Morgunblaðið - 09.07.1994, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994 17
AÐSEIMDAR GREINAR
Við gerum okkar
besta - en...
HEIMSMEISTARAKEPPNIN í
handknattleik verður haldin á ís-
landi dagana 8.-21. maí á næsta
ári. Lokaundirbúningur okkar
landsliðsmanna undir keppnina er
þegar hafinn og það er ljóst að ís-
lenskt landslið hefur aldrei fengið
betri undirbúning fyrir stórkeppni
en nú. Við verðum við æfingar 87
daga fram að HM 95 og leikum
ijölda æfingaleikja. Það er því sam-
stilltur hópur sem nú vinnur mark-
visst að því undir stjórn þeirra Þor-
bergs og Einars að veija heiður
íslands í HM 95 og við ætlum að
gera okkar besta — það er víst.
En það er eitt atriði sem nú er
okkur ofar í huga en flest annað
þegar HM 95 nálgast svo hratt. Það
er sú umgjörð sem þessari keppni
er búin af okkur íslendingum hvað
varðar húsakost og annan viður-
gjörning. Margir okkar hafa tals-
verða reynslu erlend-
is frá í stórkeppnum
á borð við heims-
meistarakeppni og
Ólympíuleika auk
þess að hafa stundað
atvinnumennsku í
Evrópu í áraraðir.
Handknattleikur er
vaxandi íþrótt í öllum
heimsálfum og augu
hundraða milljóna
áhugamanna munu
mæna á ísland dag-
ana sem keppnin fer
fram. í því sambandi
nefna tvennt.
Besta (versta?) landkynning
sem Island hefur fengið
í áraraðir?
Miðað við þann húsakost sem nú
er fyrir hendi er ljóst að ef hýsa á
er vert
Athugasemd
umsilfursjóð
ÞAR SEM nokkur
skrif hafa verið í
Morgunblaðinu varð-
andi rannsóknir á silf-
ursjóðnum frá Miðhús-
um og þar komið fram
villandi ummæli um
þátt undirritaðs í mál-
inu óska ég eftir því
að Morgunblaðið birti
eftirfarandi athuga-
semd:
Þegar niðurstöur
rannsókna á silfursjóði
frá Miðhúsum, leiddu
í ljós að rökstuddur
grunur léki á um að
sá hluti sjóðsins sem
eru smíðisgripir væri
Ólafur Ásgeirsson
síðari tíma
smíð, tilkynnti ég fyrir hönd þjóð-
minjaráðs, stjórnarnefndar Þjóð-
Það er embættisskylda
formanns þjóðminjaráðs
að fjalla um málefni
Þjóðminjasafns, segir
Olafur Asgeirsson, og
telur að undan henni
verði ekki vikist, þótt
einstök mál séu honum
eigi að skapi.
minjasafnsins, menntamálaráðu-
neyti bréflega um málið og lagði
fram skýrslu Graham-Campbells
prófessors. Óskaði ég eftir því að
málið yrði rannsakað nánar, eins
og m.a. er lagt til i skýrslunni
sjálfri. Menntamálaráðuneytið
svaraði þessu erindi og var málið
afgreitt á næsta fundi þjóðminja-
ráðs, sem jafnframt var síðasti
fundur þess á starfstímabili. Þjóð-
minjaráð lagði einróma til að rann-
sóknum yrði haldið áfram. Þjóð-
minjavörður fylgdist með rannsókn
dr. Graham-Campbells og var hann
sammála niðurstöðu þjóðminjaráðs
um afgreiðslu málsins. Enginn
ágreiningur er því uppi milli þjóð-
minjaráðs og þjóðminjavarðar um
meðferð málsins.
Það má ljóst vera að skylt er
stjórnarformanni að greina ráðu-
neyti frá máli sem
þessu sérstaklega, en
mergurinn málsins er
að íslenska þjóðin á
heimtingu á því að vita
fyrir víst hvort í Þjóð-
minjasafni liggi merkir
forngripir eða síðari
tíma eftirlíkingar.
Rannsókn á þessum
þætti málsins er ekki
lokið og því of snemmt
að ræða um niðurstöð-
ur þeirra. Ég hef ekk-
ert frekara um málið
sagt í fjölmiðlum til
þessa.
Ég hef ekki átt
frumkvæði að umræðum um málið
í fjölmiðlum en það hefur verið
lengi í athugun í Þjóðminjasafni,
án þess að um það hafi verið fjall-
að í fréttum.
