Morgunblaðið - 09.07.1994, Síða 11

Morgunblaðið - 09.07.1994, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994 11 Greiðslu- kort til Rúmeníu Búkarest. Reuter. GREIÐSLUKORT hefja inn- reið sína í Rúmeníu í septem- ber, en þá geta útlendingar þar í landi tekið út fé og innt greiðslur af hendi með kredit- kortum. Fimm rúmenskir bankar hafa stofnað greiðslukortafyr- irtæki í samvinnu við Visa Int- ernational og stefnt er að því að Rúmenum gefist kostur á að nota kortin á næsta ári. Keyptur hefur verið nauð- synlegur tölvubúnaður fyrir greiðslumiðlunina og sérfræð- ingar eru nú að tengja bankana fimm við stjórnkerfi Visa Inter- national um gervihnött. Leikfanga- stríð harðnar London. Rcuter. BANDARÍSKA leikfangafyrir- tækið Hasbro hefur hækkað tilboð sitt í hlutabréf breska fyrirtækisins JW Spear & Sons Plc í 16,96 dollara bréfíð. Til- boðið er þá orðið 57,3 milljónir punda eða um sex þúsund millj- ónir króna. Fyrirtækið Mattel, sem er annar leikfangarisi, bauð 52 milljónir punda. Fyrirtækið sem barist er um varð fyrst til að setja á markað hið vinsæla spil Scrabble. Dótt- urfyrirtæki Hasbro á fyrir 26,7% hlut í JW Spear. Fyrir hálfu öðru ári féll Mattel frá milljóna dollara málaferlum gegn Hasbro eftir að síðamefnda fyrirtækið hafði samþykkt að breyta brúðunni Sindy svo að hún líktist síður Barbie-brúðunni sem Mattel hefur hagnast mikið á. Packer eyk- ur umsvif á fjölmiðla- sviðinu Sydney. Reuter. FJ ÖLMIÐLAB ARÓNINN Kerry Packer kveðst ætla að auka kaupgetu sína með því að sameina umsvifin í sjón- varpsrekstri og tímaritaútgáfu í Ástralíu og koma á fót risa- vöxnu fjölmiðlafyrirtæki upp á 2,3 milljarða ástralskra doll- ara. Sérfræðingar segja samein- inguna gefa til kynna að Pac- ker, auðugasti maður Ástralíu, stefni að því að koma á laggirn- ar stórveldi margra fjölmiðla með því að komast yfir fleiri fyrirtæki. Tvö skráð fyrirtæki Packers, Nine Network Australia (NNA) og Australian Consolidated Press (ACP), segja að þau verði sameinuð þannig að Nine muni bjóða í öll hlutabréf ACP að fengnu leyfi hluthafa. í apríl varði Nine Network 318 milljónum ástralskra doll- ara til þess að kaupa 15% hlut í næststærsta símafélagi Ástr- alíu, Optus Communications Pty Ltd. í febrúar keypti Pac- ker hlut í kvikmyndafram- leiðslufyrirtæki í Hollywood, Regency Enterprises. Flugleiðir í samstarfi við indverska auðjöfurinn Ravi Tikkoo Stofna Inclotik Airways til áætlunarflugs á Indkindi FLUGLEIÐIR vinna nú að því í samvinnu við indverskan auðjöfur að stofna flugfélag á Indlandi. Indversk stjórnvöld hafa verið að auka ftjálsræði í farþegaflugi á innanlandsleiðum og hjá þeim liggur nú fyrir umsókn um flugrekstrarleyfi frá félaginu Indotik Airways. Er gert ráð fyrir að umsókn- in fáist fljótlega áfgreidd og að starfsemin geti jafnvel hafíst í október nk. Um verður að ræða áætlunarflug til alls um 11 áfangastaða víða á Ind- landi sem ein Boeing 737-300 og tvær Boeing 757 þotur munu sinna. Ind- verski fjármálamaðurinn Ravi Tikkoo sem hefur sjálfur bækistöðvar í Lond- on, fjármagnar fyrirtækið en Flugleiðir leggja að öðru leyti til alla þekkingu á sviði flugrekstrar, viðhalds