, David Titt- erington leikur á orgel. Aðgangur ókeypis. Gönguferð undir leiðsögn um Innbæinn frá Laxdalshúsi klukkan 13.30. SVONA rakstrarvélar þættu ekki afkastamiklar nú en voru eitt sinn bylting. A morgun verður heyjað með gamla laginu að Laufási til að viðhalda þekkingu á gömlu vinnubrögðunum. Samkomur og kirkjuhald Akureyrarkirkja GUÐSÞJÓNUSTA verður í Ak- ureyrarkirkju á morgun, sunnudag- inn 10. júlí klukkan 11. David Titt- erington, gestur Sumartónleika leikur sérstakt verk við athöfnina en hann leikur síðan á tónleikum í kirkjunni klukkan 17. Hvítasunnukirkjan í DAG, laugardaginn 9. júlí, verð- ur samkoma í umsjá ungs fólks í Hvítasunnukirkjunni, og hefst hún kl. 20.30. Á morgun, sunnudag, hefst safnaðarsamkoma klukkan 11 og vakningarsamkoma kl. 20. Trúboðshópur sem fór til ísafjarðar sér um samkomuna. Næstkomandi miðvikudag, 13. júlí kl. 20, verður lesið úr Biblíunni og bænasamkoma haldin, þar sem m.a. verður beðið fyrir sjúkum og sungið. Kaþólska kirkjan MESSUHALD í Kaþólsku kirkj- unni, að Eyrarlandsvegi 26, verður með eftirfarandi hætti þessa helgi; í dag, laugardaginn 9. júlí, klukkan 18 og á morgun, sunnudag, klukkan 11. Heyjað með gamla laginu MINJASAFNIÐ á Akureyri og Laufásbærinn efna á morgun, sunnudag, til heyanna að Lauf- ási frá klukkan 13 til 17. Með- limir Félags aldraðra í Eyjafirði heyja þar með gamla laginu og sýna auk þess ýmis önnur göm- ul vinnubrögð, úti sem inni. Á morgun er einnig sk. þjóð- minjadagur, og því enginn að- gangseyrir heimtur af gestum sem vilja skoða Laufássafnið og Minjasafnið á Akureyri. Skóflustunga að nýrri sjúkrahússálmu Fyrri áfanga á að ljúka í árslok 1997 SIGHVATUR Björgvinsson, heil- brigðis- og tryggingamálaráð- herra, tekur í dag skóflastungu að nýrri legudeild við Fjórðungs- sjúkrahús Akureyrar. Álman er viðbyggð sjúkrahúsinu og mun verða rúmir 4.100 fermetrar að stærð á fjórum hæðum, auk kjall- ara. Framkvæmdir verða unnar í tveimur áföngum og á fyrri áfanga, uppsteypu hússins og inn- rétting barnadeildar, að vera lokið um áramótin 1997-1998. Áætlað- ur kostnaður við fyrri áfanga nem- ur 290 milljónum króna, að sögn Vignis Sveinssonar, framkvæmda- stjóra FSA. Ekki liggur ljóst fyrir hversu hratt seinni áfangi byggingarinnar verður unninn, en framkvæmdir við fyrri áfanga hefjast á mánu- dag. „Byggingin hefur geysilega mikla þýðingu fyrir starfsemi sjúkrahússins. Hún leysir hús- næðisvanda okkar sem hefur verið mjög mikill, og sérstaklega hvað varðar barnadeild sjúkrahússins og þar að auki munu margar aðr- ar deildir og þjónustueiningar fá aukið rými í kjölfar byggingarinn- ar,“ segir Vignir. FSA er þriðja stærsta sjúkrahús landsins, og segir Vignir viðbygg- inguna auka mikilvægi sjúkra- hússins fyrir Norðurland og sem aðalvarasjúkrahús utan höfuð- borgarsvæðisins. „Rúmum í notkun hefur fækkað á undanfömum ámm vegna ýmissa breytinga sem hafa átt sér staðar, svo sem sífellds aukins tækjabúnaður kringum sjúklinga á sjúkrastofum sem hefur komið í veg fyrir að hægt væri að full- nýta þær, auk krafna um fækkun á rúmum. Með auknu húsnæði gefst möguleiki á fullnýtingu á nýjan leik,“ segir Vignir. Gítarhátíð á Akureyri Oscar Ghiglia heldur námskeið og tónleika GÍTARHÁTÍÐ hefst á Akureyri þriðjudaginn nk., þar sem gítar- leikarinn Oscar Ghiglia, sem af mörgum er talinn í hópi fremstu gítarleikara í heiminum í dag, heldur námskeið og tónleika fyrir gítarnemendur og kennara. Gítar- hátíðin er nú haldin í þriðja skipti á Akureyri. Ghiglia hefur haldið námskeið og tónleika um heim allan, og verið til margra ára fastráðinn við Aspen-tónlistarhátíðina í Banda- ríkjunum. Hátíðin verður sett á þriðjudag með tónleikum Ghiglia í Akureyrarkirkju klukkan 20.30, en námskeið hans hefst næsta dag á sal Tónlistarskólans á Akureyri og stendur til 16. júlí. Örn Viðar Erlendsson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, segir að umsóknir um þáttöku hafi borist frá bæði innlendum og erlendum gítarleik- um, en innlendir tónlistarmenn hafi þó forgang, auk þess sem hægt sé að sitja námskeiðið sem hlustandi fýrir vægt gjald. Fjöldi tónlistarmanna leika á hátíðinni. Einar Kristján Einars- son, gítarleikari og Martial Narde- au, flautuleikari, spila í Akur- eyrarkirkju miðvikudaginn 13. júlí, Arnaldur Arnarson, gítarleik- ar, kemur hingað sérstaklega frá Spáni og leikur í kirkjunni 14. júlí, nemendur námskeiðisins leika í Deiglunni 15. júlí og hinn 16. júlí leika tónlistarmenn á borð við götuspilarann K.K. og Guðmund Pétursson blústónlist í Deiglunni. Bifreiðastjórar Hafið bílbænina í bílnum og orð hennar hugföst þegar þið akið Fæst í Kirkjuhúsinu, Kirkjutorgi 4, í verslun- inni Jötu, Hátúni 2, Reykjavík og í Hljómveri, Akureyri. Verð kr. 200. | Orð dagsins, Akureyri. Bílamarkaöurtnn^Z ^rspSrn ef«ir nýlegum, góðum bílum. Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut. Kopavogi, sími Vantar slíka bfla á skrá og á sýningarsvæðið. Opið: Laugardaga kl. 10-17, sunnudaga kl. 13-18. Útsalan er hafin 40% afsláttur TESSv Neðst viS B 041 \y^Dunhaga, s: 622230 OpiS virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-14

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.