Ég hef ekki, hvorki í ræðu né
riti vænt einn eða neinn um
óheiðarleika í málinu. Þaðan af síð-
ur kastar rýrð á minningu dr. Krist-
jáns Eldjárns hvorki sem fræði-
manns né forseta. Og mótmæli öll-
um ásökunum um að vilja varpa
skugga á fræðimannsheiður hins
látna forseta og fyrrum þjóðminja-
varðar. Dr. Kristján Eldjárn gerði
ekki sérstaka rannsókn á silfur-
sjóðnum á sínum tíma, en hann
kannaði fundarstað ásamt þjóð-
minjaverði.
Framhaldsrannsóknir á forn-
gripum munu halda áfram í fram-
tíðinni og endurskoðaðar verða til-
gátur og niðurstöður samtíðar-
manna okkar, það er eðli vísinda.
Nýjar niðurstöður eru alls ekki
dómur um vanhæfni fyrri rannsak-
enda. Ekki varpar það rýrð á afrek
Kólumbusar að hann taldi sig hafa
siglt til Indlands, en reyndist eftir
frekari rannsóknir hafa fundið
Ameríku. í starfi mínu sem formað-
ur þjóðminjaráðs hef ég átt ágætt
samstarf við starfsfólk Þjóðminja-
safnsins og ekki staðið í deilum við
það, þótt oft hafi fallið í minn hlut
að setja niður ágreining manna á
milli. Það er embættisskylda for-
manns þjóðminjaráðs að fjalla um
málefni Þjóðminjasafns hver sem
þau eru. Undan henni verður ekki
vikið þótt einstök mál séu eigi hon-
um að skapi.
Höfundur er þjódskjalavörður.
6-700 fremstu hand-
knattleiksblaðamenn
í heimi svo vel sé
þarf verulega að taka
til hendinni ef ekki á
illa að fara í umfjöll-
un um keppnina um
víða veröld. Þá er það
með ólíkindum að af
þeim 4.200 sem við-
staddir verða leiki
íslands og úrslitaleiki
keppninnar skuli
2.200 manns þurfa
að standa upp á ann-
an endann. Þetta er fáheyrt í nú-
tíma íþróttahúsum — hvað þá ef
viðkomandi bygging á að mynda
ramma utan um heimsmeistara-
keppni í ólympíuíþrótt. Það læðist
að okkur sá grunur að margir hafi
ekki áttað sig á stærðargráðunni í
þessu sambandi og að hér sé í upp-
siglingu nýtt íslenskt Þingvalla-
ævintýri í stjórnun á fjölmennum
mannamótum. Munurinn er bara
sá að nú mun heimspressan fylgj-
ast með af miklum áhuga og þar
mun ráðast hvort íslendingar eigi
sér framtíð á sviði víðtækrar ferða-
þjónustu og sem skipuleggjendur
almennt.
Hver eru markmið
okkar á HM 95?
íslendingar hafa staðið sig alveg
bærilega í handknattleik hingað til.
Þegar vel hefur gengið erum við
hetjur — á sama hátt erum við
skúrkar þegar illa gengur. HM 95
er hápunkturinn á ferli okkar allra.
Við leggjum allt undir til að ná
hámarksárangri frammi fyrir ís-
lenskum áhorfendum sem eru þeir
bestu í öllum handboltaheiminum
og við getum farið alla leið með
stuðningi ykkar.
Við höfum allir átt ógleymanleg-
ar stundir í Laugardalshöllinni og
margir af sætustu sigrum íslenska
Það er einróma hvatn-
ing landsliðsmanna í
handknattleik til yfir-
valda að þau taki af
skarið og byggi stóra
íþróttahöll í Laugar-
dalnum með sæti fyrir
7.000 manns.
landsliðsins hafa einmitt verið þar.
Hins vegar verður að viðurkennast
að þessi 30 ára gamla bygging er
barn síns tíma og á engan hátt
samboðin þeirri reisn sem við viljum
að íslenskur handknattleikur standi
fyrir. _
HSÍ hefur verið á mikilli uppleið
undanfarin misseri, bæði fjárhags-
lega og skipulagslega, og það er-
gróska í íslenskum handknattleik.
Undirbúningur HM 95 hefur verið
erfiður og nú hefur helstu hindrun-
um verið rutt úr veginum og mark-
viss undirbúningur okkar vekur
vonir íslendinga um toppárangur
hér á heimvelli. Eins og áður segir
munum við gera okkar besta. Það
er hins vegar alveg ljóst að ef
heimavöllurinn á að nýtast okkur
þá er talsverður munur á því að
leika um mikilvæg úrslitasæti með
5.000 eldheita stuðningsmenn
hvetjandi okkur til dáða eða örfá
standandi hundruð.