og stjórnunar. Að auki stendur Flugleiðum til boða 25% hlutur í Indotik Airways. Ravi Tikkoo hefur verið talinn auðugasti Indveijinn sem búsettur er í Bretlandi. Fyrirtækjasamsteypa hans var til skamms tíma skráð á Bahama og hann átti á árum áður alls 12 skip, þar af tvö olíutankskip sem töldust hin stærstu í heiminum. Tikkoo hefur sagt að hann sé að draga sig út úr skipaútgerð vegna þess að synir hans tveir séu að taka við stjórnartaumunum í Tikkoo-sam- steypunni og þeir hafi ekki áhuga á útgerð. Eldri sonurinn, sem er þrítug- ur verður forstjóri Indotik Airways. Tikkoo ætlar sér stóra hluti á Ind- landi og hyggst fjárfesta þar veru- lega — í ferðaþjónustu, í flugrekstri í samvinnu við Flugleiðir, í bjórfram- leiðslu í samvinnu við þýsku Holsten- verksmiðjurnar, í orkuveitum og í sjávarútvegi, en þar er Tikkoo í sam- vinnu við Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna um að byggja upp vinnslu og veiðar á túnfíski. Indland er um þess- ar mundir talið það hagkerfi heims sem er í hvað örustum vexti næst á eftir Kína. Að sögn Péturs Eiríkssonar, fram- kvæmdastjóra markaðssviðs Flug- leiða, sem aðallega hefur unnið að málinu af hálfu Flugleiða, komst á samband milli Ravi Tikkoo og ís- Framfærslukostnaður Framfærsluvísitalan í júh 1994 (i?o,4) Ferðir og flutningar (18,6) Húsnæði, rafmagn og hiti (18,5) Matvörur(17,1) Tómstundaiðkun og menntun (11,5) Húsgögn og heimilisbún. (6,8) Föt og skófatnaður (6,3) Drykkjarvömr og tóbak (4,3) Heilsuvernd (2,5) Aðrar vörur og þjónusta (14,3) FRAMFÆRSLUVÍSITALAN Kartöflur og ávísanir hækka vísitöluna VÍSITALA framfærslukostnaðar hefur hækkað um 0,2% frá því í júní. 50% verðhækkun á kartöflum og 217,3% hækkun á kostnaði vegna notkunar á ávísunum valda mestu um hækkunina. Samkvæmt __ fréttatilkynningu frá Hagstofu Islands varð hækk- unin á kartöflunum til þess að framfærsluvísitalan hækkaði um 0,1% og hækkunin á ávísunum Kísiliðjan olli 0,06% hækkun. Síðastliðna 12 mánuði hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um 1,6% og vísitala vöru ogþjónustu um 1,8%. Undanfarna þijá mánuði hefur framfærsluvísi- talan hækkað um 0,3%, sem jafn- gildir 1,2% verðbólgu á ári. Sam- bærileg þriggja mánaða breyting á vísitölu vöru og þjónustu svarar til 0,2% verðbólgu á ári. Ýmsir fjárfesting- arkostir kannaðir „HUGMYNDIR um að Kísiliðjan kæmi með einhveijum hætti inn í rekstur saltverksmiðjunnar eru að- eins eitt af mörgu sem stjórn Kísil- iðjunnar hefur hugleitt,“ segir Pét- ur Torfason, stjórnarformaður Kísiliðjunnar. Eins og skýrt var frá í Morgun- blaðinu í gær hefur Hitaveita Suð- urnesja keypt eignir og vinnsluleyfí íslenska saltfélagsins hf. og móður- félags þess, Saga Food Ingredients, á Reykjanesi. Hitaveitan mun leita kaupenda að afurðum fyrirtækisins og jafnvel verksmiðjunni sjálfri. Pétur Torfason sagði að fyrir nokkrum árum hefði lögum um Kísiliðjuna verið breytt og henni heimilað að fjárfesta í öðrum fyrir- tækjum. „Við höfum ekki nýtt þessa heim- ild, en höfum fylgst með ýmsum möguleikum og hugmyndin um að koma inn í rekstur saltverksmiðj- unnar kom upp á stjórnarfundi í lok síðasta mánaðar, þegar