Morgunblaðið - 09.07.1994, Side 14

Morgunblaðið - 09.07.1994, Side 14
14 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Reuter Minnisvarði um Tsjerno- byl-slysið MINNISVARÐI um fómarlömb kjarnorkuslyssins í Tsjernobyl í apríl 1986 var afhjúpaður í kirkju- íjarði í Moskvu í gær. Yfirvöld í Ukraínu segja að 8.000 manns hafi beðið bana vegna sprenging- ar og elds í lqamorkuverinu og á myndinni standa foreldrar eins fórnarlambsins við grafreit þess. Búist er við að leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims samþykki á fundi sínum í Napólí að veita Úkraínu- mönnum efnahagsaðstoð, einkum til að gera þeim kleift að loka Tsjemobyl-verinu. Norrænt sam- starf einnig innan ESB Helsinki. Morgunblaðið. BREYTINGAR eru fyrirsjáanlegar í samstarfí Norðurlandaþjóða ef Svíar, Norðmenn og Finnar gerast aðilar að Evrópusambandinu (ESB) um næstu áramót. Hins vegar mun samstarf þjóðanna verða áfram mjög náið. Þetta var niðurstaða sumarfund- ar forsætisráðherra Norðurlanda sem lauk í Kerimáki í Austur-Finn- landi í gær. Fundurinn sem var haldinn undir stjóm Davíðs Odds- sonar forsætisráðherra ákvað að skoða stöðu norrænnar samvinnu á nýjan leik eftir næstu áramót þegar ljóst verður hvaða þjóðir verða aðil- ar að ESB. Þar sem sumarfundir forsætis- ráðherranna em jafnan fremur óformlegir vom engar formlegar yfirlýsingar gefnar út að þessum fundi loknum. Á dagskránni var meðal annars ópemsýning í miðald- arkastalanum Olavinlinna (sæ. Olofsborg) í borginni Savonlinna (Nyslott). Er þar haldin mikil ópem- hátíð á hveiju sumri. Náið samstarf innan ESB Forsætisráðherrar þeirra fjögurra Norðurlandaþjóða sem væntanlega verða í ESB frá byijun næsta árs sögðust stefna að því að samstarf þeirra á milli yrði einnig náið innan ESB. Búast mætti við myndun sér- stakrar norrænnar fylkingar innan sambandsins. Esko Aho, forsætisráðherra Finna, og Carl Bildt, forsætisráð- herra Svía, ítrekuðu á fréttamanna- fundi ráðherranna í gær að sam- starfíð yrði náið. Davíð Oddsson forsætisráðherra skýrði á fundinum frá afstöðu ís- lendinga til ESB-aðildar. Að sögn Davíðs er aðild íslendinga ekki tíma- bær næstu árin á meðan fískveiði- stefna ESB er óbreytt. Staða norrænnar samvinnu í heild var einnig rædd. Forsætisráðherr- amir vom þeirrar skoðunar að nú bæri að endurmeta starf Norður- landaráðs, þ.e. samstarf þingmanna á Norðurlöndum. Núverandi sam- starf ríkisstjóma sé aftur á móti gott. Rússar frá Eystrasaltsríkjum Forsætisráðherrarnir áréttuðu einnig kröfu sína um brottför rúss- neskra hersveita úr Eistlandi og Lettlandi. Standa bæri við samning- inn um brottflutninginn og honum mætti ekki fresta. Samningurinn kveður á um að allir rússneskir her- menn verði farnir frá Eystrasalts- ríkjunum fyrir lok næsta mánaðar. Oftast var létt yfir leiðtogunum á sumarfundinum en alvarleg mál bar þó á góma, svo sem deilur um fiskveiðimál. Á fimmtudagskvöld veiddu þau Davíð Oddsson, Gro Harlem Brandt- land, Esko Aho, Carl Bildt og Poul Nyrap Rasmussen fisk með ádrátt- ameti í Puruvesivatninu. Aflinn reyndist hins vegar lítill, aðeins fjór- ir smáfiskar. Li Peng móðgaði þýsku gestgjafana Bonn. Reuter. ÞÝSKA dagblaðið General-Anz- eiger sagði í gær að skyndilegar brejrtingar Lis Pengs, forsætis- ráðherra Kína, á ferðatilhögun sinni, þegar hann hætti við að hitta borgarstjóra Berlínar við Brandenburgarhliðið og batt skyndilega enda á heimsókn