Það er því einróma hvatning okk-
ar til yfirvalda að þau taki af skar-
ið og byggi stóra íþróttahöll í Laug-
ardalnum með sæti fyrir um 7.000
manns og með beina tengingu við
Laugardalshöllina sem einnig nýtist
í HM sem blaðamannamiðstöð og
veitingasala og styrkir þar með
markmið HM 95 sem fjölskylduhá-
tíð og veisla fyrir hinn almenna
íslending en ekki einhveija forrétt-
indahópa.
Okkur skilst að innan örfárra ára
eigi að rísa í Laugardalnum yfir-
byggður knattspyrnuvöllur sem
standa eigi í heila öld. Þá spyijum
við: Hvers vegna í ósköpunum má
ekki byggja þessa höll strax þannig
að hún nýtist okkur í HM 95 og
verður allri íþróttahreyfingunni —
og ferðaþjónustunni — til heilla
næstu áratugina? Ef litið er á mál-
in í framtíðarsamhengi þá skiptir
tæpast nokkru þótt byijað sé að
afskrifa þessa byggingu tveimur
árum fyrr eða síðar.
íslendingar, stöndum nú saman
um að HM 95 verði sem glæsileg-
ust og að það berist til eyrna að
við séum þess megnugir að halda
hér stórviðburð í íþróttum á heims-
vísu og reisum þetta margumtalaða
hús. Þá getum við líka auðveldlega
gert okkar besta. t
Áfram ísland!
Bergsveinn Bergsveinsson,
Bjarki Sigurðsson,
Bjarni Frostason,
Dagur Sigurðsson,
Einar Gunnar Sigurðsson,
Geir Sveinsson,
Guðmundur Hrafnkelsson,
Gunnar Beinteinsson,
Gústaf Bjarnason,
Halldór Ingólfsson,
Héðinn Gilsson,
Jón Kristjánson,
Júlíus Jónasson,
Konráð Olavsson,
Ólafur Stefánsson,
Patrekur Jóhannesson,
Róbert Sighvatsson,
Sigurður Sveinsson,
Valdimar Grímsson.
Verslunareigendur ath.
Fjölbreytt úrval innréttinga
fyrir allar tegundir
verslana.
m
Búðarinnréttingarnar
fást hjá okkur.
Fay#<ei(Ks/a ! 60 ár
HEOFNASMWJAM
Háteigsvegi 7 simi 21220.
Auglýsing um
starfsleyfistillögur skv. gr. 70
í mengunarvarnareglugerð nr. 48/1994
í samræmi við gr. 70 ofangreindrar reglugerðar liggja frammi til kynningar hjá upplýsinga-
þjónustunni (1. hæð) í Ráðhúsi Reykjavíkur, frá mánudeginum 11. júlí nk., starfsleyfistillög-
ur fyrir eftirtalin fyrirtæki:
Flugmálastjórn Reykjavíkurflugvelli, trésmíðaverkstæði,
Hestaspítalinn Víðidal, dýraspítali,
Dýraland sf., gæludýraverslun,
J.H. sandsala,
Bónglaðir hf., bón- og þvottastöð,
Hugskot hf., Ijósmyndastofa,
Prentrás sf., framleiðsla prentrása,
Rafmagnsveita ríkisins, rafmagnsverkstæði,
Haraldur Hannesson sf., rafvélaverkstæði,
ísmar hf., framleiðsla hleðslutækja,
Örfirisey hf., rafeindaverkstæði,
Rafeindaiðjan, rafeindaverkstæði,
Volti hf., rafvélaverkstæði,
Rafvélaverkstæði Sveins Viðars,
Papco hf., pappírsvöruiðnaður,
Reykjavíkurflugvelli, 105 Rvík.
Faxabóli 3,110 Rvík.
Þönglabakka 6,109 Rvík.
Smiðshöfða 19,112 Rvík.
Ármúla 32,108 Rvík.
Nethyl 2,110 Rvík.
Smiðshöfða 10,112 Rvík.
Smiðshöfða 6,112 Rvík.
Súðarvogi 52,104 Rvík.
Síðumúla 37,108 Rvík.
Eyjarslóð9,101 Rvík.
Tangarhöfða 2,112 Rvík.
Vatnagörðum 10,104 Rvík.
Síðumúla 25,108 Rvík.
Stórhöfða 42,112 Rvík.
Rétt til að gera athugasemdir hafa eftirtaldir aðilar:
1. Sá, sem sótt hefur um starfsleyfi, svo og forsvarsmenn og starfsmenn tengdrar
eða nálægrar starfssemi.
2. íbúar þess svæðis, sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum vegna mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir, sem málið varðar.
Athugasemdir, ef gerðar eru, skulu vera skriflegar og sendast Heilbrigðisnefnd
Reykjavíkur, Drápuhlíð 14, 105 Reykjavík, fyrir 9. ágúst nk.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.