vitað var að verksmiðjan var gjaldþrota. Þetta er aðeins eitt af rnörgu sem komið hefur til tals, en við eigum ekki í neinum viðræðum." Sigurður Pétur J. Helgason Eiríksson lensku aðilanna, Flugleiða og Sölu- miðstöðvarinnar, fyrir tilstilli Ham- bros-bankans breska. Pétur segir að í reynd séu Flugleiðir að aðstoða indverska samstarfsaðilann við að byggja upp flugfélag frá grunni. Nokkur erlend flugfélög hafa verið að freista þess að ná fótfestu á Ind- landi samfara auknu fijálsræði í flugmálum en fæst eru komin jafn langt og Flugleiðir í því efni. Pétur Eiríksson segir einnig að Flugleiðir hafí lagt í miklá vinnu vegna áætl- anagerðar og gagnaöflunar fyrir umsóknina um flugrekstrarleyfið. í þessum athugunum hafí komið fram að indverski markaðurinn með alls um 900 milljónir íbúa sé mjög álitieg- ur. Þar sé mikill uppgangur á flestum sviðum, og þrátt fyrir mikla fátækt víða séu þeir landsmenn sem vel eru efnum búnir álíka fjölmennir og íbú- ar Bretlands. Innra skipulag í sam- göngumálum sé allgott og góða flug- velli víða að fínna en engu að síður anni samgöngukerfið engan veginn mannfjöldanum. Þannig séu til að mynda lestir á Indlandi með yfir 100% nýtingu vegna þess að farþeg- arnir hangi utan á lestunum að leið milli staða. Að sögn Sigurðar Helgasonar, for- stjóra Flugleiða, eru ástæðurnar sem Ravi Tikkoo gefur upp fyrir vali á Flugleiðum sem samstarfsaðila ekki síst þær að gott orð fer af félaginu í öryggismálum, það sé fánaberinn í íslenskum flugmálum, einkarekið og nógu smátt í sniðum til að vera mjög sveigjanlegt og snart í snúning- um. Sigurður segir að stjórn Flug- leiða hafí ekki enn sem komið er tekið afstöðu til þess hvort félagið muni eignast hlut í Indotik Airways og það verði vart gert fyrr en af- greiðsla flugrekstrarleyfisins liggur fyrir. Flugleiðir hafí þegar verið í sambandi við kaupleigufyrirtæki sem sérhæfi sig á flugvélamarkaði. Nóg framboð sé af Boeing 757 en farið að þrengjast um 737 vélarnar, þótt fullvíst sé talið að slík vél fáist. Fjölmiðlar Félag stofnað um meirihlutann íStöð 2 HLUTAFÉ það, sem Siguijón Sig- hvatsson keypti í íslenska útvarps- félaginu hf., hefur nú verið skráð á hans nafn. Meirihlutinn í félaginu áætlar að stofna félag um hlutafjár- eign sína. Hlutafé það, sem Sigurjón keypti, var til skamms tíma skráð á nafn verðbréfafyrirtækjanna sem sáu um söluna. Nú er allt hlutafé Siguijóns skráð á hans nafn, alls rúmar 103 milljónir og 894 þúsund krónur og er eignarhlutur Siguijóns um 18%. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er Siguijón væntanlégur hingað til lands í lok júlí. Þá áætlar nýr meirihluti að funda um framhald- ið, en til stendur að stofnað verði félag, sem skráð verður fyrir hluta- fjáreign meirihlutans. Sýning Þjóöminjasafns Islands og Þjóðskjalasafns (slands í Aðalstræti 6 við Ingólfstorg í tilefni af 50 ára afmæli íslenska lýðveldisins. Munir, skjöl og myndir. Sýningarskrá. Kaffistofa. Leiðsögn sunnudag kl. 14.00 og 15.30. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11.00-17.00. T FTRTN TTT Xji jXi-A JLJL N X iJL LÝÐVELDIS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.