til Weimar, hefði verið móðgun við Þjóðveija. Blaðið Bild sagði í fyr- irsögn: „Li Peng, móðgaði Kín- veijinn." Talsmaður Heluts Kohls, kanslara, sagði að stjómin hefði ekki áhyggjur vegna mót- mælaaðgerðanna sem urðu til þess að Li breytti ferðatilhögun sinni, og liti stjómin svo á að heimsókn hans hefði verið árang- ursrík. Ekkert væri við mótmæla- aðgerðir að athuga í löndum eins og Þýskalandi, en í Kína væri annað uppi á teningnum, og þess vegna hefði Li móðgast. Þýskir leiðtogar tóku Li og viðskiptasendinefnd hans opnum örmum, og heimsóknin hefur skilað 3,5 milljarða dollara samn- ingum og viljayfirlýsingum um viðskipti við þýsk fyrirtæki. Sumarferð Landsmálafélagsins Varðar 16. júu í veiðivðtn Varðarferðin verður farin laugardaginn 16. júlí nk. Lagt verður af stað frá Valhöll v/Háa- leitisbraut kl. 8.00. Áð verður í Þjórsárdal um morguninn en síðan ekið í Veiðivötn. Síðdegis verður svo komið við í Galtalæk. Áætlaður komutími til Reykjavíkur er kl. 19.00. Davíð Oddsson, forsætisráðherra flytur ávarp. Aðalfararstjóri er Kristján Sæmundsson, jarðfræðingur. Miðasala og pantair í Valhöll mánudaginn 11. júlí til miðvikudagsins 13. júlí milli kl. 8.00 og 16.00 en fimmtudaginn 14. og föstudaginn 15. júlí frá kl. 8.00 til 18.00. Sími 682900. Nauðsynlegt er að kaupa miða fyrirfram. Athugið að þátttakendur hafi með sér nesti. Allir velkomnir. Ferdanefnd Varðar i Danir íhug’a framboð Ellemann Schltiter DANSKA stjórnin sagðist í gær hafa eigin frambjóðanda í embætti forseta fram- kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins og sagðist ihuga hvort bjóða ætti hann fram til að flýta leitinni að eftirmanni Jaques Delors. Neituðu Danir hins vegar að gefa upp hver það væri. Tveir Danir hafa þó þegar verið nefndir í tengslum við stöðuna; Poul Schluter, fyrrverandi forsætisráðherra, og Uffe Ellemann-Jensen, fyrrum utanríkisráðherra. Schneider lætur í sér heyra TALSMAÐUR embætttis sak- sóknara í Frankfurt sagði í gær að lögmaður, sem talinn væri löglegur fulltrúi Jiirgens Schneiders, hins landflótta þýska byggingajöfurs, hefði haft samband við embættið. Lögmaðurinn gaf ekki upp hvar Schneider væri niður- kominn en hann flúði land vegna ásakana um stórfellt fjármálamisferli. Talsmaður saksóknara neitaði að gefa nánari upplýsingar um erindi lögmannsins. Claes viðrið- inn spillingu HART er nú deilt í belgískri þingnefnd um hvort leyfa eigi yfirheyrslur yfir þremur hátt- settum stjórnmálamönnum vegna ásakana um ólöglegar greiðslur til stjórnmálaflokka. Einn þremenninganna er Willy Claes, utanríkisráðherra landsins. Grikkir og Albanir deila GRIKKIR sökuðu Albani í gær um að hafa sent vopnaða sveit yfír landamæri landanna og sært grískan hermann í skot- bardaga. Albanir sögðu hins vegar að Grikkir hefði farið yfir landamærin til Albaníu. Hafa Grikkir reynt að gera sem minnst úr þessu atviki en það þykir til marks um stirð samskipti ríkjanna, en árið 1987 var bundinn endi á stríð landanna sem staðið hafði frá því í heimsstyijöldinni síðari. Frönskubann fellt ÞINGHEIMUR í Bretlandi hefur fellt frumvarp þess efnis að bannað verði að nota frönsk orð þar í landi. Anthony Steen, sem lagði frumvarpið fram, var ef til vill ekki svo mikií alvara með því, en vildi meina að lögin ættu að vera hefnd fyrir bann, sem Frakkar lögðu við notkun á enskum orðum í Frakklandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.