Morgunblaðið - 09.07.1994, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Biskupshjónin
heimsækja Skafta-
fellsprófastsdæmi
í NÆSTU viku mun biskupinn yfir
íslandi, hr. Ólafur Skúlason, heim-
sækja presta og söfnuði í Skaftafells-
prófastsdæmi ásamt konu sinni frú
Ebbu Sigurðardóttur. Þau hjónin
hefja heimsókn sína'þriðjudaginn 12.
júlí í Bjarnanesprestakalli með messu
í Stafafeilskirkju í Lóni og hefst hún
kl. 11. Biskup messar síðan í Hafnar-
kirkju kl. 18 sama dag og Bjarnanes-
kirkju kl. 11 á miðvikudag.
Biskup heldur síðan áfram vestur
á bóginn, messar, hittir söfnuði og
presta og heimsækir stofnanir. Síð-
asta messan er í Skeiðflatarkirkju í
Mýrdal þriðjudaginn 19. júlí kl. 11
og heimsókninni lýkur með helgi-
stund í Sólheimakapellu kl. 16.
í Homafirði mun biskupshjónin
heimsækja ýmsar stofnanir m.a.
verður helgistund í Skjólgarði, dval-
arheimili aldraðra. Þá munu þau
skoða fiskvinnslu Borgeyjar hf. og
fara í heimsókn í Byggðasafnið, sigla
út fyrir Hornafjarðarós með hafn-
sögubátnum Birni lóðs og skreppa
upp á Vatnajökul.
Prófastshjónin sr. Sigurjón Ein-
arsson og Jóna Þorsteinsdóttir verða
í fylgd með biskupi.
Biskupi er mjög í mun að hitta
sem flesta á ferð sinni. Safnafólk í
Skaftafellsprófastsdæmi er því hvatt
til þess að fjölmenna í messurnar.
Eftir hveija messu verða fundir þar
sem hægt verður að hafa tal af bisk-
upi.
Allar nánari upplýsingar um ferðir
biskupsins gefa prestarnir á hveijum
stað.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Táknræn athöfn þegar fjárhúsin á Svanshóli í Bjarnarfirði voru brennd
Abúendum
fækkar enn
Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson
FJÁRHÚSIN á Svanshóli sem eiga sér langa sögu brenna til grunna.
Laugarhóli - Það fór fram tákn-
ræn athöfn að Svanshóli í Bjamar-
firði um síðustu helgi, þegar brennd
voru til grunna gömlu fjárhúsin
efst í túninu þar, en þau standa við
fjallsrætur og eiga sér langa og
merka sögu. Með því að þessi hús
eru brennd er í raun lokið búskap
á Svanshóli, sem um langt skeið
var höfuðból Bjamarfjarðar. Var
þar rekið rannsóknarbú með til-
raunir og með vissum styrk yfir-
valda, af Ingimundi Ingimundar-
syni. Fyrir rúmum áratug tók svo
sonur hans, Ólafur Ingimundarson
við rekstri búsins.
Á síðastliðnu ári, seldi Ólafur
Ingimundarson á Svanshóli í Bjarn-
arfirði, mestan hluta sauðfjárkvóta
síns og hóf að fullu störf sem bygg-
ingarmeistari og vinnur nú á
Hólmavík. Þar með lauk eiginlega
langri sögu bújarðarinnar Svans-
hóls, þar sem Svanur galdramaður
nam land og skaut skjólshúsi yfir
ástmenn Hallgerðar Langbrókar,
frænku sinnar og villti um fyrir
þeim er eftir sóttu er menn hennar
höfðu verið myrtir. Við hann eru
ýmis ömefni kennd, eins og
Svansgjá er nær frá Svanshóli norð-
ur í Kaldbak. Þar inn gekk Svanur
er hann fórst á Húnaflóa, að því
er sagan segir.
Ingimundur Ingimundarson hefir
búið á Svanshóli alla sína búskapar-
tíð. Hluta þess tíma rak hann opin-
berlega tilraunabú með styrk og
nákvæmu skýrsluhaldi. Að loknum
búskap byggðu hann og kona hans
sér elliheimili í túni jarðarinnar.
Vori þeir bræðurnir Ingimundur á
Svanshóli og Arngrímur í Odda
helstir hvatamenn hverskonar
menntunar og íþróttaiðkana um
langt skeið. Meðal annars börðust
þeir fyrir byggingu skólamann-
virkja og félagsheimilis á Klúku,
sem tekið var í notkun og vígt árið
1972, en nú hefir skólinn þar verið
af lagður, eftir 22 ára notkun hinna
miklu mannvirkja og verða nemend-
ur í skólum á Hólmavík og Drangs-
nesi næsta vetur.
Það var því í raun táknræn at-
höfn um helgina, þann 2. júlí, er
Ólafur bóndi bar eld að gömlu fjár-
húsunum á staðnum og brunnu þau
til ösku á skömmum tíma. Að bruna
loknum var svo fengin til vél til að
hreinsa byggingarstæðið, svo þar
mætti vaxa gróður á rústunum.
Á síðastliðnu ári, gerðu nemend-
ur Klúkuskóla rannsókn á stærð
oggerð og notum fjárhúsanna. Kom
þá í ljós að auk þess, sem þekktar
eru álfasögur úr þessum fjárhúsum,
sem fluttar hafa verið í hljóðvarp,
höfðu þau gegnt margskonar hlut-
verkum um dagana. Þar höfðu ver-
ið sauðkindur, kálfar, hestar, endur
og nú síðast hænsn. Varð því niður-
staða rannsóknarinnar sú að þetta
væru í raun fjölnotahús.
Þeir sem fréttaritari ræddi við
voru á einu máli um að þetta væri
táknrænt fyrir fækkun bænda og
heimila í Bjarnarfirði, sem og víðar
á Ströndum og í öðrum svonefndum
útkjálkabyggðum landsins. Þó
fannst mönnum til fyrirmyndar að
brenna rústirnar og hreinsa, en láta
þær ekki grotna niður sem mengun
á umhverfinu.
01 Q7n LARUSÞ.VALDIMARSSON.framkvæmdastjori
L I I JV’L I 0 I U KRISTJAN KRISTJANSSON. loggiltup fasteignasaii
Ný á fasteignamarkaðnum m.a. eigna:
Ný sérhæð f tvíbýli
glæsil. neðri hæð 4ra herb. 104,3 fm. Allt sér. Góður bílsk. Langtíma-
lán kr. 4,6 millj. Frág. lóð. Vinsæll staður í litla Skerjafirði.
Úrvalseign - frábært útsýni
Við sjávarsíðuna á Seltjarnarnesi raðh. tvær hæðir 221,2 fm með innb.
bflsk. Glæsil. lóð.
Með frábæru útsýni við Dingjuveg
Stór og sólrík 3ja herb. (b. á jarðh./kj. um 90 fm. Sérinng. Bað og
eldh. þarf að endurn. Tvíbýli. Tilboð óskast.
Lítil séríbúð - stór bílskúr
Mjög góð 2ja herb. íb. tæpir 50 fm á jarðh./kj. við Laugarnesveg.
Sérinng. Sérhiti. Stór og góður bílsk. (vinnuhúsn.) 49,5 fm.
Með góðum lánum í gamla bænum
Stór og sólrík 3ja herb. hæð í reisul. steinh. við Grundarstíg. Nýtt
parket. Nýtt gler. Góð langtl. um kr. 4 millj. Tilboð óskast.
Lftil séríbúð við Hraunbæ
Mjög góð 3ja herb. séríb. á 1. hæð með sérinng. Gott lán fylgir. Til-
boð óskast.
Tækifæri seljandans
3ja-4ra herb. íb. óskast í byggingu í borginni eða nágrenni. Þarf að
vera á 1. hæð.
3ja herb. góð íb. óskast í vesturborginni, við Eiðistorg eða nágrenni.
Greidd við kaupsamning.
Fjöldi af góðum eignum, sérh., einb. og góðum íb. á skrá í eignaskipt-
um. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga.
• • •
Opiðídag kl. 10-14.
Reyndir sölumenn.
Almenna fasteignasalan sf.
var stof nuð 12. júlf 1944.
ALMENNA
FASTEIGNASALAW
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
t ............-i——— *
Opið hús - Opið hús
Eftirt. eignir eru til sölu, og til sýnis í dag frá kl. 14-16:
Bauganes 39. 3ja herb. Mjög falleg íb. á 1. hæð. (Lísa).
Hjallavegur 14. 4ra herb. mikið endurnýjuð sérhæð.
Óinnréttað ris fylgir. (Svana).
Engihjalli 11, íbúð f1. 4ra herb. íb. á aðeins kr. 5 millj.
Áhv. 2,3 millj. (Margrét).
Hörðaland 8. 4ra herb. íb. á 3. hæð í Fossvogi. (Krist-
leifur og Bjamveig).
Rekagrandi 3. Mjög falleg 4ra herb. íb. á 4. hæð. (Bjarni
og Sigurlaug).
Skipholt 44. Mikið endurnýjuð 3ja herb. íb. á 1. hæð.
(Björgvin og Ólafía).
Sólbraut 11 Seltj. Mjög vandað einbýlishús með bíl-
skúr. (Fjóla).
Grænamýri 2 Seltj. Mjög vandað nýtt einbýlishús ásamt
bílskúr. Fullfrág. utan og innan.
Ársalir - fasteignamiðlun - 624333
----------- J
Ptot0tndþ(nbib
- kjarni málsins!
Leikskólabörn
sungu fyrir
skipstjórann
SKEMMTIFERÐASKIPIÐ
Hanseatic kom fyrir skömmu til
Grundarfjarðar og er þetta í
annað skipti sem slíkt skip kemur
í bæinn. Skipið er frá Þýskalandi
en er skráð í Nassau í Afríku og
er á vegum ferðaskrifstofunnar
Atlantica. Skipið fór frá Grund-
arfirði til Akureyrar, Flestir far-
þegarnir fóru með rútum í skoð-
unarferð til Olafsvíkur, Arnar-
stapa og Búða og voru alþr mjög
ánægðir með ferðina. Börn af
leikskólanum Sólvöllum komu
um borð í skipið í skoðunarferð
og sungu fyrir skipstjórann og
vakti það mikla athygli. Skip-
stjórinn er norskur og heitir
Hartvig Van Harling. Farþegar
um borð eru 141 auk 110 manna
áhafnar.
----♦ » ♦----
Dagskrá á
Þingvöllum
ÞINGVALLAÞJÓÐGARÐUR efnir
til í dag og á morgun til lengri og
skemmri gönguferða, barnasam-
vera og guðsþjónustu.
Á laugardag mun Sigurður G.
Tómasson stjórna gönguferð undir
yfirskriftinni: Mínir Þingvellir. Þann
dag verður bamastund við Þing-
vallakirkju, náttúruskoðunarferð í
nágrenni Oxarárfoss, og ganga um
þinghelgi fyrir enskumælandi fólk.
Á sunnudag verður barnastund
í Hvannagjá og stutt göngufeð um
þinghelgi. Tvær langar gönguferðir
verða þennan dag. Önnur verður
farin í Lambhaga og Vatnskot en
hin í Skógarkot og Vatnskot. Dag-
skrá helgarinnar lýkur með guðs-
þjónustu í Þingvallakirkju.
----*_♦_♦----
Gönguferð í
Héðinsfjörð
Siglufirði - Skipulögð hefur verið
gönguferð yfír í Héðinsfjörð sunnu-
daginn 10. júlí nk. í fylgd leiðsögu-
manna. Áætlað er að leggja af stað
frá dæluskúr í Skútudal kl. 8.
Gengið verður upp Skútudal og
yfir Hólsskarð og niður Ámárdal
en þar mun verða tekið á móti
göngufólkinu og þeim sagt frá at-
hyglisverðri sögu staðarins og
helstu kennileitum. Fólki verður síð-
an boðið upp á siglingu til Siglu-
fjarðar.